Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2010, Qupperneq 26
Fjallað um íslenskar konur í nóvemberhefti Marie Claire:
Heilluð af Katrínu
26 fólKið 15. nóvember 2010 Mánudagur
Andlit Bláa
lónsins
Fegurðardrottningin Unnur Birna
Vilhjálmsdóttir er nýtt andlit Bláa
lónsins. Unnur Birna mun koma fram
í nýrri auglýsingaherferð Bláa lónsins
auk þess sem hún mun vera andlit
þess á kynningarviðburðum víða
um heim. Unnur Birna hefur mikla
reynslu í því að vera í forsvari fyrir
Ísland og íslenskar afurðir í útlöndum
en hún var eins alþjóð veit ungfrú
heimur árið 2005 auk þess sem að
hún var kynningarstjóri íslenska
skálans á heimssýningunni í Sjanghæ
nú í haust. Ásamt því að starfa með
Bláa lóninu klárar Unnur mastersnám
í lögfræði í Háskólanum í Reykjavík.
Litli bróðir
Ingós slær
í gegn
Litli bróðir Ingós í Veðurguðunum
vakti mikla athygli þegar hann tók
lagið á milli atriða í Söngkeppni Fjöl-
brautaskóla Suðurlands. Bróðir Ingós
heitir Guðmundur Þórarinsson
og spilar með ÍBV í úrvalsdeildinni í
knattspyrnu. Hann vann söngkeppn-
ina árið 2008 og hefði tekið þátt í
ár en annir í boltanum komu í veg
fyrir þátttöku. Ingó segir bróður sinn
hafa góða hæfileika en hann sé of
upptekinn af boltanum til þess að
vilja gera meira úr ferlinum. „Þetta er
áhugamál hjá Gumma eins og þetta
var hjá mér einu sinni. En Gummi
er í boltanum og stendur sig það
vel með meistaraflokknum að hann
hefur í raun engan tíma fyrir þetta
eins og er. Svo er bara og bíða og
sjá hvað verður en drengurinn hefur
auðvitað vakið mikla athygli.“
Menntamálaráðherra er frábær fyrirmynd
Það er vart hægt að hugsa sér betri fyrirmynd en
Katrínu Jakobsdóttur fyrir ungar konur heimsins.
S tefán Hallur Stefáns-son leikari er á bóla-kafi í kreppunni enda fer hann með aðalhlut-
verk í tveimur áleitnustu verkum
vetrarins er viðkoma málefnum
tengdum hruni og siðspillingu.
Í Enron fer hann með burðar-
hlutverk forstjóra Enron, Jeffreys
Skillings, og í Mojito, nýju ís-
lensku leikverki eftir leikskáldið
Jón Atla Jónasson, fer hann með
annað aðalhlutverka á móti Þóri
Sæmundssyni. Forsýning á verk-
inu verður á þriðjudagskvöld og
frumsýning á miðvikudagskvöld.
Stefán Hallur hefur átt mik-
illi velgengni að fagna síðustu
misseri og hlaut til að mynda lof
gagnrýnenda fyrir hlutverk sitt í
Enron. „Jú, ég er í kreppunni og
fjalla um báðar hliðar á sama
peningi, í Enron er fjallað um
það sem við hefðum átt að draga
lærdóm af, aðdragandann. Með-
an í Mojito skoðum við eftirleik-
inn og glímuna við hann,“ segir
Stefán.
Steig fyrst á fjalir í Tjarnarbíói
Stefán Hallur kann vel við sig
á sviðinu í Tjarnarbíói. „Þær
breytingar sem hafa verið gerðar
hér innandyra eru til þess fallnar
að halda lífi í sögu og gömlum
anda hússins. Hér eru komnar
betri græjur og gott fólk og þótt
að húsið sé skemmtilegt til tón-
leikahalds þá hentar það líka vel
til þess að setja upp leikverk.
Ég hvet alla sviðslistamenn til
að kíkja þarna niður eftir.“
Stefán Hallur steig fyrst á svið
sem leikari á sviði Tjarnarbíós
árið 1996. „Jú, það er skemmti-
legt að segja frá því. Hér lék-
um við leikararnir Björn Thors
og Ilmur Kristjánsdóttir í verk-
inu Animal Farm í uppfærslu
Menntaskólans við Hamrahlíð.
