Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2010, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2010, Blaðsíða 34
Margrét Hugrún Gústavsdóttir svarar fyrir sig: 34 fólkið 1. desember 2010 miðvikudagur ingó í Veðurguðunum: Þreyttir Þróttarar Vesturportsleikarinn Björn Hlynur Haraldsson ásamt Jóni Kaldal, ritstjóra Fréttatímans, og Sólmundi Hólm skemmtikrafti hélt í gær svokallaðan þjóðfund Þróttar. Allir þrír eru dyggir stuðningsmenn knattspyrnuliðs Þróttar en eru orðin þreyttir á hversu illa liðinu gengur og að það hafi aldrei náð almennilegum árangri í sextíu ára sögu félagsins. Vildu þeir á þjóðfundinum í gær fá svör frá knattspyrnustjórn um framtíðarsýn félagsins og um hvað Þróttarar geti gert fyrir félagið til að flýta fyrir framgangi þess og til að stuðla að því að það staðni ekki sem miðlungs fyrstu deildar klúbbur. Inga Lind Karlsdóttir var bjartsýn á að komast inn á stjórnlagaþing og nú hefur ósk hennar ræst. Inga Lind var talin upp á lista á heimasíðu Jónasar Kristjánssonar, jonas.is, yfir óska- frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins. Þegar hún bauð sig fram sagðist hún vilja bæta stjórnarskrána og laga án þess að umbylta henni. Inga sagði sjálf: „Ég býð mig fram af því að ég er bjartsýn á að þessi lýðræðislega tilraun eigi eftir að verða okkur til gagns og heilla. Það er von mín að fólk muni sameinast í góðum og skynsamlegum samræðum um stjórnarskrána og mæti til leiks með það að markmiði að bæta hana og laga en umbylta henni ekki.“ Margrét Hugrún Gústavsdóttir ein þeirra sem stendur að Pjattrófun- um, vefsíðu um útlit og lífsstíl, segir það algeran brandara þegar konur samsama sig hugmyndum karla- veldisins um hvernig konur eiga og eiga ekki að vera með því að skipta sér af útliti þeirra og áhugamálum. Síðustu daga hefur tískubloggar- inn H, á tiskublogg.blogspot.com gagnrýnt Pjattrófur fyrir það sem hún telur vera neysludrifin og inni- haldslaus skrif. „Mér finnst þetta vera árás á frelsi kvenna,“ segir Margrét. „Ég skil ekki jafnréttisbaráttu sem geng- ur út á að konur verði að einhvers konar karl-konum og að gildismat karla þurfi að verða að einhverju sem konur eiga að keppa að. Ég er hrifin af því sem mannfræðingurinn Joseph Cambell segir um að kon- um hafi verið seld viðmið karla. Ég er sammála þeim og finnst að konur mættu hefja til meiri virðingar eig- in gildi. Í því samhengi er leiðinlegt þegar konur gera lítið úr kynsystrum sínum því það eru sjálfsögð kven- réttindi að fá að vera pjattrófa. Í Afganistan eru konur meðal annars að berjast fyrir því að fá að vera pjattrófur. Þær stelast í nám í snyrtiskóla og punta sig undir búrk- unum. Meðan hér á Íslandi eru það kyn- systur okkar sem hæðast að hver annarri fyrir það að vilja vera sætar í nafni kvenfrelsis.“ kristjana@dv.is Alger brAndAri! Óskafram- bjóðandi Sjálf- stæðisflokks Ingó Veðurguð mun eyða jólunum í villunni hans Guðna Ágústssonar á Selfossi. Foreldar Ingós, Anna og Þórarinn, voru að festa kaup á húsinu hans Guðna Ágústsonar fyrr- verandi landbúnaðarráðherra. Þau munu fá húsið afhent um miðjan desember og Ingó mun því njóta jólanna með dásamlegu út- sýni yfir Selfosskirkju, Ölfusárbrú og bakka Ölfusár. Ingó segist þekkja umhverfið vel enda dvelji hann mikið á Selfossi. „Þarna er fallegt útsýni og það verður eflaust gott að dvelja í þessu húsi. Við verðum þarna fyrst um jólin því foreldrar mínir hafa nýverið fest kaup á því.“ Guðni segist ekki ætla að sakna neins því hann muni eftir sem áður dvelja mikið á Selfossi. Hann flyst í Vesturbæinn þar sem hann og eiginkona hans Margrét hafa átt íbúð til margra ára. „Lífið er alltaf háð breyt- ingum og snýst um börnin og barnabörnin þegar maður eldist. Dætur okkar Margrétar búa hér í Reykjavík, ég er að vinna í höfuð- borginni og með þessu er ég að einfalda mitt líf. Þannig að þetta er bara eitt skref enn inn í framtíðina hjá okkur. Við eigum hús í Vest- urbænum sem er dásamlegur staður. Mela- búðin og Vesturbæjarlaugin, hér er afskap- lega gott að vera. Ég ætla ekki að sakna neins frá Selfossi því ég mun verða þar áfram eins og ég hef verið, þar er mikið af mínu fólki. Ég held sömu tryggð við staðinn og ég hef gert.“ Guðni segir þó að öllum breytingum fylgi viss tregi. „En það er um að gera að horfa fram á veginn og svo sannarlega hef ég ekki áhyggjur af þessum vistaskiptum. Húsið er komið í góðar hendur því Ingó og yngri bróðir hans hafa miklar og góðar söngraddir og munu fylla húsið af söng og lífsgleði.“ Ingó í veðurguðunum mun eyða jólunum í villunni hans Guðna Ágústssonar á Sel- fossi. Foreldrar ingós, Anna Guðmunds- dóttir og Þórarinn Ingólfsson, hafa fest kaup á húsi guðna fyrrverandi landbúnaðarráðherra sem vill vera nærri barnabörnum sínum í höf- uðborginni. Veðurguð flytur í villu fyrrverandi ráðherra Jól í villu Guðna Ingó segist hlakka til að eyða jólunum á nýjum en góðum stað. Býr í borginni Guðni segist stíga eitt skref inn í framtíðina með flutningunum og kann vel við sig í Vesturbænum. Margrét Hugrún Gústavsdóttir „Ég skil ekki jafnréttisbaráttu sem gengur út á að konur verði að einhvers konar karl-konum.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.