Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2010, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2010, Qupperneq 14
Veljum íslenskt Opið virka daga 09:00 til 18:00 / laugardaga 10:00 til 14:00 HÖFUM FRAMLEITT SPRINGDÝNUR SAMFLEYTT, LENGUR EN NOKKUR ANNAR Á ÍSLANDI. Veljum íslenskt Opið virka daga 09:00 til 18:00 / laugardaga 10:00 til 14:00 HÖFUM FRAMLEITT SPRINGDÝNUR SAMFLEYTT, LENGUR EN NOKKUR ANNAR Á ÍSLANDI. Opnunartími fram að jólum: Virka daga frá 9 - 18 Laugardaga frá 10 - 16 Sunnudaga frá 13 - 16 Dísilolía Algengt verð verð á lítra 200,7 kr. verð á lítra 200,7 kr. Skeifunni verð á lítra 203,6 kr. verð á lítra 203,6 kr. Algengt verð verð á lítra 205,6 kr. verð á lítra 205,3 kr. bensín Dalvegi verð á lítra 196,3 kr. verð á lítra 196,3 kr. Melabraut verð á lítra 203,6 kr. verð á lítra 203,6 kr. Algengt verð verð á lítra 203,7 kr. verð á lítra 203,7 kr. ÍSlenSk frA - leiðSlA verð- lAunuð Íslenska fyrirtækið RB Rúm hlaut fyr r skömmu ve ðlaun á Inter- national Quality Crown Awards fyrir vandaða framleiðslu og mark- aðssetningu. Þetta kemur fram í Akureyri sem er gefið út af Kaup- mannasamtökum Íslands. Fyrir- tækið hefur framleitt rúm og dýnur í tæp sjötíu ár og er staðsett í Hafn- arfirði. Birna Ragnarsdóttir, fram- kvæmdastjóri RB Rúma, sagði í samtali við Akureyri að hún væri að vonum ánægð þar sem þetta væru stór alþjóðleg verðlaun og einungis eitt fyrirtæki sem hlyti verðlaun í hverjum flokki. Hún segir fyrirtæk- ið hafi verið tilnefnt til verðlaun- anna sem eru veitt af alþjóðlegum samtökum sem kallast Business Initiative Directions. Alls voru fulltrúar frá 74 löndum viðstaddir verðlaunaafhendinguna sem fram fór í Lundúnum á dögunum. Myrkvuð bÍlAStæði n „Viðskiptavinir Bónus í Holtagörð- um gengu um í myrkri á bílastæði verslunarinnar seinnipart mánu- dags. Niðamyrkur var úti en ljóslaust var á Bónushelmingi bílastæðisins á háannatíma. Viðskiptavinir ráfuðu því óttaslegnir um í myrkri innan um mikla umferð bíla. Illa hefði get- að farið og klárlega ekki viðskiptavinum bjóð- andi,“ sagði viðskipta- vinur við DV. Annar viðskiptavinur hafði samband og sagði að í Holtagörðum væri hvorki klósett fyrir fatlaða né skipti- aðstaða fyrir börn. SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS GóMSætt SuShi-SAlAt n Lofið fær veitingastaðurinn Mmmmm Laugavegi 42. „Þar fékk ég virkilega gott sushi-salat, sem ég hef hvergi séð eða fengið áður,“ sagði ánægður viðskiptavinur sem var hæstánægður með heim- sóknina á staðinn. „Þetta er huggulegur staður og salatið var einstak- lega gott og ferskt,“ sagði hann. Athugið að myndin tengist þessu ekki með beinum hætti. LOF&LAST 14 neyTendur UmSjóN: baldur guðmundsson baldur@dv.is 6. desember 2010 MÁNUDAGUR drAgA úr vægi verðTryggingAr „Ríkis- stjórnin mun hraða aðgerðum til að draga úr vægi verðtryggingar í ís- lensku efnahagslífi, samanber einnig stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar,“ segir í tilkynningu frá