Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2011, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2011, Blaðsíða 10
10 | Fréttir 17. janúar 2011 Mánudagur „Ég gat séð að maðurinn var geðveik- ur en var samfélagið geðveikt? Hvaða afsökun hafði það?“ spyr Anna Bent- ína Hermanssen sem kærði nauðgun en málinu var vísað frá vegna skorts á sönnunum. „Þrátt fyrir áverka og vottorð um mjög skýr einkenni áfalla- streituröskunar, bæði frá sálfræðing og Neyðarmóttökunni. Hvorugt var tekið gilt sem sönnunargagn. Því stóð eftir mál sem var byggt á orði gegn orði og málinu var vísað frá. Þetta er alveg rosalega erfitt vígi að eiga við.“ Lét lemja nauðgara Nokkrum árum síðar skrifaði Anna Bentína mastersritgerð í kynjafræði þar sem hún leitaði svara við því af hverju konur kæra ekki nauðgun – líkt og gert var í helgarblaði DV nú um helgina. Þar var rætt við fagfólk og konur sem aldrei kærðu sem sögðu meðal annars frá ranghugmyndum um nauðganir og því að þær upplifðu sig réttlausar. Tvær konur lýstu því hvernig læknir og lögfræðingar töluðu úr þeim kjark þegar þær höfðu loksins mannað sig upp í að leita réttar síns. Ein sagði líka að þar sem hún taldi sig ekki eiga neinn möguleika í réttarkerf- inu hefði hún ákveðið að taka málið í eigin hendur og láta berja nauðgar- ann. Viðtölin í DV samræmast niður- stöðu Önnu Bentínu sem komst að því að konur kæra ekki nauðgun því þær viti að flestum málum sé vísað frá og hversu vægir dómarnir séu, þá sjald- an þegar sakfellt sé í nauðgunarmál- um. „Það er ekki beinlínis hvetjandi. Það er mjög erfitt fyrir konu að kæra nauðgun en það er mér hjartansmál að það breytist.“ Fæstar berja frá sér Skömm, sektarkennd og sjálfsásök- un eru líka ástæður fyrir því að kon- ur kæra ekki samkvæmt niðurstöðum Önnu Bentínu, sem byggði ritgerð sína á viðtölum við átján konur. „Oft upp- lifa konur það þannig að þær hefðu átt að geta gert eitthvað til þess að sporna við verknaðinum. Í laga ákvæðinu er gert ráð fyrir ofbeldi, því að gerandi beiti ofbeldi eða hótunum um ofbeldi til þess ná vilja sínum fram. Það er ekki alltaf þannig auk þess sem konur frjósa oft. Rannsóknir sýna að einung- is fjórðungur kvenna veitir líkamlega mótspyrnu og 48 prósent þeirra berj- ast ekkert á móti. Það er mjög erfitt að fá mál í gegnum kerfið ef nauðgarinn beitir ekki öðru ofbeldi, ef konan veit- ir ekki kröftuga mótspyrnu þannig að augljósir áverkar séu til staðar. Það er staðreyndin að allt að 83 prósent af málum sem fara til ríkissaksóknara eru felld niður. Án áverka eða annarra sönnunargagna er málið byggt á orði gegn orði og það er gerandanum alltaf í vil. Því miður. Samt virðast líkamlegar afleiðing- ar hafa minni þýðingu fyrir konurnar. Allir viðmælendur mínir voru sam- mála um að það sem þeim reyndist erfiðast og sat lengst í þeim voru sekt- arkenndin, skömmin og sjálfsásakan- irnar.