Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2010, Page 15
Honda vann Polo Honda CR-Z var valinn
bíll ársins í Japan að þessu sinni af þarlendum bílablaða-
mönnum, að því er segir á FÍB-vefnum. Nefnd 60 blaða-
manna sá um valið. Í lokaatkvæðagreiðslu varð Honda
CR-Z hlutskarpastur. Hann skaut Volkswagen Polo naum-
lega ref fyrir rass. „Venjulega eru það japanskir bílar sem
nánast einoka val á bíl ársins í Japan. En VW Polo náði að
þessu sinni óvenju hátt og aldrei áður hefur erlendur bíll
náð jafn langt og að þessu sinni.“
Möndlur gegn offitu Í International Journal
of Obesity, alþjóðlegu tímariti um offitu, segir frá rannsókn sem
leiddi í ljós að þeir sem borða átta til níu grömm á dag af möndlum
lækka líkamsmassastuðull sinn, BMI, um heil 18%. Stuðull þeirra sem
ekki fékk möndlur, lækkaði um 11%. Möndlur, eins og hnetur, eru
stútfullar af næringarefnum á borð við E-vítamín, fólínsýru, magn-
esíum, kopar og trefjar og innihalda töluvert af hollri fitu. Fjölmarg-
ar rannsóknir benda til þess að neysla á hnetum eða möndlum geti
dregið úr líkum á hjartasjúkdómum og átt þátt í að lækka blóðfitu.
Seljendum ber að upplýSa
kaupanda um fjölmörg atriði:
Pottþétt
Pakkaferð?
Neytendastofa bendir neytendum
á að kynna sér ítarlega allt sem við
kemur svokölluðum pakkaferðum,
áður en þær eru keyptar. Alferðir eða
pakkaferðir eru fyrir fram ákveðin
samsetning tveggja eða fleiri þátta
sem seldir eru saman á einu verði.
Þar er til dæmis átt við þegar greitt
er fyrir flug og gistingu eða hesta-
ferð og rútuferð samtímis. Seljendur
slíkra ferða verða að upplýsa neyt-
endur um eftirfarandi þætti:
– Ef verð sem sett er fram í samn-
ingi getur hækkað eða lækkað, s.s.
vegna gengisbreytinga, verður það
að koma fram og jafnframt þarf að
tilgreina nákvæmlega hvernig breytt
verð sé reiknað út. Síðustu tuttugu
daga fyrir brottför má þó ekki hækka
verð.
– Skilmála sem gilda um afpant-
anir, en seljandi hefur heimild til að
krefjast þóknunar þegar neytandi
afpantar ferð.
– Möguleika til að tryggja neyt-
endur gegn fjárhagslegu tjóni ef
hætta þarf við ferðina.
– Þegar seljendur alferða auglýsa
verð á ferðum sínum skal verðið
miðast við einstakling og verður
það að koma fram þótt önnur tilboð
komi fram í auglýsingunni. Verðið
verður einnig að miðast við einstak-
ling í tveggja manna herbergi ef gist-
ing er innifalin í verði.
– Öll gjöld og skattar sem neyt-
andi verður að greiða skulu vera
innifalin.
– Ef alferð stenst ekki væntingar
er hægt að kvarta við ferðaskrifstof-
una sem fyrst eftir heimkomu. Náist
ekki sættir við ferðaskrifstofu sem
er í Samtökum ferðaþjónustunnar
er hægt að snúa sér til úrskurðar-
nefndar Samtaka ferðaþjónustunn-
ar og Neytendasamtakanna.
ferðatrygging-
ar ekki inni-
faldar
Ferðatryggingar fylgja yfirleitt ekki
almennum kreditkortum og heldur
ekki silfurkortum án fríðinda. Þær
fylgja hins vegar silfurkortum með
fríðindum, gullkortum og platin-
umkortum. Þegar ferðatrygging
fylgir kreditkorti er oft skilyrði að
að minnsta kosti 50 prósent ferða-
kostnaðar séu greidd með kortinu.
Forfallatrygging er líka innifalin
í sumum fjölskyldutryggingum,
en það er ekki algengt að því er
fram kemur á vef Neytendasam-
takanna. Þar er enn fremur bent á
að forfallatrygging er ekki þáttur í
svonefndum ferðatryggingum sem
tryggingafélögin bjóða upp á. Þó sé
hægt að kaupa sérstakar forfalla-/
farseðlatryggingar hjá tryggingafé-
lögunum.
mánudagur 15. nóvember 2010 neytendur 15
hindrar heilaskaða
en ekki alzheimer
Rannsókn sem birt var í Journal of
the American Medical Association
leiðir í ljós að ekkert bendi til þess
að neysla á lýsi hægi á framvindu
Alzheimer-sjúkdómsins, eins og
áður hefur verið haldið fram.
Rannsóknin var framkvæmd
á 402 sjúklingum sem þjáðust af
Alzheimer-sjúkdómnum á byrjunar-
stigi og miðstigi. Einn hópurinn tók
lýsi sem innihélt ómega-3 fitusýrur í
formi fæðubótar. Hinn hópurinn tók
lyfleysu. Hvorugur hópurinn sýndi
nokkrar framfarir. Hópurinn sem tók
lýsið sýndi enn fremur engin merki
þess að hægst hefði á hrörnuninni.
