Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2011, Síða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2011, Síða 50
50 | Lífsstíll 7.–9. janúar 2011 Helgarblað Hátíðarmarkaður PopUp Skrúbbar og krem Í frostinu þornar húðin. Það er því aldrei mikilvægara en nú að næra hana með góðu kremi. Til að auka virknina er gott að nota skrúbb áður því góður skrúbbur gefur húðinni slípað, slétt og ljómandi fallegt útlit. Það er nauðsynlegt að nota skrúbb reglulega. Á veturna verður húðin fyrir miklum utanaðkomandi áhrifum eins og kulda sem allt fer illa með húðina. Húðin verður þurr og flagnar, óháð því hver húðgerðin er. Raki í lofti er oft lítill og húðin verður því þurr og þreytuleg að sjá. Með því að nota skrúbb fjarlægir maður dauðar og flagnaðar húðfrumur og örvar endurnýjun á nýjum húðfrumum sem gefa betri raka. Húðin verður því bæði mýkri og fær meiri ljóma. Það er kjörið að nota bæði líkams- og andlitsskrúbbinn í sturtunni. Það er mælt með að nota skrúbb einu sinni til tvisvar í viku. Eftir að búið er að fjarlægja dauðar húðfrumur verður húðin einnig móttækilegri fyrir þeim kremum sem borin eru á á eftir og því virka þau betur. Það má líka segja að með því að hugsa vel um húðina og gefa henni góðan raka, vernd og næringu sé verið að undirbúa hana fyrir að taka á móti hækkandi sól. Fyrir þurra húð: Shea Butter-lína L’Occitane er mjög góð fyrir þurra og viðkvæma húð og hentar því vel á veturna. Shea Butter er undraefni sem nærir, endurnýjar og verndar húðina. L’Occitane kaupir allt sitt Shea Butter frá Búrkína Fasó í Vestur-Afríku og hefur átt í þróunarsamstarfi við konur þar í landi í meira en 20 ár. L‘Occitane Ultra Rich andlitskrem og L‘Occitane Ultra Rich líkamskremið henta sérlega vel í vetrarkuldanum. Með því að nota L‘Occitane Ultra Rich andlitsskrúbb og L‘Occitane líkamsskrúbb áður en þú berð kremið á eykur þú virkni þess. Sóley GlóEY er kornakrem sem djúphreinsar húðina en nærir hana um leið. Piparmyntar gefur ferskan blæ og best er að gefa henni eina mínútu til að virka á húðinni áður en skrúbburinn er þrifinn af með vatni. Fyrir blandaða/venju- lega húð: Dior Hydra Life Pro-Youth Protective Fluid er raka- gefandi serum sem ver húðina gegn utanaðkom- andi áhrifum. Serumið er án parabenefna, er létt, ferskt og gengur vel inn í húðina þannig að hún verður mjúk, rakanærð og ljóm- andi. Það er borið á kvölds og morgna á andlit og háls. Gosh Good Day Moisture Day Cream er rakakrem fyrir allar húðtegundir. Viðheldur rakastigi húðarinnar og er með vörn SPF 10. Má nota sem dag- og næturkrem. Hvernig notar þú kornakrem? Notaðu kornakrem á líkamann og skolaðu burt dauðu húðfrumunum. Húðin verður hrein, fersk og dásamlega silkimjúk. Berðu kornakremið á raka húðina. Notaðu báðar hendur til að nudda því á með hringlaga hreyfingum. Þú skalt vinna þig smám saman upp eftir líkamanum. Skolaðu húðina vandlega að því loknu. Leggðu sérstaka áherslu á gróf svæði, til dæmis olnboga, hné og hæla. Paraben er rotvarnarefni sem hefur afar skaðleg áhrif á heilsu: Fallvölt fegurð Paraben er rotvarnarefni hannað til þess að lengja sölutíma vörunn- ar og er eitt mest notaða