Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2010, Page 18
Skapandi eyðilegging „Ég varð ofsalega
vondur fyrst.“
n Björgvin Halldórsson söngvari
um fyrstu viðbrögð hans eftir að Svala dóttir
hans, eiginmaður hennar og fjölskylda hans lentu í
alvarlega bílslysi á Reykjanesbraut. En slysið kom til
vegna vegaframkvæmda - DV
„Mér líður best bara
svona í joggingall-
anum heima.“
n María Sigrún Hilmarsdóttir,
fréttakona á RÚV, um hvar henni líði best.
Hún segir að vinabeiðnir á Facebook hafi aukist til
muna eftir að hún fór að lesa fréttir. - DV
„Það sem Gunnar hefði getað
gert var að sýna auðmýkt.“
n Ásta Knútsdóttir, talskona þeirra kvenna sem
saka Gunnar um kynferðisbrot, segir að reynt hafi
verið að fara sáttaleiðina áður en ásakanirnar voru
bornar upp í fjölmiðlum. -DV
„...vantar kannski smá lukku
til okkar í Mosfellsbæinn.“
n Gunnar Andrésson, þjálfari Aftureldingar í
handknattleik karla. Afturelding tapaði aftur með
minnsta mun á heimavelli gegn taplausu liði
Akureyrar. - visir.is
„...langar, á köflum
erfiðar og á köflum
stormasamar.“
n Jóhanna Sigurðardótt- ir
forsætisráðherra um umræðurnar í kringum aðgerðir
fyrir skuldsett heimili sem voru tilkynntar fyrir helgi.
Heildarumfang þeirra er metið á 100 milljarða króna.
- DV
Of mikill sannleikur
Viðhorf á Íslandi gagnvart fjölmiðl-um er gríðarlega óþroskað og ein-kennist gjarnan af þeirri kröfu að ekki megi fjalla eins um alla.
Þannig er gjarnan ráðist á fjölmiðla fyrir að
segja satt. Árásirnar snúast þá gjarnan að því
að of mikið hafi verið sagt.
Nýlegt dæmi um þetta er umfjöllun DV
um ungan ógæfumann í Hafnarfirði sem
var handtekinn, grunaður um að hafa myrt
með hrottafengnum hætti unnusta vinkonu
sinnar. Sagt var frá handtökunni á DV.is og
einnig þeirri staðreynd að hinn grunaði
hefði í myndböndum á alheimsmiðlinum
YouTube játað ást sína til stúlkunnar. Þeg-
ar unga manninnum var sleppt síðar um
daginn, eftir sólarhrings varðhald, reis upp
hópur fólks sem fordæmdi DV fyrir „mann-
orðsmorð“ og fleira í þeim dúr. Tilraun var
gerð til að standa að áhlaupi á útgáfu DV.
Lögmaður unga mannsins, Guðrún Sesselja
Arnardóttir, hoppaði á vagn heykvíslanna
og boðaði málsókn á DV fyrir að vega að
mannorði skjólstæðings síns. Flestir þekkja
síðan sögulokin. Ungi ógæfumaðurinn var
handtekinn aftur og hefur játað á sig morðið.
Guðrún Sesselja er þögnuð rétt eins og aðr-
ir sem vildu refsa fjölmiðli fyrir að segja of
mikið af sannleikanum þegar ungur maður
hafði verið handtekinn.
Svipuð staða kom upp þegar DV sagði
frétt af skuldum talsmanns Hagsmunasam-
taka heimilanna. Hópur fólks reis upp og
reyndi að efna til aðfarar að fjölmiðlinum. Í
fararbroddi voru þingmennirnir Lilja Mós-
esdóttir og Birgitta Jónsdóttir sem eiga það
sameiginlegt að heimta réttlæti og gagnsæi
í samfélaginu. Þeim fannst of mikið vera af
sannleika um Marinó Njálsson þótt fjalla
megi um aðra.
Á dögunum birti DV könnun um verð á til-
teknum jólabókum til að leiðbeina almenn-
ingi. Í ljós kom að Bókabúð Máls og menn-
ingar var langdýrust. Engin athugasemd var
gerð við framkvæmd könnunarinnar. En
fulltrúi Bókabúðar Máls og menningar, Dögg
Hjaltalín, gerði alvarlega athugasemd í ljósi
þess að verslunin hefði ætlað að lækka verð-
ið á næstu dögum og vildi að tillit yrði tekið
til þess í könnuninni. Við því var ekki orðið
þar sem verðkönnun byggir á því að kannað
sé hjá öllum á sama tíma. Viðbrögð Daggar
urðu þau að afturkalla auglýsingar sem hún
hafði pantað í DV. Svar hennar við sannleik-
anum var að beita ofbeldi í krafti fjármuna.
