Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2010, Síða 25
Kolbeinn sKoraði gegn ajax
Hollenska liðið AZ Alkmaar, sem íslensku landsliðsmenn-
irnir Kolbeinn Sigþórsson og Jóhann Berg Guðmunds-
son leika með, vann góðan sigur á Ajax í hollensku
úrvalsdeildinni í gær. Kolbeinn gerði sér lítið fyrir og
skoraði seinna mark liðsins sem innsiglaði sigurinn á
stórveldinu Ajax. Jóhann Berg varð fyrir því óláni að
meiðast í leiknum og er nú alls óvíst um þátttöku hans í
landsleik Íslands gegn Ísrael á miðvikudaginn.
gylfi léK allan tímann í tapleiK
Landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson var kominn aftur í byrj-
unarlið Hoffenheim sem mætti Freiburg í þýsku Bundesligunni í
gær. Gylfa gekk þó ekki jafnvel og síðast þegar hann var í byrjun-
arliði Hoffenheim en þá skoraði hann tvö mörk og lagði upp eitt
í 4–0 sigri liðsins. Gylfi lék allan tímann með Hoffenheim í síðasta
leik en liðið fékk á sig sigurmark í uppbótartíma og tapaði leikn-
um 1–0. Hoffenheim er því áfram í sjöunda sætinu. Freiburg er í
fjórða sæti Bundesligunnar, en Borussia Dortmund er á toppnum.
Úrslit
mánudagur 15. nóvember 2010 sport 25
Sunderland hélt heldur betur lífi
í toppbaráttunni í ensku úrvals-
deildinni þegar liðið gerði sér lít-
ið fyrir og lagði Englandsmeistara
Chelsea að velli, 3–0, á Stamford
Bridge. Nedum Onuhoa, Asam-
oah Gyan og Danny Welbeck
sáu um markaskorun en Sunder-
land-liðið átti ekkert minna skilið
en tölurnar gefa til kynna. Mark
Nedum Onuhoa var einstaklega
skemmtilegt en honum tókst þá
eitthvað sem bestu framherj-
um heimsins hefur oft mistekist,
að sóla Chelsea-vörnina upp úr
skónum og skora eftir laglegan
einleik. Með markinu varð Onu-
hoa aðeins þriðji leikmaðurn-
in til að skora fyrir Sunderland
á tímabilinu en Darrent Bent og
Asamoah Gyan hafa séð um það
hingað til.
Sigurinn gerir það að verkum
að Arsenal er aðeins tveimur stig-
um á eftir Chelsea á toppnum og
stigi þar fyrir aftan er Manchest-
er United. Arsenal lagði Evert-
on að velli, 2–1, á Goodison Park
þar sem Cesc Fabregas og Bac-
ary Sagna skoruðu mörkin fyrir
Arsenal en Tim Cahill minnkaði
muninn fyrir Everton undir blá-
lokin.
„Við spiluðum vel í dag. Ev-
erton gerði nánast ekkert fyrr en
þegar fimm mínútur voru eftir og
þá var það bara líklegt til að jafna
leikinn. Við verðum að halda bet-
ur út en það var virkilega gott að
sigra hérna. Þetta er erfiður úti-
völlur að sækja heim og stigin
hjálpa okkur mikið. Núna verð-
um við bara að strengja saman
nokkra sigra og reyna að komast
á flug,“ sagði hinn óvænti marka-
skorari Arsenal, Bacary Sagna,
eftir leikinn.
tomas@dv.is
Sunderland hélt lífi í titilbaráttunni:
Öruggur sigur á Brúnni
„Ég stefndi á að vinna þetta þannig
að þetta kom mér ekkert þannig séð
á óvart,“ segir badmintondrottningin
Ragna Ingólfsdóttir en hún vann Ice-
land International-mótið, alþjóðlegt
mót sem haldið var í fjórða skiptið í
húsakynnum TBR um helgina. Ragna
var efst á styrkleikalista mótsins og
mætti hún stúlkunni sem átti að vera
næststerkust, Anitu Raj frá Malasíu,
í úrslitaleiknum. Ragna hafði sigur í
tveimur lotum, 21–17 og 21–18. Fyr-
ir sigurinn fær Ragna aðeins 1.700
stig á heimslistanum og missir þar
með 800 stig frá sigrinum í fyrra. Hún
stefnir þó á að komast upp fyrir 60.
sæti á heimslistanum fyrir áramót.