rotvarnar- efni í snyrtivörum í dag. Það er para- ben í flestum vörum sem konur nota við persónulega umhirðu. Það er í sjampóinu, hárnæringunni, húð- kreminu, tannkreminu, farðanum, dagkreminu, næturkreminu og nán- ast öllu því sem er að finna í snyrti- skápnum. Þátt fyrir að þetta sé eitt mest notaða rotvarnarefni í snyrti- vörum í dag þá hafa fjölmargar rann- sóknir sýnt fram á að paraben teng- ist brjóstakrabbameini. Paraben hafa fundist í æxlum fjarlægðum úr brjóstavef. Þá eru sterk tengsl milli paraben-efna og ófrjósemi og horm- ónaójafnvægis. Methylparaben er ein tegund parabena sem framleiðendur hafa sagt að sé örugg. En nýlegar rann- sóknir í Kyoto hafa sýnt fram á að efnið getur orðið eitrað ef það verð- ur fyrir miklu sólarljósi og eykur þá líkur á húðkrabbameini. Sóley Elíasdóttir, sem framleiðir lífrænar snyrtivörur undir nafninu Sóley Organics, segir mikilvægt að forðast öll paraben-efni og bendir á í því samhengi að þau finnist í fleiri vörum en snyrtivörum. Þau finn- ist til að mynda í uppþvottalegi og gólfhreinsilegi. „Fólk ætti að forð- ast öll paraben-efni því þau haga sér eins og estrógen í líkamanum.“ Sóley segir mörg önnur efni verða að varast. „Þá tel ég fyrst og fremst upp vaselín-efni, parrafín. Það er efni sem gefur þér tilfinningu um að húðin sé silkimjúk. En reyndin er að þessi efni éta smá saman upp nátt- úrulegar varnir húðarinnar. Þessi efni eru búin til úr þeim úrgangi sem fellur til við bensínframleiðslu. Þetta er það sem er ekki hægt að nota í bensín en samt berum við þetta á ungbarnabossa. Súlfat-efni eru líka óæskileg efni, þau eru ódýr sápuefni sem þurrka húðina og í varalit eru blýefni sem þarf að var- ast. Ég fyllist alltaf óhug þegar fólk leyfir börnum sínum að setja á sig varalit,“ segir Sóley og kveður mik- ilvægt að fólk kanni innihald allra vara sem það kaupi. „Þá eru ónefnd PEG-efnin sem hafa mjög skaðleg áhirf á náttúruna.“ Hugsar þú um þig eða um fegurðina?Mikið af þeim kremum og vörum sem við notum dagsdaglega eru stórskaðleg heilsunni. Notaðu vefsíðuna Cos- meticdatabase.com til að finna út hvort þú veldur þér skaða. Hreinsaðu húðina Húðin þarf næringu til að halda sér í formi og ólíkt því sem margir halda þarf að þrífa hana kvölds og morgna. Dagleg hreinsun húðarinn-ar kvölds og morgna er und-irstaða allrar húðumhirðu. Við vitum öll að með góðum svefni og heilbrigðu líferni viðhöldum við í frísklegu útliti okkar. Húðin þarf einnig góða næringu til að halda sér í formi. Það þarf að þrífa hana vel bæði kvölds og morgna. Oft hef- ur það verið talinn óþarfi að hreinsa húðina eftir nóttina en það er rangt, það er mjög mikilvægt að hreinsa húðina á morgnana með þeim efn- um sem henta húðgerðinni. Fyrir viðkvæma húð: Marbert Soft Cleansing Milk er mild hreinsi- mjólk sem inni- heldur maka- damíuhnetuolíu sem mýkir húð- ina og E-vítam- ín sem græðir húðina og held- ur henni ungri. Hreinsimjólkin er laus við öll parabenefni. Hreinsi- mjólkin er notuð kvölds og morgna á andlit og háls. Marbert Cle- ansing Lotion er milt hreinsivant sem inniheld- ur panthenol, aloe vera og hvorki alkóhól né parabenefni. Hreinsivatn- ið róar