Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2010, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2010, Síða 10
10 fréttir 15. nóvember 2010 mánudagur ráðist á fórnarlamb nauðgara „Ég er hrædd um að fá aldrei frið,“ sagði fórnarlamb nauðgara sem hef- ur sætt svívirðingum, hótunum og árásum af hálfu vina og vandamanna manns sem dæmdur var í héraðs- og Hæstarétti fyrir að nauðga henni. Maðurinn er fyrrverandi eiginmaður konununnar en leiðir þeirra skildu í febrúar 2009 eftir sex ára hjónaband. Síðar í sama mánuði fóru þau í öku- ferð sem endaði með nauðgun. Mað- urinn var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir verknaðinn og var gert að greiða konunni eina milljón króna í skaðabætur. Í kjölfarið reis fólk upp og lét fjölda ærumeiðandi athugasemda falla um konuna, sem var sögð sið- blind, geðveik og annað þaðan af verra. Því var ítrekað haldið fram að nauðgunarkæran hefði verið bragð konunnar í forræðisdeilu þeirra. All- ir sem tóku þátt í rógburðinum komu fram undir nafni og mynd en enginn greindi frá tengslum sínum við ger- andann. Við nánari eftirgrennslan kom á daginn að fjölmargir tengdust gerandanum fjölskyldu- eða vina- böndum. Aðrir voru frá hans heima- slóðum en ekki er vitað hvort allir sem tjáði sig tengdust honum með einum eða öðrum hætti. Sumir settu fram athugasemd oftar en einu sinni og mörg ummælin eru þess eðlis að þau eru ekki prenthæf. Öllum at- hugasemdum hefur verið eytt út af netinu. Vottuðu manninum samúð Á meðal þeirra sem tjáðu sig um málið var núverandi sambýliskona mannsins, vinafólk hennar og allar dætur mannsins úr fyrra sambandi en þær eru þrjár. Eins tóku fimm af átta systkinum hans til máls og sömuleiðis fyrrverandi kærasti dótt- ur hans. Fjölmargir viðruðu þá skoðun sína að dómurinn væri hneyksli í ís- lensku réttarkerfi, dómararnir hefðu ekki unnið vinnuna sína og réttar- kerfið ætti ekki að virka svona. „Þetta sýnir hvernig kona getur misnot- að réttarkerfið á Íslandi.“ Ein dóttir- in vildi mótmæla dómurunum „eða bara réttarkerfinu á Íslandi.“ Bróðir hans sagði að lögfræðingarnir ættu að leita sér sálfræðings ef þeir væru hreyknir af starfi sínu. Þá vildi hann að kvennasamtök hugsuðu sinn gang varðandi þá stefnu sem þau hefðu tekið í baráttunni fyrir rétt- indum fórnarlamba nauðgara, því í þessu máli væri fórnarlambið mað- urinn sem er nú á leið í fangelsi. Mál- ið var sagt byggja á lygum og að sak- lausum manni væri refsað. Í raun væri það hann sem væri fórnarlamb- ið en ekki konan, sem var kölluð öll- um illum nöfnum. Konunni var sagt að skammast sín en manninum var vottuð samúð. Var hann sagður „hjartahreinn“ og „virkilega góður maður“. Þetta væri „rangt, ljótt og hreint út sagt ótrú- legt“ mál. Systir mannsins sagðist vona að það væri til karma svo kon- an fengi þetta margfalt til baka. Önn- ur systir hans sagði það ótrúlegt hvað mannskepnan gæti verið grimm. „Mér er illt í hjartanu,“ sagði hún. Nafngreindu konuna Sumir töldu sig vita upp á hár hvað fór á milli konunnar og mannsins þegar nauðgunin átti sér stað, en allir höfðu þeir talsvert aðrar hug- myndir um málavexti en dómstólar. Konan var sögð hafa táldregið mann- inn. Nokkrir lýstu atburðarásinni samkvæmt þeirra mati. Bæði syst- ir mannsins og dóttir hans voru þar á meðal. Hvatti dóttirin fólk áfram og bað það að segja sína sögu af konunni. Enda dundu ærumeið- andi ummæli yfir konuna. Hún er sjö barna móðir og var börnunum gjarna blandað í málið. Nafn hennar var birt í því skyni að „vara öll fram- tíðarfórnarlömb við henni.