Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2010, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2010, Side 22
22 sport umsjón: tómas þór þórðarson tomas@dv.is 6. desember 2010 mánudagur „Við erum búin að eyða deginum í að hvílast og funda,“ segir Júlíus Jónas- son, landsliðsþjálfari kvenna í hand- bolta, en DV sló á þráðinn til hans í gær. Stelpurnar okkar áttu að taka lokaæfingaleikinn fyrir mót á sunnu- daginn gegn Spáni en vegna verk- falls flugvallastarfsmanna þar í landi mæta Spánverjar ekki fyrr en í fyrsta lagi í dag. „Það var farið á fullt við að reyna að finna leik við dönsk félags- lið en okkur var tjáð það í morgun að það myndi ekki ganga upp. Þetta hef- ur sett prógrammið aðeins úr skorð- um. Þetta er kannski ekki æskilegt en það er lítið við þessu að gera,“ segir Júlíus sem dreif því stúlkurnar bara út í vetrarparadísina. „Við tókum okk- ur góðan göngutúr áðan í ekta ís- lensku vetrarveðri, snjór og flottheit. Við ætluðum að nýta æfingaleikinn til að fara yfir það sem við höfum ver- ið að gera undanfarið, bæði nýtt og gamalt. Við tökum þess í stað bara æfingu þar sem ég legg upp með að spila mikið. Það er alltaf gott að spila,“ segir Júlíus. skemmtilegasti tíminn í starfinu Júlíus Jónasson er eins og allir vita margreyndur landsliðsmaður og á að baki magnaðar stundir með strák- unum okkar. Sér hann á andlitum stelpnanna sama eftirvæntingarsvip og var á honum þegar hann reyndi fyrst fyrir sér á stórmóti? „Já. Ég finn fyrir mikilli eftirvæntingu, spennu og sérstaklega tilhlökkun. Ég er núna búinn að þjálfa þessar stelpur í fjögur ár og ég verð að segja að þesar tvær síðustu vikur hafa verið skemmtileg- asti tíminn í starfinu. Ég sé á stelpun- um hversu einbeittar þær eru. Auð- vitað er mikil spenna líka en hún datt mikið til niður á þriðjudaginn þeg- ar endanlegur hópur var tilkynntur. Það er mikil gleði í þessum hóp og stemningin ekkert ósvipuð því þeg- ar við náðum þessu markmiði,“ seg- ir Júlíus. miklu stærra en einn leikur Júlíus notar reynslu sína frá ótal stór- mótum til þess að róa taugar stelp- nanna en einnig kemur Einar Þor- varðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, að undirbúningnum enda býr hann yfir gífurlegri reynslu, bæði sem leik- maður, þjálfari og svo sem yfirmaður innan hreyfingarinnar. „Ég reyni að miðla til stelpnanna því sem ég upp- lifði og þannig smita út frá mér. Það er náttúrulega æðislegt að taka þátt í svona stórmótum. Ég reyni að segja þeim frá minni eigin reynslu og vara þær við ýmsum hlutum. Við tók- um einmitt ágætisfund um þetta úti í Noregi,“ segir Júlíus, en um síðast- liðna helgi tapaði liðið öllum þremur leikjum sínum á sterku æfingamóti. „Ég og Einar Þorvarðar settum upp fund þar sem við fórum vel yfir hvernig þessi heildarpakki er og verður. Allt í kringum umgjörðina, bæði af hálfu HSÍ og svo mótshöld- urum. Þetta er náttúrulega miklu stærra dæmi en bara einn leikur ein- hvers staðar úti í heimi. Hér er allt miklu stærra. Meiri umfjöllun, fleiri áhorfendur. Allur pakkinn er stærri og stelpurnar verða að vera tilbúnar í það,“ segir Júlíus. Ýmsum brögðum beitt Fyrsti leikur íslenska liðsins er gegn sterku liði Króatíu á þriðjudags- kvöldið. Júlíus segist eiga efni til að sýna stelpunum en öllum brögðum er beitt í lokaundirbúningi fyrir stór- mót þannig að erfiðara sé að kort- leggja andstæðingana. „Við erum með efni með þeim frá því í sumar sem við erum búnir að klippa. Við áttum að fá nýrra efni því Króatía átti að spila á æfingamóti um síð- ustu helgi. Þær svikust samt um að mæta á það mót þannig Hollending- arnir sem við vorum búnir að semja við gátu eðlilega ekkert látið okkur fá. Það er svona þegar líður að móti þá er ýmsum brögðum beitt. Til dæm- is mætti Svartfjallaland