Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2011, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2011, Side 40
40 | Minning Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 7.–9. janúar 2011 Helgarblað Jón Laxdal Arnalds fyrrv. ráðuneytisstjóri og borgardómari f. 28.1. 1935, d. 2.1. 2011 MERKIR ÍSLENDINGAR Guðrún fæddist á Valþjófsdal í Fljótsdal, dóttir Lárusar Halldórssonar, pr. og alþm. á Valþjófsdal, og k.h., Kirstínar Katr- ínar, dóttur Péturs Guðjohnsens, alþm., dómorgan- ista og söngstjóra og ættföður Guð- johnsensættar. Kirstín átti þrjár systur sem giftar voru þingmönn- um; Mörtu, konu Indriða Einarsson- ar og tengdamóður Ólafs Thors forsætis- ráðherra, sem aftur var tengdafaðir Péturs Bene- diktssonar alþm. en tengda- sonur hans er Ólafur Hannibalsson, fyrrv varam.; Guðrúnu, sem gift var Jens Pálssyni en þau voru langafi og langamma Katrínar Fjeldsted, fyrrv. alþm., og Önnu Lovísu sem var gift Þórði Thoroddsen, lækni og alþm.. Þá var fjórða systirin Kristjana, móðir Péturs Halldórssonar, alþm og borg- arstjóra. Guðrún naut góðrar barna- og unglingamenntunar í heimahús- um. Hún var bæjarfulltrúi í Reykjavík 1912–18 og varð önnur konan sem var kjörinn til Alþing- is, þingmaður fyrir Sjálfstæðisflokk- inn frá 1930 og til æviloka. Eiginmaður Guðrúnar var Sig- urbjörn Ástvaldur Gíslason, ritstjóri, rithöfundur og prestur. Þau hjón- in bjuggu að Ási, nú við Ásvallagötu í Reykjavík og voru í hópi þekktari borgara höfuðstaðarins. Með- al barna þeirra má nefna Gísla, forstöðumann Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar og Áss í Hveragerði, og Lárus skjalavörð sem var mikill áhugamaður um minjar í Reykjavík og átti mestan þátt í stofn- un og uppbyggingu Árbæjarsafns. Guðrún lést í mjög eftirminnilegu og sviplegu slysti en hún drukknaði í Tungufljóti i Biskupstungum ásamt tveimur dætrum sínum, er bifreið sem fjölskyldan hafi farið með í ferða- lag rann út í fljótið. Guðrún Lárusdóttir skáldkona og alþingismaður f. 8.1. 1880, d. 20.8. 1938 Merkir Íslendingar Merkir Íslendingar Jón Gunnar fæddist í Reykja- vík og ólst þar upp í Ár- bæjarhverfinu. Hann lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskól- anum í Breiðholti 1981, lagði stund á sagnfræði við Há- skóla Íslands, lauk þaðan BA-prófi í sagnfræði árið 1986, stundaði síð- an framhaldsnám í Svíþjóð frá 1989 og lauk doktors- prófi frá Háskólan- um í Lundi árið 1995. Jón Gunnar var dagskrárgerðarmaður á Rás 1 og hjá Ríkissjón- varpinu að loknu BA-prófi en eftir doktorsnámið hóf hann störf á fréttastofu Sjónvarps vorið 1996 og var þar fréttamaður síðan. Jón Gunnar gegndi ýmsum trúnaðarstörfum á vegum háskóla- stúdenta og háskólaráðs. Hann sat í stjórn handknattleiksdeildar Fylkis á yngri árum, var formaður tennis- deildar BH í Hafnarfirði, var gjald- keri Tennissambands Íslands og formaður Íþróttabandalags Hafnar- fjarðar um skeið frá 2003, sat í stjórn Félags fréttamanna 1999–2005 og var for- maður þess frá 2001. Jón Gunnar var kvæntur Önnu Borg Harðardótt- ur og eignuðust þau þrjú börn, Andra, Söndru og Tinnu. Foreldrar Jóns Gunnars eru Grétar Þorsteins- son, fyrrv. forseti ASÍ, og Sandra Jó- hannsdóttir. Móðir Grétars var Jónína, dóttir Árna, hálf- bróður Guðmundar, steinsmiðs í Reykjavík, föður prentsmiðjustjóranna Ágústs í Alþýðuprentsmiðjunni og Hafsteins í Þjóðsögu. Móðir Söndru er Sesselja, systir Helgu Kristínar, ömmu Sigríðar, pr. á Hvanneyri. Jón Gunnar greindist með heila- æxli og lést af völdum þess, langt fyrir aldur fram, tæplega fjörutíu og sjö ára. Hans var sárt saknað af ættingjum og samstarfsfólki enda afbragðsfréttamaður og góður starfsfélagi. Jón Gunnar Grjetarsson sjónvarpsfréttamaður hjá RÚV f. 9.1. 