Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2011, Blaðsíða 55
Sport | 55Helgarblað 7.–9. janúar 2011
Eitt fjall á viku með FÍ 2011
Gakktu á eitt fjall í viku með Ferðafélagi Íslands á nýju ári
Nýársgjöfin frá þér til þín er bætt líðan og betra form á nýju ári.
Upplifðu íslenska náttúru í skemmtilegum félagsskap undir
öruggri fararstjórn og lærðu að þekkja landið.
Esjan, Keilir, Helgafell, Botnssúlur, Hvannadalshnjúkur,
Akrafjall, Réttarfell, Löðmundur og 44 önnur fjöll.
Dagsferðir allt árið og tvær helgarferðir að auki.
Komdu með okkur og finndu náttúrubarnið í hjarta þínu.
Verð kr. 52.000
Verkefnisstjóri: Páll Ásgeir Ásgeirsson
Skráning á skrifstofu Ferðafélags Íslands í síma 568 2533. Heimasíða FÍ www.fi.is
Hlédrægur vinnuhestur sem aldrei kvartar
Hann stendur undir öllu því góða
sem sagt er um hann. Það er algjör-
lega frábært að þjálfa manninn.
Það eru í raun ákveðin forréttindi,“
segir Guðmundur. En hvernig er Al-
exander utan vallar?
„Alex er hlédrægur. Hann heldur
sig til hlés en er samt alltaf til stað-
ar engu að síður. Það er virkilega
góður eiginleiki. Það fer nú samt
ekkert rosalega mikið fyrir honum
hjá landsliðinu,“ segir Guðmundur
Guðmundsson.
Getur enn bætt sig
„Fyrst og síðast er hann einn al-
besti alhliða leikmaður sem við eig-
um,“ segir Guðjón Guðmundsson,
íþróttafréttamaður á Stöð 2 Sport
og helsti sérfræðingur Íslands um
handbolta. „Mér hefur fundist á
undanförnum árum að hann hafi
skipað sér á bekk meðal fremstu
örvhentu leikmanna heims. Hann
fékk ekki mörg tækifæri hjá Flens-
burg því þar réð ömurleg pabbapóli-
tík. Þjálfarinn, Per Carlén, tók son
sinn Oscar fram yfir Alexander en
það tengdist íþróttalegri getu ekki
neitt. Að mínu viti segir það ýmislegt
um styrk Alexanders að ein stærstu
mistök Rhein-Neckar Löwen voru
að kaupa hann ekki þegar það var
hægt. Ég tel að með Alex væru Lö-
wen betur sett í dag og væru í barátt-
unni um meistaratitilinn við Ham-
borg.“
Guðjón viðurkennir þó fúslega
að hann hafi ekki séð þennan ár-
angur Alexanders fyrir þegar hann
mætti hingað til lands, átján ára
gamall. „Mig óraði ekki fyrir þessu.
Ég vissi að hann væri sterkur leik-
maður en þetta gat ég ekki séð fyr-
ir. Það varð samt morgunljóst á
Evrópumótinu í Sviss árið 2006 að
þarna höfðum við fengið gulldreng.
Árangur hans kemur samt ekkert á
óvart þegar litið er til baka. Hann er
gríðarlega samviskusamur og æfir
mikið þannig að það hlaut að koma
að því að hann myndi uppskera,“
segir Guðjón sem telur Alexander
þó geta bætt sig.
„Alex þyrfti að sjá línuna bet-
ur og hann mætti spila betur fyrir
hornamanninn þegar hann er sjálf-
ur í skyttustöðunni. Hann getur
enn farið upp eina tröppu og orð-
ið algjör afburðaleikmaður,“ segir
Guðjón.
Með eitraðan húmor
„Það er draumur að þjálfa hann,“
segir Dagur Sigurðsson, sem stýr-
ir Alexander hjá Füchse Berlin.
„Hann er gríðarlega góð fyrirmynd
fyrir yngri leikmennina því hann er
svo vinnusamur og leggur sig alltaf
hundrað prósent fram,“ segir Dagur
en Alex fór þó ekki alltof vel af stað
með liðinu. „Hann var búinn að
æfa eins og óður maður í 2–3 vikur
á undirbúningstímabilinu og kom-
inn í svakalegt form. Síðan veiktist
hann og missti það allt niður. Hann
varð rétt svo klár í fyrsta leik en það
hefur verið mikil stígandi í hans leik
eftir það.“
Dagur segir Alex mikinn húmor-
ista utan vallar. „Hann er náttúru-
lega fyrst og fremst mjög rólegur.
En síðan er hann með mjög kaldan
og alveg eitraðan svartan húmor.
Það er alveg sama hver það er, hann
hlífir engum. Hann lætur alla heyra
það og er alveg virkilega skemmtileg
týpa hvað það varðar. Það sem aðr-
ir láta ósagt, því skýtur hann á menn
alveg án þess að hika,“ segir fyrrver-
andi landsliðsfyrirliðinn.
En getur Alex spilað með risa-
liðum áður en ferillinn er á enda?
„Það er engin spurning um verð-
mæti hans, sama hvaða lið ætti í
hlut. Hann fór samt frá Flensburg til
að spila meira og bera meiri ábyrgð.
Hann er ekki týpan í að sitja mikið á
bekknum og það sjáum við líka með
landsliðinu,“ segir Dagur sem líkir
Alexander við Kristján Arason.
„Alex er hvorki besti sóknarmað-
ur í heimi né besti varnarmaður-
inn. En þarna inni á milli er hann
samt frábær. Hann er alltaf gríð-
arlega snöggur til baka og honum
fylgir mikil orka. Mér finnst hann
vera svipaður Kristjáni Arasyni í því
hversu mikilvægur hann er fyrir lið-
ið. Alex er kannski ekki sá sem mað-
ur myndi velja besta leikmanninn í
hverja stöðu. Hann er samt einfald-
lega góður handboltamaður sem
myndi styrkja hvaða lið sem er,“ seg-
ir Dagur Sigurðsson.
„Fyrst og síðast er
hann einn albesti
alhliða leikmaður sem
við eigum.
Á flugi Alexander er nokk sama um hæð sína. Hann fer allt á krafti og vilja.