ríkisstjórninni. Þar kemur líka fram að í ljósi þess að þátttaka lífeyrissjóðanna í aðgerðum gegn skuldavanda heimilanna legg- ist með misjöfnum hætti á sjóðina og félaga þeirra muni ríkisstjórnin leita leiða til að draga úr því misvægi og hraða vinnunni sem í gangi sé er varði framtíðarfyrirkomulag lífeyrismála. Um frekari aðgerðir ríkisstjórnarinnar má lesa hér á opnunni.e L d S n e y T i Munar Miklu á innheiMtuhörku Lög um innheimtu segja til um hvernig fyrirtæki mega innheimta ógreiddar skuldir viðskiptavina en vinnureglur fyrirtækja geta verið mismunandi þótt farið sé eftir lög- unum. Blaðamaður DV óskaði eftir upplýsingum um vinnureglur nokk- urra símafyrirtækja til að bera sam- an með hvaða hætti fyrirtækin inn- heimta skuldir. Einungis fengust svör frá tveimur fyrirtækjum, Símanum og Vodafone en þegar bornar eru saman vinnureglur þessara tveggja fyrirtækja kemur í ljós að töluverður munur er þar á. mismunandi innheimtuaðgerðir Hjá báðum fyrirtækjum er send innheimtuviðvörun tveimur dög- um eftir eindaga og er kostn- aður við það 590 krónur sem er í samræmi við reglugerð um hámarksfjárhæð innheimtukostn- aðar. Bæði fyrirtæki senda út loka- aðvörun áður en málið er sent í milliinnheimtu. Vodafone send- ir málið til innheimtufyrirtæk- is 16 dögum eftir eindaga og 30 dögum eftir eindaga sendir inn- heimtufyrirtækið lögfræðibréf. Hjá Símanum líða að jafnaði 100 dagar frá eindaga elstu ógreiddu kröfu þar til skuld er send í milli- innheimtu en ferlið þar tekur um það bil 60 daga. Því líða 160 dagar frá eindaga þar til skuldin er send í lögfræðiinnheimtu. Þegar málið er komið á þetta stig fer það eftir gjöldum innheimtufyrirtækis sem og upphæð skuldar hver kostnað- ur viðskiptavinar er. Hraði í innheimtu mikill „Það sem við höfum heyrt er ann- ars vegar að innheimtuharkan hafi almennt verið að aukast hjá fyrir- tækjum í landinu. Innheimtuviðvör- un sé send og svo er málið sent til innheimtu. Hins vegar að fyrirtæki séu farin að slaka á í innheimtu en því miður eru þau tilvik færri,“ seg- ir Hildigunnur Hafsteinsdóttir, lög- maður hjá Neytendasamtökunum, aðspurð um hvort hún finni fyrir breytingu á innheimtuaðferðum fyr- irtækja. Hún bætir við að þó hraðinn í innheimtu geti verið mikill þá sé hann ekki óheimill. Hún segist ekki hafa rekið sig mik- ið á ólögleg innheimtuferli en gallinn við lögin sé að þau ná einungis yfir frum- og milliinnheimtu. „Það er skylda að senda innheimtuviðvör- un en eftir það er ekkert því til fyrir- stöðu að málið sé sent til lögfræði- innheimtu og þar er ekkert þak,“segir hún. Innheimtulög Samkvæmt innheimtulögum skal kröfuhafi senda skuldara eina skrif- lega viðvörun þess efnis að farið verði í frekari innheimtuaðgerðir verði krafan ekki greidd innan tíu daga. Kröfuhafi getur þó veitt lengri frest. Í viðvöruninni skulu koma fram all- ar helstu upplýsingar, svo sem nöfn, kennitölur og heimilisfang skuldara, kröfuhafa og innheimtuaðila. Eins þarf þar að vera lýsing á