1961, d. 8.12. 2007 Jón fæddist í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1955, embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands 1961 og stundaði framhaldsnám í hug- verka- og auðkennarétti í London 1961–62 og í München og Kaup- mannahöfn 1962. Jón starfaði sem héraðsdóms- lögmaður eftir framhaldsnámið og varð síðar hæstaréttarlögmaður, var stjórnarráðsfulltrúi 1964–65, var deildarstjóri í atvinnumálaráðu- neytinu 1966–69, ráðuneytisstjóri sjávarútvegsráðuneytisins 1970– 85, hæstaréttarlögmaður 1985, dósent við lagadeild Háskóla Ís- lands 1984–87 og prófdómari þar um langt skeið frá 1984, borgar- dómari 1987–92 og héraðsdómari í Reykjavík frá 1992. Þá átti hann og starfrækti einka- leyfaskrifstofuna Faktor 1969– 2006. Jón sat í stjórn Verðjöfnunar- sjóðs fiskiðnaðarins 1969–84, var formaður stjórnar Hafrannsókna- stofnunar 1974–78, formaður stjórnar Rannsóknastofnunar fisk- iðnaðarins 1974–85, var formað- ur ýmissa gerðardóma, átti sæti í og var formaður í fjölmörgun op- inberum nefndum, einkum um sjávarútvegsmál, sat í FAO-nefnd- inni 1983–84, var fulltrúi Íslands í ýmsum alþjóðlegum nefndum um fiskveiðimál á þeim árum þegar Ís- lendingar færðu út landhelgina úr 12 mílum í 200 mílur og má sem dæmi nefna að hann var fulltrúi Íslands í íslensk-norskri fiskveiði- nefnd um framkvæmd á stjórn- un fiskveiða á Jan Mayen svæðinu 1980–85 og formaður sendinefnd- ar Íslands á aðalfundum Norðaust- ur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinn- ar 1972–85 og forseti nefndarinnar í nokkur ár, í sendinefnd Íslands á hafréttarráðstefnum Sameinuðu þjóðanna 1974–82 og í ýmsum við- ræðunefndum Íslendinga við aðrar þjóðir um fiskveiðiréttindi. Jón átti sæti í fjölmörgum op- inberum nefndum og stjórnum. Hann sat um skeið í stjórn Verð- bréfaþings Íslands hf. og Kauphall- arinnar hf. og var alllengi forseti Guðspekifélags Íslands, svo og að- alræðismaður Indlands. Eftir Jón liggja ýmis fræðirit og greinar um einkaleyfarétt og helstu meginreglur vörumerkjaréttar. Jón var sæmdur Kommandör- kross sænsku Norðurstjörnunn- ar 1975 og riddarakrossi íslensku Fálkaorðunnar 1979. Fjölskylda Jón kvæntist 15.9. 1995, eftirlifandi eiginkonu sinni, Ellen Júlíusdótt- ur, f. 18.10. 1935, félagsráðgjafa og myndlistarkonu. Foreldrar hennar voru Estella Dagmar Björnsson, f. Hansen, f. 26.7. 1907, d. 2.1. 1984, húsmóðir, og Pétur Emil Júlíus Björnsson, f. 25.7. 1904, d. 26.11. 1991, verkfræðingur og deildar- stjóri hjá Rafmagnsveitu Reykja- víkur. Jón var áður kvæntur Sigríði Eyþórsdóttur, f. 21.8. 1940, kenn- ara og leikstjóra. Foreldrar hennar voru Bergljót Guðmundsdóttir, f. 18.2. 1906, d. 19.6. 1980, kennari, og Eyþór Þórðarson, f. 20.3. 1898, d. 6.10. 1988, bóndi. Börn Jóns og Sigríðar eru Eyþór, f. 24.11. 1964, framkvæmdastjóri og formaður bæjarráðs í Árborg en kona hans er Dagmar Una Ólafs- dóttir, f. 1.6. 1981, yogakennari og eru synir þeirra Jón Starkaður Lax- dal Arnalds, f. 26.12. 2002, og Þjóð- rekur Hrafn Laxdal Arnalds, f. 13.7. 2009; Bergljót, f. 15.10. 1968, leik- kona og rithöfundur í Kópavogi en maður hennar er Páll Ásgeir Dav- íðsson, f. 26.1. 1970, lögfræðingur hjá Sameinuðu þjóðunum en dótt- ir þeirra er Elíndís Pálsdóttir Arn- alds, f. 11.10. 2009. Albróðir Jóns er Ragnar, f. 8.7. 1938, rithöfundur í Reykjavík og fyrrv. alþm., ráðherra og formaður Heimssýnar, hreyfingar sjálfstæð- issinna í Evrópumálum. Hálfbræður Jóns, samfeðra, eru Sigurður Steingrímur Arnalds, f. 9.3. 1947, verkfræðingur í Reykja- vík; Andrés Arnalds, f. 4.12. 1948, dr. í gróðurfræði og fagmálastjóri Landgræðslu ríkisins; Einar Arn- alds, f. 6.2. 