Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2011, Page 44

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2011, Page 44
44 | Skrýtið Umsjón: Helgi Hrafn Guðmundsson helgihrafn@dv.is 7.–9. janúar 2011 Helgarblað F lakið af hinu víðfræga skipi Titanic sem liggur á botni Norður-Atlantshafsins gæti horfið á næstu áratugum. Tiltölulega nýuppgötvaðar bakteríur sem hafa fengið heitið Halomonas titanicae búa á hafsbotninum og nærast á málmi. Kvikindi af þessari tegund hafast við í þessu frægasta skipsflaki sögunnar og munu éta það upp til agna á næstu áratugum. Þetta kemur fram í örverutímaritinu Inter- national Journal of Systematic and Evolutionary Microbiology. Það hefur væntanlega verið sem hvalreki fyrir þessar örsmáu verur að finna þennan gríðarlega stóra málm- hlunk á hafsbotninum. Að hverfa Samkvæmt niðurstöðum nýrra rann- sókna mun Titanic hverfa mun hrað- ar en áður hefur verið talið. Nokkrir vísindamenn hafa vitað af tilvist bakt- eríanna í nokkurn tíma, en segja nú að þeir hafi áður vanmetið þær. „Árið 1995 spáði ég því Titanic myndi lifa í þrjá áratugi í viðbót,“ seg- ir Henrietta Mann, prófessor í bygg- ingaverkfræði við Dalhousie-háskóla í Halifax í Kanada. „En skipið hverfur mun hraðar núna.“ Mann segir að innan fárra ára muni skipsflakið fræga hverfa. „Á endanum verður ekkert eftir nema ryðgað stál,“ segir hún. Frægt skip RMS Titanic lagði af stað í jómfrúar- ferð sína til New York frá höfninni í Southampton á Englandi hinn 12. apríl 1912. Skipið var við bygg- ingu stærsta hreyfanlega mannvirki heims. Að kvöldi 14. apríl sigldi risaskip- ið á borgarísjaka í Norður-Atlantshaf- inu. Jakinn reif gat á neðanvert skipið. Meira en þúsund manns drukknuðu þá um nóttina þegar skipið sökk. Þetta er líklega frægasta sjóslys sögunnar og óteljandi bækur hafa verið skrifaðar um atburðinn. Árið 1997 dustaði heimsbyggðin rykið af sögunni þegar kvikmyndin Titanic eftir James Cameron kom út. Myndin vann til ellefu Óskarsverð- launa en hún skartaði Leonardo Di- Caprio og Kate Winslet í aðalhlut- verkum. Naga ryðkerti Vísindamenn frá Dalhousie-há- skóla og háskólanum í Sevilla á Spáni fundu bakteríuna í svokölluð- um „ryðkertum“ (e. rusticles) í flaki Titanic. Það eru ryðmyndanir sem svipar til grýlukerta eða dropasteina í hellum að útliti. Ryðkertin myndast þegar smíðajárn oxast í hafinu og eru holótt sem þýðir að sjórinn smýgur í gegnum þau og tærir hratt. Vísinda- menn segja að bakteríurnar vinni svo enn meira á og muni á endanum breyta ryðkertunum í ryk. „Þetta er auðvitað aðferð móður náttúru, hún endurvinnur járnið og skilar því aftur til náttúrunnar,“ segir Henrietta Mann. Uppgötvaðist 1985 Menn vissu ekki í rúm 70 ár hvar á hafsbotninum flakið af Titanic lægi. Það var ráðgáta þangað til bandarísk- franskur rannsóknarleiðangur fann flakið árið 1985 en það liggur um 500 kílómetrum suðaustur af Nýfundna- landi. Leiðangursmenn uppgötvuðu að skipið hafði brotnað í tvennt. Síðan þá höfum við séð ógrynni mynda af skipinu þar sem það liggur á hafsbotni, sem birtust meðal ann- ars í kvikmyndinni frá 1997. Það er auðvitað ekki auðvelt verk að kom- ast niður á þetta dýpi en vonast er til þess að framtíðin færi okkur betri tæki og búnað svo að heimsbyggðin geti virt betur fyrir sér botn hafsins. En nú virðist hins vegar stutt í að flak- ið hverfi okkur alveg. Tækifæri fyrir vísindamenn En fátt er svo með öllu illt að ei boði nokkuð gott. Tæring flaksins mun án efa hafa í för með sér mikið og nyt- samlegt rannsóknarstarf þar sem vís- indamenn munu átta sig betur á bakt- eríunum. Það gæti orðið mikil vægt til að uppgötva leiðir til að vernda skip í framtíðinni. „Við ímyndum okkur gjarnan að þessi frægu skipsflök á hafsbotnin- um séu tímahylki sem liggi frosin í tíma, en í raun er um að ræða alls konar gerðir af flóknum vistkerfum sem nærast á þeim, jafnvel þarna á botninum á þessu gríðarlega stóra og dimma hafi,“ segir Don Conlin, safn- vörður á Atlantshafsminjasafninu í Halifax í Kanada. n Flakið af Titanic mun hverfa á næstu áratugum n Örsmáar bakteríur sem nærast á járni háma skipið í sig n Aðeins ryðgað stálið verður eftir Bakteríur éta Titanic upp til agna „Þetta er auðvitað að- ferð móður náttúru, hún endurvinnur járnið og skilar því aftur til náttúrunnar. Flakið fræga Það má leiða líkur því að því að flakið af Titanic sé frægasta skip sög- unnar á hafsbotni. En vísindamenn segja að það muni líklega hverfa á næstu árum. Vísindamenn og bakteríur Spænskir vísindamenn frá Háskólanum í Sevilla sýna fréttamönnum bakteríutegundina Halomonas titanicae. Halomonas titanicae Kvikindið sem nærist á Titanic.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.