“ Ein vitnaði í Aristóteles og Plat- ón: „Samkvæmt Aristótelesi og Plat- óni eru höfuðdyggðirnar fjórar: viska, hugprýði, hófstilling og loks örlæti. Það er alveg á hreinu í þessu máli hver var hófsami maðurinn.“ Síðan velti hún því upp hvort fólkið sem hefði komið að málinu væri svo siðlaust að það hefði ekki hugmynd um það hvað mannleg góðmennska væri. „Samkvæmt nytjastefnunni er alltaf vísað til í afleiðingar og það eigi ekki að meiða saklaust fólk.“ Harmi slegin fjölskylda Blaðamaður DV hafði samband við sumt af þessu fólki sem sagðist standa við orð sín. Systir mannsins sagði þetta ekki hafa verið saman- tekin ráð fjölskyldunnar. Hún hafi fyrst vitað af athugasemdunum þeg- ar hún las fréttina. Þá hafi hún séð að aðrir hefðu sett fram athugasemdir og hún gert það líka. „Ég vil meina það að það sem þarna kom fram sé meira og minna allt rökrétt. Það er verið að dæma saklausan mann og maður veit í rauninni ekki hvað mað- ur á að gera. Þetta er stór fjölskylda og við erum sár yfir þessum dómi. Við erum harmi slegin og öll búin að vera í sjokki síðan dómur féll. Hvað er hægt að gera þegar Hæstaréttar- dómur fellur?“ Síðan taldi hún upp nokkrar ástæður fyrir því að málið stæðist ekki að hennar mati og sagði svo: „Hann hefði ekki logið að mér. En hann hefur ekki mikil tök á því að verja sig og ég hef ekki mikla trú á þessum lögfræðingi sem hann var með.“ Önnur systir hans segir konuna hafa farið mjög illa með manninn í gegnum tíðina. „Við systkinin erum öll mjög reið gagnvart henni.“ Gæti hafa kallað þetta yfir sig Hún segir leiðinlegt að málið hafi farið í þennan farveg. „Ég hef enga trú á því að hann hafi verið svona vondur við hana. Það má vel vera að það hafi gerst, en hann hefur alltaf verið góða sálin í hópnum. Auðvit- að er ég ekki hlutlaus, hann er bróðir minn og mér þykir rosalega vænt um hann. En það er alveg ljóst að í þessu máli var forsagan ekki skoðuð. Hún sagði oft að hún elskaði hann. Mér er spurn hvernig það sé hægt að kæra mann fyrir nauðgun ef þú elskar hann? Jafnvel þótt hann hefði nauðg- að henni myndi konan ekki kæra ef hún elskaði hann í raun. Ég myndi ekki gera það. Hún var búin að svíkja hann. Kannski fékk hann bara ógeð. Það réttlætir auðvitað ekkert svona Nýlega sakfelldi hæstiréttur mann fyrir nauðgun á fyrrverandi eiginkonu sinni. Ættfólk mannsins reis upp gegn konunni og svívirti hana opinberlega. Systir hans segir fjölskylduna harmi slegna og ráðalausa. Konan flúði bæjarfélagið. Hún segist hafa fengið fjölda ógeðfelldra skilaboða og sakar frænku mannsins um líkamsárás. Hún hefur miklar áhyggjur af börnunum sem hafi þurft að kljást við alvarlegar afleiðingar vegna málsins. Málið minnir um margt á það þegar ung stúlka þurfti að flýja Húsavík eftir nauðgun því íbúar tóku afstöðu með nauðgaranum. iNGibjörG döGG kjartaNsdóttir blaðamaður skrifar: ingibjorg@dv.is Aldrei hvarflaði það að mér þeg- ar ég kærði manninn að það yrði ég sem tæki út refsingu, og hvað þá börnin mín. Þetta er mannorðsmorð. Grimmd þjóðfélagsins Konansegiraðhún hefðialdreikærtnauðgunefhúnhefðivitað hvernigmáliðmyndisnúastgegnhennimeð hörmulegumafleiðingumfyrirbörninhennar. Húnsegirgrimmdþjóðfélagsinsótrúlegaog miskunnarleysiðalgjörtgagnvartsaklausufólki. MyNd róbert reyNissoN Flúði frá Ísafirði MaðurinnerfráÍsafirðienkonansegisthafaþurftaðflýjaþaðan. Enþótthafikomistburtsitjifjölskyldanenneftirískítnumogþurfiaðþolarógburð ogsvívirðingar.Móðurhennarleiðsvoillaaðátímabiliþorðihúnekkiútúrhúsi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.