Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2011, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2011, Blaðsíða 42
Þ að er margt á huldu um fyrstu ár Jane Toppan, sem hét þá Honora Kell- ey, en þó er vitað að for- eldrar hennar voru írskir innflytj- endur í Bandaríkjunum. Móðir Jane lést úr berklum þegar hún var barn að aldri og faðir hennar, Peter Kelley, var umtalaður fyrir óhófs- drykkju og sérvisku. Þeir sem þekktu hann kölluðu hann Kelley klikkaða. Peter Kelley var uppspretta fjölda sögusagna sem áttu að vitna um slæma geð- heilsu hans og samkvæmt einni slíkri átti Peter að hafa saumað augnlokin á sér saman þegar hann vann sem skraddari. Hvað sem sannleiksgildi þeirrar sögu líður eru talin lítil áhöld um að Peter hafi átt við einhverja geðbilun að stríða. Sendir dæturnar á hæli Árið 1863, örfáum árum eftir dauða eiginkonu sinnar, fór Peter Kell- ey með tvö yngstu börn sín, Jane (Honoru), sem þá var sex ára, og Delíu, átta ára, á hæli fyrir konur í Boston sem stjórnað var af Hönnu Stillman. Peter skildi dætur sínar þar eftir og var það hið síðasta sem hann sá af þeim. Í skjölum hælis- ins segir að stúlkunum tveimur hafi verið „bjargað af miklu eymd- arheimili“. Engum sögum fer ann- ars af dvöl systranna á hælinu, en innan tveggja ára, í nóvember 1864, var Honoru komið í vist á heimili konu að nafni Anna Topp- an í Massachusetts. Þrátt fyrir að Anna hafi í reynd aldrei ættleidd Honoru tók hún sér ættarnafnið Toppan og varð að lokum þekkt sem Jane Toppan. Delía hins vegar var á kvennahæl- inu til ársins 1868 þegar hún fékk þernustarf í New York um tólf ára aldur. Síðar tók hún upp vændi og lést síðar úr drykkjuskap og vol- æði. Sjúklingar verða tilraunadýr Árið 1885 hóf Jane Toppan þjálfun til hjúkrunarkonu við Cambridge- sjúkrahúsið. Á meðan á þjálfun- inni stóð notaði hún sjúklinga sína sem tilraunadýr í tilraunum með morfín og atrópín. Það gerði hún með því að breyta lyfjamagninu og fylgjast með áhrifum þess á and- legt ástand sjúklinganna. Jane komst upp með þetta því hún eyddi löngum tímum í einrúmi með sjúklingum sínum sem gerði henni kleift að falsa sjúkraskýrsl- ur þeirra og halda sjúklingunum á mörkum meðvitundarleysis og jafnvel skríða upp í rúm til þeirra. Þó er ekki vitað hvort hún átti kyn- ferðislegt samneyti við sjúklingana og síðar sagði Jane við yfirheyrslur að hún hefði fundið fyrir kynferðis- legri spennu þegar sjúklingar sem voru nánast látnir voru lífgaðir við bara til að deyja á ný. Jane Toppan gaf fórnarlömbum sínum banvæna lyfjablöndu og lagðist síðan upp í rúm til þeirra og hélt þétt utan um þau þar til þau tóku síðasta andvarpið. Jane fer í einkageirann Jane Toppan fékk fyrir meðmæli stöðu við ríkisspítalann í Massa- chusetts árið 1889 og náði að fjölga fórnarlömbum sínum þar áður en hún var rekin árið eftir fyrir óvar- lega lyfjagjöf. Þegar þar var komið sögu gerðist Jane einkahjúkrunarkona og blómstr aði sem slík þrátt fyr- ir stöku ávæning um smáþjófnað. Morðferill Jane komst á flug árið 1895 þegar hún myrti leigusala sína og árið 1899 myrti hún fóstursystur sína, Elísabetu, með strikníni. Árið 1901 flutti Jane inn til hins aldraða Aldens Davis og fjölskyldu hans í Cataumet í Massachusetts og átti að hugsa um hann, en kona hans hafði safnast til feðra sinna skömmu áður, reyndar fyrir tilstilli Jane. Innan örfárra vikna myrti Jane Alden Davis og tvær dætra hans. Jane beið ekki boðanna, flutti til heimabæjar síns og gerði sér dælt við eiginmann Elísabetar sálugu, fóstursystur sinnar. Til að sanna sig eitraði Jane fyrir eiginmanni Elísa- betar með það fyrir augum að koma honum til heilsu á ný. Jane gekk jafnvel svo langt að eitra fyrir sjálfri sér til að hljóta meðaumkun hans. Hún hafði ekki erindi sem erfiði og að lokum kastaði hann Jane á dyr. Eiturefnapróf verður Jane að falli En eftirlifandi ættingjar Aldens Davis töldu eitthvað gruggugt við dauða hans og dætranna tveggja og báðu um að eiturefnapróf yrði gert á líki yngstu dótturinnar og leiddi það í ljós að eitrað hafði verið fyrir henni. Lögreglan lét lýsa eftir Jane Toppan og 26. októ ber 1901 var hún handtekin fyrir morð. Þegar liðið var á árið 1902 hafði Jane játað á sig ellefu morð og 23. júní var hún lýst saklaus af morðunum sökum geðbilunar, en dæmd til lífstíðardvalar á geð- sjúkrahúsi. Skömmu eftir réttarhöldin birtist í einu dagblaða Williams Randolphs Hearst umfjöllun um að Jane hefði í reynd játað fyrir lögfræðingi sínum að hafa fram- ið þrjátíu og eitt morð og að hún hafi viljað fá sýknudóm byggð- an á geðveiki svo hún ætti síðar möguleika á lausn. Hvort sú frá- sögn átti við einhver rök að styðj- ast er ekki vitað en hún dvaldi á geðdeild Taun ton-sjúkrahússins til æviloka. Haft var eftir Jane Toppan að markmið hennar hefði verið „að drepa fleira fólk – varnarlaust fólk – en nokkur önnur kona“. 42 | Sakamál Umsjón: Kolbeinn Þorsteinsson kolbeinn@dv.is 7.–9. janúar 2011 Helgarblað „Morðferill Jane komst á flug árið 1895 þegar hún myrti leigusala sína og árið 1899 myrti hún fóstursystur sína, Elísabetu, með strikníni. Morðóða hjúkrunarkonan Markmið Jane Toppan var að myrða fleiri en nokkur önnur kona. Morðkvendið í Massachusetts n Jane Toppan fæddist árið 1857 í Bandaríkjunum n Hún var raðmorðingi og játaði upp úr aldamótunum 1900 að hafa framið þrjátíu og eitt morð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.