Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2010, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2010, Side 19
Málið með Mag- ma-samninginn er ekki það helst að í hlut á kaldrifj- að erlent stórfyrir- tæki (sem auðvit- að er staðreynd) eða að þetta fyr- irtæki naut ráð- gjafar frá íslensk- um stjórnvöldum um hvernig kom- ast mætti í kring- um íslenskar laga- hömlur á eignarhaldi auðlinda eða það að Ísland er að velja svipaðar leiðir í auðlindastjórnun og arðrænd þriðja- heimslönd (sem það er). Aðalmálið – vandamálið – er tví- þætt. Íslenska stjórnmálamenn virð- ist skorta vilja til að stjórna og ráð- stafa þjóðarauðlindunum í þágu allrar þjóðarinnar. Meðal siðmenntaðra þjóða gera stjórnvöld sér yfirleitt grein fyrir að hagsmunir fjöldans vega þyngra en óskir fárra og þetta prinsipp endur- speglast í löggjöfinni. Á Íslandi eru lög- in hins vegar sérhönnuð til að tryggja að þjóðarauðurinn renni alltaf í sama farveg: til fámenns forréttindahóps. Tilraunir Íslendinga til einkavæðing- ar hafa allar verið framkvæmdar eftir þessari uppskrift, eins og Jónas Kristj- ánsson hefur lýst: Öll einkavæðing á Íslandi hefur verið „tilraun að hafa fé af ríki og fólki...Hvert einasta tilvik sýn- ir græðgi einkarekstrar, okur og tjón neytenda og skattborgara.“ Reglurnar fyrirfram Ef við ætlum að opna landið fyr- ir erlendum fjárfestum – sem ekki er snarvitlaus hugmynd – þurfum við að setja reglurnar áður – fyrir- fram. Opinberar og almennar um- ræður verða að eiga sér stað áður en ákvarðanir eru teknar. Tryggja verð- ur að skýr mörk séu á milli fjárhags- legs hagnaðar af verkefnum og þeirra sem taka ákvarðanir um þau. Við verðum að hafa gegnsæi. Við verðum að vita hvert við viljum stefna. Eða eins og hinn mikli ameríski speking- ur, Yogi Berra, orðaði það: „Þú verður að vera varkár ef þú veist ekki hvert þú ert að fara, því þá kannski kemstu ekki þangað.“ Engar almennar opnar umræður voru viðhafðar þegar ríkið setti kvót- ann á silfurbakkann – ekkert opið uppboðsferli, engin tímamörk. Sama silfurbakkameðferðin við einka- væðingu bankanna – þeir afhentir pólit ískum innanbúðarmönnum án opinnar umræðu, án faglegra mats- gerða, án nauðsynlegra reglugerða- ramma. Ergo þegar við nauðguðum landinu til að skapa orku fyrir erlend álver. Engin þátttaka almennings í ákvarðanaferlinu, engar upplýs- ingar um hagsmunaárekstra; þjóð- in má ekki einu sinni vita söluverð orkunnar. Skoðaður í ljósi þessara staðreynda er Magma-samningur- inn einfaldlega það sem við mátt- um búast við. Og enn renna kröfur um gegnsæi af stjórnvöldum eins og vatn af gæs: 26 þingmenn Sjálf- stæðisflokks, Framsóknarflokks og Samfylkingar vilja að ríkisstjórnin hefji nú þegar viðræður við Alcoa og kínverskt álfyrirtæki með það að markmiði að ljúka samningum um uppbyggingu orkufreks iðnaðar við Húsavík, til að „skapa ný störf, verja störf og afla þjóðarbúinu mikilvægra gjaldeyristekna.“ Sem sagt: aftur á að vaða í stórframkvæmdir án nokkurs samráð við þjóðina! Fátt um svör Hitt vandamálið er þessi króníski skortur á framsýni og langtímamark- miðum. Salómon konungur ritaði í Orðskviðum 29:18 „Án framsýni munu þjóðir þjást.