Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2011, Síða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2011, Síða 46
46 | Fókus 7.–9. janúar 2011 Helgarblað Óvæntur Óskar? Í síðustu viku skók vestrinn True Grit Hollywood eins og meðal jarðskjálfti. Myndin sem Coen-bræður leikstýra hefur halað inn 95 milljónir dollara í kassann þann stutta tíma sem hún hefur verið sýnd og áhorfendur lofa hana. Myndin er byggð á sömu skáldsögu og samnefnd mynd með John Wayne frá 1969 og skartar Jeff Bridges í aðalhlutverkinu. Þykir hún nú sigurstranglegri en ballett-tryllirinn; The Black Swan og The Fighter, það er að segja, ef áhorfendur fá nokkru um ráðið. Jack Black er Lemuel Gulliver Jack Black fer á kostum í nýrri mynd byggðri á sígildum ævintýrum Gúllívers í Putalandi sem frum- sýnd er í kvikmyndahúsum þessa helgina. Black leikur Lemuel Gulliver, hraðlyginn starfsmann í póstdreifingu, sem dreymir um að verða frægur höfundur ferðabóka um fjarlæga staði á jörðinni. Gallinn er hins vegar sá að hann hefur afar lítið ferðast og býr yfir enn minni þekkingu á skrifum. Einn daginn nær hann hins vegar að ljúga sig upp í stöðu ferðaritara og er sendur af yfirmanni sínum, Darcy, til að tala við mann sem segist hafa uppgötvað leyndardóma Bermúdaþríhyrningsins dularfulla. mælir með... TÖLVULEIKUR EA Sports Active 2 Það má klárlega koma sér í form með leiknum, með sjálfsaga og réttu hugarfari. TÖLVULEIKUR Gran Tourismo 5 Vantar aðeins upp á að laga fjölspilun en magnaður leikur engu að síður. Fimm ára bið algjörlega þess virði. LEIKVERK Gilitrutt Leikbrúðan er elsti leikarinn, segja sumir. Vel má vera að svo sé, þó að uppruni þessarar undarlegu listar sé að vísu myrkri og móðu hulinn. Brúðuleiklistin er eflaust sá þáttur leiklistarinnar sem okkur hættir hvað mest til að vanmeta, gleyma jafnvel alveg. TÓnLIsT Allt er eitthvað Jónas Sigurðsson Í hverju einasta lagi skín í gegn metnaðurinn til að búa til vandaða tónlist. Hann þarf örugglega að berja frá sér auglýsingastofur og kvikmyndagerðarmenn sem standa í röðum til að fá að nota tónlistina hans. Les ljóð og ritgerðir Ásgeir Ingólfsson, blaðamaður og rithöfundur, gaf nýverið út sína fyrstu bók, Grimm Ævintýri, hjá Nýhil útgáfu. 1. Hvað ertu að lesa? Meðan sprengjurnar falla – ljóðaþýðing- ar Magnúsar Ásgeirssonar, ritgerðasafn- ið Believe in People eftir Karel Capek og Sýrópsmánann eftir Eirík Guðmundsson. 2. Hvað ertu að hlusta á? She Brings the Rain með Can á rípít! 3. Hvaða mynd sástu síðast í bíó? Gauragang. mælir ekki með... LEIKVERK Lér konungur Þó að sýningin sé unnin af augljósri kunnustu nær hún ekki upp fyrir meðallagið. Það besta, sem um hana verður sagt, er að hún verður ekki langdregin, þökk sé einkum styttingum, líflegu sjónarspili og góðum leiktilþrifum hér og þar. G unnar Guðmundsson leik- stjóri er eins og hann sé allt- af fullur af bensíni, svo kraft- mikill er hann. Hann gefst ekki upp og hefur komið sér áfram á eigin verðleikum. Þetta og fleira seg- ir fólk sem hefur unnið með Gunnari. Jákvæður, ástríðufullur og óhræddur við gagnrýni. Gunnar frumsýndi ný- verið nýjustu kvikmynd sína, Gaura- gang. Hann hefur hingað til leikstýrt tveimur kvikmyndum í fullri lengd auk leikhúsverka, stuttmynda og sjónvarpsþátta. Fyrri kvikmynd hans, Astrópía, vakti athygli á Íslandi sem og utan landsteinanna. Fólk