Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2010, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2010, Síða 22
22 1. desember 2010 miðvikudagur Ævisögur íslenskra stjórnmála- manna eru áhugaverðar að því marki sem þeir hafa kjark til þess að segja sannleikann, afhjúpa og af- létta leyndarhyggju íslenskra klíku- stjórnmála. Þær eru síður áhuga- verðar þegar kemur að skoðunum og túlkunum þeirra á atburðarás í stjórnmálasögunni þar sem þeir hafa sumir hverjir leikið lykilhlut- verk. Slíkar frásagnir bera oft keim af gagnrýnislausri sjálfsréttlætingu og þrekleysi til þess að gera hlutina upp. Þetta á alveg sérstaklega við um áhrifamenn sem horfa um öxl án þess að taka flokksgleraugun af nefinu. Um þetta má hafa það sem franski þjóðfélagsfræðingurinn og lögfræðingurinn Maurice Duver- ger sagði í inngangi að merkri rann- sókn sinni um stjórnmálaflokka um miðja síðustu öld: „Tilveran innan flokksins er vísvitandi sveipuð dul- úð. Það er ekki auðvelt að afla ná- kvæmra gagna um stjórnmálaflokka, ekki einu sinni um undirstöðuat- riði. Þetta er líkt og að vera ofurseld- ur frumstæðu regluverki þar sem launung ríkir um lög og helgisiði og hinir innvígðu halda þeim kyrfilega leyndum fyrir óviðkomandi. Aðeins gamalreyndir trúnaðarmenn hafa nauðsynlega vitneskju um fram- ferði manna og slóttugt leynimakk sem fram fer innan flokksins. Þess- ir menn hafa á hinn bóginn sjaldan til að bera þá fræðilegu hugsun sem gerir þeim kleift að halda nauðsyn- legri hlutlægni. Og þeir tala ekki fús- lega.“ Blekktur ráðherra Á þessi lýsing Duvergers við um nýja bók Árna M. Mathiesen sem skráð er af Þórhalli Jósepssyni fréttamanni? Svalar efniviðurinn forvitni lesand- ans? Svarar Árni mikilvægum spurn- ingum? Hvort verður sannleikurinn eða sannlíkið ofan á? Er bókin mál- svörn þar sem sannleikurinn er ekki endilega í lykilhlutverki heldur hitt sem gagnlegt reynist til sýknu? Vert er að fara yfir nokkur atriði, sýnishorn, áður en spurningunum er svarað og dómur felldur. Spurn- ingarnar eiga vitanlega fullan rétt á sér þegar um er að ræða mann úr innsta kjarna Sjálfstæðisflokksins síðustu 20 árin og ráðherra flokksins í 10 ár. Á einum stað segir Árni orðrétt um eftirlitsstofnanir og á þá væntan- lega við Fjármálaeftirlitið og Seðla- banka Íslands: „Eftirlitsaðilarnir gáfu okkur ranga mynd af stöðunni, ekki vegna þess að þeir væru að reyna að blekkja okkur, heldur vegna þess væntanlega að þeir höfðu ekki heldur réttu upplýsingarnar. Þá er ekki um annað að ræða en að álykta sem svo að bankarnir hafi blekkt. – Fyrir okkur var ekki annað mögu- legt en að taka þessa mynd trúan- lega sem dregin var upp fyrir okkur.“ (bls. 180). Rakalausar sakanir Þegar þessi skilningur Árna er bor- inn saman við afstöðu hans til ráð- herraábyrgðar og landsdóms fellur allt saman í eina rökrétta heild. Sem kunnugt er taldi þingmannanefnd- in, sem fjallaði um skýrslu rann- sóknarnefndar Alþingis, að ákæra bæri Árna fyrir vanrækslusyndir í embætti fjármálaráðherra. Árni seg- ir orðrétt: „Sakargiftir eru um van- rækslu, stórkostlegt hirðuleysi og jafnvel ásetning. Allt byggir það á huglægu mati, jafnvel mati byggðu á upplýsingum sem voru ekki kunnar fyrr en eftir að ákvarðanir voru tekn- ar sem kenndar eru við vanrækslu og hirðuleysi. – Í rauninni hef ég ekki ennþá séð hvað annað við hefðum getað gert. Enginn hefur sagt hvað það var sem við hefðum átt að gera. Það þarf að vera orsakasamhengi á milli þess sem á að hafa verið van- rækt og þess sem gerðist. Ég hef ekki séð að gerð hafi verið grein fyrir því að slíkt orsakasamhengi sé nokkurs staðar sjáanlegt.“ ( bls. 199). Vondar skýrslur Á enn öðrum stað leggur Árni mat á skýrslur sem gefnar voru út um litlu kreppuna svonefndu fyrri hluta árs- ins 2006. Margoft hefur verið gefið í skyn að fyrri hluti þessa árs hafi skipt sköpum, feigðarmerkin á íslensku bönkunum hefðu átt að vera reynd- um fagmönnum fjármálastarfsem- innar augljós. Árni segir um þetta: „Þá skrifuðu Tryggvi Þór Herberts- son, þáverandi forstöðumaður Hag- fræðistofnunar Háskóla Íslands, og Frederic S. Mishkin, prófessor við Columbia-háskóla, mjög jákvæða skýrslu um íslenskt efnahagslíf. Í nóvember 2007 sendu Friðrik Már Baldursson, deilarforseti Háskólans í Reykjavík, og Richard Portes, próf- essor við London Business School, ennig frá sér afar jákvæða skýrslu. – Það er ágætt að skoða samhengi þessara skýrslna sem voru að koma út á þessum tíma. Allir höfðu höf- undarnir eitthvað til síns máls hvort sem þeir voru að gagnrýna Ísland eða verja. Í raun höfðu hinsvegar all- ir rangt fyrir sér þegar á heildina er litið því enginn, hvorki Danske Bank og Fitch, né Mishkin eða Portes, sá fyrir að yfirvofandi var alheims- fjármálakreppa og það er hún sem skipti mestu máli þegar á heildina er litið.