Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2010, Side 31
miðvikudagur 1. desember 2010 goðsagnir 31
Á meðal þeirra sem gaf orðrómn-
um líf var fyrrnefndur Danny Sug-
arman, í félagi við rithöfundinn Jerry
Hopkins, en í bók þeirra No One Here
Gets Out Alive sögðu þeir að kenn-
ingin um sviðsettan dauða Jims Mor-
risons „væri ekki eins langsótt og ætla
mætti“, en félagarnir drógu í land árið
1995 þegar nýr eftirmáli var skrifaður
í bókina.
Fleygt í baðkerið
Nýlegustu kenninguna um dauða
Jims Morrisons má rekja til viðtals
sem birtist árið 2007 við mann að
nafni Sam Bernett, sem sagðist hafa
verið náinn vinur Jims. Bernett sagði
að Jim hefði í reynd dáið á Rock ‘n’
Roll Circus-næturklúbbnum í París.
Þangað hafði Jim lagt leið sína með
það fyrir augum að kaupa heróín fyr-
ir Pamelu Courson. Jim ákvað að fá sér
skammt og var skömmu síðar liðið lík
inni á baðherbergi klúbbsins.
Samkvæmt frásögn Bernetts var
lík Jims flutt í hótelíbúðina af tveimur
dópsölum, þeim sömu og höfðu selt
honum heróínið, og því fleygt í bað-
kerið. Allir þeir sem einhverja vitn-
eskju höfðu um atburðarás þessar síð-
ustu stundir í lífi Jims Morrisons voru
látnir sverja þess eið að þeir myndu
aldrei upplýsa um hana – til að vernda
orðspor klúbbsins, sagði Bernett. Ber-
nett sagði ennfremur að einhverjir
þeirra sem í hlut áttu hefðu yfirgefið
Frakkland strax í kjölfarið.
Jim Morrison var tuttugu og sjö
ára og 207 daga þegar hann lést, og
þess má geta að kærasta hans, Pamela
Courson, var einnig tuttugu og sjö ára
þegar hún lést – úr of stórum skammti
heróíns.
Endasleppt algleymi
Komið var að Kurt Cobain látnum á
heimili hans í Seattle í Bandaríkjunum
8. apríl, 1994. Cobain var aðalsöngvari
Grunge-hljómsveitarinnar Nirvana og
átti við eiturlyfjafíkn að stríða, var ný-
kominn út af meðferðarstofnun og var
að sögn konu sinnar, Courtney Love, í
sjálfsmorðshugleiðingum.
Samkvæmt skýrslum lögreglunn-
ar í Seattle lá haglabyssa við líkið af
Cob ain, hann var með skotsár á höfði
og handskrifað sjálfsvígsbréf fannst
skammt frá líkinu, nánar tiltekið und-
ir blómapotti sem hafði oltið um koll.
Nálarför voru sjáanleg á innanverðum
báðum olnbogum.
Þrátt fyrir opinberan úrskurð um
að um sjálfsvíg hefði verið að ræða
hafa þó nokkrar samsæriskenningar
skotið upp kollinum og má rekja eina
þeirra til einkaspæjara sem Courtney
hafði ráðið til að finna Cobain eftir
að hann kom úr meðferðinni. Einka-
spæjarinn, Tom Grant, hefur viðrað þá
skoðun sína að Kurt Cobain hafi verið
myrtur og hefur kenning Grants verið
efniviður sjónvarpsþátta, kvikmynda
og bóka.
Talið er að Kurt Cobain hafi hlust-
að á Automatic for the People, hljóm-
plötu hljómsveitarinnar R.E.M., síð-
ustu stundir lífs síns, en úrskurðað var
að hann hefði farið yfir móðuna miklu
þann 5. apríl.
Heimildir Wikipedia og víðar
Vafasamur félagsskapur
Hinsta hvíla Jims Morrisons Père Lachaise-grafreiturinn í París, en Jim eyddi
síðustu dögum lífs síns í höfuðborg Frakklands.
Til minningar um Kurt Cobain
Bekkur í Viretta-garði, skammt frá
einu heimila Kurts í Washington.
