Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2011, Síða 11
ÚTSALA
20-60% afsláttur
af öllum vörum
Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
Útsalan er líka
í vefverslun
Fréttir | 11Helgarblað 7.–9. janúar 2011
Þrír þingmenn Vinstrihreyfingarinn-
ar – græns framboðs, þau Lilja Mós-
esdóttir, Ásmundur Einar Daðason
og Atli Gíslason, áskilja sér allan rétt
til að taka afstöðu til stefnumála rík-
isstjórnarinnar eftir þingflokksfund
VG síðastliðinn miðvikudag. Staðan
innan þingflokksins er því sem næst
óbreytt frá því sem var að öðru leyti en
því að 15 þingmenn flokksins ætla að
boða til fleiri funda og ræða ágrein-
ings- og stefnumál. Næsti fundur
þingflokksins verður á mánudag.
Ásmundur sagði efnislega eftir
fundinn á miðvikudag að hann myndi
verja ríkisstjórnina vantrausti. Hins
vegar styddi hann ekki óbreytta stefnu
ríkisstjórnarinnar og nefndi sérstak-
lega aðildarumsókn að Evrópusam-
bandinu sem leikið hefði flokkinn illa.
Stjórn þingflokks VG er skipuð
Árna Þór Sigurðssyni þingflokksfor-
manni, Lilju Rafneyju Magnúsdótt-
ur og Þuríði Backman. Árni Þór segir
að stjórn þingflokksins hafi lagt fram
hugmyndir að bókun á fundinum á
miðvikudag. „Þessi bókun tók til verk-
lags, starfa þingflokksins, meðferð-
ar ágreiningsmála, stórra stefnumála
sem bíða og samvinnunnar milli
stjórnarflokkanna svo að nokkuð sé
nefnt. Þetta verður áfram til umræðu
á næstu fundum. Ég lít ekki svo á að
þessum hugmyndum hafi verið hafn-
að eða að einhverjir hafi neitað að
kvitta undir bókun af þessum toga. Ég
spurði þingflokkinn sérstaklega um
stuðning við ríkisstjórnina og tel að
hann sé fyrir hendi.“
Bókun með fyrirvara
Umrædd bókun var skrifleg og kynnt
öllum þingmönnum VG degi fyrir
þingflokksfundinn. Þar af leiðandi
höfðu allir þingmennirnir haft tæki-
færi til að kynna sér efni hennar. Þeg-
ar til kastanna kom gátu áðurgreind-
ir þingmenn, Lilja, Ásmundur og Atli,
ekki fellt sig við efni hennar og áskildu
sér rétt til að styðja sumt, annað ekki.
Niðurstaðan varð sú að bókunin kom
ekki til atkvæða á fundinum og lítur
Árni Þór þingflokksformaður svo á að
efni hennar verði rætt á næsta fundi
sem boðaður er á mánudag.
Heimildir eru fyrir því að hvor-
ugur ráðherrann Jón Bjarnason eða
Ögmundur Jónasson hafi verið sér-
lega ánægðir með efni bókunarinn-
ar. Sem ráðherrar í ríkisstjórninni
eru þeir hins vegar í annarri stöðu
en þingmennirnir þrír sem lýstu
andstöðu við margvíslega efnisþætti
hennar.
Naumur 32 manna meirihluti
Eins og áður segir hefur Ásmundur
Einar Daðason ekki lýst afdráttar-
lausum stuðningi við ríkisstjórnina
sjálfur þó svo að þingflokksformað-
ur VG túlki niðurstöðu fundarins svo
að allur þingflokkurinn styðji ríkis-
stjórnina og ríkisstjórnarsamstarfið.
Í Kastljósviðtali eftir fundinn sagðist
Ásmundur Einar verja ríkisstjórnina
vantrausti en óbreytta stefnu hennar
styddi hann ekki. Líklegt er að ann-
að hinna tveggja verji ríkisstjórnina
vantrausti ef á reynir.
Svanur Kristjánsson, stjórnmála-
fræðiprófessor við Háskóla Íslands,
telur stöðuna fyrir og eftir miðviku-
dagsfund þingflokksins óbreytta.
Þingmennirnir þrír áskilji sér rétt til
að styðja sum stefnumál ríkisstjórn-
arinnar en önnur ekki. „Hafi þing-
mennirnir ekki stutt bókun stjórnar
þingflokksins er staðfestur klofning-
ur í flokknum,“ segir Svanur í samtali
við DV. „Nú liggur fyrir svart á hvítu
að ríkisstjórnin styðst við 32 manna
meirihluta á þingi því þingmenn-
irnir þrír hafa í raun og veru stofnað
nýjan flokk. Það verður því að líta svo
á að nú standi yfir viðræður þriggja
flokka um stjórnarsamstarf.“
Persónulegur tónn í deilunum
Atli, Lilja og Ásmundur lögðu fram
greinargerð á fundinum síðastlið-
inn miðvikudag þar sem gerð er til-
raun til þess að útskýra harðorða yf-
irlýsingu þeirra í kjölfar afgreiðslu
fjárlaga fyrir jól. Í þeirri yfirlýsingu
var að finna gagnrýni á gerð fjárlag-
anna og talað um foringjaræði og
forræðishyggu.