“ („Where there is no vision, the people perish.“) Ef til vill sá fróðasti maður allra tíma fram í tímann og sendi þennan sérstak- lega til Íslendinga. Höfundar Rannsóknarskýrslu Al- þingis minnast nokkrum sinnum á dæmi þegar bankastjórnendur voru spurðir hverjar áætlanir þeirra hafi verið, tilgangur þeirra eða markmið til lengri tíma – og fátt varð um svör. Allar ákvarðanir voru teknar án fyrir- hyggju, án ráðgjafar, án vangaveltna um hugsanlegar afleiðingar. Ég ef- ast um að þeir sem tóku ákvarðan- irnar um einkavæðingu HS Orku hafi hugleitt hvað samningurinn myndi þýða fyrir barnabarnabörnin þeirra. Sennilega var bara flett upp í hinni þvældu skammtíma-aðferðafræði- handbók íslenskra stjórnvalda, sem ráðleggur að ef við eigum á kletti vandað hús að andvirði 100 millj- ónir króna sé best að selja það á tíu þúsund kall ef okkur vantar pening núna. Boða fimmföldun á 20 árum Landsvirkjun boðaði nýlega breyt- ingar á stefnu fyrirtækisins í þá átt að leggja meiri áherslu á „arðbær- an rekstur“ og áætlar að geta þess til að greiða ríkinu arð muni fimmfald- ast næstu tuttugu árin! Forstjórinn segist vera mjög bjartsýnn á framtíð fyrirtækisins, sem eigi eftir að skila þjóðinni miklum arði ef við sýnum þolinmæði í nokkur ár. Hvers vegna erum við að gefa Magma þessa miklu framtíðarmögu- leika? Á sama degi og greint var frá þessum ummælum forstjórans sagð- ist Steingrímur J. Sigfússon þakka Guði fyrir að Landsvirkjun hafi ekki verið einkavædd! Ef Steingrímur er svona þakklátur fyrir að Lands- virkjun skuli vera í eigu þjóðarinnar, hvers vegna reynir hann þá ekki að tryggja að HS Orka verði líka þjóðar- eign? „...orkuauðlindir verða ekki nægi- lega tryggðar sem þjóðareign ef ráð- stöfunarrétturinn er með þeim hætti sem nú er. Fráleitt er annað en að stærstu orkufyrirtækin verði í al- mannaeign. Hvers vegna í ósköp- unum ættum við að gefa frá okk- ur mjólkurkýrnar?“ spyr Ögmundur Jónasson, dómsmálaráðherra. „… þetta er verðmæt auðlind sem á að vera í eigu samfélagsins.“ Ef þetta var skoðun Ögmundar fyrir nokkr- um vikum, er hann sömu skoðunar nú? Hyggst hann taka málið upp á Alþingi? Ætla stjórnvöld að móta fram- tíðarstefnu varðandi orkuauð- lindir þjóðarinnar? Hvenær? Þeg- ar við erum búin að selja (eða gefa) nýtingar réttinn á allri orkunni? Ætl- ið þið að ræða hugsanlega riftun Magma-samningsins eða á hann að renna í gegn möglunarlaust? Hvert stefnið þið raunverulega með ykkar skammtímalausnum? Því miður vitum við svarið, sem er beint úr heimsspeki Yogi Berra: „Við vitum ekki hvert við erum að fara, en okkur miðar vel áleiðis!“ KRISTINN ÞÓRARINSSON úr Fjölni er einn þeirra sem slógu í gegn á Íslandsmeistaramótinu í sundi um helgina. Hann setti ein níu drengjamet á mótinu en hann er aðeins 14 ára gamall. Kristinn stefnir á Ólympíuleik- ana og öll helstu stórmótin sem í boði eru. Hann fær sér jógúrtdrykk á keppnisdegi og þótti vænst um metið í 100 metra baksundi. BYRJAÐI AÐ ÆFA ÞRIGGJA ÁRA Skýjaborg og landsbyggð 1 BIRTA NEKTARMYNDIR AF SINNI FYRRVERANDI Ný-Sjálendingur var dæmdur í fangelsi fyrir að birta nektarmyndir sinni fyrrverandi á Facebook. 