Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2010, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2010, Qupperneq 18
Svarthöfði hefur fylgst af mik-illi aðdáun með umræðunni um þær uppljóstranir um breytni Jónínu Benedikts- dóttur sem sagt er frá í nýrri bók um hana. Fyrir var Svarthöfði auðvitað mikill aðdáandi Jónínu en nú er álit hans komið í hæstu hæðir eftir að greint var frá því að hún hefði hótað Hreiðari Má Sigurðssyni að segja frá tengslum hans við bandaríska fylgdarþjónustu ef hún fengi ekki afskrifaðar skuldir í Kaupþingi. Herbragð Jónínu gekk upp. Jónína fékk svo ekki bara skuldaafskrift fyrir að þegja um þessar tengingar heldur náði hún líka að segja frá því sem hún hótaði að opinbera ef hún fengi ekki skuldaafskrift. Jón- ína vann því Hreiðar Má á þrenns konar hátt: Hún kúgaði skuldaaf- skrift út úr honum og kom honum svo líka í pínlega stöðu með því að greina frá því sem hann hélt að hann hefði náð að þagga niður með því að láta afskrifa skuldir henn- ar. Jónína lét Hreiðar Má jafnframt bregðast starfsskyldum sínum gagnvart hluthöfum Kaupþings með því afskrifa skuldir sem engin ástæða var til að fella niður vegna þess að það þjónaði hagsmunum hans að gera það. Svarthöfði getur ekki annað en dáðst að slíkri víg- fimi. Jónína hótaði út af peningum, braut loforð og lét einhvern gera eitthvað sem hann átti ekki að gera af því hún vildi vinna. Máttur Jónínu felst í því að hún virðist ekki víla það fyrir sér að nota hvaða aðferðir sem tiltækar eru til ná sínu fram. Ef hún þarf að hóta einhverjum í eiginhagsmunaskyni, með aðferð sem hljómar eins og fjárkúgun og þar með lögbrot, þá gerir hún það. Ef hún þarf svo að fita bók með góðum og krassandi sögum þar sem hún lýsir þessum aðgerðum sínum þá gerir hún það. Ef hún þarf að brjóta loforð sem hún gaf óbeint með hótuninni sem leiddi til skuldaafskriftarinnar þá gerir hún það. Ef hún þarf að láta ein- hvern gera eitthvað sem hann á ekki að gera þá gerir hún það. Allt þetta gerir Jónína til að bæta hag sinn og vegna þess að það þjónar markmiðum hennar hverju sinni. Hvílík snilld, hvílíkur sig-ur, hvílíkur sigurvegari sem Jónína Ben er, að geta látið allar siðferðis- venjur lönd og leið á þennan hátt til að sigra. Auðvitað er það alltaf tilgangurinn sem helgar meðalið og ef fólk ætlar að sigra þá eru öll brögð leyfileg. Ef allir Íslendingar væru nú svona taktískir í hugsun og gættu svona vel að eiginhags- munum sínum væri íslenskt sam- félag örugglega miklu betra. Jónína ætti í kjölfarið á þessari umræðu að taka fram penna og skrifa bók í siðfræði um það hvernig maður eigi að ná árangri í lífinu með öllum tiltækum ráðum, alveg sama hvað það kostar. Kenna ætti börnum þessa siðfræði henn- ar í skólum og láta blessaða krakkana ganga með arm- bönd með stóru spurningunni: Hvað myndi Jón- ína Ben gera?, til að minna sig á það að reyna að breyta í sama anda og hún við sem flest tækifæri. Margir kristnir menn ganga með slík armbönd með vísun í Jesú frá Nasaret en hver þarf eiginlega á Kristi að halda sem vegvísi þeg- ar Jónína getur komið í staðinn? Hennar sið- fræði er svo miklu betri og árangsríkari. Jónína er frábær fyrirmynd fyr- ir alla þá sem vilja njóta velgengni í lífinu. Jón- ínskan lifi! JÓNÍNA OG JESÚS KRISTUR „Það er talað um þá sem skipta máli.“ n Hlín Einarsdóttir, pistlahöfundur á Pressunni og ritstjóri á bleikt.is, um þá gagnrýni sem hún hefur hlotið fyrir skrif sín. Meðal annars frá Þóru Tómasdóttur. - DV „Ég mæli með því að Auðunn kaupi sér nágranna- vörslu.