Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2010, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2010, Síða 10
10 fréttir 1. desember 2010 miðvikudagur „Við vitum ekkert hvað verður og við hugsum ekki nema nokkra klukku- tíma fram í tímann,“ segir María Eg- ilsdóttir, móðir hinnar tólf ára gömlu Helgu Sigríðar Sigurðardóttur, sem hneig niður í sundtíma í skólanum á miðvikudag í síðustu viku. Helga Sigríður dvelur nú á Sahlgrenska- háskólasjúkrahúsinu í Gautaborg en þangað var hún flutt á sunnudag með sjúkraflugi frá Reykjavík. Helgu fór að líða illa í sundtíma á miðviku- dag og eftir að hafa synt tvær ferð- ir í lauginni bað hún um leyfi til að fara upp úr. Inni í búningsklefanum kastaði hún upp og missti meðvit- und. Hún fékk hins vegar aðhlynn- ingu fljótt og var flutt á Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri áður en hún var flutt til Reykjavíkur. Stendur sig ágætlega Í Íslandi í dag á mánudag kom fram að Helga hefði í raun fengið kransæðastíflu og veikindi henn- ar flokkuðust ekki sem hjartagalli. Hún hefur verið tengd í hjarta- og lungnavél síðan hún hneig niður en í samtali við DV á þriðjudagskvöld sagði María að Helga standi sig ágætlega. Læknar á Sahlgrenska- sjúkrahúsinu hafi prófað að af- tengja vélina og Helga hafi brugðist ágætlega við því. Baráttunni sé þó hvergi nærri lokið. „Þetta er eintómur línudans. Enn sem komið er plumar hún sig ágætlega. Það er svo margt í gangi; blæðingar og blæðingarhætta,“ seg- ir María og bætir við að læknar séu að athuga hvað sé best að gera. Haldið sofandi „Það koma litlir sigrar og svo kem- ur bakslag þannig að við vitum ekki alveg hvað verður. En við bíð- um bara og bíðum og okkur er sagt að það verði þannig,“ segir María en Helgu er enn haldið sofandi. Hún segir að hjartsláttur hennar og lungnastarfsemi séu örlítið betri en áður en enn sé óvíst hvenær hægt verði að vekja hana. „Læknarnir segja að þetta taki tíma.“ María segist ekki vita betur en að Helga sé ekki heilasködduð eft- ir atvikið og þakkar hún fyrir það. „Hún hreyfði sig vel í dag. Við vit- um það ekki fyrir víst en við höld- um það.“ Ómetanlegur stuðningur Mál Helgu hefur vakið mikla at- hygli á Íslandi og hafa fjölmarg- ir styrkt fjölskylduna fjárhagslega. Þannig eru tæplega 3.000 manns í Facebook-hópi til að sýna Helgu stuðning og segist María öllum þeim sem hafa sýnt þeim stuðning ævinlega þakklát. „Öll þessi fallegu skrif á Facebook hafa hjálpað okk- ur, systkinum hennar og fjölskyldu gríðarlega mikið. Það hélt okk- ur gangandi. Þegar maður sat og beið var frábært að fá svona hlýj- ar kveðjur og góða strauma,“ segir María og bætir við að heilbrigðis- starfsfólk, bæði hér á landi og í Sví- þjóð hafi staðið sig frábærlega. Helgu Sigríði Sigurðardóttur, tólf ára, er enn haldið sofandi á Sahlgrenska-sjúkra- húsinu í Gautaborg. Hún er þó ekki leng- ur tengd við hjarta- og lungnavél. Móðir hennar, María Egilsdóttir, segir að nú sé tímabil óvissu og tíminn muni leiða í ljós hvort Helga nái fullum bata. Hún er þakklát fyrir þann mikla stuðning sem fjölskyldunni hefur verið sýndur. Einar þÓr SigurðSSon blaðamaður skrifar: einar@dv.is „Eintómur línudans“ Öll þessi fallegu skrif á Facebook hafa hjálpað okkur, syst- kinum hennar og fjöl- skyldu gríðarlega mikið. Dugleg stúlka Helgahefur stundaðfimleika meðFimleikafélagi Akureyrarárum saman.Hennier haldiðsofandi áSahlgrenska- sjúkrahúsinuí Gautaborg.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.