2 JÓNÍNA BEN: BESTU VINIRNIR SAMKYNHNEIGÐIR Jónína segir að samkynheigðir menn hafi reynst sér betur en kynsystur hennar. 3 ZEITZ Á FLOTTARI AUDI EN ARON Liðsfélagi handboltakappans Arons Pálmarssonar hjá Kiel á dýrari Audi-bifreið en hann. 4 LANDSLIÐMAÐUR FÉSBÓKAR-VIN-UR MEINTS NAUÐGARA Fyrrverandi landsliðsmaður Dana í knattspyrnu er vinur meints nauðgara og morðingja á Facebook. 5 HARPA: AUKA LJÓSADÝRÐ FYRIR 200 MILLJÓNIR Auka ljósabúnaður í tónlistarhúsinu Hörpu kostar 200 milljónir króna. 6 REYRIR NIÐUR BRJÓSTIN DAGLEGA Transmaðurinn Hans Miniar Jónsson byrjar hvern dag á að reyra niður brjóstin og búa til bungu í nærbuxunum. 7 Í HALDI SJÓRÆNINGJA Í 388 DAGA Bresk hjón á á sextugsaldri eru laus úr haldi sómalskra sjóræningja eftir að hafa verið fangar þeirra í 388 daga. MEST LESIÐ á dv.is MYNDIN Hver er maðurinn? „Kristinn Þórarinsson, 14 ára.“ Hvað drífur þig áfram? „Viljinn til að ná markmiðum mínum.“ Hvar ertu uppalinn? „Uppalinn í Reykjavík.“ Hvað hefur þú æft sund lengi? „Ég er búinn að æfa sund síðan ég var 3 ára.“ Hvað æfir þú oft í viku og hve lengi í senn? „Ég æfi átta sinnum í viku. Einn og hálfan til þrjá tíma í senn.“ Hvað borðar þú á mótsdegi? „Ég fæ mér oftast einhvern jógúrtdrykk.“ Er þetta besta frammistaða þín á móti hingað til? „Þetta er jafngóð frammistaða og á ANÍ í sumar.“ Er eitthvað eitt met sætara en annað? „Það er erfitt að velja en ætli það sé í ekki í 100 metra baksundi.“ Hver eru þín framtíðarmarkmið í íþróttinni? „Að ná á Ólympíuleikana og komast á öll þessi stórmót.“ Hvaða önnur áhugamál átt þú? „Bara þessi hefðbundnu. Það eru vinir og það allt. Og fjölskyldan auðvitað.“ Áttu þér einhverja fyrirmynd í sportinu? „Þær eru aðallega tvær. Annars vegar Örn Arnarson og hins vegar Michael Phelps.“ Er framtíðin björt á Íslandi fyrir sundfólk? „Já, það myndi ég segja. Hún er bara mjög björt.“ MAÐUR DAGSINS „Nei, ekki ennþá.“ GUNNHILDUR HENNÝ HELGADÓTTIR 19 ÁRA NEMI „Ég versla allar jólagjafir á Þorláks- messu.“ HRAFN ÁRNI HRÓLFSSON 29 ÁRA KVIKMYNDAGERÐARMAÐUR „Nei.“ HEIÐRÚN HARPA HELGADÓTTIR 34 ÁRA SÁLFRÆÐINGUR „Nei.“ ARNAR SIGURÐSSON 28 ÁRA KVIKMYNDAGERÐARMAÐUR „Ég er ekki byrjuð.“ HANNA GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR 57 ÁRA HÚSMÓÐIR ERTU BYRJUÐ/BYRJAÐUR AÐ KAUPA JÓLAGJAFIR? DÓMSTÓLL GÖTUNNAR MÁNUDAGUR 15. nóvember 2010 UMRÆÐA 19 Okkur miðar vel út í bláinn ÍRIS ERLINGS- DÓTTIR fjölmiðlafræðingur skrifar Hvers vegna erum við að gefa Magma þessa miklu framtíðarmöguleika? KJALLARI Fallinna hermanna minnst Minningarathöfn um þá hermenn sem féllu í fyrri og seinni heimsstyrjöldinni fór fram í hermanna- grafreitnum í Fossvogskirkjugarði á sunnudag. Hér sést Luis E. Arreaga-Rodas, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, leggja krans á minnisvarða í garðinum. Séra Bjarni Þór Bjarnason stjórnaði athöfninni. MYND RÓBERT REYNISSON

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.