Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2011, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2011, Page 34
Mjólkurmaski Einfaldur og áhrifaríkur maski sem endurnærir þreytta og stressaða húð. Hann endurheimtir náttúrulegt pH-gildi húðarinnar og verndar hana gegn þurrki vegna frosts og vinda. Mjólkurmaski er einnig góður á bæði sólbrennda og þurra húð þar sem hann mýkir og dregur úr pirringi. n 1 bolli af náttúrulegri jógúrt, súrmjólk eða sýrðum rjóma. Best er að mjólkin sé tekin beint úr ísskápnum n ½ bolli af haframjöli Ef húðin er þurr er gott að bæta út í nokkrum matskeiðum af hunangi. Ef húðin er feit er aftur á móti gott að bæta við nokkrum dropum af sítrónu- eða límónusafa. Blandaðu hráefnun- um saman. Berðu mjólkurmaskann á andlitið en forðastu augnsvæðið. Slakaðu svo á í tíu til fimmtán mínútur. Hreinsaðu maskann af með köldu vatni eða þvottapoka sem hefur verið hitaður aðeins í örbylgjuofni (passið þó að hann sé ekki of heitur!). Andlitshreinsir úr sítrónum Sítrónusafinn hreinsar húðina, fjarlægir dauðar húðfrumur og gefur húðinni ferskan blæ. n 1 bolli sítrónusafi n 1/5 bolli vatn Blandaðu sítrónusafa og vatni saman. Nuddaðu blöndunni á andlitið en gættu þess að þrífa andlitið svo vel með vatni því blandan getur valdið óþægindum ef hún er of lengi á andlitinu. Andlitshreinsir úr mjöli n ½ bolli af hafra- eða maísmjöli n Hrein jógúrt Blandaðu höfrum og jógúrt saman. Notaðu nægilegt magn af jógúrt til þess að blandan verði mjúk og þétt. Berðu hreinsinn á andlitið en forðastu að bera á augnsvæðið. Notaðu volgt vatn til þess að þrífa hann af. Andlitshreinsir með valhnetum og jógúrt Mjög mildur og næringarríkur andlitshreinsir. n ¼ bolli af hreinni jógúrt n ¼ bolli af valhnetum Saxið valhneturnar mjög fínt. Blandaðu öllum hráefnunum saman. Bleyttu andlitið áður en þú berð hreinsinn varlega á húðina. Notaðu heitt vatn til þess að þrífa hreinsinn af. Skrúbbur úr höfrum og brúnum sykri n 2 matskeiðar af möluðum höfrum n 2 matskeiðar af brúnum sykri n 2 matskeiðar af aloe vera n 1 matskeið af sítrónusafa Blandaðu öllum hráefnum saman í hreina skál þar til blandan verður mjúk og þétt. Nuddaðu skrúbbnum varlega á raka húð og hreinsaðu hann síðan af með heitu vatni. Þrefaldaðu uppskriftina og þá ertu komin með skrúbb fyrir allan líkamann. Athugaðu að skrúbburinn geymist ekki. Húðmjólk Húðmjólk Kamilla jafnar og mýkir húðina og er því gjarna notuð í sápur og sjampó. Mjólkin gefur einnig mýkt og raka auk þess að hreinsa húðina. Hveitikím nærir og mýkir þar sem það inniheldur prótín og E- og B-vítamín. Húðmjólkin virkar einnig sem afar fínlegur skrúbbur og hentar einnig fyrir þurra og viðkvæma húð. n 1 bolli af þurrkaðri kamillu n 4 matskeiðar af hunangi n 1 bolli mjólk n 8 teskeiðar af hveitikími Látið kamillu liggja í mjólk í nokkrar klukku- stundir. Sigtið kamilluna úr, bætið hunangi og hveitikími út í mjólkina og hrærið vel. Berið húðmjólkina á húðina. Ef hún er sett í flösku geymist hún í allt að viku í kæli. Avókadómaski Avókadómaskinn hentar þroskaðri húð þar sem hann vinnur gegn hrukkum og þurrki. Hann nærir og mýkir húðina, enda ríkur af steinefnum, vítamínum og andoxunarefnum. Ekki skemmir fyrir að bæði avókadó og hunang er mjög rakagefandi. n ½ avókadó, best er að nota þroskað, ferskt, lífrænt avókadó. n ¼ bolli hunang, í stað hunangs er