Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2010, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2010, Side 3
mánudagur 15. nóvember 2010 fréttir 3 „Ég bjóst ekki við þessu. Ég hafði unnið hjá þessu fyrirtæki í rúm sjö ár, ég sótti mína vinnu og vann vel,“ segir Hasim Ægir Kahn sem stend- ur nú í deilum við Hreinsibíla ehf. vegna veikindalauna og annarra vangoldinna launa. Mál hans er nú í vinnslu hjá stéttarfélaginu Eflingu. Litu svo á að hann hefði sagt upp Hasim var ættleiddur frá Indlandi 12 ára gamall. Hann hafði starfað hjá Hreinsibílum í sjö ár og líkað vel. Fljótlega eftir hrun var honum sagt upp þar sem skera þurfti niður í fyr- irtækinu en var svo ráðinn inn aftur um það bil ári seinna. Í lok sumars lenti hann í umferðaróhappi í vinn- unni en bíll sem hann var farþegi í lenti upp á vegkanti og við það kom högg undir bílinn. Við það fékk Has- im á sig högg sem leiddi til axlar- og hálsmeiðsla. „Ég fann ekki fyr- ir þessu til að byrja með en fór svo að finna fyrir verkjum og hringdi og tilkynnti mig veikan,“ útskýrir hann. Mánuði síðar fékk hann bréf frá Hreinsibílum þess efnis að þar sem hann hefði ekki mætt í vinnu eða látið vita af sér, litu þeir svo á að hann hefði sagt upp starfinu. „Ég varð skiljanlega mjög hissa og reiður og reyndi að hafa samband við fyr- irtækið en þeir svöruðu mér ekki,“ segir hann. Í kjölfarið leitaði hann til Eflingar sem er með málið í sín- um höndum. Hasim segir fyrirtæk- inu hafa verið fullkunnugt um slysið og veikindi hans þar sem hann hafi framvísað öllum gögnum varðandi slysið og læknisvottorði sem sýndu fram á að hann væri óvinnufær. „Ég sendi alla reikninga og læknisvott- orð til Hreinsibíla en fékk aldrei svör. Ég reyndi að hringja og fór jafnvel til að hitta þá, en allt kom fyrir ekki,“ segir hann. Efling hefur sent þrjár greiðslu- áskoranir Efling sendi bréf þar sem þess er krafist að Hreinsibílar greiði hon- um laun auk sjúkrakostnaðar vegna slyssins. Tólf dögum síðar barst Efl- ingu bréf frá fyrirtækinu þar sem segir að því hafi loks borist gögn Hasims og í ljósi þess muni fyrir- tækið standa við skuldbindingar sínar og greiða honum veikinda- laun, auk kostnaðar í samræmi við framlagðar kvittanir fyrir vottorð- um og sjúkraþjálfun. Einnig að bú- ist sé við að Hasim snúi til starfa sem fyrst. Aldrei bárust þessar greiðslur en Efling hefur sent þrjár greiðslu- áskoranir til Hreinsibíla eftir þetta. Blaðamaður er með afrit af bréfun- um þessu til staðfestingar. Hótanir sem ekki er hægt að sanna Hasim segir að sér hafi fyrir nokkru borist símtal frá fyrrverandi sam- starfsmanni þar sem hann var ein- dregið hvattur til að draga málið til baka. Sagði hann að yfirmennirnir hefðu vitneskju um að Hasim hefði unnið svart og ætluðu að nota það gegn honum. Gísli Jökull Gíslason, lögreglu- maður og vinur Hasims, segir hann heiðarlegan og vel gerðan. Hann neiti því ekki að hafa unnið svart en það komi þessu máli og bótarétti hans ekki við. Kvöld eitt hafi birst maður heima hjá Hasim og sagði honum að draga málið til baka ann- ars myndi hann og fjölskylda hans hljóta verra af. Hasim getur ekki sannað þetta og hefur því ekki kært það til lögreglu. Hasim viðurkennir að hafa á stundum viljað gefast upp og senda fyrirtækinu uppsagnarbréf. En bæði Gísli Jökull og starfsmenn Eflingar