Ragna vann einnig tvíliðaleikinn ör-
ugglega ásamt Katrínu Atladóttur en
þær unnu Tinnu Helgadóttur og Erlu
Björg Hafsteinsdóttur, 21–14 og 21–
13, í úrslitum.
Orðin þreytt
Þrátt fyrir að úrslitaleikurinn hafi
klárast í tveimur lotum var hann rétt
tæpar fjörutíu mínútur en svo langir
leikir fara vanalega í oddalotu. „Það
var alveg rosamikið spil í leiknum og
ég var orðin þreytt þarna undir lokin.
Anita klúðraði rosalega litlu og hélt
boltanum lengi í spili. Hún er lágvax-
inn og þannig spilarar reyna oft að
halda spilinu gangandi,“ segir Ragna.
„Tilfinningin að vinna þetta var góð.
Ég hef ekki unnið titil síðan á þessu
sama móti í fyrra,“ bætir hún við.
Ragna virðist vera búin að ná sér
af alvarlegum hnémeiðslum sem
hafa hrjáð hana lengi. „Ég finn ekkert
til lengur. Ég er búin að vera verkja-
laus í nokkra mánuði og er hætt að
spila með hlífina. Mér er aldrei illt í
hnénu,“ segir hún.
Lækkar á heimslistanum þrátt
fyrir sigurinn
Ragna hefur átt góðu gengi að fagna
síðan hún byrjaði aftur að keppa í
september og sigurinn á Iceland Int-
ernational því rökrétt framhald af ár-
angri undanfarinna vikna. Sigurinn
verður Rögnu þó dýr þegar litið er á
heimslistann. „Það var alveg spurn-
ing um hvort ég myndi keppa á þessu
móti. Ég fékk bara 1.700 stig fyrir að
vinna þetta en ekki 2.500 eins og í
fyrra,“ segir Ragna en þar sem mót-
ið er minna og engin peningaverð-
laun voru í boði fengust færri stig á
heimslistann fyrir að keppa á Iceland
International. Telur því sigur Rögnu
á sama móti í fyrra ekki og missir
hún því 800 dýrmæt stig á heimslist-
anum.
„Ég verð bara að keppa á heima-
velli. Ég gæti aldrei sleppt þessu
móti,“ segir Ragna sem ætlar að
reyna koma sér upp fyrir sextugasta
sæti heimslistans fyrir áramót.
Tvö sterk mót fyrir áramót
Ragna heldur til Noregs í vikunni en
hún á að keppa á sterku móti þar um
næstu helgi og svo öðru móti á Ír-
landi eftir það áður en hún fer svo í
frí fram í miðjan janúar. „Mótið í Nor-
egi er svona tveimur stigum hærra en
Iceland International. Stelpan sem
er talin sterkust þar er held ég í 20.
sæti á heimslistanum. Það eru líka
fleiri stig í boði á því móti. Fyrir að
komast í átta liða úrslitin fæ ég 2.200
stig. Það væri fínt til að halda mér á
pari en ég stefni að því að reyna ná
að meðaltali 2.000 stigum út úr öll-
um mótum,“ segir Ragna.
Ég verð bara að keppa á heima-
velli. Ég gæti aldrei
sleppt þessu móti.
Tapar á sigrinum
Badmintonkonan Ragna Ingólfsdóttir fór létt með að vinna Iceland International-mótið
sem haldið var í húsum TBR um helgina. Ragna hefur unnið mótið í öll fjögur skiptin sem
það hefur verið haldið. Sigurinn gefur þó það fá stig að Ragna lækkar á heimslistanum.
Tómas þóR þóRðaRsOn
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Fjórir af fjórum Ragna
er ósigrandi á heimavelli.
mynd amE
Flottur Asamoah Gyan skoraði sitt fimmta mark í deildinni gegn Chelsea.
mynd REuTERs
Enska úrvalsdEildin
aston Villa - man. united 2-2
1-0 Ashley Young (72. víti), 2-0 Marc Albrighton (76.), 2-1 Fedrico
Macheda (81.), 2-2 Nemanja Vidic (85.).
man. City - Birmingham 0-0
newcastle - Fulham 0-0
Tottenham - Blackburn 4-2
1-0 Gareth Bale (16.), 2-0 Roman Pavlyuchenko (42.), 3-0 Peter
Crouch (69.), 4-0 Gareth Bale (76.), 4-1 David Dunn (80.), 4-2
Gael Givet (87.).