hægt að nota slurk af extra virgin-ólífuolíu. Maukaðu avókadóið í skál. Hrærðu hun- angið saman við þar til blandan verður að kremkenndu mauki. Berðu maskann á andlitið og láttu hann standa á húðinni í tíu mínútur. Þrífðu andlitið með köldu vatni. Bananabrauðsmaski Maski sem hentar öllum, enda hefur hann margvísleg áhrif. Bananarnir gefa raka, hafrarnir slípa húðina og jafna húðtóninn, mjólkin mýkir húðina, múskatið hreinsar hana og heilhveitið er andoxandi. n 1 mjög þroskaður banani n Smávegis af múskati n 2 matskeiðar af heilhveiti n 2 matskeiðar af möluðum höfrum mjólk eða rjómi eins og þörf krefur Blandaðu banananum, múskati og heilhveiti saman. Bættu haframjöli og mjólk eða rjóma út í blönduna eins og þörf krefur til þess að blandan myndi mjúkan, þéttan maska. Berðu maskann á andlitið og leyfðu honum að liggja á í fimm til tíu mínútur. Eggjahvítumaski Víða í Asíu nota konur þennan maska til þess að fá hvítari húð og unglegra yfirbragð. Ann- ars er eggjahvítumaskinn líka góður fyrir feita húð með stórum svitaholum. Hann frískar upp á og þéttir húðina þannig að yfirbragð hennar fær heilbrigðari blæ. Á veturna skapar maskinn vörn gegn vindum og frosti. Ekki er gott að nota maskann oftar en vikulega, því húðin venst honum og áhrifin verða minni. Þeyttu eggjahvítur þar til þær verða freyðandi. Ef þér þykir það betra getur þú einnig blandað haframjöli saman við eggjahvíturnar en það er óþarfi. Berðu maskann síðan á andlitið og leyfðu eggjahvítunum að þorna á andlitinu. Best er að maskinn standi í svona hálftíma áður en þú þrífur hann af með köldu vatni. Athugaðu! Þú getur einnig blandað eggjahvítum saman við sjampóið þitt til þess að gera hárið þykkt og glansandi. Gulrótarmaski Gulrótarmaskinn er góður fyrir venjulega og feita húð. Hann nærir og mýkir húðina. Gulrætur innihalda A- og C-vítamín, fólasín og kalíum. Hunang inniheldur hins vegar ávaxtasykur, þrúgusykur og vatn auk ensíma, steinefna og vítamína. n 2–3 stórar gulrætur n 2 matskeiðar af hunangi Sjóðið gulræturnar og maukið þær síðan. Setjið hunangið út í og blandið vel saman. Berið maskann varlega á andlitið og látið hann standa í tíu mínútur. Notið kalt vatn til þess að þrífa hann af. Haframjölsmaski Haframjölsmaski mýkir húðina, endurnærir hana og heilar. Haframjölið drekkur í sig olíur og óhreinindi úr húð og svitaholum og er þar að auki fínlegur skrúbbur sem fjarlægir einnig dauða húð. Gott er að taka mið af húðgerð þegar maskinn er búinn til. Fyrir húð sem er þurr og veðurbarin n ½ bolli haframjöl n ½ bolli eggjarauða n ½ bolli hunang Blandaðu hráefnunum saman. Láttu maskann vera á andlitinu í svona tuttugu mínútur áður en þú þværð hann af með volgu vatni. Fyrir feita húð n 1/3 bolli haframjöl n ¼ bolli hunang n ½ bolli vatn Settu haframjölið út í vatnið og hitaðu þetta í eina til þrjár mínútur. Leyfðu haframjölinu svo að kólna áður en þú blandar hunanginu saman við. Berðu þunnt lag af maskanum yfir húðina en farðu varlega í kringum augnsvæðið. Haframjölið getur valdið roða eða ertingu á augnsvæðinu og því er gott að verja augun með notuðum tepokum. Jarðarberjamaski Jarðarberjamaskinn hentar einnig feitri húð en jarðarber eru einstaklega rík af C-vítamínum. n 8–9 jarðarber n 3 matskeiðar hunang Maukaðu jarðarberin með gaffli en gættu þess að mauka þau ekki um of því þá er hætt við því að maskinn renni til. Blandaðu stöppunni saman við hunangið. Berðu maskann á andlitið og láttu hann standa í nokkrar mínútur. 