“ Skemmdarverk að rjúfa þögnina Viðhorf samfélagsins hjálpa þess- um konum ekki heldur. „Þær konur sem ég talaði við upplifðu að frásögn þeirra væri markvisst dregin í efa. Hvort sem þær sögðu nánum ættingj- um eða sérfræðingum frá. Það er alltaf dálítil tortryggni gagnvart konum sem segja frá því að þeim hafi verið nauðg- að. Það á ekki bara við í réttarkerfinu heldur einnig í samfélaginu öllu. Því upplifa þessar konur það oft að þær séu stimplaðar ónýtar. Ég skoðaði einnig af hverju við- mælendur mínir þjáðust af sektar- kennd, skömm og sjálfsásökunum vegna brots sem var framið gegn þeim en ekki af þeim. Viðhorf samfélags- ins gagnvart kynferðisofbeldi er helsti áhrifavaldur á upplifun þolenda og móta afleiðingarnar. Nærumhverfi þessara kvenna brást þegar þær rufu þögnina. Hvort sem ofbeldismaðurinn var kunningi eða ókunnugur voru viðbrögðin oft fá- læti eða þögn. Þeim leið eins og þær hefðu framið skemmdarverk með því að rjúfa þögnina. Andrúmsloftið var óþægilegt og þrungið spennu eða leit- ast var við að skipta um umræðuefni. Þegar frá leið þótti mörgum nóg um þá vanlíðan sem þolandinn var enn að upplifa og krafa um að gleyma eða láta eins og ekkert væri varð hávær. Gerandinn krefst ekki neins, nema þagnar og aðgerðarleysis. Umhverf- ið og samfélagið vill ekki horfast í augu við alvarleika kynferðisofbeldis. Á meðan athafna ofbeldismenn sig óáreittir í fálæti samfélagsins og þéttu myrkri þagnarinnar.“ Var sjálf sakfelld Af þessum átjan konum reyndu bara tvær að kæra. „Hinar sögðu bara „nei“, það er ekki séns að kæra. Það er bara rugl. Það er önnur nauðgun að fara í gegnum þetta ferli.“ Önnur þeirra sem kærði sagði að ef hún hefði vitað hversu erfitt þetta væri þá hefði hún ekki kært. Það hefði verið betra að sitja bara heima. Um leið og kæra er lögð fram kvisast þetta oft út. Gerandinn kær- ir stundum á móti fyrir meiðyrði og stríðið kemst í hámæli. Þótt það fari ekki víða þá fréttist það og þeim finnst þær vera stimplaðar.“ Anna Bentína þekkir það því hún lenti sjálf í því. „Ég var stimpluð geðveik og sakfelld fyrir það þegar málinu mínu var vísað frá. Þá hélt fólk að ég væri að ljúga. Það er það sem samfélagið heldur. Fólk held- ur að lögin séu til að vernda okkur og trúir því í einlægni að lögin geri það. Ef málinu er vísað frá þá hlýtur það að vera vegna þess að konan er að ljúga. Fólk veit ekki hversu erfitt það er fyrir þolendur að fá áheyrn dómstóla.“ Ekki nóg að hann játi Hún segir að til að það gerist þurfi að vera áverkar á konunni auk þess sem nauðgarinn þurfi að játa brotið. „En það er ekki nóg að hann játi verkn- aðinn, hann þarf líka að segjast hafa vitað að hann hafi verið að brjóta gegn vilja konunnar og hafa gert það af ásetningi. Þannig að þetta er mjög erfitt. Af því að fólk heldur að þessi mál séu í góðum farvegi trúir það því að konur ljúgi til um nauðgun. Sem er mýta sem gengur alltaf og gekk um mig. Margir trúðu því að ég hefði log- ið upp á aumingja manninn. Samt er hann ofbeldismaður sem hefur gert þetta aftur eftir þetta. En því miður var hann ekki kærður þá. Það hefði kannski ekki haft áhrif. Ég komst alla vega að því að það hafa verið felld nið- ur tvö mál á hendur sama geranda á sama ári. Þetta er bara ömurlegt.