Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2010, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2010, Qupperneq 24
Sölvi ekki með gegn ÍSrael Íslenski landsliðsfyrirliðinn í knattspyrnu, Víkingurinn Sölvi Geir Ottesen, verður ekki með Íslandi þegar það mætir Ísrael í vináttuleik í Tel Aviv á miðvikudaginn. Unnusta Sölva á von á þriðja barni þeirra skötuhjúa og fékk hann því leyfi frá leiknum. Jón Guðni Fjólu- son úr Fram var kallaður í hópinn í stað Sölva. Jón Guðni hefur verið á ferð og flugi eftir að Íslandsmótinu lauk en hann hefur bæði verið til reynslu hjá PSV Eindhoven í Hollandi og FC Bayern München í Þýskalandi. nielSen lofar ólafi Skartgripasalinn Kasi- Jesper Nielsen, eigandi Íslendingaliðanna Rhein-Neckar Löwen og AG Kaupmannahafnar, hættir ekki að orða Ólaf Stefánsson við AG og lét hann hafa eftir sér um helgina að Ólafur færi frá Þýska- landi til Danmerkur eftir keppnistímabilið. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Jesper talar um þessi félagaskipti en sjálfur hefur Ólafur ekki viljað staðfesta neitt. Ólafur átti upphaflega að fara til AG þegar það var 3. deildar lið en þau áform breyttust og vildi Kasi-Jesper hann til Þýskalands. molar Rooney gæti spilað um næstu helgi n Mike Phelan, aðstoðarknattspyrnu- stjóri Manchester United, er hæst- ánægður að vera kominn með Wayne Rooney aftur til æfinga. Hann er byrjaður að æfa á fullu og ætla Phelan og Fergu- son að sjá hvernig hann byrjar næstu viku. „Við munum skoða hann vel og reynum að byggja hann upp fyrir næstu helgi. Hann er búinn að æfa vel frá því hann kom heim en æfingaplanið sem við létum hann fá hefur gengið vonum framar. Við erum enn ósigraðir og með því að fá Wayne Rooney aftur heilan getum við vonandi farið að breyta eitthverj- um af þessum jafnteflum í sigra,“ segir Mike Phelan. FeRgie vill hendeRson n Og aðeins meira af Manchester United. Sir Alex Ferguson er mjög áhugasamur um að fá hinn tvítuga Jordan Hend- erson til liðsins frá Sunderland. „Fergie hefur aðeins talað einu sinni við mig um einn af leikmönnum mínum. Það var Antonio Valencia hjá Wigan og hvað haldið þið? Hann keypti hann!“ grínaðist Steve Bruce, stjóri Sunderland, sem áður lék undir stjórn Fergusons. „Hann vill að ég haldi sér upplýstum um gengi Hendersons og kallinn fær nú prik fyrir að koma svona heiðarlega fram,“ segir Steve Bruce. auðvelt hjá pacquiao n Filippseyingurinn Manny Pacquiao sannaði enn einu sinni styrk sinn í hnefaleikarhringnum þegar hann fór létt með að berja Mexíkó- ann Antonio Margarito í spað í Dallas aðfaranótt sunnudags. Pacquiao landaði sínum áttunda heimsmeistara- titli með sigri á stigum, 120–108, 118–110 og 119–109. „Ég meiddist einu sinni í bardaganum en þá var ég við kaðlana og fékk þungt högg í magann. Mér finnst samt að dómarinn og læknirinn hefðu átt að kíkja á augað á Margarito eftir elleftu lotu. Það var illa farið. Box er ekki gert til að menn drepi hvor annan,“ sagði Pacquiao eftir bardagann. enn auðveldaRa hjá haye n Annar risabardagi var á laugar- dagskvöldið en þá rotaði breski þungavigtarkappinn David Haye andstæðing sinn Audley Harrison í þiðju lotu. Haye hafði sagst ætla að flytja úr landi myndi hann tapa fyrir Harrison því það yrði svo mikil skömm. Sigurinn var þó afskaplega auðveldur hjá Haye. „Ég sagði öllum að ég myndi rota hann í þriðju lotu og ég stóð við það. Ég er það góður að stýra bardögum að ég ræð því hvenær andstæðingurinn fer niður. Ég hefði getað klárað bardagann fyrr en vildi standa við að klára dæmið í þriðju lotu,“ sagði Haye. 24 Sport UMSJÓN: tóMAS þóR þóRðARSon tomas@dv.is 15. nóvember 2010 mánudagur „Weltmeister!“ öskraði verkfræð- ingur Sebastians Vettels í talstöðina hjá Þjóðverjanum unga nokkrum sekúndum eftir að hann kom fyrst- ur í mark í lokamótinu í Abu Dhabi. Hann vildi ekki að Vettel fagnaði of snemma en þegar ljóst var að Vett- el var orðinn yngsti heimsmeistar- inn í sögunni öskraði Vettel af gleði á móti og brast svo í grát með hjálm- inn á höfðinu. Vettel var 23 ára og 134 daga gamall í gær þegar hann varð heimsmeistari en Lewis Ham- ilton var 23 ára og 346 daga gamall þegar hann varð meistari árið 2008. Fernando Alonso var með fimmtán stiga forskot á Vettel fyrir keppnina í Abu Dhabi í gær en taktísk mistök liðsins fóru illa með hann auk þess sem Vitaly Petrov gerði Vettel ótrú- legan greiða. Klúður hjá Ferrari Fernando Alonso hefði dugað fjórða sætið í gær til að landa heimsmeist- aratitlinum