Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2011, Síða 44
44 | Skrýtið Umsjón: Helgi Hrafn Guðmundsson helgihrafn@dv.is 7.–9. janúar 2011 Helgarblað
F
lakið af hinu víðfræga skipi
Titanic sem liggur á botni
Norður-Atlantshafsins gæti
horfið á næstu áratugum.
Tiltölulega nýuppgötvaðar bakteríur
sem hafa fengið heitið Halomonas
titanicae búa á hafsbotninum og
nærast á málmi. Kvikindi af þessari
tegund hafast við í þessu frægasta
skipsflaki sögunnar og munu éta það
upp til agna á næstu áratugum. Þetta
kemur fram í örverutímaritinu Inter-
national Journal of Systematic and
Evolutionary Microbiology.
Það hefur væntanlega verið sem
hvalreki fyrir þessar örsmáu verur að
finna þennan gríðarlega stóra málm-
hlunk á hafsbotninum.
Að hverfa
Samkvæmt niðurstöðum nýrra rann-
sókna mun Titanic hverfa mun hrað-
ar en áður hefur verið talið. Nokkrir
vísindamenn hafa vitað af tilvist bakt-
eríanna í nokkurn tíma, en segja nú
að þeir hafi áður vanmetið þær.
„Árið 1995 spáði ég því Titanic
myndi lifa í þrjá áratugi í viðbót,“ seg-
ir Henrietta Mann, prófessor í bygg-
ingaverkfræði við Dalhousie-háskóla
í Halifax í Kanada. „En skipið hverfur
mun hraðar núna.“
Mann segir að innan fárra ára
muni skipsflakið fræga hverfa. „Á
endanum verður ekkert eftir nema
ryðgað stál,“ segir hún.
Frægt skip
RMS Titanic lagði af stað í jómfrúar-
ferð sína til New York frá höfninni
í Southampton á Englandi hinn
12. apríl 1912. Skipið var við bygg-
ingu stærsta hreyfanlega mannvirki
heims.
Að kvöldi 14. apríl sigldi risaskip-
ið á borgarísjaka í Norður-Atlantshaf-
inu. Jakinn reif gat á neðanvert skipið.
Meira en þúsund manns drukknuðu
þá um nóttina þegar skipið sökk.
Þetta er líklega frægasta sjóslys
sögunnar og óteljandi bækur hafa
verið skrifaðar um atburðinn.
Árið 1997 dustaði heimsbyggðin
rykið af sögunni þegar kvikmyndin
Titanic eftir James Cameron kom út.
Myndin vann til ellefu Óskarsverð-
launa en hún skartaði Leonardo Di-
Caprio og Kate Winslet í aðalhlut-
verkum.
Naga ryðkerti
Vísindamenn frá Dalhousie-há-
skóla og háskólanum í Sevilla á
Spáni fundu bakteríuna í svokölluð-
um „ryðkertum“ (e. rusticles) í flaki
Titanic. Það eru ryðmyndanir sem
svipar til grýlukerta eða dropasteina
í hellum að útliti. Ryðkertin myndast
þegar smíðajárn oxast í hafinu og eru
holótt sem þýðir að sjórinn smýgur í
gegnum þau og tærir hratt. Vísinda-
menn segja að bakteríurnar vinni
svo enn meira á og muni á endanum
breyta ryðkertunum í ryk.
„Þetta er auðvitað aðferð móður
náttúru, hún endurvinnur járnið og
skilar því aftur til náttúrunnar,“ segir
Henrietta Mann.
Uppgötvaðist 1985
Menn vissu ekki í rúm 70 ár hvar á
hafsbotninum flakið af Titanic lægi.
Það var ráðgáta þangað til bandarísk-
franskur rannsóknarleiðangur fann
flakið árið 1985 en það liggur um 500
kílómetrum suðaustur af Nýfundna-
landi. Leiðangursmenn uppgötvuðu
að skipið hafði brotnað í tvennt.
Síðan þá höfum við séð ógrynni
mynda af skipinu þar sem það liggur
á hafsbotni, sem birtust meðal ann-
ars í kvikmyndinni frá 1997. Það er
auðvitað ekki auðvelt verk að kom-
ast niður á þetta dýpi en vonast er
til þess að framtíðin færi okkur betri
tæki og búnað svo að heimsbyggðin
geti virt betur fyrir sér botn hafsins.
En nú virðist hins vegar stutt í að flak-
ið hverfi okkur alveg.
Tækifæri fyrir vísindamenn
En fátt er svo með öllu illt að ei boði
nokkuð gott. Tæring flaksins mun án
efa hafa í för með sér mikið og nyt-
samlegt rannsóknarstarf þar sem vís-
indamenn munu átta sig betur á bakt-
eríunum. Það gæti orðið mikil vægt til
að uppgötva leiðir til að vernda skip í
framtíðinni.
„Við ímyndum okkur gjarnan að
þessi frægu skipsflök á hafsbotnin-
um séu tímahylki sem liggi frosin í
tíma, en í raun er um að ræða alls
konar gerðir af flóknum vistkerfum
sem nærast á þeim, jafnvel þarna á
botninum á þessu gríðarlega stóra og
dimma hafi,“ segir Don Conlin, safn-
vörður á Atlantshafsminjasafninu í
Halifax í Kanada.
n Flakið af Titanic mun hverfa á næstu áratugum
n Örsmáar bakteríur sem nærast á járni háma
skipið í sig n Aðeins ryðgað stálið verður eftir
Bakteríur éta
Titanic upp til agna
„Þetta er auðvitað að-
ferð móður náttúru, hún
endurvinnur járnið og skilar
því aftur til náttúrunnar.
Flakið fræga
Það má leiða
líkur því að því að
flakið af Titanic sé
frægasta skip sög-
unnar á hafsbotni.
En vísindamenn
segja að það muni
líklega hverfa á
næstu árum.
Vísindamenn og bakteríur Spænskir vísindamenn frá Háskólanum í Sevilla sýna
fréttamönnum bakteríutegundina Halomonas titanicae.
Halomonas titanicae Kvikindið sem nærist á Titanic.