Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2010, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR 15. nóvember 2010 MÁNUDAGUR
Einkaneysla
glæðist
Kreditkortanotkun landsmanna í
október nam 24,9 milljörðum króna
sem er 7,5 prósent meiri velta í krón-
um talið en í sama mánuði í fyrra.
Þetta kemur fram í nýjum tölum frá
Seðlabankanum en svo virðist sem
einkaneysla hafi heldur rétt úr kútn-
um á haustmánuðum miðað við sama
tímabil í fyrra. Munar þar mest um er-
lenda kortaveltu sem jókst um 40 pró-
sent á milli ára að raungildi en inn-
lend kreditkortavelta jókst aðeins um
ríflega eitt prósent. Önnur þróun varð
á debetkortaveltu en hún nam 17,9
milljörðum króna í innlendum versl-
unum og dróst saman um tæplega
þrjú prósent frá sama mánuði í fyrra.
Jólabjórinn
væntanlegur
Jólabjórinn kemur í Vínbúðir næst-
komandi fimmtudag, 18. nóvem-
ber, en í fyrra seldist hann allur upp
nokkru fyrir sjálfa jólahátíðina. Þá
komu Jóla Kaldi og danski bjór-
inn Royal X-Mas best út í sérstakri
bragðsmökkun DV á jólabjór fyrir
síðustu jól. Þar sem jólabjórinn
seldist upp í fyrra, en þá seldust
hátt í 300 þúsund lítrar af bjór, hafa
forráðamenn Vínbúðanna gert ráð
fyrir meira magni í verslunum fyrir
þessi jól en allt í allt er von á tæplega
tuttugu tegundum. Alls voru ellefu
tegundir til smökkunar í könnun DV
en jólabjór í flösku frá Viking þótti
lakastur, að mati fjögurra manna
dómnefndar.
Síbrotamaður
dæmdur í fangelsi
Héraðsdómur Reykjaness hef-
ur dæmt 21 árs síbrotamann í níu
mánaða fangelsi fyrir margs konar
brot. Var maðurinn meðal annars
sakfelldur fyrir að taka leigubílstjóra
hálstaki í september árið 2008 með
þeim afleiðingum að hann hlaut
eymsli á hálsi og tanngómur í munni
hans brotnaði. Þá var hann sakfelld-
ur fyrir líkamsárás á skemmtistaðn-
um Hverfisbarnum þegar hann sló
annan mann í andlitið með þeim
afleiðingum að fórnarlambið hlaut
heilahristing. Maðurinn var einnig
sakfelldur fyrir að aka í fjögur skipti
án ökuréttinda. Sjö mánuðir dóms-
ins eru skilorðsbundnir.
„Þetta er búið að éta mig svo að inn-
an að það er ekki spurning að maður
fer með þetta alla leið,“ segir athafna-
maðurinn og knattspyrnuþjálfarinn
Tómas Ingi Tómasson. Hæstiréttur
komst að þeirri niðurstöðu að hann
gæti ekki höfðað mál hér á landi gegn
forsvarsmönnum Choose Holding
A/S, handhöfum rekstrarleyfis Build-
A-Bear-verslanakeðjunnar á Norður-
löndum. Áður hafði Héraðsdómur
Reykjavíkur komist að sömu niður-
stöðu.
DV greindi frá því nýlega að Tóm-
as Ingi hefði tapað rúmum níu millj-
ónum króna þegar forsvarsmenn
fyrirtækisins ákváðu skyndilega að
hætta við að opna útibú hér á landi
árið 2008. Þá var Tómas búinn að
taka á leigu verslunarrými í Smára-
lind og sækja námskeið í rekstri
verslunarinnar til Danmerkur. Build-
A-Bear er þekkt bandarísk leikfanga-
keðja sem sérhæfir sig í sölu á böngs-
um.
Tómas Ingi og eiginkona hans,
Helga Lund, ákváðu að stefna fyrir-
tækinu hér á landi til að fá til baka
þá upphæð, samtals níu millj-
ónir króna, sem þau höfðu lagt í
undir búning opnun verslunarinn-
ar. Hæstiréttur komst hins vegar að
þeirri niðurstöðu að ekki væri hægt
að stefna Choose Holding hér á landi
og staðfesti þannig úrskurð héraðs-
dóms. Ætli Tómas og eiginkona hans
að fá tjón sitt bætt þurfa þau að sækja
málið í Danmörku með tilheyrandi
kostnaði.
Tómas Ingi segist vera miður
sín yfir niðurstöðu dómstóla hér á
landi enda hafi mikill kostnaður og
ómældur tími farið í verkefnið. Hann
lætur þó engan bilbug á sér finna og
segist ætla með málið alla leið. „Ég
er mjög skúffaður yfir þessari niður-
stöðu eins og allir verða þegar hlut-
irnir ganga ekki upp. Við ætlum bara
að halda áfram,“ segir Tómas og bæt-
ir við að langur tími geti liðið þar
til niðurstaða fáist í málinu í Dan-
mörku. einar@dv.is
Tómas Ingi Tómasson tapar máli vegna bangsaverslunar:
„Búið að éta mig að innan“
Alla leið Tómas Ingi
ætlar að sækja málið til
Danmerkur til að fá greitt
það sem hann lagði í
verkefnið.
