Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2010, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2010, Síða 4
„Ég er fyrst og fremst alveg rosa- lega hissa,“ segir Arnþrúður Karls- dóttir, útvarpsstjóri á Útvarpi Sögu. Hún fletti yfir núýtkomna ævisögu athafnakonunnar Jónínu Bene- diktsdóttur og rak þar augun í einkatölvupóst sem Jón Ásgeir Jó- hannesson sendi henni árið 2003. „Þetta er tölvupóstur sem Jón Ás- geir sendi mér í tiltekna tölvu á skrifstofuna mína á Útvarpi Sögu,“ segir Arnþrúður. Tölvupósturinn er upphaflega póstur sem Jónína Ben sjálf sendir á Jóhannes í Bónus og fleiri aðila. Í honum sakar hún Jóhannes meðal annars um að hafa ruðst inn í líf sitt og rústað því. Hún krefur hann um 70 milljónir og Audi-bíl af gerðinni A6. Jón Ásgeir, sem greinilega hef- ur haft aðgang að þessum pósti frá einhverjum þeirra aðila sem Jónína sendi hann á, sendi svo póstinn til Arnþrúðar ásamt athugasemdum. Það gerði hann vegna umræðu Út- varps Sögu um Bónusfjölskylduna. Gætti vel að bréfinu Tölvupósturinn er birtur í heild sinni á blaðsíðu 238 í bókinni um Jónínu Ben sem Sölvi Tryggva- son ritaði. Jónína segir í bókinni að Arnþrúður hafi gleymt bréfinu á víðavangi og að það hafi borist í hendur hennar. „Ég skil ekki hvern- ig þessi póstur er allt í einu kom- inn inn í bók hjá Sölva Tryggva- syni,“ segir Arnþrúður sem segist hafa gætt bréfsins vel, enda taldi hún það vera trúnaðarskjal sem allra síst ætti heima í bók. „Það er furðulegt að hún skuli segja að ég hafi týnt þessu bréfi einhvers staðar á víðavangi, það er alveg öðru nær.“ Innbrot hjá Útvarpi Sögu Þann 10. október árið 2006 var brotist inn á Útvarp Sögu og þar var þessari tilteknu tölvu hennar Arn- þrúðar stolið ásamt tveimur hörð- um diskum sem höfðu að geyma upptökur stöðvarinnar tvö ár aft- ur í tímann. Hún segir augljóst að einhver hafi viljað koma í veg fyrir að hægt væri að endurflytja eldri þætti, en þar hafði Jónínu oft bor- ið á góma. Útvarp Saga er þó með vörsluskyldu á efni og átti því afrit af þessum diskum. „Það sem var nú merkilegast við þetta var að við vorum með nokkrar nýlegar tölv- ur sem hefði verið fengur í að fá og þær voru látnar í friði. Þess í stað var brotist inn á mína skrifstofu og minni tölvu var stolið sem var elsta tölvan á staðnum og algjör garmur.“ Þurfa að gefa skýringu Arnþrúður segir að tölvan hennar og hörðu diskarnir hafi aldrei fund- ist, en málið var kært til lögreglu á sínum tíma. Arnþrúður segir að hana hafi grunað að Jónína hefði með einhverjum hætti komið að málinu. „Lögreglan spurði hvort ég hefði einhvern grunaðan sem hefði hagsmuni af þessu og vissu- lega sá ég að þetta var einhver sem var bara að leita að minni tölvu og þessum hörðu diskum. Á þeim tíma höfðum við Jónína tekist á í ýmsum ritdeilum og mér fannst það ekkert ósennilegt að hún tengdist þessu á einhvern hátt. Það voru þó eng- ar sannanir, en núna þá bara blas- ir þessi tölvupóstur við sem var í þessari tölvu.“ Arnþrúður fer nú yfir hvað hún hyggst gera í framhaldinu og segir hún að öll gögn liggi fyrir hjá lög- reglunni. „Ég mun að sjálfsögðu benda rannsóknarlögreglunni á þetta. Ég held að þau hljóti að þurfa að gefa skýringu á því hvar þau fengu þetta bréf. Nú er bara spurn- ing hvað hann gerir þessi rann- sóknarlögrelumaður sem er með málið,“ segir Arnþrúður og bendir á að öll gögn um málið liggi fyrir hjá lögreglunni. DV hafði samband við Jónínu Ben sem vildi lítið tjá sig um málið. „Ég fékk þennan póst uppi á Ríkis- útvarpi. Hún gleymdi honum þar,“ sagði Jónína og kvaddi blaðamann í flýti. 4 fréttir 15. nóvember 2010 mánudagur Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • www.eirberg.is Slakaðu á heima • Stillanlegt Shiatsu herða- og baknudd • Djúpslökun með infrarauðum hita • Sjálfvirkt og stillanlegt nudd Verið velkomin í verslun okkar prófið og sannfærist! Úrval nuddsæta Verð frá 29.750 kr. Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16 Kraftajötunn dæmdur fyrir stórfelld skattsvik: 90 milljónir í sekt Kraftlyftingamaðurinn Guðmundur Otri Sigurðsson hefur verið dæmd- ur í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða rúmlega 90 milljónir króna í sekt fyrir fyrir meiriháttar brot gegn skatta- og bókhaldslögum. Brotin framdi Guðmundur í sjálfstæðri at- vinnustarfsemi sinni en hann stóð hvorki skil á virðisaukaskattskýrsl- um né á virðisaukaskatti til ríkissjóðs sem innheimtur var á árunum 2004 til 2008. Auk þess að þurfa að greiða rúmar 90 milljónir króna hlaut Guð- mundur níu mánaða skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára. Þá var honum gert að greiða verjanda sínum 200 þúsund krónur í málsvarnarlaun. Guðmundur játaði brot sín skýlaust. Guðmundur Otri stofnaði til keppninnar um Vestfjarðavíkinginn á sínum tíma og hefur verið skipuleggj- andi mótsins um áraráðir. Hann hef- ur tekið þátt í ótal aflmótum í gegn- um tíðina og hefur keppt fyrir hönd Íslands í aflraunamótum erlendis. Hann er þekktur í kraftlyftingaheim- inum sem Otradalsgreifinn. Samkvæmt Frjálsri verslun var hann tekjuhæstur í flokki íþrótta- manna og þjálfara árið 2009 með tæplega tvær milljónir króna í laun á mánuði. Fyrirtæki Guðmundar Otra er flokkað sem einkarekin öryggis- þjónusta. Til þeirrar þjónustugrein- ar teljast: vöktunar- og öryggisþjón- usta, flutningur peninga eða annarra verðmæta, þjónusta með brynvarða bíla, lífvarðaþjónusta, þjónusta við töku fingrafara og öryggisvarðaþjón- usta. hanna@dv.is 90 milljónir í sekt Guðmundur er þekktur í kraftlyftingaheiminum sem Otradalsgreifinn. Ég held að þau hljóti að þurfa að gefa skýringu á því hvar þau fengu þetta bréf. Arnþrúður sigAr löggunni á Jónínu Ýmislegt hefur komið fram í dagsljósið í nýútkominni ævisögu Jónínu Benedikts- dóttur. Arnþrúður Karlsdóttir fann þar einkatölvupóst sem Jón Ásgeir Jóhannesson sendi henni árið 2003. Hún segir póstinn hafa verið í tölvu sem stolið var af skrifstofu hennar í innbroti hjá Útvarpi Sögu árið 2006. SólrÚn lIlJA rAGnArSdóttIr blaðamaður skrifar: solrun@dv.is Krefst skýringa Arnþrúður var hissa að sjá sinn einkatölvupóst í bók Jónínu Ben. Veldur usla Jónína Ben birtir ýmislegt í bók sinni, þar á meðal einkatölvupósta annarra. mynd SIGtryGGur ArI samfylkingin sló öðrum við Samfylkingin rak dýrustu kosninga- baráttuna fyrir sveitastjórnarkosn- ingarnar á Akureyri í vor. Þar á eftir kom L-listi, listi fólksins, sem fékk hreinan meirihluta í kosningunum. Kostnaður við framboð Samfylking- arinnar nam rúmum 4,6 milljónum króna, þar af var auglýsingakostnað- ur 1.800 þúsund krónur. Kostnaður L-listans nam 3,6 milljónum króna, þar af var auglýsingakostnaður rúm ein og hálf milljón. Að því er fram kemur á vef Vikudags var kosninga- baráttan ódýrust hjá Framsóknar- flokknum en kostnaður vegna henn- ar nam rúmri einni milljón króna. samþykkja skipun rannsóknarnefndar Tillaga forsætisnefndar kirkjuþings þess efnis að rannsóknarnefnd um viðbrögð og starfshætti þjóðkirkj- unnar vegna ásakana á hendur Ólafi Skúlasyni, fyrrverandi bisk- upi, var samþykkt á kirkjuþingi á sunnudag. Róbert Spanó, prófessor og for- seti lagadeildar Háskóla Íslands, verður formaður nefndarinnar en auk hans munu eiga sæti í nefndinni Berglind Guð- mundssdóttir, dósent við sálfræði- deild Háskóla Íslands og Þorgeir Ingi Njálsson, dómstjóri Héraðsdóms Reykjaness. Tillagan var samþykkt samhljóða og mun nefndin hefja störf svo fljótt sem kostur er. Reyndi að stinga lögreglu af Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greip til þess ráðs að aka utan í fólksbíl eftir að ökumaður hennar sinnti ekki merkjum lögreglu um að stöðva bifreiðina. Atvikið átti sér stað rétt fyrir klukkan átta á sunnudagsmorgun en lögreglu þótti ökulag mannsins heldur undarlegt. Í stað þess að stöðva bifreiðina gaf maðurinn í og ók á ofsahraða vestur Hringbraut og þaðan inn á Sæbraut. Hjól- barði datt undan bifreiðinni en maðurinn hélt för sinni engu að síður áfram. Lögreglu tókst loks að króa ökumanninn af eftir að lögreglubifreið var ekið utan í bif- reið hans. Maðurinn var vistaður í fangageymslu lögreglu en hann var í annarlegu ástandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.