Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2011, Qupperneq 8
8 | Fréttir 7.–9. janúar 2011 Helgarblað
Enn hefur ekki verið gerð grein fyrri öllum hluthöfum í Pressunni:
Tíu prósent á huldu
Blaðamannaverðlaun
Almennur skilafrestur á tilnefningum (ábendingum)
vegna Blaðamannaverðlauna ársins 2010 er til
föstudagsins 21. janúar 2011 kl. 16:00.
eins og áður eru verðlaunin veitt í þremur flokkum en þeir eru þessir:
n Besta umfjöllun ársins 2010
n rannsóknarblaðamennska ársins 2010
n Blaðamannaverðlaun ársins 2010
almenningur getur komið með tilnefningar með því að fara inn á vef Blaðamanna-
félagsins www.press.is á þar til gert tilnefningarsvæði. Tilgreina þarf nafn blaða-
manns eða blaðamanna, miðil, hvað tilnefnt er fyrir, hvenær það birtist og rök fyrir
tilnefningunni.
einnig er hægt er að senda inn tilnefningar til verðlaunanna á skrifstofu Blaðamanna-
félags Íslands í Síðumúla 23, 108 reykjavík, ásamt gögnum með röksemdafærslu
fyrir tilnefningunni. Dómnefnd mun síðan fara yfir tilnefningarnar og tilkynna um
verðlaunahafa 26. febrúar nk.
Íbúar langþreyttir á útblæstri:
Mengunarský
yfir Bíldudal
Útblástur frá kalkþörungaverksmiðj-
unni á Bíldudal er of mikill og er af-
leiðingin sú að mengunarský leggur
yfir þorpið.
Kristján Geirsson, deildarstjóri hjá
Umhverfisstofnun, staðfestir að út-
blástur frá kalkþörungaverksmiðjunni
á Bíldudal sé of mikill og bætir við að
mikið sé kvartað undan útblæstrin-
um. Verksmiðjan var sett í gang í apríl
árið 2007 og skapar starfsemin um 10
til 15 störf.
Íbúi á Bíldudal segir í samtali við
DV að íbúarnir séu almennt mjög
ósáttir við verksmiðjuna. Sjálfur segist
hann ekki geta verið í bænum þegar
útblásturinn er sem mestur. Hann
finnur mikið fyrir rykinu í hálsi og
öndunarfærum. Þegar logn er leggur
reykskýið yfir bæinn og rykið smýgur
inn í alla króka og kima að hans sögn.
Hann segir ástandið þó engu skárra
þótt blási, því þá fjúki grófara ryk yfir
bæinn frá haugnum við verksmiðjuna.
Skipt hefur verið þrisvar um síu-
búnað í verksmiðjunni og nú síðast í
vor var settur upp í henni vothreinsi-
búnaður. Kristján segir verksmiðjuna
vera að þróa búnaðinn en vandræði
hafi verið með að fá hann til að virka
sem skyldi. Umhverfisstofnun hefur
átt í bréfaskriftum við forsvarsmenn
verksmiðjunnar um að bæta búnað-
inn og ýta á eftir því að honum verði
komið í lag.
Kristján segir útblásturinn ekki
vera skaðlegan heilsu fólks en þetta
sé þó hvimleitt vandamál. „Fólk hefur
kvartað. Þetta náttúrlega sest á bíla og
hús, smýgur inn og annað slíkt. Þetta
er óþægilegt og þetta er leiðinlegt og
þetta er ekki í samræmi við það sem
þeir eiga að gera.“
Óljóst er með eignarhald á tíu pró-
senta hlut í Vefpressunni, eiganda
og útgefanda Pressunnar. Björn Ingi
Hrafnsson, stjórnarformaður Press-
unnar, segir að níutíu prósenta eign-
arhlutur sé í höndum sín, Arnars
Ægissonar, Salt Investments og VÍS.
Ráðist var í hlutafjárútboð í haust
en einn þeirra sem boðinn var eign-
arhlutur í útgáfunni var útgerðar-
maðurinn Jakob Valgeir Flosason í
Bolungarvík. Eigendalisti Pressunn-
ar hefur ekki legið ljós fyrir í nokk-
urn tíma en nú virðist vera að aðeins
vanti að greina frá eigendum tíu pró-
senta í félaginu.
DV greindi frá því fyrr í vetur að
Pressan þyrfti á 80 til 100 milljónum
í hlutafé að halda og var hlutafjárút-
boðið hluti af ferlinu við að tryggja
það fé. Sagði Björn Ingi við DV í nóv-
ember síðastliðnum að eftir því sem
fleiri hefðu gengið til liðs við félag-
ið ætti enginn einn hluthafi meira
en rúmlega 20% í félaginu. „Það er
enginn einn aðili sem er ráðandi þar
með eignarhaldið,“ sagði hann en nú
er ljóst að ef 90% hlutafjár í félaginu
skiptast jafnt á fjóra stærstu hluthaf-
ana á hver og einn 22,5% hlut.
