Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2011, Page 52
S
íðasta ár markaði tímamót í
þróun sjónvarpstækja en á
árinu komu á markað ann-
ars vegar þrívíddarsjónvörp
og hins vegar sjónvörp búin sérstök-
um vél- og hugbúnaði til að tengjast
netinu og finna þar myndefni til af-
spilunar.
Í tækniheiminum er þegar farið
að kalla næstu kynslóð sjónvarps-
tækja „snjallsjónvörp“ sem gefur til
kynna að tækin verði mun fjölhæfari
en áður. Sjónvarpið, þetta ómissandi
rafeindatæki sem fyrirfinnst á öllum
heimilum, hefur í grunninn verið
nánast óbreytt áratugum saman en
er þessa dagana að ganga í gegnum
stökkbreytingar.
Hin nýju sjónvörp munu í raun
hafa sama afl og getu og hefðbund-
in heimilistölva. Stærstu örgjörva-
og skjákortaframleiðendur heims-
ins, AMD, Intel og NVIDIA hafa
þegar upplýst um nokkrar nýjung-
ar sem við megum búast við í þess-
ari fyrstu kynslóð snjallsjónvarpa.
Margt er þó enn á huldu og annað
gæti breyst vegna þess hve þróun-
arvinnan er skammt á veg komin.
Framleiðendur sjónvarpsefnis þurfa
einnig að bregðast við þessum miklu
breytingum sem eru að ganga í garð.
Þrívíddarviðmót
Þegar sjónvarpið er búið öflugu þrí-
víddarskjákorti er rökrétt skref að
notandaviðmótið beri keim af því.
Ein þeirra hugmynda sem komið
hafa fram á síðustu mánuðum er
að notandinn geti skrunað í gegn-
um það efni sem er á boðstólum
með svokölluðum „Cover Flow eff-
ect“ í þrívídd og myndefnið verði
„live“ eða í spilun. „Cover Flow“
nýtur þegar mikilla vinsælda t.d. í
tónlistarforritum eins og iTunes.
Öll þróun viðmótsins miðar að
því að ekki þurfi sérstakt lyklaborð
til að stjórna sjónvarpinu, fjarstýr-
ingin verði sem áður í fyrsta sæti.
Leikir í þrívídd og háskerpu
Með tilkomu öflugra örgjörva í sjón-
varpstæki er ekkert því til fyrirstöðu
að nýta tækið fyrir leiki í háskerpu.
Tilraunir með að streyma þrívíddar-
og háskerpuleikjum hafa ekki komið
vel út. Töfin (e. latency) sem verður
til í straumnum er einfaldega of mik-
il. Þessa dagana er því frekar einblínt
á þá lausn að leikjum verði hægt
að hala niður af netinu beint inn á
harðadisk sjónvarpsins. Nettenging-
in kemur síðan í góðar þarfir ef menn
tengja sig við aðra eigendur svipaðra
tækja og spila við þá. Vélbúnaðar-
framleiðendur sjá einnig fyrir sér að
við snjallsjónvörpin verði hægt að
tengja ýmsa aukahluti/jaðartæki fyr-
ir leikina.
Sérhæfð forrit
Sjónvarp með tölvu eða tölva með
sjónvarpi? Aza Raskin, fyrrverandi
yfirmaður viðmótsþróunar hjá Moz-
illa og aðalhönnuður Firefox-vafr-
ans sagði í viðtali á dögunum að í
þeim miklu breytingum sem eru að
verða á sjónvarpi væri mikilvægast
að troða ekki hefðbundnu tölvu- og
netviðmóti inn í sjónvarpstækið. Það
einfaldlega virkaði ekki.
Sem dæmi myndi það ekki koma
vel út ef viðkomandi væri að horfa
á skemmtilegan sjónvarpsþátt, og
vildi deila því á Facebook eða Twitt-
er, að ræsa sérstakt forrit í sjónvarp-
inu til að koma skilaboðunum á leið-
arenda. Slíkar aðgerðir verði frekar
hægt að framkvæma með því að ýta
á einn takka á fjarstýringunni og án
þess að trufla eða yfirtaka skjá áhorf-
andans.
