Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2011, Side 25
Ungur Dalamaður á þingi leggst í víking gegn Evrópusamvinnu og heimtar Bandaríkjadollar sem
þjóðarmynt. Hann dundar sér við það
í fjárlaganefnd að útdeila milljarða-
styrkjum til bænda sem hann selur svo
tæki og tól til búrekstrar í gegnum fyrir-
tæki sitt. Vill enga styrki frá ESB og fer á
fund nei-hreyfingarinnar í Noregi.
Reyndur verkalýðsfrömuður úr
sama flokki vill að hver þingmaður sé
sinn eigin stjórnmálaflokkur og gengur
inn og út úr ríkisstjórn eftir því hvernig
vindar blása. Reisir þjóðernis vígi gagn-
vart Evrópuþjóðum þegar þær vilja
ekki lána íslenskum óreiðumönnum fé
refjalaust eða þegar þær fara fram á að
þeir borgi skuldir sínar. Hann er búinn
að uppgötva merkingu orðsins „sam-
staða“ og sýnir óvinum formanns síns
opinberan stuðning í nafni samstöðu.
Hagfræðidoktor úr sama flokki skor-
ar Alþjóðagjaldeyrissjóðinn á hólm og
hefur í heitingum verði menn ekki við
óskum þingmannsins um að slíta sam-
vinnunni við þennan „útsendara frjáls-
hyggjunnar og kapítalismans“.
Lögfræðingur úr sama flokki undr-
ast að menn skuli kalla þennan hóp
villiketti um leið og hann talar í Mogga-
grein gegn hjarðhegðun sem hann tel-
ur hafa orðið þjóðinni dýrkeypt fyrir
hrun.
Þrjú þeirra fara með heift gegn fjár-
lögum ríkisstjórnar og þingmeirihluta
og tala um forræðishyggju og foringja-
ræði.
Ríkir verða ríkari
Á meðan þessu vindur fram í íslensk-
um afdölum heldur Bernie Sand-
ers, þingmaður lýðræðissósíalista í
Vermont, varnarræðu fyrir banda-
rískan almenning sem hann telur vera
að tapa stríðinu við ríka fólkið. Varla
nema von þegar Barack Obama Banda-
ríkjaforseti framlengir skattaívilnanir
fyrir auðmennina eftir harðsvíraða og
rándýra baráttu þeirra fyrir forréttind-
um sínum. Sem þeir láta aldrei af hendi
átakalaust.
Sanders bendir á eftirfarandi: Á átt-
unda áratug síðustu aldar átti ríkasta
eina prósent bandarísku þjóðarinnar 8
prósent þjóðarauðsins. Þetta eina pró-
sent átti meira af þjóðarauðnum en fá-
tækari helmingur þjóðarinnar saman-
lagt.
Á níunda áratugnum átti ríkasta eina
prósentið 14 prósent þjóðarauðsins. Á
tíunda áratugnum átti rík-
asta eina prósentið 19
prósent af þjóðarauði
Bandaríkjanna.
Nú eiga ríkustu
Bandaríkjamennirnir,
sem mynda þetta
eina prósent, 23,5 prósent þjóðar-
auðsins eða jafnmikið og fátækari
helmingur þjóðarinnar samanlagt.
Guðs eigið land í vanda
Dr. Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son kvakaði fagurlega árum saman
um dýrð þess frelsis sem bandarískir
auðmenn hafa notfært sér til að raka
til sín þjóðarauðnum. Hversu mjög
brauðmolarnir myndu falla af borð-
um auðmanna til fátæklinganna að-
eins ef stjórnvöld stilltu sig um að hafa
eftirlit með þeim, vöruðust að anda
ofan í hálsmál þeirra og íþyngdu þeim
ekki með sköttum og óþarfaforræð-
ishyggju. Þetta dýrðarríki Hannesar
hrundi í fyrstu viku októbermánaðar
árið 2008.
Milljónir bandarískra heimila
eiga á hættu að fara undir hamarinn.
Meira en 20 borgir eru gjaldþrota eða
því sem næst. Mikilvægasta vígi frjálsa
framtaksins, Kalifornía, er á haus-
num og nýtur ekki lánstrausts. Þar eru
skattar helst aldrei hækkaðir því kjós-
endur greiða atkvæði gegn slíku í tíð-
um almennum atkvæðagreiðslum.
Vandi Kaliforníu er meiri en saman-
lagður efnahagsvandi Portúgals og
Grikklands.
Einkennileg stjórnmál
Allt hefur þetta orðið til þess að
bandarískir valdamenn sjá ofsjónum
yfir velgengni í norðanverðri Evrópu.
ESB hleypur undir bagga með Írlandi
með 13 þúsund milljarða króna láni.
Rússar vilja ólmir skipta við Þjóðverja;
þeir hafa allt sem Rússa vantar og
Rússar hafa orku og stækkandi mark-
að fyrir þá og aðrar ESB-þjóðir.