Um þetta snýst barátta heilbrigðra fjöl-
miðla. Það má ekki láta undan síga fyrir of-
beldisfólkinu sem vill stýra umfjöllun og
tryggja, sjálfum sér, vinum og viðhlæjendum
sérstaka meðferð. Þeir mega ekki ráða för í
umræðunni á Íslandi. Þetta er fólkið sem vill
drepa sannleikann. Það er lífsspursmál fyr-
ir fjölmiðlun í landinu að standa sig í barátt-
unni gegn slíkum öflum. Sannleikurinn er
dýr.
ReyniR TRauSTaSon RiTSTjóRi SkRifaR: Viðbrögð Daggar urðu þau að afturkalla auglýsingar.
leiðari
svarthöfði
18 umræða 6. desember 2010 mánudagur
Í geitarækt
n Viðbúið er að Brynjólfur Bjarna-
son, fyrrverandi forstjóri Símans og
Skipta, hafi næg-
an tíma í sérverk-
efni eftir að hann
hefur hrökklast á
brott frá stórfyrir-
tækinu. Á meðal
einkahlutafé-
laga Brynjólfs er
Lambi ehf. Það
félag sérhæfir sig
í geitarækt án þess þó að hafa haft
umsvif fram að þessu. Nú er reiknað
með því að forstjórinn snúi sér fyrir
alvöru að geitaræktinni.
Upprisa
athafnamanns
n Athafnamaðurinn Guðmund-
ur Birgisson á Núpum hefur verið
mjög til umræðu vegna skuldamála
sinna. Hann var einn umsvifamesti
jarðaeigandi á Íslandi undir merkj-
um Lífsvals ásamt viðskiptafélaga
sínum, Ingvari J. Karlssyni. Það
samstarf mun nú vera í uppnámi og
jarðirnar komnar undir bankann.
Aftur á móti mun Guðmundur hafa
komist í álnir aftur með því að kaupa
skuldabréf í gömlu bönkunum. Sú
fjárfesting hefur þrefaldast í verði og
rofar nú til hjá Guðmundi.
grætUr Í sviss
n Það vakti athygli að í nýjasta hefti
Fréttatímans var að þessu sinni
ekkert stórviðtal við útrásarvíking-
inn Heiðar Má
Guðjónsson sem
grætur Sjóvá á
heimili sínu í
Sviss. Í tvígang á
nokkrum vikum
hefur Frétta-
tíminn rætt við
Heiðar Má um
bágindin og
mannorðsskerðinguna. Svo er að
sjá sem þeir hafi ekki náð í hann að
þessu sinni. Heiðar hefur stefnt DV
og vill hátt í fimm milljónir króna í
bætur vegna Sjóvár.
fótaskortUr
ævisögUritara
n Ævisaga Gunnars Thoroddsens
eftir Guðna Th. Jóhannessen þykir
um margt vera merkileg. Í bókinni
segir að Gunnar hafi flutt kvæði í
brúðkaupi Ólafar Pálsdóttur mynd-
höggvara og Sigurðar Bjarnasonar
frá Vigur. Sigurður var þá ritstjóri
Morgunblaðsins og þingmaður. Seg-
ir frá því að Gunnar hafi flutt kvæði
í brúðkaupi hjónanna. Þetta kemur
Sigurði og fjölskyldu mjög á óvart því
þau giftu sig í Kaupmannahöfn. Þar
voru fáir viðstaddir og Gunnar var
hvergi nálægur. Segir svo í bókinni
að kvæðið hafi verið birt í Mánu-
dagsblaðinu, sem þykir vera fráleitt.
Guðna virðist þarna hafa orðið fóta-
skortur.
sandkorn
tryggvagötu 11, 101 reykjavík
Útgáfufélag: Dv ehf.
Stjórnarformaður:
Lilja Skaftadóttir
ritStjórar:
jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir traustason, rt@dv.is
fréttaStjóri:
Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is
umSjón helgarblaðS:
Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is
umSjón innblaðS:
Ásgeir jónsson, asgeir@dv.is
dv á netinu: Dv.IS
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050.
SmáauglýSingar: 512 7004.
umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: Árvakur.
Dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
bókstaflega
„Maturinn verður alla vega ferskur enda
ekki hætta á að hann verði ICESAVE að
bráð, nú síðan hefur ÖLIÐ jafnan þótt
best ískalt. Nú þá er spurningin hvort
einhver gæðingurinn fái ekki afskrifaðar
eins og nokkrar gráður – hver veit? segir
SIGGI STorMur, veðurfræðingur Dv
sem spáir hörkufrosti til landsins með
um eða yfir 20 stiga frosti þá daga
sem unnið er hvað harðast að lausn
Icesave-deilunnar.
spurningin
ÍÍslendingar munu brátt eignast stærsta tónlistarhús Norður-landanna, miðað við sæta-fjölda.
r úmlega þrjú hundruð þús-und manns búa á Íslandi og fer hægt fækkandi. Um fimm milljónir búa í Nor-
egi og Finnlandi og rúmlega fimm
milljónir í Danmörku. Íbúafjöldi
Íslands er sem sagt um 6 prósent
af íbúafjölda hvers þessara landa
fyrir sig. Samt þurfum við stærsta
tónlistarhúsið. Harpa tekur 1.500
manns í sæti. Ástæðan liggur í aug-
um uppi, þegar nánar er að gáð:
Þetta er svo hagkvæmt!
