Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2011, Blaðsíða 3
Fréttir | 3Mánudagur 17. janúar 2011
Mikil ólga ríkir á meðal almennra
flokksmanna Samfylkingarinnar
og Vinstri grænna ef marka má það
sem fram fór á sameiginlegum fundi
Reykjavíkurfélaganna um fyrirhug-
aðar breytingar á fiskveiðistjórnun-
arkerfinu, á Grand Hótel síðastlið-
inn laugardag. Fullt var út úr dyrum
í stóra sal hótelsins en viðmælendur
DV sem voru á fundinum eru sam-
mála um að með þessu hafi verið sett
aukin pressa á ríkisstjórnina um að
gera gagngerar breytingar á kvóta-
kerfinu.
Reynt að brýna ríkisstjórn
Í sameiginlegri ályktun frá félögun-
um segir meðal annars: „Stjórnir fé-
laganna telja brýnt að ekki verði látið
undan þrýstingi sérhagsmunaaðila
heldur staðið fast við það grundvall-
aratriði að ríkið fyrir hönd þjóðar-
innar verði hinn eini sanni eigandi
fiskveiðiauðlindarinnar og sjái um
að leigja auðlindina til þeirra sem
vilja nýta hana á grundvelli jafnrétt-
is, mannréttinda og atvinnufrelsis.“
Einn viðmælandi blaðsins segir
að í almennum umræðum á fundin-
um hefði komið fram skýr gagnrýni
á niðurstöðu sáttanefndarinnar og
frammistöðu fulltrúa ríkisstjórnar-
innar þar. Viðmælendum ber saman
um að boðað hafi verið til fundarins
til þess að brýna ríkisstjórnina, en
margir eru þeirrar skoðunar að hún
hafi ekki fylgt fyrirheitum sínum um
kvótamálið.
Tækifæri til að afnema órétt
Finnbogi Vikar, laganemi og full-
trúi í starfshópi um endurskoðun á
lögum um stjórn fiskveiða, var einn
þeirra sem hélt erindi á fundinum.
Hann segist hafa orðið var við mikla
undiröldu á fundinum sem var lang-
ur og strangur. Finnbogi fjallaði um
hina svokölluðu tilboðsleið en hann
hefur lengi verið talsmaður henn-
ar. Elínbjörg Ragnarsdóttir, frá sam-
tökum fiskframleiðenda og útflytj-
enda, fjallaði um samkeppnis- og
viðskiptahliðina sem fiskvinnslur án
kvóta þurfa að búa við.
Þá hélt Ólína Þorvarðadóttir,
þingkona Samfylkingarinnar, einn-
ig ræðu þar sem hún talaði um það
tækifæri sem ríkisstjórnin stæði
frammi fyrir: „Tækifærið til að af-
nema þann órétt og ójöfnuð sem
hlotist hefur af núverandi fiskveiði-
stjórnunarkerfi – kvótakerfinu.“ Jón
Bjarnason, sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra, flutti ávarp á
fundinum og sagði meðal annars að
stjórnarsáttmálanum yrði fylgt eft-
ir. Hann varaði menn þó við því að
festast of mikið í tveimur valkostum,
og benti á að samningaleiðin og til-
boðsleiðin væru ekki einu leiðirnar
að settu marki.
Flokksmenn sýndu
klær og tennur
Finnbogi Vikar segir í samtali við DV
að á fundinum hafi almennir flokks-
menn sýnt klær sínar og tennur,
enda ríki kraumandi óánægja yfir því
að ríkisstjórnin hafi ekki tekið fast-
ar á kvótamálinu. „Það er gríðarleg
undiralda,“ segir Finnbogi og bendir
á að óánægjan nái til fólks í öllum
flokkum og um allt land. Hann segir
frá því að á fundinum hafi sjálfstæð-
ismaður lýst yfir stuðningi við fund-
inn þar sem um réttlætismál væri
að ræða. „Ég áttaði mig á því á þess-
um fundi að við getum látið ýmislegt
yfir okkur ganga hvað varðar niður-
skurð og annað, en fólk vill fá þetta
mál í gegn vegna þess að þetta er svo
mikið réttlætis- og hjartansmál,“ seg-
ir Finnbogi.