Samkvæmt ársreikningi fyrir árið
2009 sem Viðskiptablaðið birti kem-
ur fram að mikið tap er af rekstri
Pressunnar. Rekstrartekjur námu
22,3 milljónum króna en rekstrar-
gjöld 53 milljónum króna.
Björn Ingi og Vefpressan stefna
hins vegar á frekari landvinninga og
segir hann fólk í útgáfustarfsemi sí-
fellt vera að velta fyrir sér nýjum hug-
myndum og möguleikum. Orðrómur
hefur verið uppi um að nýr fótbolta-
vefur eigi að fara í loftið. Björn Ingi
vill ekki staðfesta það en neitar því
ekki. Hann bendir á að útgáfufélagið
eigi vefinn boltinn.is en segir að lít-
il virkni hafi verið á vefnum undan-
farið.
adalsteinn@dv.is
Útgefandi Björn Ingi er stjórnarfor-
maður og útgefandi Pressunnar.
Slitastjórn selur
400 íbúðir í Berlín
Þrotabú Sparisjóðs Reykjavíkur og
nágrennis, SPRON, á óseldar um 400
íbúðir í Berlín. Slitastjórn SPRON
hefur þær til sölumeðferðar en enn
hefur ekki fengist viðunandi tilboð í
fasteignirnar.
Allar eignir þrotabús SPRON
eru til meðferðar hjá Dróma hf.
en slit fjármálafyrirtækisins fara
fram í gegnum það félag. Tilgang-
ur þess er almenn eignaumsýsla,
svo sem vegna fasteigna, peninga-
sjóða, tryggingaréttinda og viðhalds
og varðveisla hvers kyns réttinda.
Drómi varðveitir einnig, selur, leigir
eða rekur sjálft fasteignir, eins og
segir í gögnum hlutafélagaskrár. Þess
má geta að kröfur sem lýst hefur ver-
ið í þrotabú SPRON nema liðlega 200
milljörðum króna.
Magnús S. Pálmarsson situr í
stjórn Dróma hf. ásamt lögfræðing-
unum og slitastjórnarfulltrúunum
Hlyni Jónssyni, Hildi Sólveigu Pét-
ursdóttur og Jóhanni Péturssyni.
Magnús segir að upphaflega hafi ver-
ið um að ræða fjárfestingarverkefni á
vegum SPRON í Berlín.
Mikil verðmæti
„Það voru fasteignafélög sem á sín-
um tíma keyptu heil íbúðarhús víðs
vegar um Berlín, alls 16 hús með nær
400 íbúðum. SPRON bauð aðilum að
taka þátt í verkefninu með sér. Kaup-
in á íbúðunum voru fjármögnuð ekki
aðeins af SPRON, heldur einnig er-
lendum bönkum sem nú eiga kröfur
í búið.“
Magnús kveðst ekki vita um verð-
mæti fasteignanna í Berlín en ýmsir
hafi gert vart við sig og freistað þess
að kaupa fasteignirnar á niðursettu
verði. „Það stendur til að selja þetta
allt. Það eru viss ákvæði í samning-
um, svo sem dagsetningar, sem ráða
því hvenær hagkvæmt er að greiða
upp lán. Það getur verið dýrt að segja
upp samningum. Það er talsverður
áhugi fyrir þessu meðal annars frá ís-
lenskum fyrirtækjum sem kynna sig
í nafni erlendra aðila. Enn hefur þó
enginn sýnt fram á að geta greitt það
verð sem við verðum að fá fyrir íbúð-
irnar.“
Vel staðsettar íbúðir eru vitan-
lega dýrastar og seljast hugsan-
lega fyrir 40 til 60 milljónir króna.
Ef meðalverð er áætlað um eða yfir
30 milljónir króna fyrir hverja íbúð
er heildarverðmæti þeirra 12 til 15
milljarðar króna. Magnús segir að
fáist ekki nægilega hátt verð sitji
SPRON uppi með skellinn þótt aðr-
ir lánardrottnar verkefnisins fái eitt-
hvað upp í sínar kröfur. „Þetta var
mjög veðsett verkefni og veðjað á að
fasteignaverð í Berlín hækkaði þeg-
ar ráðist var í þetta. Það gerðist ekki.
Verðið lækkaði heldur ekki að neinu
marki í fjármálakreppunni þannig
að íbúðaverð í Berlín er stöðugra en
víða annars staðar.“
Vanhæfi?
