Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2011, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2011, Blaðsíða 6
6 | Fréttir 7.–9. janúar 2011 Helgarblað Ölvaður lögreglumaður reyndi að hafa áhrif á starfsbræður sína að störfum: Sambýliskona ölvuð undir stýri Stuttu fyrir jól stöðvaði lögreglan í Reykjavík bifreið við reglubundið eft- irlit. Í bifreiðinni var ölvuð kona undir stýri og með henni í bílnum var sam- býlismaður hennar sem var einn- ig undir áhrifum áfengis. Sambýlis- maðurinn starfar sem lögreglumaður í Reykjavík og reyndi hann að hafa áhrif á lögreglumennina sem voru að sinna sínum störfum á vettvangi. Bað hann þá ítrekað að láta málið niður falla og ekki sekta sambýliskonuna fyrir ölvunarakstur. Það var þó ekki gert og Hörður Jóhannesson aðstoð- arlögreglustjóri segir málið vera í eðli- legum farvegi innan kerfisins. Hörður staðfesti í samtali við DV að hann þekkti til málsins og sagði jafnframt að lögreglumaðurinn sem um ræðir hefði fengið alvarlegt til- tal og verið veitt aðvörun. Aðspurð- ur hvort málið væri litið alvarlegum augum innan lögreglunnar sagði Hörður að „menn fengju ekki tiltal út af engu“ og bætti við að gjörðir mannsins væru siðferðislega rang- ar og rangt hefði verið af honum að koma starfsbræðrum sínum í þessa stöðu. „En þú verður að átta þig á því að eitthvað svipað gerist af og til. Lögreglan er einhvers staðar að vinna og fólk er að blaðra, en það sem gerir málið alvarlegt er að þarna er starfandi lögreglumaður sem hef- ur sig í frammi.“ Spurður hvort rétt hefði verið að leysa manninn frá störfum spyr Hörður blaðamann á móti hvað ástæðu hann hann hefði til þess. DV er kunnugt um að mik- il óánægja ríki meðal einhverra lög- reglumanna vegna atviksins. hanna@dv.is Beitti þrýstingi Farþegi í bíl sem stöðvaður var vegna gruns um ölvunarakstur reyndist vera lögreglumaður og hafði hann sig í frammi þegar starfsbræður hans voru við störf. Frá janúar 2009 til októ ber 2010 fékk Sigurður Helgi Helgason stjórnsýslufræðingur, alls tæplega 26 milljónir króna frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu. Sig- urður fékk upphæðirnar í gegnum tvö félög í hans eigu. Annars veg- ar er um að ræða einkahlutafélag- ið Stjórnhættir ehf., sem er alfarið í hans eigu. Hitt félagið er Stjórn- hættir ráðgjöf slf. sem skráð er á Sig- urð og Stjórnhætti. Í svari Guðbjarts Hannessonar velferðarráðhera við fyrirspurn Kristjáns Þórs Júlíussonar, þing- manns Sjálfstæðisflokksins, um að- keypta þjónustu hjá ráðuneytinu kemur fram að þessi upphæð sé tilkomin vegna sérfræðiþjónustu. Ekki er farið nákvæmlega út í hvers konar þjónustu Stjórnhættir veittu ráðuneytinu á tímabilinu. Aðeins segir: „Stjórnhættir ehf. 13.243.852. Sérfræðiþjónusta – Verkefnisstjórn um verkefnaflutning. Stjórnhætt- ir ráðgjöf slf. 12.710.120. Sérfræði- þjónusta – Verkefnisstjórn um verk- efnaflutning.“ Málefni fatlaðra Auk Sigurðar er einn fastur starfs- maður hjá Stjórnháttum ehf. DV leitaði upplýsinga hjá Sigurði um hvers konar þjónustu Stjórnhættir veiti ráðuneytinu. „Þetta er flutn- ingur á þjónustu fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga, sem tók gildi nú um áramótin,“ segir Sigurður og bætir við: „Við erum búin að veita þessa þjónustu samfellt í þrjú ár.“ Er þessi upphæð þá fyrir vinnu sem var innt af hendi á því tímabili? „Nei, þetta er bara fyrir vinnu þessi ár sem eru þarna undir,“ segir Sigurður og vísar til þess að svar ráðherra tekur frá janúar 2009 og fram í október í fyrra. Aðspurður hvers vegna hann selji ráðuneytinu vinnu sína í gegn- um tvö mismunandi félög, annars vegar Stjórnhætti ehf. og hins veg- ar Stjórnhætti ráðgjöf slf., vill hann ekki svara því. „Það er bara mitt mál. Það er misjafnt eftir tímabil- um. Það er ekki verið að rukka fyrir sama fyrirtækið á sama tíma.