þar sem Mark Webber klúðraði snemma sínum málum og átti aldrei möguleika. Ferrari gerði taktísk mistök með Alonso sem kom of snemma inn í dekkjastopp. Vildi liðið skipta um dekk strax á eftir Webber en Ástralinn stoppaði fyrr en Ferrari gerði ráð fyrir þar sem dekkin hans voru illa á sig komin. Alonso kom því út úr dekkjastoppi sínu á eftir Vitaly Petrov á Renault en rétt á undan Webber. Því miður fyrir Alonso átti Petrov eitt sitt allra besta mót í gær og mistókst Alonso margsinnis að komast fram úr hon- um. Því endaði Alonso í sjöunda sæti og missti af titlinum en Spánverjinn sem sjaldan sýnir tilfinningar var bugaður eftir mótið þar sem margir reyndu að hugga hann. „Það er auðvelt að vera vitur eftir á og segja hvaða herbragð við hefð- um átt að beita. Ef við hefðum ekki stoppað hefði Webber væntanlega tekið fram úr okkur en þar sem við stoppuðum tóku Rosberg og Petrov fram úr okkur. Þetta var mjög erf- ið ákvörðun að taka,“ sagði hunds- vekktur Alonso eftir keppnina, en hann var mjög ósáttur við hversu mikið Petrov fagnaði árangri sínum í mótinu. Vettel orðlaus Hinn ungi Sebastian Vettel brosti hringinn þegar hann reif af sér hjálm- inn og steig upp úr bílnum eftir mót- ið. Þjóðverjinn ungi var langsterkast- ur á lokasprett keppnis tímabilsins en hann vann þrjú af fjórum síðustu mótunum og var bara óheppinn að vinna ekki í Suður-Kóreu fyrir mán- uði síðan. Hann leiddi stigamótið aldrei fyrr en eftir keppnina í Abu Dhabi en það dugði auðvitað til að verða heimsmeistari. „Ég er einfaldlega orðlaus ef satt skal segja,“ sagði Vettel kampakátur á blaðamannafundinum eftir keppn- ina. „Þetta tímabil er búið að vera mjög erfitt fyrir okkur öll, bæði and- lega og líkamlega. Dagurinn í dag var svo sannarlega sérstakur. Ég vakn- aði í morgun og reyndi að hugsa sem minnst um þetta og tala ekki við of margt fólk. Ég er ekki búinn að vera efstur nema einu sinni í stigakeppn- inni og það er núna þegar það skiptir öllu máli. Ég gæti ekki verið ánægð- ari,“ sagði Vettel og bætti við: „Þetta tímabil er búið að vera upp og niður hjá mér en ég er heims- meistari og hef mörgum að þakka,“ sagði Vettel sem er vel að titlinum kominn. Hann vann fimm keppnir, var tíu sinnum á verðlaunapalli og tíu sinnum á ráspól. Verðugur meistari Vettel byrjaði ungur að aka bílum en hann var aðeins átta ára þegar hann keppti í sínu fyrsta Go Kart-móti. Hann leit ávallt mikið upp til sjöfalda heimsmeistarans Michaels Schu- machers en þeir landarnir hafa tek- ið þátt saman í Race of Champions undanfarin tvö ár og unnið í bæði skiptin. Schumacher var ánægður með Vettel eftir að hann hampaði titlinum. „Ég er mjög ánægður fyrir hans hönd því við erum vinir og þetta hef- ur verið erfitt ár fyrir hann,“ sagði Schumacher við breska ríkissjón- varpið. „Tímabilið hans hefur verið upp og niður og það er ýmislegt sem hann hefur þurft að ganga í gegnum, þó aðallega hvað varðar bílinn. Hann á þennan heimsmeistaratitil virki- lega skilinn. Ég vil bara óska honum og liðinu til hamingju, það hafa all- ir hjá Red Bull staðið sig frábærlega í ár,“ sagði Schumacher. Christian Horner, liðstjóri Red Bull, var eðlilega kampakátur en árangur Red Bull í ár er magnaður. Liðið varð heimsmeistari bílasmiða og átti ökumann númer eitt og þrjú í heimsmeistarakeppni ökuþóra. Allt þetta á sjötta ári sínu í Formúlu 1. „Þetta er ótrúlegt!“ öskraði Horner í viðtali við BBC. „Þetta hefur ver- ið mjög tilfinningaþrungin vika fyr- ir liðið. Þetta var í fyrsta skipti sem Vettel leiddi stigakeppnina og hann gerði það þegar það var mikilvæg- ast. Webber getur líka verið mjög stoltur af sinni frammistöðu í ár. Við erum tvöfaldir meistarar. Þetta er ótrúlegt!“ yngsti meistari formúlunnar Sebastian Vettel, ökumaður Red Bull, varð í gær heimsmeistari í Formúlu 1 í fyrsta skipt- ið. Hann er yngsti maður sögunnar til að landa titlinum, aðeins 23 ára og 134 daga gamall. Fernando Alonso fór illa út úr taktískum mistökum Ferrari og varð að láta sér annað sætið í stigakeppninni duga. Vettel leiddi aldrei stigakeppnina fyrr en eftir lokamótið. tóMAS þóR þóRðARSon blaðamaður skrifar: tomas@dv.is Ég er einfaldlega orðlaus ef satt skal segja. Bestur McLaren-ökuþórarnir sem enduðu í 2. og 3. sæti í Abu Dhabi sturta kampavíni yfir yngsta heimsmeistarann í sögu Formúlu 1. MynD ReuteRS Svekkelsi Fernando Alonso kom vart upp orði eftir klúðrið í Abu Dhabi. MynD ReuteRS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.