34 | Heilsa 7.–9. janúar 2011 Helgarblað Lykillinn að vellíðan er að líða vel í eigin skinni. Auk þess er falleg húð grunnurinn að góðu útliti. Hugsaðu vel um húðina, bæði í andliti og á líkama, og þú ljómar. Heilbrigt útlit A llir þrá húð sem ljómar af hreysti og ferskleika. Enda er húðin stærsta líffærið og þegar hún er ekki upp á sitt besta hefur það óneitanlega áhrif á útlitið. Ekki örvænta þó, því það er auðveldara en þú heldur að búa til snyrtivörur sem lífga upp á húðina og gefa henni ljóma. Það fylgir því líka ákveðin stemning. Við tókum saman nokkrar uppskriftir að húðvörum sem eiga það sameiginlegt að vera líf- rænar, hollar og góðar. Þar fyrir utan er auðvelt að finna hráefnin í flestar uppskriftirnar og það á góðu verði. Athugið þó að blöndurnar verður að geyma í kæli og fæstar þeirra geym- ast lengur en í viku þar sem þær inni- halda engin rotvarnarefni. Mikilvægt er að þekkja eigin húðgerð til þess að velja réttar vörur og vita hvað þarf að hafa í huga. Ef þú strýkur þurrum klút yfir andlitið um leið og þú vaknar sérðu hvaða húðgerð þú hefur. n Ef húðin er venjuleg sest olía ekki í klútinn og húðin er stinn og falleg. n Ef húðin er þurr helst klúturinn einnig þurr en húðin flagnar og verður þurr eftir að þú hefur strokið yfir hana. n Feit húð skilur eftir sig fitubletti, sérstaklega ef strokið er yfir kinnar, nef og enni. Venjuleg eða þurr húð Gott jafnvægi er á pH-gildum í húðinni sem gerir áferð húðarinnar mjúka og fína. Þann eiginleika er vert að vernda gegn öldrunaráhrifum og umhverfi. Með því að hreinsa, skrúbba, rakanæra og verja húðina með réttum vörum heldur þú húðinni fallegri og þá þarftu lítið að hafa fyrir fegurðinni. Þurr eða mjög þurr húð Húðin er mjög viðkvæm og mikilvægt er að varast mikinn hita og kulda og mengun. Auk þess hefur hækkandi aldur oft mikil áhrif á húðina. Allir þessir þættir geta valdið ótímabærum hrukkum og rauðum dílum. Því þarf að næra húðina og gefa henni raka, en áttatíu prósent kvenna með þessa húðgerð gera ekki nóg af því. Kannski er rakatæki á skrifstofunni, notaðu það. Feit húð Húðin er þykk og þolir bæði mengun og öldrun betur. Aftur á móti eru svitaholur, fílapenslar og bólur algeng vandamál auk þess sem húðin er gjarna glansandi. Mikilvægt er að huga að mataræði og hreinlæti til að vinna gegn þessu. Ráð! Sjávarsalt dregur einnig eiturefni úr líkamanum. Blandaðu sjávarsalti saman við vatn og nuddaðu blöndunni á líkamann. Best er að gera það áður en þú ferð í sturtu, en leyfðu saltvatninu að vera eina mínútu á líkamanum áður en þú þrífur það af. Auk þess að hreinsa húðina gefur saltvatnið einnig ferskan blæ. Ráð! Á tveggja tíma fresti er gott að drekka bolla af heitu vatni með sítrónusafa. Það hreinsar eiturefni úr líkamanum. Ef þú ert með þurra húð er einnig gott að nota: n Eggjarauður með ólífuolíu og volgu hunangi n Sýrðan rjóma n Hreina ólífuolíu n Avókadó Ef þú ert með feita húð er einnig gott að nota: n Teskeið af geri sem er leyst upp með heitri mjólk, þegar blandan freyðir er hún borin á húðina n Hreint kjöt af tómötum sem blandað er saman við kartöflumjöl n Gúrku n Þeytt egg með nokkrum dropum af sítrónusafa n Gulrætur með heimagerðum möskum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.