“ n Páll Eyjólfsson, Palli Papi, um Auðun Blöndal en Páll hyggst hefna sín eftir símahrekk þar sem Ari Eldjárn þóttist vera Bubbi Morthens. Þótt Auðunn hafi ekki skipulagt hrekkinn segir Páll hann bara verðskulda refsingu fyrir svo margt. - DV „Það líta margir á okkur tvisvar þegar þeir heyra dóttur mína kalla mig mömmu.“ n Hans Miniar Jónsson, sem áður hét Fríða. Hans hefur hafið kynleiðréttingarferli. Hann segist vera móðir og sonur í senn. - DV „Þá skjátlast þér.“ n Ari Eldjárn, í gervi Bubba að tala við Palla Papa. Ari sagðist ekki ætla að breyta sér í einhvern Björgvin Halldórsson þegar Palli stakk upp á því að þeir myndu fá gestasöngvara með á tónleika Bubba. - visir.is „Mér fannst samt eftirminni- legast að dómarar eyðileggja leikinn.“ n Gunnar Andrésson þjálfari Aftureldingar, en hann gagnrýndi dómarana í leik Fram og Aftureldingar harðlega eftir að tveir leikmanna hans fengu fjögurra mínútna brottvísun nánast á sömu mínútunni. - Morgunblaðið Skýjaborg og landsbyggð Helsta lausnin í niðurskurði ríkis stjórnarinnar felst í því að minnka heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Áætlað er að um 84 prósent af niðurskurði í heilbrigðismál- um fari fram úti á landi. Það viðhorf hefur lengi skinið í gegn við Austurvöll að útgjöld á landsbyggðinni séu einhvers konar aukaútgjöld. Það er ljóst að það verður að skera niður og það verður að auka hagkvæmni. Töluverð hagkvæmni finnst í því að færa þjónustu af landsbyggð- inni til höfuðborgarinnar. Minnkandi heilbrigðisþjónusta á lands- byggðinni snýst ekki aðeins um minna ör- yggi fólks. Það snýst ekki bara um að fólkið þurfi að fara með sjúkraflugi ef það slasast eða að óléttar konur búi við aukna hættu, heldur snýst þetta líka um að fólki verður fækkað á stöðunum. En til að sjá rangindin þarf að horfa á þetta öfugt við það sem yfir- leitt er gert. Í stað þess að horfa á það þannig að minni peningar komi frá borginni til landsbyggðarinnar verður það svo að meiri peningar fari frá landsbyggðinni til borgar- innar, án þess að nokkuð fáist til baka. Í hverjum mánuði eru skatttekjur hirtar af fólki á landsbyggðinni og þeim varið í störf í höfuðborginni. Þetta er stórfellt, stöðugt inngrip af hálfu ríkisins. Inngripið veld- ur margfeldisáhrifum í borginni, en dreg- ur í sama mæli máttinn úr samfélögum úti á landi. Öll ráðuneytin og ríkisstofnanirnar sem eru starfrækt í borginni eru starfrækt fyrir peninga landsbyggðarfólks. Landsbyggðin tók ekki þátt í góðærinu í sama mæli og höfuðborgin. Nánast öll um- svif fjármálafyrirtækja, sem ollu kreppunni, voru í Reykjavík. Ofurlaunum fjármálafyrir- tækja var ráðstafað í Reykjavík og þeim var í meira mæli eytt í Reykjavík en úti á landi. Gervigóðærið olli í raun kreppu á lands- byggðinni, þegar uppblásið gengi krónunn- ar hélt verði á sjávarafurðum niðri. Í sjúku hagkerfi góðærisins guldu heilbrigðir út- flutningsatvinnuvegir fyrir innstreymi láns- fjár. Við getum ekki horft fram hjá því að ríkisstjórnin ákvað í fyrra að fjölga mánað- arlegum listamannalaunum úr 1.200 í 1.600 til ársins 2012. Listamannalaun eru því auk- in um 33 prósent á sama tíma og víða er skorið niður í heilbrigðismálum úti á landi um svipað hlutfall. Þetta er hluti af þeirri at- vinnustefnu Vinstri grænna að fólk eigi að vinna við það sem það langar til að vinna við, óháð því hvað skapar tekjur. Heldur að ríkið niðurgreiði listamannalaun með lántökum en að fólk geti unnið við iðnað. Fólk úti á landi skapar meiri gjaldeyris- tekjur en fólk í höfuðborginni. Elliði Vign- isson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, benti á það á borgarafundi í síðasta mánuði að 60 prósent af útflutningstekjum þjóðarinnar verða til á landsbyggðinni, þar sem 40 pró- sent íbúanna búa. Það er óþarfi að gera lít- ið úr borgarbúum, en engu að síður er það staðreynd