Markmiðið var að hægja á framvindu
sjúkdómsins en það náðist ekki. Fjöl-
margir háskólar í Bandaríkjunum
komu að rannsókninni. Sextíu pró-
sent sjúklinganna fengu lýsi en fjöru-
tíu prósent fengu lyfleysu.
Í niðurstöðunum velta aðstand-
endur rannsóknarinnar því fyrir
sér hvort verið geti að þeir sem taki
ómega-3 fitusýrur fyrr á lífsleiðinni
fái síður sjúkdóminn eða seinna en
ella. Þeirri spurningu er ósvarað en
ómega-3 fitusýrur eru taldar geta
haft jákvæð áhrif gegn ýmsum kvill-
um, allt frá gigt til hjarta- og æða-
sjúkdóma.
lýsi gegn heilaskaða
Bólgueyðandi eiginleikar lýsis geta
komið í veg fyrir heilaskaða í kjölfar
heilablóðfalls. Þetta leiðir ný rann-
sókn í ljós sem framkvæmd var inn-
an heilbrigðisvísindasviðs Louisiana
State-háskólans.
DHA-fitusýrur í lýsi (e. docosa-
hexaenoic acid) hafa öflugan lækn-
ingarmátt sem geta hjálpað þeim
sem fær heilablóðfall að ná sér.
Þetta er háð því að lýsið sé
tekið innan fimm klukku-
tíma frá því heilablóðfallið
varð. Þessar sýrur, ásamt
fleiri efnum sem finnast í
lýsi og öðrum afurðum sem
innihalda ómega-3 fitusýrur,
verja heilann fyrir heilaskaða af
völdum blóðtappa og hrörnun æða.
„Við erum fyrst núna að átta okkur
á því hvaða áhrif ómega-3 fitusýrur
geta raunverulega haft á þá sem fá
heilablóðföll,“ útskýrði doktor Nicol-
as Bazan, sem stýrði rannsókninni.
Hann sagði enn fremur að uppgötv-
unin væri liður í því að fyrirbyggja
sjúkdóma á borð við heilablóðföll.
leysir upp fyrirstöðu
Örlítil fyrirstaða í æð sem liggur upp
í heilann getur orsakað varanlegan
skaða á
heilanum,
sérstaklega ef kökkurinn
er ekki fjarlægður strax. Jafn-
vel þó hann finnist strax geta nær-
liggjandi svæðið í kringum stífluna
bólgnað upp og frumur drepist. Til
einföldunar má segja að DHA dragi
úr þessum bólgum og hjálpi frum-
unum við að ná upp fyrri virkni. Þeir
sem að rannsókninni stóðu segja að lýsið virki betur en flest efni sem not-
uð séu til að leysa upp blóðtappa.
Lýsið sé auk þess auðveldara að gefa
og meðfærilegra.
Rottur voru notaðar til tilraun-
ar í þessari rannsókn. Þeim var gef-
ið DHA ýmist þremur, fjórum, fimm
eða sex klukkustundum eftir heila-
blóðfall. Þær rottur sem fyrr fengu
efnið náðu sér betur en hinar sem
fengu það síðast eða fengu það alls
ekki. „Niðurstöður rannsóknarinnar
gætu valdið straumhvörfum í með-
höndlun á heilablóðföllum,“ sagði
Nicolas. Fram kemur að hundrað og
fimmtíu þúsund Bandaríkjamenn
láti árlega lífið af völdum heilablóð-
falla. Rannsóknin var birt í Trans-
lational Stroke Research.
Nýleg rannsókn bendir til þess að áhrif lýsis á Alzheimer-sjúkdóminn séu stórlega
ofmetin. Önnur rannsókn bendir aftur á móti til að lýsi geti fyrirbyggt heilaskaða eftir
heilablóðfall.
Bólgueyðandi eiginleikar lýsis geta komið í veg fyrir heila-
skaða í kjölfar heilablóðfalls.
baldur guðmundSSon
blaðamaður skrifar: baldur@dv.is
n Ómega-3 fitusýrur gegna margvíslegu
hlutverki í líkamanum. Líkaminn notar
fitusýrurnar meðal annars í uppbygg-
ingu frumuhimna og til myndunar
efna sem hafa áhrif á þætti eins og
blóðþrýstingsstjórnun, blóðstorknun
og bólgu- og ónæmissvörun líkamans.
Erlendar rannsóknir benda til að þeir, sem
borða tvær til þrjár fiskmáltíðir í hverri viku, fái
mun síður hjartaáfall en þeir sem borða lítinn eða
engan fisk. Lýsi veitir stærstan hluta langra ómega-3
fitusýra í fæði Íslendinga en magnið er einnig talsvert í
feitum fiski.
- Lýðheilsustöð
Hvað gerir ómega-3?
færð síður hjartaáfall Rannsóknir
benda til að þeir sem neyti ómega-3
reglulega fái síður hjartaáfall, að sögn
Lýðheilsustöðvar.
getur hindrað heilaskaða Lýsi getur
haft jákvæð áhrif á fjölda kvilla. Það virðist
þó ekki seinka framvindu Alzheimer-sjúk-
dómsins. photoS.com