“ Frávísunin verri en nauðgunin Nauðgunin átti sér stað í júlí 1998 og málinu var vísað frá í nóvember sama ár. Það var Önnu Bentínu mikið áfall því henni datt aldrei í hug að það gæti gerst. „Kannski fékk ég upplýsingar um gang þessara mála en í því ástandi sem ég var í eftir nauðgunina meðtók ég þær ekki. Ég man ofboðslega lít- ið eftir fyrstu vikunum eftir nauðgun- ina, ég var bara í losti. En ég var alveg viss um að fá málið mitt í gegn, líka af því að ég var með áverka eftir hann. Kannski var ég svona naív en ég var viss um að málið færi fyrir dóm og að hann yrði dæmdur. Mér brá alveg svakalega þegar málinu var vísað frá. Ég bjóst við því í alvöru að kerfið myndi vernda mig fyrir þessu. Það var rosalegt sjokk að komast að því að það gerði það ekki. Það hrikti í öllum mínum grunnhug- myndum um samfélagið og öryggi í samfélaginu og þetta var gríðarlegt áfall. Mér fannst það næstum því verra en nauðgunin sjálf. Ég gat séð að mað- urinn var geðveikur en var samfélagið geðveikt? Hvaða afsökun hafði það?“ Kallaði þetta „hardcore“-kynlíf „Ástæðan fyrir því að málinu var vís- að frá var að hann sagði það fullum fetum að þetta hefði allt verið með mínum vilja. Þetta hefði verið „hard- core“-kynlíf.“ Önnu Bentínu fannst mjög erfitt að kyngja því að einhver skyldi taka það sem góða og gilda af- sökun fyrir því að fara svona með aðra manneskju. „Ég veit ekki hvernig það er, „hardcore“-kynlíf. Ég skil þetta ekki. Málinu var vísað frá hjá ríkissak- sóknara. Vinnubrögð lögreglunnar voru aftur á móti mjög vönduð. Hún vann þetta mál mjög vel. Ég fékk líka stuðning frá Neyðarmóttökunni sem útvegaði mér réttargæslumann, lækn- isaðstoð og tíu tíma hjá sálfræðingi. Síðan fór ég á Stígamót þar sem ég fékk minn aðalstuðning. Ég þáði allan stuðning sem ég fékk.“ Æstist upp við mótspyrnuna Núna þrettán árum síðar getur Anna Bentína í einlægni sagt að þrátt fyrir allt sjái hún ekki eftir því að hafa kært. „Stundum hef ég spurt mig að því hvort að þetta hafi virkilega verið þess virði en ég finn að það var það. Sem manneskja á ég rétt á því að leita réttar míns. Það er okkar réttur að kæra. Við eigum rétt á okkar líkama. Samfélag- ið á að vernda okkur en lögin gera það ekki af því að túlkun laganna er svo verknaðarmiðuð. Því miður komst ég að því að ég hafði engan rétt og það var alveg gríð- arlegt áfall og kannski mesta áfallið. En það varð til þess að ég fór að berjast fyrir auknum réttindum kvenna og því að kynfrelsi þeirra væri virt. Að þær fái að ráða því hverjir mega koma við lík- ama þeirra og hvað sé gert við þær. Að það þurfi ekki að stórsjá á þeim til þess að þær geti kært nauðgun. Það sé nóg fyrir þær að segja nei. Í mínu tilfelli þá fraus ég bara. Ég hefði aldrei trúað því þar sem ég er alls engin bleyða. En ég fraus því mér leið eins og ég væri í lífshættu. Þannig að n Anna Bentína Hermanssen kærði nauðgun n Málinu var vísað frá þrátt fyrir áverka n Meintur nauðgari sagði að hún hefði viljað „hardcore“-kynlíf n Hún var sakfelld af samfélaginu n „Mér fannst það næstum því verra en nauðgunin sjálf“ n Er sterkari manneskja í dag „ÉG VAR STIMPLUÐ GEÐVEIK“ Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is „Stundum hef ég spurt mig að því hvort að þetta hafi virki- lega verið þess virði en ég finn að það var það. Sem manneskja á ég rétt á því að leita réttar míns.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.