að landsbyggðarfólk niðurgreiðir samfélagið í borginni, galt fyrir góðærið og á nú að borga fyrir hrun skýjaborgarinnar. Landsbyggðarfólk er í fullum rétti til að rísa upp. JÓN TRAUSTI REYNISSON RITSTJÓRI SKRIFAR. Fólk úti á landi skapar meiri gjaldeyristekjur en fólk í höfuðborginni. LEIÐARI SVARTHÖFÐI 18 UMRÆÐA 15. nóvember 2010 MÁNUDAGUR HANNES GRÆÐIR n Hannes Smárason útrásarvíkingur er sem horfinn af yfirborði jarðar eftir að fjármálakerfi Íslands hrundi. For- tíð Hannesar er meðal annars sú að hafa rekið FL Group í risagjald- þrot með undar- legum fjárfesting- um. Eftir hrunið flúði Hannes til London. Hermt er að þar græði hann á tá og fingri. Umsvifin eru þó langtum minni en gerðist á blóma- tíma útrásarinnar. ELLERT TIL VARNAR n Ellert B. Schram, fyrrverandi al- þingismaður og ritstjóri DV, er á meðal kærleiksríkustu manna. Hann mun hafa orðið þess áskynja að Jóhanna Sigurð- ardóttir forsæt- isráðherra ætti erfitt uppdráttar af ýmsum ástæð- um. Meðal þeirra sem hafa gagn- rýnt Jóhönnu er Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrver- andi formaður Alþýðuflokksins og mágur Ellerts. Svo mjög renna örlög Jóhönnu Ellert til rifja að hann skrifaði grein um hana sem bar yfirskriftina Til varnar Jóhönnu. Fyrir löngu síðan skrifaði hann í DV leiðara sem bar yf- irskriftina Til varnar Jóni Baldvin. SIGURJÓNI HÓTAÐ n Saga athafnakonunnar Jónínu Benediktsdóttur vekur verðskuldaða athygli. Meðal þess sem Jónína upp- lýsir er að hún hafi haft í hótunum við Sigurjón Magnús Egilsson, þáver- andi fréttastjóra Fréttablaðsins, í þeim tilgangi að stöðva umfjöll- un sem byggði á grunni tölvupósta hennar og Styrm- is Gunnarssonar ritstjóra. Hann segist ekkert muna. Jónína upplýsir ekki um eðli hótana sinna og er frásögnin því hálfkveðin vísa. Hún mun telja sig búa yfir vitn- eskju sem þoli illa dagsins ljós. MAÐUR, LÍTTU ÞÉR NÆR n Staksteinar Moggans héldu því fram fyrir helgina að Jón Gnarr borgarstjóri væri kunnáttumaður á sviði einelt- is og persónu- árása. Hann gengi lengra en aðrir og gerði heila kvik- mynd til að hefja sjálfan sig upp en ýta öðrum niður. „Hann kann þá list að deila og drottna eins og sást þegar hann réðst á sjálfstæðis- menn í borgarstjórn, en hrósaði ein- um þeirra.“ – Þegar vel er að gáð þarf ekki neinn Jón Gnarr til þess að gagn- rýna sjálfstæðismenn í borgarstjórn. Nú gengur það fjöllunum hærra að hópur úr borgarmálaarmi flokksins hafi tekið saman skýrslu um Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, oddvita flokks- ins í borginni, þar sem hún er sökuð um hroka og yfirgang og þess óskað að hún segi af sér. SANDKORN TRYGGVAGÖTU 11, 101 REYKJAVÍK ÚTGÁFUFÉLAG: DV ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Lilja Skaftadóttir RITSTJÓRAR: Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is FRÉTTASTJÓRI: Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is UMSJÓN HELGARBLAÐS: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is UMSJÓN INNBLAÐS: Ásgeir Jónsson, asgeir@dv.is DV Á NETINU: DV.IS AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010, ÁSKRIFTARSÍMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 7050. SMÁAUGLÝSINGAR: 515 5550. Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. BÓKSTAFLEGA „Maður getur alltaf á sig blómum bætt.“ segir EGGERT PÉTURSSON mynd listarmaður sem opnaði sýningu í Hafnarhúsinu á dögunum. Þrátt fyrir að þetta sé ekki sölusýning seldust allar myndirnar upp á augabragði. Eggert er frægastur fyrir blómamyndir sínar, en hann hefur eingöngu málað blóm síðan hann útskrifaðist úr listaskóla. EGGERT, GETUR ÞÚ ENN Á ÞIG BLÓMUM BÆTT? SPURNINGIN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.