kröfu og upphæð hennar en þar skal sundur- liða hver sé höfuðstóll og hverjar séu viðbótarkröfu, svo sem dráttarvext- ir og innheimtuþóknun. Einnig skal tilgreina greiðslustað og tilkynna skuldara að frekari tafir á greiðslu geti leitt til málshöfðunar eða ann- arra innheimtuaðgerða sem leiða til aukins kostnaðar fyrir skuldara. Þegar bornar eru saman innheimtuaðferðir tveggja símafyrirtækja kemur í ljós mikill munur þó þau fari bæði eftir lögum um innheimtu. Lögfræðingur hjá Neytendasam- tökunum segir að innheimtuharka hafi almennt aukist hjá fyrirtækjum. Dæmi séu þó um að fyrirtæki séu að slaka á í innheimtu. Það sem við höfum heyrt er annars vegar að innheimtuharkan hafi almennt verið að aukast hjá fyrirtækjum í landinu. Innheimtuvið- vörun sé send og svo er málið sent til innheimtu. Hins vegar að fyrirtæki séu farin að slaka á í inn- heimtu en því miður eru þau tilvik færri. gunnHIldur steInarsdóttIr blaðamaður skrifar: gunnhildur@dv.is Hámarkskostnaður við innheimtu eftir gjaldfallna skuld. n 1. Innheimtuviðvörun = 900 kr. milliinnheimtubréf: n 2a. Höfuðstóll kröfu til og með 2.999 kr. = 1.250 kr. n 2b. Höfuðstóll kröfu 3.000 til og með 9.999 kr. = 2.000 kr. n 2c. Höfuðstóll kröfu 10.000 til og með 79.999 kr. = 3.500 kr. n 2d. Höfuðstóll kröfu 80.000 kr. og yfir = 5.500 kr. n 3. Fyrsta ítrekun milliinnheimtubréfs (sama gjald og í 2 a-d) n 4. Önnur ítrekun milliinnheimtubréfs (sama gjald og í 2 a-d) n 5. Eitt símtal í milliinnheimtu = 500 kr. Samkomulag n 6. Gerð skriflegs samkomulags um greiðslu kröfu = 2.500 kr. hámarkskostnaður við innheimtu n Fyrir skömmu fékk sex ára stúlka bréf frá bókasafni mosfellsbæjar um vanskil á barnabókum. Í bréfinu var því hótað að andvirði bókanna auk dagsekta yrði send í innheimtu til Intrum með tilheyrandi innheimtukostnaði ef ekki yrðu gerð skil eða samið um málalok innan 15 daga. Þar stóð einnig að um væri að ræða þriðju og síðustu tilkynningu um vanskil. Þegar foreldrarnir leituðu skýringa og fengust þau svör hjá bókasafninu að tilkynningar hefðu verið sendar rafrænt og bentu þau þá á að sex ára barn væri ekki með netfang. n Í haust fjallaði DV um að kröfuhafar hafi verið sakaðir um að ganga grimmilega hart að fólki eftir hrun og þar er innheimtufyrirtækjum venjulega beitt við innheimtu. Kostnaðurinn sem af þessum aðgerðum hlýst hefur sætt gagnrýni og sérstaklega þegar sveitarfélög siga innheimtufyrirtækjum á einstaklinga og fyrirtæki og velta þar með auknum kostnaði yfir á skuldarann sem þegar er í slæmum málum. Sveitarfélagið Árborg sagði upp samningi sínum um milliinn- heimtu við Intrum þar sem bæjaryfirvöld vildu sýna íbúum svigrúm í kreppunni og ekki velta auknum kostnaði yfir á þá með innheimtuaðgerðum á kröfum sem oft eru mjög öruggar. harkaleg innheimta skuld í lögfræðiinnheimtu Það er skylda að senda innheimtuviðvörun. Farsímar mikill munur er á þeim tíma sem fólki gefst til að greiða skuldir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.