West Ham - Blackpool 0-0
Wigan - WBa 1-0
1-0 Victor Moses (70.).
Úlfarnir - Bolton 2-3
0-1 Richard Stearman (1. sm), 0-2 Johan Elmander (62.), 0-3
Stuart Holden (67.), 1-3 Kevin Foley (69.) 2-3 Steven Fletcher (78.).
stoke - Liverpool 2-0
1-0 Ricardo Fuller (56.), 2-0 Kenwyne Jones (90.).
n Lucas Leiva, Liverpool (90.).
Everton - arsenal 1-2
0-1 Bacary Sagna (36.), 0-2 Cesc Fabregas (46.), 1-2 Tim Cahill
(89.).
Chelsea - sunderland 0-3
0-1 Nedum Onuhoa (45.), 0-2 Asamoah Gyan (52.), 0-3 Danny
Welbeck (87.).
staðan
Lið L u J T m st
1. Chelsea 13 9 1 3 28:8 28
2. Arsenal 13 8 2 3 26:12 26
3. Man. Utd 13 6 7 0 26:15 25
4. Man. City 13 6 4 3 15:10 22
5. Bolton 13 4 7 2 21:19 19
6. Sunderland 13 4 7 2 15:13 19
7. Tottenham 13 5 4 4 18:17 19
8. Newcastle 13 5 3 5 21:16 18
9. Aston Villa 13 4 5 4 15:18 17
10. Stoke City 13 5 1 7 15:18 16
11. Liverpool 13 4 4 5 13:17 16
12. WBA 13 4 4 5 16:22 16
13. Everton 13 3 6 4 14:13 15
14. Blackburn 13 4 3 6 15:18 15
15. Blackpool 13 4 3 6 19:26 15
16. Fulham 13 2 8 3 13:13 14
17. Wigan 13 3 5 5 10:21 14
18. Birmingham 13 2 7 4 14:17 13
19. Wolves 13 2 3 8 13:23 9
20. West Ham 13 1 6 6 11:22 9
Enska b-dEildin
Burnley - Watford 3-2
Crystal Palace - Coventry 2-0
Aron Einar Gunnarsson byrjaði á bekknum en kom inn á sem
varamaður á 65. mínútu.
Ipswich - Barnsley 1-3
Leeds - Bristol 3-1
Leicester - derby 2-0
millwall - sheff. united 0-1
nott. Forest - QPR 0-0
Heiðar Helguson er enn frá vegna meiðsla í liði QPR.
Portsmouth - doncaster 2-3
Hermann Hreiðarsson var ónotaður varamaður í liði
Portsmouth.
scunthorpe - Cardiff 2-4
Reading - norwich 3-3
Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson eru báðir frá
vegna meiðsla í liði Reading.
staðan
Lið L u J T m st
1. Cardiff 17 11 3 3 33:16 36
2. QPR 17 9 8 0 30:7 35
3. Swansea 17 10 2 5 22:13 32
4. Derby 17 8 3 6 29:19 27
5. Leeds 17 8 3 6 31:31 27
6. Burnley 17 6 8 3 28:21 26
7. Doncaster 17 7 5 5 29:27 26
8. Norwich 17 7 5 5 26:24 26
9. Reading 17 6 6 5 27:21 24
10. Nottingham F. 17 5 9 3 19:16 24
11. Coventry 17 7 3 7 24:23 24
12. Ipswich 17 7 3 7 20:21 24
13. Watford 17 6 4 7 31:29 22
14. Portsmouth 17 6 4 7 24:25 22
15. Barnsley 17 6 4 7 23:29 22
16. Leicester 17 6 4 7 23:29 22
17. Millwall 17 5 5 7 20:21 20
18. Scunthorpe 17 6 2 9 21:27 20
19. Sheffield Utd 17 5 4 8 13:22 19
20. Hull 17 4 6 7 14:21 18
21. Middlesbro 17 5 2 10 17:26 17
22. Bristol City 17 4 5 8 17:28 17
23. Cr. Palace 17 5 2 10 20:32 17
24. Preston 17 4 2 11 22:35 14