Lilja, Atli og Ásmundur voru á
fundinum beðin að finna yfirlýsingu
sinni stað og útskýra með hvaða hætti
vinnubrögðin við gerð fjárlaganna
hefðu verið ólýðræðisleg.
Ýmsir í forystu stjórnarflokkanna
telja að persónuleg átök yfirskyggi
málefnaágreininginn í VG. Bent er á
að á flokksráðsfundi VG í Hagaskóla
í Reykjavík í nóvember hafi ESB-and-
stæðingar orðið undir í atkvæða-
greiðslu. Deilur hafi ekki hjaðnað við
þetta og ekki heldur með innkomu
Ögmundar Jónassonar í ríkisstjórn-
ina. Ásmundur Einar er formaður
Heimssýnar, samtakanna sem berj-
ast gegn aðild Íslands að ESB. Und-
ir krauma átök Jóns Bjarnasonar við
flokksforystuna vegna sjávarútvegs-
og Evrópumála.
ESB-ógöngur
Samfylkingarinnar
Spyrja má hvaða þýðingu þetta kann
að hafa fyrir stjórnarsamstarfið. Inn-
an Samfylkingarinnar gætir þreytu
gagnvart sífelldum skærum „óró-
legu deildarinnar“. Hvorki þingflokk-
ur Samfylkingarinnar né sá hluti
þingflokks VG sem fylkir sér bak for-
manni sínum telja þó að fram und-
an séu erfið mál sem geti orðið rík-
isstjórninni að falli. Að því gefnu að
Icesave-samningurinn komist klakk-
laust í gegnum þingið, sem líkur eru
til að þessu sinni, sjá stjórnarliðar
ekki fyrir sér nein stórfelld átakamál
fyrr en kemur að gerð næstu fjárlaga.
Einnig er á það bent að hagur þjóðar-
innar fari nú ört batnandi og að far-
ið sé að örla á nýfjárfestingum í at-
vinnulífinu.
Svanur Kristjánsson stjórnmála-
fræðiprófessor sér þetta öðrum aug-
um. „Samfylkingin hefur ekki haft
burði til þess að fylgja ESB-málinu
eftir af sannfæringu og festu. Óró-
lega deildin í VG hefur tekið málið
í gíslingu og á ég þar einnig við Jón
Bjarnason, en hann ræður miklu um
viðkvæm samningsmál sem sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra.
Frammi fyrir ráðamönnum ESB er
umsókn Íslands orðinn ótrúverðug-
ur leikaraskapur. Þetta stærsta bar-
áttumál Samfylkingarinnar er í raun
og veru ónýtt. Carl Bildt, utanríkis-
ráðherra Svía, hefur sagt að Ísland
fylgi ekki Króatíu inn í samband-
ið og að samningaviðræður við Ís-
land muni taka mörg ár með þessu
áframhaldi. Reyndar getur Samfylk-
ingin sjálfri sér um kennt þar sem
hún virðist ekki ráða við lýðræðis-
umræðuna: að meira fullveldisafs-
al felist í EES-samningnum en að
ganga í ESB; að unnt sé að vera inn-
an ESB án þess að taka upp evru; að
margir menningarlegir, stjórnmála-
legir og lýðræðislegir kostir fylgi
nánari samvinnu við Evrópuþjóðir,“
segir Svanur.
„Það verður því
að líta svo á að
nú standi yfir viðræður
þriggja flokka um stjórn-
arsamstarf.
Jóhann Hauksson
blaðamaður skrifar johannh@dv.is
n Þrír flokkar semja nú um áframhaldandi stjórnarsamstarf, segir
prófessor n Hann segir ESB-umsóknina nánast dauða og þykir lík-
legt að í odda skerist vegna andstöðunnar innan VG n Þingmenn
VG gátu kynnt sér skriflega bókun í sólarhring fyrir þingflokksfund
n Stjórnarliðar óttast sjálfir ekki um líf ríkisstjórnarinnar
„Viðræður
þriggja flokka
um samstarf“
Órólega deildin Ásmundur Einar Daðason
kveðst geta hugsað sér að verja ríkisstjórnina
vantrausti en styður ekki stefnuyfirlýsingu
hennar í mikilvægum málum.
Þriggja flokka stjórn? Svanur
Kristjánsson stjórnmálafræðiprófessor telur
einboðið að líta svo á að þrír flokkar eigi nú
aðild að ríkisstjórn.
Bókun stjórnar þingflokksins Árni Þór
Sigurðssson, formaður þingflokks VG, segir
ágreiningsmál verða rædd áfram. Næsti
fundur verður á mánudag.