á æfingamót um daginn með unglingaliðið,“ seg- ir Júlíus en Svartfjallaland er einnig með Íslandi í riðli ásamt Króötum og Rússum. Júlíus á þó von á nýrra efni með Króötum sem ætti að hjálpa til við undirbúninginn. „Ég á von á nýju efni núna bara á eftir [í gær] af tveimur æfingaleikjum Króata gegn Svíum. Fái ég það fara kvöldið og nóttin í að klippa það til,“ segir Júlíus. sautján manna hópur Íslenska liðið varð fyrir miklu áfalli í vikunni þegar í ljós kom að stórskytt- an Stella Sigurðardóttir væri meidd á öxl eftir æfingamótið í Noregi og geti að öllum líkindum ekki verið með. Stella ferðaðist samt með stelpunum til Noregs og verður hluti af hópnum. Það kemur ekki endanlega í ljós fyrr en á miðvikudaginn hvort hún sé al- gjörlega frá en til öryggis var Sigur- björg Jóhannsdóttir, liðsfélagi Stellu úr Fram, kölluð inn í hópinn en hún æfði með liðinu á fimmtudaginn í Víkinni. „Stella varð fyrir höggi á æfingu fyrir Noregsferðina og það reynd- ist vera alvarlegra en við reiknuðum með. Við tókum hana samt með til Noregs og höfðum hana í meðhöndl- un þar. Því miður urðum við að taka inn nýjan leikmann þannig að Sibba kom inn í þetta hjá okkur. Hópurinn okkar er núna sautján leikmenn því við fáum ekki endanlegar niðurstöð- ur varðandi Stellu fyrr en á miðviku- daginn. Þetta er auðvitað mikið áfall fyrir hana,“ segir Júlíus en aldrei kom annað til greina en að taka hana með. „Við vildum bara nýta sjúkrateymið okkar og leyfa því að hugsa um hana. Svo er þetta auðvitað kjörið tækifæri til að gefa henni einhverja reynslu á stórmóti. Hún sér alla vega hvern- ig þetta er hvort sem hún spilar eða ekki,“ segir Júlíus. allt þarf að ganga upp Ísland er í mjög erfiðum riðli með Svartfjallalandi, Króatíu og Rúss- landi. Júlíus reiknar með því að einn sigur dugi liðinu í milliriðla og á það hefur verið stefnt. Hann veit samt vel hversu erfitt þetta verður. „Við gerum okkur alveg grein fyrir því að þetta verður mjög erfitt. Þetta eru náttúru- lega úrslitin á EM. Hérna eru mjög erfiðir andstæðingar og við erum hér í fyrsta skipti og allt það. Við erum samt ekki komin hingað til að vera einhverjir farþegar. Við ætlum að ná árangri og nýta þær aðstæður sem við höfum til þess að ná okkar mark- miðum,“ segir Júlíus, en hver eru þá markmiðin? „Þau eru að komast upp úr riðlin- um. Til þess þurfum við að vinna einn leik, ég held að það ætti að duga. En til þess að það gerist þarf allt að ganga upp. Þetta er samt íþrótt og eins og allir vita getur allt gerst í íþróttum,“ segir hann, en hefur hann trú á því að stelpurnar séu komnar þarna til að gera einhverja hluti? „Ekki spurn- ing. Þær ætla að njóta stundarinn- ar en þær eru ekkert bara komnar til að vera í þeim pakka. Eins og ég hef sagt við þær þá er auðvelt að gleyma hlutverkinu sínu á svona löngu móti en ég sé það á þeim að þær eru mætt- ar til þess að ná árangri,“ segir Júlíus Jónasson. Mættar til að ná árangri Íslenska kvennalandsliðið í handbolta, stelpurnar okkar, hefja leik á Evrópumótinu á þriðjudagskvöldið gegn Króatíu. Þetta er í fyrsta skipti sem íslenska kvennalandsliðið tekur þátt á stórmóti. Júlíus Jónas- son landsliðsþjálfari sér það á stelpunum að þær eru ekki mættar bara til þess að horfa stjörnurnar. Þær vilja láta taka eftir sér. tómas þór þórðarson blaðamaður skrifar: tomas@dv.is Ég finn fyrir mikilli eftir- væntingu, spennu og sérstaklega tilhlökkun. Ábyrgur júlíus jónas- son stýrir fyrsta íslenska kvennalandsliðinu á stórmóti í handbolta. mYnD EGGErt JóHannEsson Kátar konur stelpurnar okkar brjóta nú blað í sögu íslenskrar íþróttasögu. mYnD sIGtrYGGUr arI Á flugi Karen Knútsdóttir og stelpurnar okkar ætla sér stóra hluti á Em. mYnD EGGErt JóHannEsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.