húðina og veitir henni raka, mýkt og teygjanleika auk þess að viðhalda réttu pH-gildi. Hreinsivatnið er not- að kvölds og morgna. Sóley Hrein hreinsimjólk- in endurnær- ir húðina og gefur þreyttri húð ferskt yfir- bragð og mýkt. Notist kvöld og morgna og nuddið með fingrunum yfir andlit og háls. Byrjið í miðju andlitinu og færið ykkur utar með hring- laga hreyfing- um. Hentar þurri og viðkvæmri húð. Fyrir slæma húð: Pura Clean-línan frá Marbert er ætluð þeim sem stríða við bólgur eða bólur. Pura Clean Regul- ating cleansing foam er hreinsifroða sem dreg- ur út óhreinindum og bólgum í húðinni, um- framhúðfitu og kem- ur jafnvægi á fitufram- leiðslu. Eftir að húðin hefur náð jafnvægi gef- ur hreinsifroðan henni hraustlegt útlit. Hreinsi- froðan er notuð kvölds og morgna. Marbert Pura Clean Regulating Cleansing Lotion er sótthreinsandi andlitsvatn sem dregur úr fitumyndun, óhrein- indum og bólgum í húðinni. Andlitsvatn- ið róar viðkvæma húð, hefur kælandi áhrif og kemur henni í jafnvægi. Andlitsvatnið er notað á eftir hreinsifroðunni, kvölds og morgna. Fyrir allar húðtegundir: Chanel Précision- hreinsilínan inniheldur vax af túlípantrjám. Mælt er með túlípantrénu til þess að bæta loftið í stór- borgum. Ástæðan er dýr- mætt vax sem er falið á yfirborði laufa túlípan- trésins og getur fangað mengunarefni og agnir í loftinu sem regnið síð- an skolar í burt. Chan- el notar þetta vax í Préc- ision-hreinsilínuna til að varna því að mengunin í andrúmsloftinu legg- ist á húðina, bæði í andlitsvatninu og hreinsimjólkinni. Annars virkar hreinsilínan á þrem- ur stigum; þetta er virk formúla sem hreinsar farða og óhreinindi, formúl- an hreinsar mengun af ysta lagi húðarinnar með einstakri blöndu sem unnin er úr túl- ípantrénu og verndar jafnvægi húðarinnar með Bioglucane, sem verndar vistkerfi húð- arinnar. Hægt er að fá Précision- línuna fyrir allar húð- tegundir. Gosh Make a Clean Start Cleansing Milk er hreinsimjólk sem fjarlæg- ir farða og önnur óhreinindi á mild- an en árangursríkan hátt, þannig að húðin verður tandurhrein og silki- mjúk. Berið á andlit og háls kvölds og morgna og nuddið varlega með hringlaga hreifingum. Hreinsið af með volgu vatni. Gosh Skin Tonic er not- að að lokum til að full- komna hreinsunina og undirbúa húðina und- ir frekari meðferð. Inni- heldur E-vítamín og aloe vera. Gosh Make a Clean Start 2-IN-1 Cleanser hreinsi- vatn er einstök for- múla sem breytist úr kremkenndum hreinsi í léttan og frískandi andlits- hreinsi. Hreinsar húðina fljótt og ör- ugglega. Inniheldur E-vítamín og all- antoin. Berið á andlit og háls kvölds og morgna og nuddið mjúklega með fingrunum. Hreinsirinn er látinn hvíla á húðinni og strokið yfir með bómullarhnoðra. Sóley Nærð er nærandi úði úr ís- lensku vatni og handtíndum ís- lenskum jurtum sem róar húðina, hreinsar hana og þekur hana með rakafilmu sem kemur á jafnvægi og mýkir húðina þannig að hún verður ferskari og unglegri. Spreiið úðan- um á og leyfið honum að þorna. Not- ið með daglegri umhirðu og hvenær sem þið teljið húðina vera að þorna upp. Hentar öllum húðtegundum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.