Fréttir berast af því að Kínverjar
vilji flytja hluta af gjaldeyrisforða sín-
um úr dollurum yfir í evrur. Þeir vilja
einnig aukin viðskipti við Þjóðverja.
Þeir kaupa ríkisskuldabréf á Spáni
og í Portúgal og styrkja þannig evr-
una. Ástæðan er þverrandi trú Kín-
verja á Bandaríkjadollar, en 70 pró-
sent gjaldeyrisforða þeirra eru nú í
þeirri mynt.
Svo gæti farið að Bandaríkin,
skuldugasta ríki veraldar, neyðist sjálf
til að leita á náðir AGS. Sæta þeim aga
sem meðal annars Íslendingar, Grikkir
og Ungverjar hafa þurft að beygja sig
undir eins og óþekk skólabörn með
skertan vasapening vegna skamm-
arstrika.
Hvernig væri að íslenskir villi-
kettir legðust nú á sveif með al-
menningi, eins og Sanders, í stað
þess að vera eins og lamandi eit-
ur í beinum þingmeirihlutans
sem reynir að endurreisa efna-
hagslífið eftir sérhagsmuna-
sukkið.
Umræða | 25Helgarblað 7.–9. janúar 2011
„Ótrúlega
þakklát“
Íris Mist Magnúsdóttir vann ef til
vill ekki titilinn íþróttamaður ársins en
hún er hástökkvari í kosningu ársins.
Lenti í þriðja sæti og var þá metinn
magnaður árangur hennar á Evrópu-
meistaramóti í hópfimleikum. Þar
keppti landslið Íslands og Íris Mist tók
mikla áhættu með dirfskufullu stökki
sem hefur vakið athygli á henni sem
einni eftirtektarverðustu fimleikakonu
Evrópu.
Hver er maðurinn?
„Íris Mist Magnúsdóttir, fimleikakona.“
Hvað fannst þér um kosninguna?
„Mér fannst þetta meiri háttar gaman og ég
er ótrúlega þakklát.“
Hvað æfir þú oft í viku?
„Ég æfi 5 sinnum í viku, 15–18 klukkutíma
alls.“
Þið hafið glímt við bága fjárhagsstöðu,
hvernig er staðan núna?
„Við fengum þrjár milljónir frá ríkisstjórninni
og nokkra smærri styrki en við erum enn að
safna fé sjálfar eins og við höfum þurft að
gera. Við höfum ekki fengið fleiri styrkt-
araðila til liðs við okkur enn sem komið er
en munum sækja um það sem er í boði á
næstunni.“
Hvað myndi breytast fengjuð þið meiri
fjárstuðning?
„Við myndum fara í æfingabúðir. Það er
nauðsynlegt en það höfum við samt ekki
gert vegna fjárskorts. Áður fyrr fórum við
2–3 sinnum á ári. Varðandi keppnir og mót,
þá myndum við keppa á danska og sænska
meistaramótinu á hverju ári ef við hefðum
fjárstyrk til þess.“
Hvað er á döfinni?
„Að halda mér í góðu formi, æfa af kappi og
ná meiri árangri. Íslenska mótaröðin er að
byrja svo það verður annasamt á næstunni.“
Hvað gerir þú í frístundum?
„Ég á ekki frístundir að ráði. Ég er í íþrótta-
fræði í Háskólanum í Reykjavík og vinn við
að þjálfa þegar ég er ekki að æfa. Mínar
frístundir fara þess vegna í það að læra og
vera með fjölskyldunni og vinunum. Ég tók
mér frí frá vinnu nýlega til þess að eiga fleiri
frístundir með vinum og fjölskyldu.“
Eruð þið samstilltar í landsliðinu?
„Já, við erum rosalega samstilltar og þetta
er sigur okkar allra. Það er ég sem tek á móti
þessu fyrir hönd stelpnanna. Mig langar til
að segja að okkur finnst öllum kosningin
vera stórkostlegar fréttir, sérstaklega í ljósi
þess að við erum konur, erum í fimleikum og
erum ekki í boltaíþróttum.“
„Ég fylgist ekki með handbolta.“
Anton Ameneiro
25 ára doktorsnemi
„Já.“
Sara Dröfn Valgeirsdóttir
19 ára nemi
„Já, ef ég get.“
Arnar Þór Kristjánsson
22 ára myndlistarnemi
„Já.“
Eysteinn Eyjólfsson
44 ára upplýsingafulltrúi
„Kannski.“
Jóhann Björn Jóhannss on
18 ára nemi
Maður dagsins
Allt á floti „Gerðuð þið þetta?“ spurði menntamálaráðherra furðu lostinn á leiðinni á þingflokksfund Vinstri grænna á miðvikudag. Óheppinn vegfarandi hafði rétt á
undan misst hádegismatinn í gólfið. MynD SiGtRyGGuR ARi JóHAnnSSon
Myndin
Að vinna réttu bardagana
Kjallari
Jóhann
Hauksson
Ætlar þú að fylgjast með HM í handbolta?Dómstóll götunnar