Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2010, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2010, Page 3
miðvikudagur 1. desember 2010 fréttir 3 „Við þurfum að þrauka“ „Flestir hérna eru sammála því sem verið er að gera. Við þurfum að þrauka og sigla til Landeyja- hafnar í stað þess að fara alltaf til Þorlákshafnar því ef við færum alltaf þangað yrði ekkert unnið í Landeyjahöfn. Við verðum bara að þrauka,“ segir Eyjakonan Erla Björk Halldórsdóttir um skoðanir Eyjamanna á Landeyjahöfn. Höfnin ófær í rúman mánuð Vonir um bættar samgöngur á milli lands og Eyja eru að ein- hverju leyti brostnar síðan sigling- ar til Landeyjahafnar hófust um mitt síðasta sumar. Höfnin var tek- in í notkun þann 21. júlí með mik- illi viðhöfn og búist var við að hún yrði mikil bót í samgöngum og myndi auka samvinnu í atvinnu- og félagslífi á milli íbúa Vest- mannaeyja og íbúa Suðurlands. Ferðum skipsins átti að fjölga til muna og áætlað var að yfir sum- artímann ættu að vera fimm ferðir á dag en samkvæmt vetraráætlun átti þeim að fækka niður í fjórar. Höfnin hefur hins vegar verið að miklu leyti lokuð frá því í lok sept- ember vegna efnisburðar inn í hana sem að hluta til má rekja til eldgossins í Eyjafjallajökli. Siglt til Þorlákshafnar Samkvæmt upplýsingum frá Vega- gerðinni var Herjólfi siglt til Þor- lákshafnar í flestum tilfellum þeg- ar Landeyjahöfn var ófær vegna efnisburðar. Í júlí féll niður ein ferð vegna þessa en engin í ág- úst. Í september fór Herjólfur fjór- tán sinnum til Þorlákshafnar fram til 29. september en frá og með þeim degi var Landeyjahöfn með öllu ófær í rúman mánuð. Í nóv- ember var höfnin opin í 20 daga og síðustu dagana var fært. Dýpk- unarskip hafa unnið nær sleitu- laust að því að gera höfnina færa en stundum virðist sem verkið sé endalaust. Horfum bara fram á veginn Erla Björk segir sumarið hafi verið ævintýri líkast og hún treysti áfram á ferðamennsku í Eyjum. „Þess- ir mánuðir sem höfnin var opin voru frábærir og við fundum mik- inn mun hér í bænum þegar þeir hættu að sigla. Þetta var eins og manni væri rétt súkkulaði, við tók- um einn bita og svo var því kippt af manni aftur,“ segir hún. Aðspurð hvort hún og aðr- ir Eyjamenn séu þeirrar skoðun- ar að rannsóknir hefðu mátt vera betri eða hvort hægt hefði verið að standa að byggingu hafnarinnar á annan hátt segir hún: „Við eig- um ekkert að horfa til baka. Við erum komin svo langt og nú horf- um við bara fram á veginn.“ Erla Björk segir að þau treysti skipstjór- unum fullkomlega þegar taka skal ákvörðun um til hvorrar hafnar- innar skuli siglt. gunnHildur SteinarSdóttir blaðamaður skrifar: gunnhildur@dv.is Við eigum ekk-ert að horfa til baka. Við erum komin svo langt og nú horf- um við bara fram á veginn. Landeyjahöfn átti að bæta samgöngur við Vestmannaeyjar og í niðurstöðum rannsókna kom fram að höfnin yrði atvinnulífi og byggð þar, og á Suður- landi öllu, veruleg lyftistöng. Höfnin hefur ekki staðið undir væntingum þar sem hún hefur verið ófær megnið af tímanum og stundum þurft að fella niður ferðir á milli lands og Eyja. Herjólfur Hefuroftarengóðu hófigegnirþurftaðfaratil Þorlákshafnarvegnaófærðar umLandeyjahöfn. erla Björk Halldórsdóttir Viðverðumbaraaðþrauka. mP banki þarf aukið eigið fé stjórnarformaður bankans en Marg- eir Pétursson situr ekki lengur í stjórn- inni. Samvæmt heimildum DV sinnir Margeir fjárfestingum sínum í aust- anverðri Evrópu, meðal annars í Úkr- aínu. Margeir ófst inn í svonefnt Exet- er-mál á hendur helstu stjórnendum Byrs og MP banka. Ákæran var sú fyrsta sem gefin var út af embætti sér- staks saksóknara. Meðal ákærðra var Styrmir Bragason, fyrrverandi forstjóri MP banka, og fyrrverandi sparisjóðs- stjóri og stjórnarformaður Byrs spari- sjóðs. Styrmir er ákærður fyrir pen- ingaþvætti en allir þrír voru ákærðir fyrir umboðssvik. DV greindi frá því í júlí að þótt ekki hafi þótt ástæða til að kæra Margeir hafi þáttur hans í málinu verið rannsakaður. Telja verður enda ólíklegt að Exeter-viðskiptin hafi far- ið fram án vitundar, vilja og samþykk- is Margeirs. Hann staðfesti reyndar í viðtali við DV í fyrra að MP banki hefði haft milligöngu um viðskiptin. Heimildir DV herma að heildar- skuldir Margeirs og félaga hans við Byr nemi um eða yfir 2 milljörðum króna. Í ársreikningi Margeirs Pétursson- ar ehf., einkahlutafélags í hans eigu, kemur fram að skuldir félagsins við lánastofnanir nemi um 1.200 milljón- um króna og að þær hafi verið á gjald- daga árið 2009. Stærstur hluti þessara skulda, tæpur milljarður króna, var í íslenskum krónum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.