MYND HEIÐA HELGADÓTTIR
Kindur á
köldum klaka
„Já, það fóru þrjá kindur hjá
okkur undir snjó. Það fenndi
hreinlega yfir þær en þær voru á
lífi þegar við fundum þær,“ segir
Hörður Guðmundsson, bóndi
á Svertingsstöðum í Eyjafirði.
Litlu mátti muna að þrjár kind-
ur dræpust í ofankomunni sem
var á Norðurlandi um helgina.
Kindurnar lentu undir snjóþunga
og komust hvergi. „Þetta veldur
okkur bændum smáóþægindum
þessa dagana, það er ósköp lítið
að gera fyrir okkur á meðan þetta
er svona. Þetta tilheyrir bara
Íslandi og þessum árstíma, við
gátum búist við þessu og verðum
bara að lifa við þetta,“ sagði Hörð-
ur í samtali við DV.
KEYPTU NÝLEGA BÍLA
FYRIR STARFSMENN
Vegagerðin keypti nýlega fjölda bíla fyrir starfsmenn sína sem þeim er gert að nota í er-
indum sínum fyrir stofnunina. Áður notuðust þeir við einkabíla og fengu greitt kílómetra-
gjald. „Gert í hagræðingarskyni,“ segir G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vega-
gerðarinnar um kaupin. „Getur ekki borgað sig,“ segir starfsmaður sem undrast kaupin.
„Starfsmenn hafa árum saman ekið
á eigin bílum í vinnu en þeim hefur
nú verið gert að aka nýkeyptum bíl-
um Vegagerðarinnar. Þarna er ver-
ið að eyða dýrmætum gjaldeyri án
þess að sérstök þörf sé á því þar sem
þessir starfsmenn eru tilbúnir að
nota sína eigin bíla eins og þeir hafa
gert í tugi ára,“ segir starfsmaður
Vegagerðarinnar, sem vill ekki láta
nafn síns getið, sem undrast kaup
stofnunarinnar á nýjum bílum fyrir
starfsmenn.
Hagkvæmara en
kílómetragjald
Starfsmenn Vegagerðarinnar hafa
áður notast við einkabíla í störfum
sínum og fengið greitt sérstakt kíló-
metragjald fyrir aksturinn.
„Þetta var gert í hagræðingar-
og sparnaðarskyni,“ segir G. Pét-
ur Matthíasson upplýsingafulltrúi
aðspurður um kaupin á bílunum.
Aðspurður sagðist hann ekki getað
sagt til um fjölda bílanna því kaup-
in hafi gerst jafnt og þétt yfir ákveð-
inn tíma.
G. Pétur segir það rétt að starfs-
menn hafi áður notast við einkabíla
en stofnunin hafi tekið þá ákvörðun
að ef starfsmenn keyri yfir ákveðinn
fjölda kílómetra á ári, þá eigi þeir að
nota merkta bíla Vegagerðarinnar.
„Það er hagkvæmara en að við séum
að greiða þeim kílómetragjald fyrir
sína eigin bíla,“ segir hann. Einnig sé
þetta gert í öryggisskyni fyrir þá sem
keyra mikið vinnu sinnar vegna.
Kaupa notaða bíla
Daníel Árnason, forstöðumaður
rekstrardeildar, segir þetta ekki vera
marga bíla og að Vegagerðin endurnýi
bíla sína reglulega.
Aðspurður hvort farið hafi verið
eftir lögum um opinber útboð vegna
kaupanna sagði Davíð að í venjulegu
árferði hafi Vegagerðin keypt nýja bíla
og þá hafi þeir verið boðnir út. „Ríkis-
kaup hefur að öllu jöfnu boðið út bíla
fyrir okkur. Eftir að kreppan skall á höf-
um við keypt notaða bíla,“ segir hann
og bætir við að leitað hafi verið eftir
hagstæðustu kaupunum á bílasölum
og bílaumboðum.
Fékk glænýjan bíl
„Það er ekki nokkur leið að reikna þetta
þannig út. Það er alveg sama hvernig
þetta er sett upp, það getur ekki borg-
að sig að að kaupa bíla í stað þess að
borga kílómetragjald,“ segir fyrrnefnd-
ur starfsmaður sem segist hafa fengið
upplýsingar um að kostnaðurinn við
kaupin sé líklega um það bil 40 millj-
ónir. Hann segir einnig að starfsmenn
fái greitt eftir ríkistaxta sem er 99 krón-
ur á kílómetra fyrstu tíu þúsund kíló-
metrana. Eftir það lækkar upphæðin í
89,10 krónur. Sjálfur fékk hann nýjan
bíl sem hafði verið ekið innan við 100
kílómetra. Einnig hafi hann heyrt að
fyrir Norðvesturland hafi verið fengn-
ir tíu nýjir bíla á einu bretti. Hann gaf
lítið fyrir að nýju bílarnir hefðu örygg-
isbúnað: „Við erum nú með sér ljós á
okkar einkabílum sem eru laus og við
setjum upp þegar á þarf að halda.“
GUNNHILDUR STEINARSDÓTTIR
blaðamaður skrifar: gunnhildur@dv.is
Það er ekki nokk-ur leið að reikna
þetta þannig út. Það
er alveg sama hvernig
þetta er sett upp, það
getur ekki borgað sig að
kaupa bíla í stað þess að
borga kílómetragjald.
Vegagerðin Ekki fengust upplýsingar um hve
marga bíla Vegagerðin hefur keypt.
Hagræðing G. Pétur Matthíasson segir
að hagræðing náist með kaupunum.