flykkt- ist á myndina og uppskar hún mikið lof. Myndin Gauragangur, sem frum- sýnd var 26. desember síðastliðinn, hefur farið vel af stað en Gunnar sagði meðan á ferlinu stóð að hann ætlaði að reyna að sýna verkinu virðingu. Af öðrum verkefnum Gunnars ber að nefna áramótaskaupið. Þar fór hann fyrir einvalaliði íslenskra grínara í einu af vinsælli áramótaskaupum síð- ari ára. Einstakur og ástríðufullur Eiginkona Gunnars, Lára Hafberg, segir hann vera einstakan mann. „Hann er mjög vænn og góður mað- ur heima fyrir. Við eigum náttúrulega eina dóttur og hann er mjög natinn og góður við hana. Dóttir hans er líka ör- ugglega stærsti aðdáandi hans,“ segir hún. Hún segir það ekki koma að sök að Gunnar sé mikið frá heimilinu til að sinna vinnunni. „Hann er það ein- stakur maður að ég er alveg tilbúin til að taka því, þetta er líka kannski einn af hans mestu og bestu kostum, hvað hann er ástríðufullur gagnvart starf- inu sínu. Hvað hann er áhugasamur um það og gerir það vel. Það er rosa- lega stór hluti af því sem gerir hann að því sem hann er,“ segir Lára. Hún tekur fyrir það að hann sé þessi venju- lega „níu til fimm“ týpa og segir hann líklega ekki geta þrifist í þannig starfi. Rómantískur fjölskyldufaðir „Já, hann er það. Ég segi alltaf að hann sé það ekki en svo á hann það til að koma manni á óvart og hann er mjög hugulsamur og rómantískur, kannski ekki svona í hefðbundnum skilningi orðsins en hann er það svona á sinn hátt,“ segir hún aðspurð hvort Gunnar sé rómantískur. Hann lætur líka ekk- ert stöðva sig í að vera með fjölskyld- unni á lykilaugnablikum. Lára segir það lýsa honum best hvað hann lét það ekki trufla sig að sleppa frumsýn- ingu fyrstu kvikmyndar sinnar í fullri lengd, Astrópíu. sleppti frumsýningunni „Þegar dóttir okkar fæddist, þá fædd- ist hún dálítið fyrir tímann. Ég var búinn að grínast mjög oft með það við Gunna að þegar það kæmi að því að hún kæmi loksins í heiminn yrði hann mjög líklega einhvers staðar fastur, annaðhvort á leiðinni í bíóið eða fastur í umferð á leiðinni á sjúkra- húsið. En þegar það lá svo ljóst fyrir hvenær myndin hans yrði frumsýnd, Astrópía, þá sáum við að það var alveg tæpur mánuður sem munaði á þessu. Þannig að við höfðum ekki nein- ar áhyggjur. En svo var það auðvit- að raunin að á sömu stundu og Jón- ína fæddist var Gunni að frumsýna myndina. Það lýsir honum kannski ágætlega, þó að starfið hafi alltaf skipt hann miklu máli, að þá truflaði það hann ekkert í því að sinna þessu stóra verkefni sem við vorum að takast á við á fæðingadeildinni,“ segir hún þegar hún er beðin um að lýsa einhverju eft- irminnilegu atviki. „Það skipti hann engu máli að þurfa að fórna stóru stundinni í bíóinu.“ Ekta Gunnar Ragnhildur Steinunn Jónsdótt- ir sjónvarpskona, sem lék aðalhlut- verkið í kvikmynd Gunnars Astróp- íu, segir að enginn nema Gunnar myndi lenda í slíkri uppákomu, að vera að frumsýna sína fyrstu kvik- mynd í fullri lengd og að eignast barn, á sömu mínútunni. „Það var ótrúlega eftirminnilegt móment, maður hugsaði bara: Guð, er Gunni að fara að missa af frumsýningunni eða nær hann? Þetta var svona ekta Gunni, það er alltaf allt að gerast hjá Gunna og ég tala nú ekki um: hverj- ar eru líkurnar á að eignast sitt fyrsta barn á sömu mínútu og þú frumsýn- ir þína fyrstu mynd í fullri lengd? Það myndi ekki gerast