Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2011, Síða 62
62 | Fólk 7.–9. janúar 2011 Helgarblað
E
lma Lísa Gunnarsdóttir
fer með eitt aðalhlutverka
í kvikmyndinni Roklandi
sem frumsýnd verður á
næstunni. Elma fer með hlutverk
Döggu, lífsvanrar konu sem leið-
ist lífið í litla plássinu á Sauðár-
króki og á í losaralegu sambandi
við andhetjuna Bödda sem snýr
frá Þýskalandi eftir 10 ára náms-
dvöl og ætlar sér að breyta hugs-
unarhætti Íslendinga. Böddi er
leikinn af Ólafi Darra Ólafssyni.
Myndin Rokland er byggð á sam-
nefndri bók Hallgríms Helgason-
ar og í bókinni er Döggu lýst sem
konu sem sefur mikið hjá, er með
kjaft og lendir í aðstæðum í lífinu
sem myndu reynast mörgum öðr-
um heljarinnar þrekraun.
Elma Lísa leikur í nokkrum
senum í myndinni sem reyndu á.
„Nektarsenurnar voru erfiðar og
þær tóku verulega á eins og þær
gera alltaf. Þannig er það bara, en
það voru fleiri senur sem hafa með
reynslu Döggu að gera sem mér
fundust erfiðar. Það var mikil hjálp
í því að leika á móti Ólafi Darra
sem er góður vinur minn. Ég hef
leikið áður með honum, við lékum
par í Blóðböndum og við studd-
um hvort annað í gegnum þetta.
Ég treysti honum vel og finnst gott
að vinna með honum. Þegar kom
að því að gera þessar senur þá
stóðum við betur að vígi af því að
við höfðum talað saman um þær.
Við ræddum um tilfinningar og
reynslu aðalsöguhetjanna í þeim
senum sem reyndu á og unnum
okkur vel í gegnum þetta.“
Kvíðablandin tilhlökkun
Forsýning kvikmyndarinnar var í
Sauðárkróksbíói 29. desember og
buðu þá aðstandendur myndar-
innar leikurum og hjálparliði úr
Skagafirði að koma og sjá afrakst-
ur vinnu þeirra en flestar útitökur
voru teknar á Sauðárkróki og í nær-
sveitum. Góður rómur var gerður
að myndinni en bæjarbúar voru al-
mennt hrifnir. Almennar sýningar
hefjast 14. janúar og verður mynd-
in sýnd um land allt á svipuðum
tíma. Elma Lísa segir að dvölin á
Sauðárkróki hafi reynst leikurun-
um bæði ljúf og holl. Það var gam-
an að vera þar og það er alltaf gott
fyrir leikara að komast burt og fá
næði til að vinna. Þarna er sögu-
staður bókarinnar og það er gott að
komast í nánd við hann. Þetta var í
heildina ljúft ferli og skemmtilegt.“
Elma Lísa segist ekki hafa séð
myndina, hún hafi verið í New
York á þeim tíma sem hún var for-
sýnd. „Ég er þó búin að sjá nokkr-
ar senur og hlakka til frumsýning-
arinnar.“ Tilhlökkunin er þó alltaf
kvíðablandin. „Þannig er það alltaf
og það er hluti af þessu öllu saman.
Það er alltaf skrýtið að horfa á eitt-
hvað sem maður gerði fyrir rúmu
ári.“
Ég held að platan hafi bara rokselst, ég veit ekki betur,“ segir Bubbi Morthens en hann gaf út safnplötu fyrir jól sem spannar tónlist hans síð-
ustu 30 árin. Hann segist ekki geta verið annað en
ánægður með söluna, sérstaklega á þessum tímum
þar sem meirihluta þeirrar tónlistar sem fólk útveg-
ar sér sé stolið af netinu. „Ég er þakklátur fyrir það að
enn sé til fólk sem kaupir listina en við erum ágætlega
sett hér á landi miðað við hrunið sem á sér stað í ná-
grannalöndum okkar í þessum efnum. Þar eru lista-
menn orðnir tekjulausir.“ Bubbi er nýbúinn að klára
að taka upp plötu sem kemur út í vor með hljómsveit
sem heitir Sólskuggarnir. Þar verður að finna nýtt efni
sem sækir innblástur í sálartónlist. „Ég vann þessa
plötu með svo ótrúlega flottu fólki og hún er gríðar-
lega vel heppnuð. Næst á dagskrá er svo jólaplata sem
ég er byrjaður að vinna í og verður tekin upp í sumar,“
segir hann og bætir við að það sé nóg að gera hjá hon-
um. „Maður hættir ekkert fyrr en maður er lokaður
ofan í kistu, það er bara engin leið að hætta.“
Bubbi Morthens ánægður með viðtökurnar:
Elma Lísa Gunnarsdóttir:
TÖKURNAR REYNDU Á
n Kvikmyndin Rokland verður frumsýnd á næstu dögum n Elma Lísa Gunnars-
dóttir fer með eitt aðalhlutverka n Leikur í kynlífssenum á móti Ólafi Darra Ólafs-
syni n Segir vinskapinn við Ólaf hafa hjálpað henni í gegnum allar erfiðar senur
Vináttan kom sér vel Elma Lísa
segir gott að geta treyst mótleikara
sínum jafnvel og hún treysti
Ólafi Darra góðvini sínum í erfiðum
aðstæðum. MynD VERa PáLSDÓttiR
alsæl með
nýtt starf
Bjössi ekki
á dagskrá
Guðný Helga Herbertsdóttir byrjar á
mánudaginn í nýju starfi í Íslandsbanka
og hlakkar til.
„Ég er búin að fara í heimsókn á
vinnustaðinn, hitta samstarfsfólk og
mér líst afar vel á þetta allt saman.“
Aðspurð um ástæður þess að hún
hættir eftir góðan árangur í starfi á
Stöð 2 segist hún hafa viljað breyta til.
„Það var kominn tími til að rispa aðeins
plötuna. Ég hef unnið á Stöð 2 allan
minn starfsferil sem telur 17 ár.
Í millitíðinni lærði ég viðskiptafræði og
tók meistaragráðu mína. Mig langar
til að láta reyna á þá þekkingu. Ég
kveð samstarfsfólk mitt með miklum
söknuði og þar á ég marga góða vini
sem ég ætla að halda sambandi við.“
Hildur Sverrisdóttir lögfræðingur er
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stjórn
Húsdýragarðsins. Áður en boðað var til
stjórnarfundar sagðist Hildur á Facebook-
síðu sinni hlakka til að mæta á sinn fyrsta
stjórnarfund. „Bjössi er ekki á dagskrá,“
sagði Hildur. Hún gantaðist einnig með
hvort það væri ekki óviðeigandi að
mæta með forláta húfu úr kanínuskinni
á fundinn. „Ég ætlaði að mæta með
kanínuskinnshúfuna en fannst það svo
ekki við hæfi,“ sagði Hildur í mesta gríni.
Seinna kom þó í ljós að bjössi var aldeilis
á dagskrá af hálfu Besta flokksins og kom
það henni og öðrum nokkuð að óvörum.
Það er engin
leið að hætta