Það er nefnilega þannig að við Íslendingar ætlum að syngja, dansa og skrifa okk-ur út úr kreppunni. Listin
er leiðin til að búa til peninga. Það
segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðar-
ráðherra í það minnsta. „Munurinn
á stóriðjunni og hinum skapandi
greinum er að vaxtarmöguleikarn-
ir í hinum skapandi greinum eru
endalausir, en vaxtamöguleikarn-
ir í stóriðjunni eru takmarkaðir.
Þannig að ég er að sjá hinar skap-
andi greinar sem eina af þunga-
miðjunum í vexti atvinnulífsins á
komandi árum,“ útskýrði hún.
Þetta ber að taka alvarlega. Katrín veit hversu miklir vaxtarmöguleikarnir eru. Á mestu niðurskurðartímum
íslensks þjóðarbús hefur ríkisstjórn
landsins fjölgað fólki á listamanna-
launum frá ríkinu um þriðjung. Til
þess að bregðast við atvinnuleysi,
auðvitað.
K atrín tilkynnti um um-breytingu íslensks at-vinnulífs í Bíó Paradís við Hverfisgötu. Það hét
áður Regnboginn, en bar sig ekki,
þannig að Besti flokkurinn ákvað
í öllum niðurskurðinum að halda
bíóinu gangandi með almannafé.
Þar kom fram að svokallaðar „skap-
andi greinar“, eða hvers kyns listir
og afþreying, veltu 191 milljarði
króna árið 2009. Þetta reyndist
vera meiri velta en í landbúnaði og
fiskveiðum samanlagt. Skapandi
greinar skapa hátt í tíu þúsund
ársverk!
m eð sömu rökum mætti segja að áfengisneysla væri mikill atvinnu-vegur. Velta tengd
áfengisneyslu á Íslandi er gríðar-
leg. Mörg störf skapast auk þess við
það að hirða um áfengissjúklinga
og veita þeim meðferð. Þetta er
heill iðnaður. Í góðærinu voru bíla-
sölur líka sérstaklega mikilvæg-
ur atvinnuvegur. En veltan segir
kannski ekki alla söguna um hvort
eitthvað er gott eða vont.
a uðvitað er áfengis-neysla ekki af sama meiði og neysla á menningu hvers
kyns, eins og að horfa á sjón-
varpið. Hinar skapandi grein-
ar teljast vera sjónlist, tónleikar,
dans, leikhús, bækur, fjölmiðlar,
kvikmyndir, sjónvarp og bóka-
söfn, svo eitthvað sé nefnt. Inni í
skilgreiningunni eru hlutir sem
sannarlega geta skapað gjald-
eyristekjur fyrir þjóðarbúið, eins
og tölvuleikir og forrit. Mest-
öll menningarstarfsemi er hins
vegar svæðisbundin á Íslandi og
leiðir fyrst og fremst til þjóðhags-
legs kostnaðar, en ekki fjárhags-
legs ávinnings. Enda er stór hluti
menningarstarfsemi niður-
greiddur af ríkinu.
J ón Daníelsson hagfræðingur varaði við því á dögunum að inngrip ríkisins í atvinnulífið gæti framlengt kreppuna og gert
núverandi ástand varanlegt.
Ástæðan er að ef ríkið og stjórnmála-
menn fara að velja hvað er fínt og gott
að fólk vinni við, hverfur hagkvæmn-
in úr þjóðfélaginu. Afleiðingin er að
fólk mun ekki sjálfkrafa sækja í að
vinna við það sem skapar arð, heldur
verður meira um að fólk vinni hjá
ríkinu við eitthvað sem skapar ekki
arð. Hvort sem það eru misjafnlega
heppnuð leirlistaverk eða skáldverk,
sem ekki seljast, leiðir það til þess að
fólk vinnur frekar við það en fiskveið-
ar eða annað sem skapar raunveru-
legan arð. Þannig geta þjóðir dregist
aftur úr öðrum.
L ífið á að vera skemmtilegt, annars er ekki þess virði að lifa því. Jón Daníelsson er ekkert skemmtilegur. Það
er miklu skemmtilegra að syngja og
dansa en vinna í einhverju álveri.
Það vita flestallir ættbálkar í heimin-
um, sem lifa líka margir hverjir ham-
ingjusamlega í nánum tengslum við
náttúruna.
MeguM við éTa
það SeM úTi fRýS?