hjá neinum öðrum en Gunna. Það er alltaf allt á fullu,“ segir hún um atvikið. Mikið í einu Ari Eldjárn grínisti ber Gunnari vel söguna, en þeir unnu saman við handritsgerð áramótaskaupsins í fyrra. Ari segir það hafa verið gott að vinna með Gunnari. „Ég lærði mik- ið af honum,“ segir hann. „Maður sér það á honum að hann er svona gæi sem gerir marga hluti í einu. Hann hleypur á milli þess að setja upp leik- sýningar og gera kvikmyndir og gera skaup. Hann gerir margt í einu, hann gerði skaup og Gauragang bæði í einu.“ Ari segir að Gunnar virki á hann sem sjálfstæður einstaklingur sem hafi komið sér áfram á eigin verðleik- um. Ragnhildur Steinunn tekur undir með Ara og segir Gunnar alltaf vera á fleygiferð. Jákvæður Það fyrsta sem kemur upp í huga Ragn- hildar Steinunnar er hversu jákvæður Gunnar er. „Hann er alveg ótrúlega já- kvæður og glöð manneskja, og afskap- lega hugmyndaríkur. Hann er kannski líka pínu dreyminn á skemmtilegan hátt og ég held að honum finnist eng- in takmörk á því sem hann getur fram- Gunnar Guðmundsson leikstjóri frumsýndi á dögunum kvikmyndina Gauragang. Myndin hefur fengið mikið lof frá gagnrýnendum en um er að ræða þriðju mynd Gunnars. Vinir og kunningjar hans bera honum vel söguna og segja hann vera ástríðufullan og óhræddan við gagnrýni. „Ég lærði mikið af honum,“ segir grínistinn Ari Eldjárn. Fórnaði stóru stundinni Kraftmikill Öllum viðmælendum DV ber saman um að Gunnar sé fullur af krafti. Það var aðeins tímaspursmál hvenær gerð yrði framhalds-mynd af Tron frá árinu 1982, eða hún hreinlega endurgerð. Mynd- in markaði tímamót í notkun tölvu- brellna í kvikmyndum á sínum tíma og skartaði Jeff Bridges í aðalhlut- verkinu. Nú, tæpum 30 árum síðar, er framhaldið komið í bíóhús. Tron: Legacy gerist tæpum 30 árum eftir atburði fyrri myndarinn- ar og segir frá Sam Flynn (Garrett Hedlund) sem fyrir slysni sogast inn í tölvuheiminn sem faðir hans, Kevin Flynn (Jeff Bridges), festist í mörgum árum fyrr. Í tölvuheimum hefur eft- irmynd Kevins, Clu, tekið öll völd og hefur komið á fót einræðisríki. Þetta er frumraun leikstjórans Josephs Kosinskis, sem er lærður ar- kítekt og hefur getið sér gott orð sem auglýsingaleikstjóri. Það er ljóst hvar hans áherslur liggja, enda er útlit myndarinnar sérlega glæsilegt og mikið lagt í hönnun leikmyndar og búninga ásamt myndatöku. Tónlistin er í höndum franska elektródúósins Daft Punk og er virki- lega vel heppnuð og mjög viðeigandi í tölvuheimum. Myndin er þó að öðru leyti frek- ar þunn og formúlukennd. Maður hefur litla samúð með persónum myndarinnar og söguframvindan er fyrirsjáanleg. Jeff Bridges bjargar þó deginum með góðri frammistöðu, auk þess sem Michael Sheen stelur senunni í litlu hlutverki. Söguþráður og persónusköpun eru ekki aðalsmerki Tron: Legacy, en þegar á heildina er litið bjargar frábær tónlist og glæsilegt heildar- útlit myndinni fyrir horn. Það auk nokkurra skemmtilegra hasaratriða gera hana að prýðilegri afþreyingu í skammdeginu. Músíkalskur tölvuheimur Tron: Legacy Leikstjóri: Joseph Kosinski. Handrit: Edward Kitsis, Adam Horowitz. Leikarar: Garrett Hedlund, Jeff Bridges, Olivia Wilde, Michael Sheen, Bruce Boxleitner. 125 mínútur Bíódómur Jón Ingi stefánsson Jeff Bridges Stendur sig sem Kevin Flynn eftir 28 ára hlé.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.