Aðspurður um gagnrýni útgerð-
armanna á mögulegar breytingar á
kvótakerfinu segir Finnbogi: „Menn
hafa áhyggjur af því að fyrirtæki
muni fara á höfuðið en gleyma því
að það er ekki hagur bankanna. En
ef svo ólíklega vildi til að slíkt gerð-
ist þá væri það allt í lagi vegna þess
að bátarnir verða hérna áfram, hús-
in verða áfram, fólkið sem starfar við
sjávarútveg verður áfram og fiskur-
inn verður áfram í sjónum. Það eina
sem myndi breytast væri að skuld-
irnar myndu minnka og það kæmu
nýjir eigendur í stað þeirra fyrri sem
hafa sýnt fram á að þeir geta ekki rek-
ið þetta.“
n Flokksmenn í VG og Samfylkingunni eru óánægðir með seinagang
ríkisstjórnarinnar í kvótamálum n Töluverð ólga á sameiginlegum fundi
um helgina n Finnbogi Vikar segir fólk vilja þetta mál í gegn sem fyrst
FLOKKSMENN RÍSA
GEGN RÍKISSTJÓRN
„Ég áttaði mig á því
á þessum fundi að
við getum látið ýmislegt
yfir okkur ganga hvað
varðar niðurskurð og ann-
að, en fólk vill fá þetta
mál í gegn vegna þess að
þetta er svo mikið rétt-
lætis- og hjartansmál.
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Stjórnarsáttmálinn
stendur Jón Bjarnason
sjávarútvegsráðherra
sagði á fundinum að
stjórnarsáttmálanum
yrði fylgt en þar kemur
meðal annars fram að
fiskistofnarnir í kringum
landið eigi að vera
sameign þjóðarinnar.
Tækifæri Ólína Þorvarðardóttir, þingkona Samfylkingarinnar, sagði ríkisstjórnina
standa frammi fyrir tækifæri til þess að afnema órétt.
Tilboðsleiðin Finnbogi Vikar hefur lengi
verið talsmaður tilboðsleiðarinnar en hann
hélt erindi um hana á fundinum.
1. Meint markaðsmisnotkun Landsbanka
Íslands með hlutabréf útgefin af
bankanum.
2. Lánveitingar til félaganna Hunslow
S.A., Bruce Assets Limited, Pro-Invest
Partnes Corp og Sigurðar Bollasonar ehf.
til kaupa á hlutabréfum í Landsbankanum.
3. Kaup Landsbanka Íslands á lánasafni
Landsbankans í Luxemborg.
4. Kaup á hlutabréfum í bankanum af
hálfu félaga sem héldu um kauprétti
starfsmanna Landsbankans og lánveiting-
ar til þeirra félaga.
Þessi hafa verið yfirheyrð:
Hugsanlegt er að fleiri hafi verið yfirheyrðir
n Sigurjón Árnason, fyrrverandi bankastjóri
Landsbankans
n Elín Sigfúsdóttir, fyrrverandi bankastjóri
Landsbankans
n Steinþór Gunnarsson, fyrrverandi
forstöðumaður verðbréfamiðlunar
Landsbankans
n Ívar Guðjónsson, forstöðumaður
deildar eigin fjárfestinga á verðbréfasviði
Landsbankans
n Ingvi Örn Kristinsson, fyrrverandi
yfirmaður hagfræðisviðs Landsbanka
Íslands
n Júlíus Steinar Heiðarsson, fyrrverandi
sérfræðingur í deild eigin fjárfestinga á
verðbréfasviði Landsbankans
n Halldór J. Kristjánsson, fyrrverandi
bankastjóri Landsbankans
n Stefán Ingimar Bjarnason, fjármálastjóri
og fjárfestir
Til rannsóknar er:
BRÓÐIR BJARNA FÉKK
1.600 MILLJÓNA LÁN
Fleiri yfirheyrðir
Til stendur að yfirheyra fleiri ein-
staklinga í tengslum við rann-
sóknina, samkvæmt heimildum
DV. Heimildir DV herma að sak-
sóknari kunni að þurfa að boða
allt að 30 manns til yfirheyrslu.
Meðal þeirra er bankaráð Lands-
bankans, Björgólfur Guðmunds-
son, Kjartan Gunnarsson, Þorgeir
Baldursson og Svafa Grönfeldt.
Saksóknari hefur ekki boðað
bankaráðið í yfirheyrslu en haft
hefur verið samband við lög-
mann Björgólfs Guðmundssonar,
Þórunni Guðmundsdóttur, til að
spyrja hana um dvalarstað banka-
ráðsformannsins fyrrverandi, líkt
og greint hefur verið frá í fjölmiðl-
um. Björgólfur dvelur sem stend-
ur í London hjá syni sínum Björ-
gólfi Thor og er ætlunin að hann
komi aftur til landsins í lok þessa
mánaðar. Hugsanlegt er að ekki
liggi á að yfirheyra bankaráðið og
að Björgólfur eldri fái að ljúka sínu
fríi í London.
Heimildir DV herma að Haukur
Þór Haraldsson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri rekstrarsviðs Lands-
bankans, Gunnar Thoroddsen,
fyrrverandi forstjóri Landsbank-
ans í Lúxemborg, og Hlynur Þór
Björnsson, fyrrverandi starfsmað-
ur á verðbréfasviði bankans, séu
einnig á lista þeirra sem sérstakur
saksóknari vill ræða við í tengslum
við rannsókirnar. Hugsanlegt er að
á næstunni standi til að yfirheyra
enn fleiri einstaklinga í tengslum
við rannsóknina.