“ Vill ekki gefa upp heildarupphæð Sigurður svarar því neitandi þegar hann er spurður hvort munur sé á starfsemi félaganna tveggja. „Það er bara prívatmál hvaða rekstrar- form ég hef á mínum rekstri,“ seg- ir hann. Stjórnhættir hafa veitt mörg- um öðrum ráðuneytum sérfræði- þjónustu á undanförnum árum. Á vefsíðu félagsins eru verkefni fyrir önnur ráðuneyti tilgreind. Meðal verkefna má nefna stefnumótun og breytingar á þjóðskrá fyrir dóms- mála- og mannréttindaráðuneytið. Þá má nefna úttekt á rekstrarformi stofnana fyrir fjármálaráðuneytið, breytt verkaskipting félagsmála- ráðuneytisins og heilbrigðis- ráðuneytisins, framtíðarþróun Byggðastofnunar og mat á áhrifum mannvirkjalaga. Aðspurður hversu háar upp- hæðir í heildina fyrirtæki hans hafa fengið í greiðslur frá ráðuneytum á tímabilinu sem um ræðir segir hann: „Ég gef það ekkert upp.“ Er einhver sérstök ástæða fyr- ir því? „Nei, það er engin sérstök ástæða. Ég tel enga ástæðu til að gefa upp rekstrartölur frá fyrirtækj- unum.“ Aðspurður hvort hægt sé að áætla upphæðina í heild sinni út frá þessum greiðslum vill Sigurður ekkert segja um það. 26 milljónir fyrir sérfræðiþjónustu n Fékk 26 milljónir frá ráðuneyti í gegnum tvö félög fyrir verkefnisstjórn vegna málefna fatlaðra n Vinnur fyrir flest ráðuneytin n Gefur ekki upp heildargreiðslur Valgeir Örn Ragnarsson blaðamaður skrifar valgeir@dv.is „Nei, það er engin sérstök ástæða. Ég tel enga ástæðu til að gefa upp rekstrartölur frá fyrirtækjunum. Sigurður Helgi Helgason Veitir ráðuneytum sérfræðiþjón- ustu. Kostnaður við slíka þjónustu vegna flutnings á þjónustu fatlaðra kostaði 26 milljónir frá janúar 2009 til október 2010. Vilja debetkort fyrir fátæka Geðhjálp skorar á hjálparstofnanir að taka höndum saman við yfirvöld og móta nýtt fyrirkomulag neyðar- aðstoðar við fátækt fólk í landinu. „Ölmusumatargjafir með tilheyrandi biðröðum eru lítilsvirðandi fyrir það fólk sem þarf á sértækri aðstoð að halda,“ segir í tilkynningu frá Geð- hjálp en þar segir einnig að brýnt sé að fundið verði lágmarksframfærslu- viðmið sem lífeyrir og lágmarkslaun taki mið af. „Fyrir þá sem ekki ná endum saman af einhverjum ástæð- um þarf að tryggja að þeir geti sótt sér nauðsynjavörur með sama hætti og aðrir landsmenn en ekki hjá sér- stökum hjálparstofnunum. Það er hægt að gera með útgáfu sérstakra debetkorta sem aðeins gilda í mat- vöruverslunum.“ Tillitsleysi í umferðinni Tillitsleysi annarra ökumanna í umferðinni fer mest í taugarnar á ökumönnum. Þetta kemur fram í viðhorfskönnun sem Capacent Gallup vann fyrir Umferðarstofu í lok nýliðins árs. Rúmlega 71 prósent aðspurðra sagði slíka hegðun valda sér helst álagi við akstur eins og það er orðað í tilkynningu frá Umferðar- stofu. 66,5 prósent sögðu að skortur á notkun stefnuljósa ylli sér álagi. 64,5 prósent sögðu of hægan akstur valda sér álagi en farsímanotkun ökumanns olli álagi hjá 37,8 pró- sentum svarenda. Þar á eftir kemur akstur á vinstri akrein en 37 prósent nefndu það atriði. Fyrirtæki sektuð um milljarð Níu fyrirtæki voru sektuð um sam- tals tæplega milljarð króna á síðasta ári. Þetta kemur fram í ársriti Sam- keppniseftirlitsins fyrir árið 2010. 163 mál komu inn á borð stofn- unarinnar í fyrra. Hæstu sektirn- ar greiddu annars vegar Skipti og hins vegar Hagar ásamt fimm kjöt- vinnslufyrirtækjum, samtals um 400 milljónir króna. Sektin sem Skipti þurftu að greiða var lögð á vegna ólöglegs samráðs Tæknivara og Hátækni á farsímasölumarkaði. Þá sektaði Samkeppniseftirlitið Haga og fimm kjötvinnslufyrirtæki vegna samkeppnishamlandi samstarfs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.