Ég lék hið stórkostlega hlutverk
hrafnsins. Þetta var mögnuð sýn-
ing.“
Veislan góða og vesenið
„Mojito er einfaldlega leikrit
sem fólk þarf að sjá,“ segir Stef-
án. „Söguþráður verksins er á
þá leið að tveir menn hittast fyr-
ir tilviljun og annar þeirra fer að
rifja upp heimsókn sína á ind-
versk/pakistanskan veitingastað
í Reykjavík sem endaði með því-
líkum ósköpum. Við hefðum get-
að sett upp verkið á allan mögu-
legan máta; við hefðum getað
sett þetta upp sem skemmtilegt
leikrit þar sem gesturinn hefði
ekkert þurft að reyna á sig held-
ur bara láta hafa ofan fyrir sér.
En þótt verkið sé líka fyndið þá
reynir það líka á. Í verkinu er
fjallað um gildismat síðustu ára
og hvaða gjald það felur í sér.
Það þarf að rifja upp veisluna og
gera ákveðin reikningsskil. Þetta
er djúpt og marglaga verk sem
tekur á þeim djúpa sársauka
sem verður til þegar við viljum
ekki viðurkenna gjörðir okkar en
erum samt að glíma við afleið-
ingar þeirra. Hér á landi erum við
enn í þessu sama blessaða veseni
sem hrunið er en það heitir öðru
nafni. Við glímum við afleiðing-
arnar bókstaflega og andlega.“
kristjana@dv.is
Stefán Hallur Stefánsson fer með annað
aðalhlutverka í nýrri uppfærslu Tjarnar-
bíós, Mojito, sem frumsýnd verður á mið-
vikudaginn. Stefán steig sín fyrstu skref
á sviði Tjarnarbíós í uppfærslu Mennta-
skólans við Hamrahlíð á Animal Farm
og þykir vænt um hversu vel hefur tekist
að lífga upp á gamlan anda hússins.
Á bólakafi
í Kreppunni
TVeir SVellkaldir Stefán Hallur Stefánsson
leikari (t.h.) og kollega hans, Þórir Sæmundsson, á
ísi lagðri Reykjavíkurtjörn.
Mynd róBerT reyniSSon
StefÁn Hallur StefÁnSSOn:
„Ísland er land kvenfrelsis, þar
hefur glerþakið splundrast.“
Þetta er niðurstaða blaða-
mannsins Bridget Freer hjá
breska Marie Claire sem kynn-
ir áhugaverðar íslenskar kon-
ur fyrir lesendum sínum í nóv-
emberhefti blaðsins. Bridget
ræddi meðal annars við Katrínu
Jakobsdóttur menntamálaráð-
herra, Gerði Kristnýju rithöfund,
Láru Ómarsdóttur blaðamann,
og Heiðu Kristínu Helgadóttur,
framkvæmdastjóra Besta flokks-
ins. Með blaðamanni í för hér
á landi var íslenski ljósmynd-
arinn Bernhard Kristinn. Hann
segir Bridget hafa heillast mjög
af Katrínu Jakobsdóttur. Það er
auðsjáanlegt í blaðinu en þar
fjallar blaðamaður um Katrínu
sem greinda, fallega, fjölskyldu-
sinnaða og hjartahlýja konu.
Hún rekur feril Katrínar úr kenn-
arastarfi í ráðherrastól og er
gáttuð á skjótum frama hennar.
Bernhard segir Bridget ekki hafa
áttað sig á því í fyrstu í hversu
miklu ævintýralandi kvenna hún
væri stödd. „Hún ætlaði sér fyrst
að tala við frægar konur á Íslandi
en skipti fljótt um skoðun eft-
ir að hún hafði rætt við nokkrar
skemmtilegar konur um hvaða
konur það væru í raun og veru
sem væru áhugaverðar viðtals.
Hún heillaðist ákaflega af Katr-
ínu Jakobsdóttur og Steinunni
Sigurðardóttur fatahönnuði
og fannst Heiða Kristín, þáver-
andi aðstoðarkona borgarstjóra,
hrikalega góð fyrirmynd fyrir
lesendur blaðsins. Mér finnast
myndirnar koma skemmtilega
út í blaðinu.“
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
myndir Bernhards Kristins birt-
ast í erlendum fjölmiðlum. Hann
tók forsíðumynd af Björk á Roll-
ing Stone og átti mynd af for-
setahjónunum í blaðinu Even-
ing Standard svo einhverjar séu
nefndar. „Ég hef ekki fylgt því
nægilega eftir í hvaða blöðum
myndir mínar hafa birst,“ segir
Bernhard. „En þessi myndataka
er á stærri mælikvarða en aðr-
ar sem ég hef tekið þátt í og ein-
staklega skemmtilegt verkefni.“
kristjana@dv.is