Margar áhugaverðar hugmyndir
hafa komið fram varðandi þá mögu-
leika sem þessi fyrsta kynslóð snjall-
sjónvarpa býr yfir, þar á meðal teng-
ingar inn á samskiptavefi og að hægt
verði að kalla fram upplýsingar um
þá sjónvarpsþætti eða myndefni sem
vinir þínir eru að horfa á þá stundina.
Allt er í gerjun og spennandi tímar
fram undan. palli@dv.is
52 | Tækni Umsjón: Páll Svansson palli@dv.is 7.–9. janúar 2011 Helgarblað Tækni | 53
Fyrsta kynslóð
snjallsjónvarpa
n Eru vinirnir að horfa á eitthvað skemmtilegt núna í sjónvarpinu?
n Fyrsta kynslóð snjallsjónvarpa gæti gefið svar við þessari spurningu
Aza Raskin Troðum ekki hefðbundnu tölvu- og netviðmóti inn í sjónvarpstækið. Það virkar
ekki.
„Cover Flow” Nýtur þegar mikilla
vinsælda t.d. í tónlistarforritum eins
og iTunes. Nú í alvöru þrívídd.
Snjallsjónvörp Með afl á við
heimilistölvu og þrívíddarskjákort.
CES 2011
Alþjóðlega vöru- og tæknisýningin CES
stendur yfir þessa dagana í Los Vegas
í Bandaríkjunum. Stærstu tölvu- og hugbún-
aðarframleiðendur heims kynna þar vörur
sínar og þær nýjungar sem eru í farvatninu.
Fulltrúar Microsoft kynntu meðal annars
stefnubreytingu fyrirtækisins varðandi
örgjörva en Microsoft hyggst færa sig yfir
í ARM-örgjörva sem notaðir eru í flesta
snjallsíma og snertitölvur. Fyrirtækið hefur
átt náið samstarf við Intel síðastliðin 25 ár
og tilkynningin kom mörgum á óvart. Steve
Sinofsky sem stýrir Windows- og Windows
Live-deildum Microsoft sýndi áhorfendum
næstu útgáfu Windows á vélbúnaði með
ARM-örgjörva.
Eldrefur fram úr
Internet Explorer
Í fyrsta sinn í sögunni hefur Firefox-vafrinn
skriðið fram úr Internet Explorer hvað
varðar fjölda notenda. Þetta kemur fram
hjá vefmælingafyrirtækinu Statcounter,
en samkvæmt tölum fyrirtækisins fyrir
Evrópusvæðið voru notendur Firefox um
38% en notendur Internet Explorer 37,5%.
Tölurnar þýða þó ekki að notendum Firefox
hafi fjölgað verulega heldur er ástæðan
Chrome-vafrinn frá Google en notendur IE
virðast helst velja hann af öðrum vöfrum
ólöstuðum. Mælingin nær yfir allar útgáfur
IE innan Evrópu en þrátt fyrir að svipaðrar
tilhneigingar gæti einnig í Bandaríkjunum er
Internet Explorer þar með það mikið forskot
að langt er í að aðrir vafrar komist eitthvað
nálægt í hlutdeild.
Margar nýjar vélar
frá Sony á CES
Á CES 2011 kynnti Sony-fyrirtækið fjöl-
margar nýjar gerðir myndupptökuvéla
(camcorders) þar á meðal þrívíddar-há-
skerpuvélar með tveimur linsum og vél-
ar með innbyggðum myndvarpa. Vélin
sem hvað mesta athygli vakti var Sony
HDR-TD10 3D. Vélin notar Flash-minni,
hefur tvær Sony G linsur, tvo Exmor R
CMOS skynjara og tvo BIONZ-örgjörva
og getur tekið upp samtímis tvö há-
skerpumyndskeið í 1920x1080 upplausn
fyrir þrívíddarafspilun. Vélin er fyrsta
alvöru þrívíddar-háskerpuvélin fyrir
almenna notendur (consumer market)
og mun kosta um 1.500 Bandaríkjadali.