1950, d. 18.4. 2004, rit- höfundur og ritstjóri; Ólafur Gestur Arnalds, f. 5.1. 1954, dr. í jarðvegs- fræði og deildarforseti umhverfis- deildar Háskólans á Hvanneyri. Hálfsystir Jóns, sammæðra, er Elín Stefánsdóttir, f. 4.12. 1953, æðaskurðlæknir við Haukeland háskólasjúkrahús og prófessor við læknadeild háskólans í Bergen. Foreldrar Jóns: Sigurður Arn- alds, f. 15.3. 1909, d. 10.7. 1998, útgefandi og stórkaupmaður í Reykjavík, og f.k.h., Guðrún Jóns- dóttir Laxdal, f. 1.3. 1914, d. 7.9. 2006, kaupkona í Reykjavík. Ætt Bræður Sigurðar voru Einar Arn- alds borgardómari og Þorsteinn Arnalds, forstjóri BÚR. Sigurður er sonur Ara Arnalds, alþm. og sýslu- manns á Seyðisfirði Jónssonar, b. á Hjöllum í Gufudalssveit Finnsson- ar, b. á Hjöllum Arasonar, bróður Jóns, afa Björns Jónssonar ritstjóra, föður Sveins forseta og Ólafs, rit- stjóra og stofnanda Morgunblaðs- ins, afa Ólafs B. Thors, fyrrv. forseta borgarstjórnar. Móðir Ara var Sig- ríður Jónsdóttir. Móðir Sigurðar var Matthild- ur, systir Ragnars, föður Ævars R. Kvaran, leikara og rithöfundar, föður Gunnars sellóleikara. Ann- ar bróðir Matthildar var Einar, afi Guðrúnar orðabókaritstjóra. Matt- hildur var dóttir Einars H. Kvaran, rithöfundar og forseta Sálarrann- sóknarfélagsins, bróður Sigurðar læknis, afa Ásdísar Kvaran lögfræð- ings. Annar bróðir Einars var Jósef, afi Karls Kvaran listmálara, föður listfræðinganna, Ólafs og Gunnars Kvaran. Einar var sonur Hjörleifs, prófasts á Undirfelli Einarsson og Guðlaugar Eyjólfsdóttur, b. á Gísla- stöðum á Völlum Jónssonar. Guðrún var dóttir Jóns Laxdals, tónskálds í Reykjavík Jónssonar, hafnsögumanns á Akureyri Guð- mundssonar. Móðir Jóns Laxdals var Guðrún Grímsdóttir Laxdal, bókbindara á Akureyri. Móðir Guðrúnar var Elín, syst- ir Steingríms læknis, föður Þor- valds, fiðluleikara, konsertmeist- ara og skólastjóra, föður Sigriðar leikkonu. Elín var dóttir Matthías- ar, skálds og prests, m.a. á Sigur- hæðum á Akureyri Jochumssonar, b. í Skógum í Þorskafirði Magn- ússonar. Móðir Jochums var Sig- ríður Aradóttir, systir Guðrúnar, langömmu Áslaugar, móður Geirs Hallgrímssonar forsætisráðherra. Móðir Matthíasar var Þóra , systir Guðrúnar, ömmu skáldkvennanna Herdísar og Ólínu Andrésdætra. Þóra var einnig systir Guðmundar, pr. og alþm. á Kvennabrekku, föður Theodóru Thoroddsen skáldkonu, ömmu Dags Sigurðarsonar skálds og Skúla Halldórssonar tónskálds, föður Magnúsar arkitekts. Theo- dóra var einnig langamma Einars, læknis og vínsmakkara, Guðmund- ar heitins myndlistarmanns, Jóns, kennara og heimspekings, og Katr- ínar Jakobsdóttur menntamálaráð- herra. Önnur dóttir Guðmundar á Kvennabrekku var Ásthildur Thor- steinsson, móður Muggs og amma Péturs Thorsteinsson sendiherra. Þóra var dóttir Einars, b. í Skáleyj- um Ólafssonar. Móðir Elínar var Guðrún, systir Þórðar, föður Björns forsætisráðherra. Systir Guðrún- ar var Sigríður, móðir Matthías- ar Þórðarsonar þjóðminjavarðar. Guðrún var dóttir Runólfs, hrepp- stjóra í Saurbæ á Kjalarnesi Þórð- arsonar, hreppstjóra í Saurbæ á Ólafssonar, b. á Vallá Eyjólfsson- ar. Móðir Runólfs var Sigríður Þór- ólfsdóttir, b. í Engey Þorbjörnsson- ar, bróður Guðlaugar, langömmu Guðrúnar, langömmu Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra, föður Valgerðar alþm. og Björns, fyrrv. alþm. og ráðherra, en bróð- ir Bjarna forsætisráðherra var Sveinn, afi Bjarna Benediktsson- ar, alþm. og formanns Sjálfstæðis- flokksins.. Jón verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík, laug- ardaginn 8.1. og hefst athöfnin klukkan 14.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.