Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2011, Síða 47
Myndin er betri en bókin Ný íslensk kvikmynd, Rokland, í leikstjórn
Marteins Þórssonar verður frumsýnd 14. janúar. Búið er að setja upp sérstaka vefsíðu fyrir
myndina, rokland.is, en þar er ýmislegt hnýsilegt að finna, svo sem stiklu úr myndinni,
söguþráðinn, upplýsingar um leikstjórann og síðast en ekki síst viðtöl við leikara og
aðra aðstandendur myndarinnar. Myndin var forsýnd í Sauðárkróksbíói 29. desember
við góðar undirtektir. Sigurveig Dögg Þormóðsdóttir var meðal þeirra sem sáu myndina
og segist hafa skemmt sér vel. „Myndin kom mér á óvart, hún er miklu skemmtilegri en
bókin. Mér fannst hún bæði hjartnæmari og fyndnari. Það höfðu allir gaman af því að sjá
bæinn sinn sem leikmynd í bíómynd og létu vel af myndinni í partíinu á eftir. “
Stikilsberja-Finnur
ritskoðaður Í Bandaríkjunum hefur
verið gefin út ný og ritskoðuð útgáfa af klassískri
skáldsögu Marks Twain: Ævintýri Stikilsberja-Finns.
Í henni hefur verið tekið út orðið negri sem kemur
fyrir um 200 sinnum í skáldsögunni. Þess í stað
er notað orðið þræll. Mark Twain var sjálfur ötull
gagnrýnandi rasisma og gaf mikið fé til mannrétt-
indasamtaka sem börðust fyrir réttindum svartra.
Fókus | 47Helgarblað 7.–9. janúar 2011
Hvað er að gerast?
n Pops á Kringlukránni
Unglingahljómsveitin Pops ætlar að
teygja aðeins á þrettándanum og heldur
þrettándagleði á Kringlukránni föstudags- og
laugardagskvöld.
n Ísland – Þýskaland
Laugardalshöll, 7. og 8. janúar 2011
A-landslið karla leikur tvo vináttulandsleiki
við Þjóðverja en þetta eru síðustu leikir
liðsins fyrir HM sem hefst í Svíðþjóð síðar
í janúar. Fjölmennum á völlinn og styðjum
strákana okkar! Áfram Ísland!
7
jan
Föstudagur
8
jan
Laugardagur
n Síðasti dagur í stærsta karókí
Íslands Styðjir þú að auðlindir eigi að vera
í almannaeigu er síðasta tækifæri til þess
að fara og syngja í þjóðarkarókí Bjarkar í
Norræna húsinu á laugardaginn. Sungið er
frá 3–12. Veitingastaðurinn Dill er opinn og
þar má fá sér góða drykki ef raddböndin
skyldu taka upp á því að bila.
n Vinsælir Vínartónleikar Vinsælustu
tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru
hinir árlegu Vínartónleikar, enda þarf hvorki
fleiri né færri en ferna tónleika til að allir
komist að sem vilja. Þeir verða haldnir á
föstudags- og laugardagskvöld. Dansandi
flöskutappar, freyðandi kampavín, fallegir
kjólar, reisn og glæsileiki eru einkenni Vínar-
tónlistarinnar sem mörgum þykir ómissandi
í upphafi árs.
n Who Knew í útrás á Sódómu
Ferðastyrkstónleikar Who Knew verða
haldnir á Sódómu Reykjavík laugardaginn
8. janúar og munu Sing for me Sandra og
Nolo hita upp. Tónleikarnir eru haldnir til
styrktar Who Knew svo að sveitin komist
til Hollands til að spila á Eurosonic festival.
Who Knew-liðar hafa fengið mikla athygli
erlendis með sinni fyrstu plötu, Bits and
pieces of A major spectacle. Tónleikarnir
byrja kl. 22.00 og aðgangseyrir er 1.000 kr.
9
jan
Sunnudagur
n Sýningarlok í
Hafnarhúsi Kristín
Dagmar Jóhannes-
dóttir leiðir unglinga
ásamt öðrum
fjölskyldumeðlimum
í gegnum sýningar
Listasafns Reykjavík-
ur í Hafnarhúsi. Kristín
skoðar sýningarnar
Erró – klippimyndir
og sýningu nafntogaðasta listamanns
Norðurlanda, töffarans Gardars Eide
Einarssons, Valdið hefur ilm. Á sunnudaginn
eru jafnframt sýningarlok þeirrar sýningar.