hafa ráðlagt honum frá því. Ef hann segir sjálfur upp líða tveir mánuðir þar til hann á rétt á atvinnuleysis- bótum. Á inni sjö mánaða laun Orri Hlöðversson, framkvæmda- stjóri Frumherja, vildi ekki tjá sig um málið og sagði fyrirtækið ekki telja það góða reglu að tala um málefni einstakra starfsmanna í fjölmiðlum. Hann sagði þó að þetta tiltekna mál væri í eðlilegum farvegi, þeir væru í samskiptum við verkalýðsfélagið og lögmann Hasims. Þeir vonuðust til að niðurstaða næðist sem fyrst. Guðrún Óladóttir, hjá Eflingu, telur réttinn vera Hasims megin og ef ekki finnist lausn muni málið enda í dómi. Eins og staðan sé nú eigi Hasim inni sjö mánaða laun sem Hreinsibílum beri að borga. Hún segir mál hans því miður ekki vera einsdæmi og að fólk sem lend- ir í svipaðri stöðu geti lent í gati en á meðan unnið sé í málinu á fólk ekki rétt á bótum og fær ekki launin sín. „Ég veit ekki hversu lengi ég þarf að bíða“ „Ég bjóst ekki við að þetta yrði svona flókið. Það er dýrt að fara til læknis og sjúkraþjálfara en ég verð að gera það. Það er bara erfitt þegar mað- ur fær engin laun og engar bætur. Ég veit ekki hversu lengi ég þarf að bíða,“ segir Hasim sem á eiginkonu og tvö börn. Hann hefur fengið lán frá sveitarfélagi sínu til að greiða húsaleigu þar sem hann hefur ekki fengið laun síðan í ágúst og á ekki rétt á bótum á meðan málið er í vinnslu. gunnHiLdur stEinarsdóttir blaðamaður skrifar: gunnhildur@dv.is Lenti í slysi Hasim ÆgirKhanásamt fjölskyldusinni. mynd sigtryggur ari Starfsmaður Hreinsibíla, dótturfyrirtækis Frumherja, fær ekki greidd veikindalaun eftir vinnuslys. Hann á ekki rétt á bótum á meðan mál hans er í vinnslu. Efling hef- ur ítrekað sent fyrirtækinu greiðsluáskorun en málið gæti endað fyrir dómi. Fram- kvæmdastjóri Frumherja vill ekki tjá sig um mál einstakra starfsmanna. Berst fyrir Bótum Ég varð skiljanlega mjög hissa og reiður og reyndi að hafa samband við fyrirtækið en þeir svöruðu mér ekki. hugsanlegt er að verði höfðuð gegn fyrri eigendum og stjórnendum Mil- estone á næstunni. óvíst hvað verður Ef skiptastjóri Milestone fær Aurláka- viðskiptunum rift fyrir dómi mun Lyf og heilsa fara aftur inn í bú félags- ins og væntanlega verða selt hæst- bjóðanda. Ljóst er að ekki ætti að vera mikið mál að selja Lyf og heilsu enda bera rekstrartölurnar 2008 og 2009 það með sér að félagið er í fín- um rekstri þrátt fyrir hrun og kreppu. Þá gæti hins vegar tekið við skoð- un á því hvernig Lyfjum og heilsu var stýrt eftir að lyfjabúðirnar fóru inn í Aurláka og þar til sölunni á Lyfjum og heilsu inn í Aurláka var rift. Meðal þess sem gæti hugsanlega komið til skoðunar í kjölfarið eru arðgreiðslur út úr félaginu til Aurláka eftir að sal- an fór fram því ef salan á Lyfjum og heilsu var ekki lögmæt þá hljóta þau viðskipti Aurláka sem fram fóru eft- ir söluna til félagsins einnig að vera óréttlætanleg og jafnvel riftanleg. Hugsanlegt er að kröfuhafar Miles- tone muni þá gera kröfu um að arð- greiðslan til Aurláka gangi einnig til baka inn í bú Milestone. fÉKK 389 miLLJóNA ArÐ frÁ LyfJum OG HeiLsu arðurinn til bankans SamkvæmtþvísemKarl Wernerssonsegirfór arðurinnfráLyfjumog heilsutilAurlákaogþaðan uppískuldirfélagsinsvið Íslandsbanka.Steingrímur WernerssonáLyfogheilsu meðbróðursínum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.