Nafn Dánardægur Dánarorsök Ástæða frægðar
Alexandre Levy 17. Janúar, 1892 Óþekkt Lagasmiður
Louis Chauvin 26. mars, 1908 Tengd sárasótt Ragtime-tónlistarmaður
Robert Johnson 16. ágúst, 1938 Óþekkt Blústónlistarmaður
Nat Jaffe 5. ágúst, 1945 Hár blóðþrýstingur Blústónlistarmaður
Jesse Belvin 6. febrúar, 1960 Bílslys R&B-söngvari og lagasmiður
Rudy Lewis 20. maí, 1964 Fíkniefni Söngvari The Drifters.
Malcolm Hale 31. október, 1968 Kolsýringseitrun Stofnmeðlimur Spanky and Our Gang.
Dickie Pride 26. mars, 1969 Of stór skammtur svefnlyfja Breskur rokktónlistarmaður
Alan „Blind Owl“ Wilson 3. september, 1970 Mögulegt sjálfsvíg Forsprakki Canned Heat.
Arlester „Dyke“ Christian 13. mars, 1971 Skotinn Forsprakki Dyke & the Blazers.
Linda Jones 14. mars, 1972 Sykursýki R&B-söngvari
Ron „Pigpen“ McKernan 8. mars, 1973 Innvortis blæðingar í bland
við áfengissýki
Stofnfélagi Grateful Dead.
Roger Lee Durham 27. júlí, 1973 Slys í útreiðartúr Söngvari og slagverksleikari Bloodstone.
Wallace Yohn 12. ágúst, 1974 Fórst í flugslysi ásamt
þremur félögum
Hljómborðsleikari Chase.
Dave Alexander 10. febrúar, 1975 Lungnasjúkdómur Bassaleikari Stooges.
Peter Ham 14. apríl, 1975 Sjálfsvíg Hljómborðs- og gítarleikari Badfinger.
Gary Thain 8. desember, 1975 Fíkniefni Hafði verið bassaleikari Uriah Heep.
Helmut Köllen 3. maí, 1977 Kolsýringseitrun Bassaleikari þýsku hljómsveitarinnar Triumvirat.
Chris Bell 27. desember, 1978 Bílslys Söngvari, lagasmiður og gítarleikari Big Star
Jacob Miller 23. mars, 1980 Bílslys Jamaískur reggí-tónlistarmaður
D. Boon 22. desember, 1985 Bílslys Gítarleikari og aðalsöngvari pönksveitarinnar
Minutemen.
Alexander Bashlachev 17. febrúar, 1988 Sjálsvíg Rússneskt skáld, rokktónlistarmaður og
lagasmiður
Jean-Michel Basquiat 12. ágúst, 1988 Fíkniefni Stofnandi hljómsveitarinnar Gray.
Pete de Freitas 14. júní, 1989 Umferðarslys Trommuleikari Echo & the Bunnymen.
Mia Zapata 7. júlí, 1993 Ofbeldisglæpur Aðalsöngvari Gits.
Kristen Pfaff 16. júní, 1994 Fíkniefni Bassaleikari Hole and Janitor Joe.
Richey James Edwards 1. febrúar, 1995 Hvarf; úrskurðaður dáinn
23. nóv., 2008.
Textasmiður og gítarleikari Manic Street
Preachers.
Fat Pat 3. febrúar, 1998 Skotinn Rappari og meðlimur Screwed Up Click.
Freaky Tah 28. mars, 1999 Skotinn Rappari og meðlimur Lost Boyz.
Sean Patrick McCabe 28. ágúst, 2000 Kafnaði í eigin ælu v. drykkju Aðalsöngvari Ink & Dagger.
Maria Serrano Serrano 24. nóvember, 2001 Flugslys Bakraddasöngkona Passion Fruit.
Jeremy Michael Ward 25. maí, 2003 Fíkniefni Hljóðmaður The Mars Volta og De Facto
Bryan Ottoson 19. apríl, 2005 Of stór skammtur
læknalyfja
Gítarleikari American Head Charge.
Valentín Elizalde 25. nóvember, 2006 Morð Mexíkósur banda-tónlistarmaður
Orish Grinsteadc 20. apríl, 2008 Nýrnabilun Stofnfélagi R&B-sveitarinnar 702.
Lily Tembo 14. september, 2009 Heiftarleg magabólga Sambísk tónlistarkona
Minna þekktir MeðliMir 27-klúbbsins