“ (bls. 150). Um haldbæra þekkingu og faglega vinnu Samandregið er merkingin þessi: Árni gat ekki annað en tekið eftirlitsstofnanir trúanlegar sem reyndust því miður hafa upplogn- ar upplýsingar í höndum frá bönk- unum. Ásakanir um vanrækslu eða hirðuleysi eru í engu samhengi við einmitt þetta, að Árni lifði í blekk- ingu, og ákvarðanir hans og annarra ráðherra voru því byggðar á sandi. Auk þess skiptu þessar upplýsing- ar engu máli því alheimsfjármála- kreppan reið baggamuninn. Um þetta má segja margt, en í fljótu bragði má benda á, að skiln- ingur og túlkun rannsóknarnefndar Alþingis og síðar þingmannanefnd- arinnar voru einfaldlega allt önnur en sú er Árni heldur sig við. Hér skulu nefnd þrjú atriði sem beinlínis tengjast tilvitnunum hér að framan. Í fyrsta lagi er álitamál hvort ráðherrann getur hlaupið í það skjól að hafa verið blekktur. Hér gæti það verið verkefni frammi fyrir dóm- stóli að draga upp mynd af orsaka- samhengi að virtum öllum reglum réttar farsins. Þetta er nánast sjálf- sagt í máli sem stappar nærri þjóð- argjaldþroti. Í öðru lagi eru lög um ráðherra- ábyrgð og landsdóm í gildi. Þau voru hugsuð til brúks á mjög af- mörkuðu sviði sem snertir aðgerðir eða aðgerðarleysi kjörinna fulltrúa – ráðherra – og getur varðað þjóð- aröryggi og efnahagslegt sjálfstæði. Danskur stjórnlagafræðingur sagði viðtali í Spegli RÚV í síðustu viku að lög um landsdóm væru ágæt en þau íslensku væru sniðin eftir þeim dönsku. Um væri að ræða eins kon- ar kviðdóm sem sækti kunnáttu og þekkingu til stjórnmálamanna. Rétt eins og skipstjórar sitja við hlið dóm- ara í sjórétti. – Loks hefur verið á það bent af lögspekingum að lítil hætta sé á að mannréttindi ráðherra verði fyrir borð borin í málarekstri fyrir landsdómi. Í þriðja lagi læðist sá efi að les- andanum að Árni telji sjálfsagt að unnt sé að panta skýrslur með eða á móti Íslandi og að undir hælinn sé lagt hvort haldbær þekking, til dæmis um ástand íslenska banka- kerfisins, kunni að leynast í þeim. Sumarið 2007 kom Robert Aliber, sá heimskunni kreppuhagfræðing- ur, til landsins. Aliber leit á bygg- ingarkranana og spáði hruni innan skamms tíma. Fjöldi Íslendinga flutti sparifé sitt úr landi síðla það ár enda sjúkdómseinkenni undirmálskrepp- unnar orðin augljós fyrir menn sem ekki treystu á blekkingar íslensku bankanna. Með flokksgleraugunum Að svo miklu leyti sem fram koma nýjar og mikilvægar upplýsingar í bókinni um „Árna Matt“ er varða að- draganda og orsakir hrunsins hefðu þær einnig átt að koma fram í eið- svarinni skýrslutöku Árna hjá rann- sóknarnefnd Alþingis. Hafi Árni leynt nefndina upplýsingum er það ekki aðeins ámælisvert heldur einn- ig refsivert. En í fljótu bragði verð- ur ekki séð að bókin um Árna bæti miklu við rannsóknarskýrslu Alþing- is. Vissulega eru til dæmis áhuga- verðar lýsingar á afstöðu Árna og Sjálfstæðisflokksins til samstarfs- flokksins, Samfylkingarinnar. Sama er að segja um lýsingar Árna á mik- ilvægum Ecofin-fundi sem hann sótti í Brussel í nóvember 2008 og komu Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra á ríkisstjórnarfund í þann mund sem hrunið varð. Mikilvægt er að færa þetta þetta til bókar rétt eins og hitt hvernig það smám saman rann upp fyrir Árna í björgunaraðgerðunum að andstaða við aðildarumsókn að Evr- ópusambandinu var óskynsamleg. Texti bókarinnar er lipur og ekki illa fram settur í beinni og óbeinni ræðu Árna, skreyttur tilvitnunum í fjölmiðla. Árni bætir hins vegar fáu við þá heildarmynd sem fyrir liggur um hrunið og fellur í gryfju sjálfsrétt- lætingar þess manns sem horfir með flokksgleraugunum um öxl. Með býsna fáguðum hætti þó. Jóhann Hauksson Stjórnmálamaður hvítþveginn Ævisaga Árni matt: Frá bankahruni til byltingar Árni M. Mathiesen og Þórhallur Jósepsson Útgefandi: Veröld. 320 blaðsíður Trúgirnin „Fyrir okkur var ekki annað mögulegt en að taka þessa mynd trúanlega sem dregin var upp fyrir okkur.“ (bls. 180). Mynd sTefán KaRlsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.