Drómi hf. á verkefnið í dag sem sér
um rekstur húseignanna, en allar eru
íbúðirnar í Berlín í útleigu. Að sögn
Magnúsar hefur Drómi fasteignafé-
lag í sinni þjónustu sem sér um að
reka fasteignirnar. „Það félag hefur
tekið við áreitinu. Menn héldu að
hægt væri að fá þetta fyrir lítið. Okkur
ber hins vegar að hámarka arðinn af
eignasafninu og því hefur þetta ekki
enn verið selt. Við vitum ekki hvað
Drómi fær út úr þessu fyrr en búið
er að selja. Ef við hefðum hlaupið til
og selt hefði Drómi hf. (SPRON) ekki
fengið neitt.“
Samkvæmt gögnum hlutafélaga-
skrár var Drómi hf. stofnað síðastlið-
ið haust. Stofnendur eru SPRON hf.
og Mýrarhlíð ehf. Hlutafé er skráð
liðlega 15 milljarðar króna. Mýrar-
hlíð ehf., sem stofnað var snemma
árs 2009, er í eigu Hlyns, Hildar
Sólveigar og Jóhanns í slitastjórn
SPRON. Hlutafé Mýrarhlíðar er að-
eins 500 þúsund krónur. Ætla má að
hlutafé Dróma komi nær algerlega
frá SPRON.
DV hefur borið þetta fyrirkomu-
lag á slitum SPRON undir tvo lög-
fræðinga. Þeim ber saman um að
hætta geti verið á vanhæfi slitastjórn-
armanna sem eigi nú og ráði félaginu
Dróma, bæði fyrir hönd SPRON og
Mýrarhlíðar. Ástæðan sé sú að venju-
legur kröfuhafi í SPRON geti ekki gert
greinarmun á einkahagsmunum
slitastjórnarmanna sem hluthafa í
Dróma og hagsmunum sem tengjast
SPRON og kröfuhöfunum hins veg-
ar. Ljóst sé að slitastjórnarmenn hafi
tekjur sínar frá Dróma hf. sem fáist
við að koma eignum SPRON í verð
og fjalli um hagsmuni kröfuhafanna.
Jóhann Hauksson
blaðamaður skrifar johannh@dv.is
n Þrotabú SPRON á 400 íbúðir í Berlín n Verðmæti þeirra gæti
verið 12 milljarðar króna samanlagt n Þykir orka tvímælis að slita-
stjórnin stofni félag með þrotabúinu og hafi af því tekjur sínar
„Enn hefur þó eng-
inn sýnt fram á að
geta greitt það verð sem
við viljum fá fyrir íbúðirnar.
Formaður slitastjórnar Hlynur Jónsson,
stofnaði ásamt öðrum slitastjórnarmönn-
um félagið Dróma hf. um rekstur þrotabús
SPRON.
Framkvæmdastjórinn Hildur Sólveig
Pétursdóttir er framkvæmdastjóri Dróma
hf.
Þrotabú SPRON Lýstar kröfur í SPRON
nema liðlega 200 milljörðum króna.
F r j á l s t , ó h á ð d a g b
l a ð
Hagnast í föllnu bönkunum
GRÆÐA
Á TÁ OG FINGRI
5.–6. janúar 2011 2. tbl. 101. árg. leið
b. verð 395 kr. miðvikudagur og fimmtudagur
n Tólf nefndarmenn fengu 460 milljón
ir Fréttir 2
n Þrefalda hagnað sinn milli ára
Steinunn Guðbjartsdóttir
Árni Tómasson
Ársæll Hafsteinsson
jóhannes r. jóhannesson
Lárentsínus Kristjánsson
Halldór H. Backman
Kristinn Bjarnason
Heimir Haraldsson
Herdís Hallmarsdóttir
Ólafur Garðarsson
63 milljónir
42 milljónir
56,7 milljónir
19,1 milljón
39,4 milljónir
52,3 milljónir
52 milljónir
33,6 milljónir
22,4 milljónir
53 milljónirNýjA yFIRsTéTTIN í skIlANeFN
duNum
bestu útsölurnar
Ornella:
kveÐuR
NekTINA Fólkið 26
n allt að 80% lækkun n Meiri lækkun en
áður
FÆddI
bARNIÐ
í heITA
pOTTINum
Fréttir 4
Enga
Euro-
vision-
umræðu!
Guðmundur þjálfari:
n Hitað upp fyrir HM
Sport 24–25
Schwarzenegger kveður:
„HaSta
La viSta!“
Erlent 16–17
Jón Gnarr
og Hanna
fá nýjan
metanbíl
Fréttir 10
n Skilur Kaliforníu eftir í skuldasúpu
Neytendur 14–15
Fréttir 12
bubbi vill kaupa
TóNliSTiNa aFTurForsíða 5. janúar 2011
Skilanefnd selur
sögufrægt hótel
Skilanefnd Landsbankans hefur
samþykkt tilboð í hið sögufræga
danska hótel, Hotel d‘Angleterre,
í Kaupmannahöfn. Það er félag í
eigu Remmen‘s Stiftung von 1986
sem kaupir hótelið og munu þeir
taka við rekstrinum 1. febrúar.
Kaupverðið er ekki gefið upp en
er þó sagt „ásættanlegt“ í tilkynn-
ingu frá skilanefnd.
Hotel d‘Angleterre er um 250
ára og staðsett við Kongens Ny-
torv í Kaupmannahöfn.
Skilanefnd Landsbankans tók
hótelið yfir í upphafi síðasta árs
en það var í eigu íslenska eign-
arhaldsfélagsins Nordic Partners
sem keypti hótelið árið 2007.