í bíóinu
kvæmt. Hann þorir einhvern veginn að
keyra í hvaða hlut sem er og er ekkert
hræddur við að mistakast,“ segir hún.
„Honum er svolítið sama um það sem
öðrum finnst um það sem hann ætlar
að gera. Hann lætur frekar verkin tala
en eitthvað annað. Mjög jákvæð og
skemmtileg týpa. Það er mjög þægilegt
að vera í návist hans og svo mikil orka
í honum, það er alltaf eins og hann sé
alveg fullur af bensíni.“
Kann að segja sögur
„Þegar við unnum saman í Astrópíu,
sem var svona ævintýramynd og var í
ævintýraheimi, þá var alveg ótrúlegt
hvernig hann gat einhvern veginn
séð hlutina fyrir sér. Hann var ótrú-
lega hugmyndafrjór í því að skapa
og búa til ævintýraheim inni í haus-
num á okkur leikurunum, að í raun-
inni væri hægt að gera eitthvað
svona í alvöru. Hann býr eiginlega
til teiknimynd inni í hausnum á
þér á meðan hann talar. Það er
eins og hann sé bara með liti
og penna og teikni á heilann á
manni. Hann einhvern veginn
nær að tala svo skemmtilega
og það er svo litríkt hvern-
ig hann segir frá hlutunum
á meðan hann er að útskýra
fyrir manni,“ segir Ragnhild-
ur um samstarf hennar og
Gunnars í Astrópíu. „Hann
segir mjög skemmtileg-
ar sögur og á mjög auðvelt
með að útskýra hugmyndir
sínar. Hann nokkurn veginn
nær að teikna hugmyndina
inn í hausinn á þér í litum og
fullri lengd á meðan hann segir
manni frá.“
adalsteinn@dv.is
Fórnaði stóru stundinni
Gauragangur Nýjasta mynd Gunnars,
byggð á samnefndri skáldsögu Ólafs Hauks
Símonarsonar.
Astrópía Fyrsta kvikmynd Gunnars í fullri
lengd.
Gunnar Guðmunds-
son Ragnhildur Steinunn
Jónsdóttir vann með
Gunnari að gerð Astrópíu.
Föstudaginn 7. janúar klukkan 20
verður myndin Uppistandsstelp-
ur eftir Áu Einarsdóttur sýnd í Bíó
Paradís.
Í myndinni er ellefu ungum
konum fylgt eftir sem allar eiga
það sameiginlegt að vera leiðar á
kvennaleysi í uppistandi á Íslandi.
Þær ákveða að kippa þessu í lið-
inn sjálfar og skella sér á svið. Eng-
in þeirra hefur gert neitt þessu líkt
áður og þær eru allar afar ólíkar. Í
myndinni komast áhorfendur að
því hvort þær eru fyndnar og fylgst
er með sorgum þeirra og sigrum.
Á eftir sýningu myndarinnar
sem er síðasta sýning hennar, verða
þrjár uppistandsstelpur, þær Helga
Tryggvadóttir, Ugla Egilsdóttir og
Alma Geirdal, með lifandi uppi-
stand í salnum. Ugla er ein þeirra
sem fjallað er um í myndinni og
segir þær stúlkur halda ótrauðar
áfram í uppistandinu og hafa jafn-
vel hug á því að vinna sjónvarps-
þætti. „Það væri gaman að vinna
efni fyrir sjónvarp en við myndum
aldrei gera bara eitthvað nema hafa
heildarhugmynd að baki efninu.
Það kemur vel til greina að skoða
þetta þegar ein okkar sem stödd
er úti í Túnis í námi snýr aftur til
landsins.“ En getur Ugla sagt blaða-
manni brandara? „Já, hér kem-
ur einn: Ef ég eignast barn og það
verður stúlka, þá ætla ég að nefna
hana Hjördísi og kalla hana svo
Hjössu, af því mig langar svo til að
athuga hvort hún verði feit bara út
af nafninu.“
Uppistandsstelpur í bíó og með uppistand:
Langar að búa til grínþætti
Uppistandsstelpurnar Ugla Egilsdóttir, Helga Tryggvadóttir og Alma Geirdal.