Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2011, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2011, Blaðsíða 19
Undanfarin misseri hef ég verið að vinna að bók um utanríkis-tengsl Íslands sem er væntan- leg núna á útmánuðum eða á vordög- um. Vegna þess hef ég meðal annars verið að grúska í gömlum dagblöð- um. Hafi menn áhyggjur af leiðinda- hnjóði og köpuryrðum sem fljúga fyr- ir í umræðunni í kjölfar hrunsins þá er orðbragðið nú samt sem áður hrein hátíð miðað við hnútuköstin í NATO- deilunni. Þegar aðildin var samþykkt á Alþingi síðdegis þann 30. mars 1949 kom til átaka á Austurvelli, á milli mótmælenda, sem flestir voru á bandi sósíalista, og lögreglu sem naut liðsinnis varaliðs svokallaðra hvítliða sem sjálfstæðismenn höfðu kallað út og héldu til inni í Alþingishúsinu áður en þeir þustu út og hófu gagnsókn gegn mótmælendum. Heimur stríðandi afla var nánast andhverfur. Daginn eftir blasti svo- hljóðandi fyrirsögn við lesendum Morgunblaðsins: „Trylltur skríll ræðst á Alþingi.“ Í yfirfyrirsögn stóð: Ofbeld- ishótanir kommúnista í framkvæmd. Í undirfyrirsögn sagði: „Grjótkast kommúnista veldur limlestingum. Spellvirkjum dreift með táragasi“. Allt önnur veröld birtist hins vegar lesendum Þjóðviljans sem í stríðsfyr- irsögn sagði: „LANDRÁÐIN FRAM- IN Í SKJÓLI OFBELDIS OG VILLI- MANNLEGRA ÁRÁSA Á FRIÐSAMA ALÞÝÐU“. Í undirfyrirsögn stóð: „8-10 þúsund Reykvíkingar mótmæla fyr- ir framan Alþingishúsið og kröfðust þjóðaratkvæðis. – Svör ríkisstjórnar- innar voru gasárás og kylfuárásir lög- reglu og vitstola hvítliðaskríls“. Styttumálið Styttumálið svokallaða er ekki aðeins ein spaugilegasta hliðin á deilunum í Alþingi í tengslum við aðildina að Atlantshafsbandalaginu heldur sýnir það einnig með táknrænum hætti hvernig arfleifð sjálfstæðisbaráttunn- ar birtist í umræðunum. Áhugavert er að rifja það upp núna á tvö hundruð ára ártíð Jóns Sigurðssonar. Tveim- ur dögum eftir atkvæðagreiðsluna, þann 1. apríl 1949, birtist ljósmynd á forsíðu Þjóðviljans af styttu af Jóni Sigurðssyni forseta, á Alþingi, sem nú sneri til veggjar en ekki fram í salinn eins og vanalega. Einhver hafði snú- ið henni við. Í myndatexta stóð: „Þeg- ar landráðin höfðu verið samþykkt á þinginu í fyrradag tóku alþingismenn eftir því að Styttan af Jóni Sigurðssyni hafði snúizt í hálfhring og horfði hann nú til veggjar – burt frá landráða- mönnunum“. Sósíalistar vildu með þessu meina að Jón Sigursson myndi hafa staðið með þeirra málstað. Morgunblaðið vildi fyrir alla muni ekki leyfa sósíalistum að eigna sér Jón Sigurðsson í þessari umræðu og svaraði fullum hálsi með stórri til- vísun á forsíðu og nálega heilsíðu- umfjöllun á annarri síðu undir fyrir- sögninni: „Í hugum Íslendinga snýr sú mynd aldrei öfugt.“ Hin mikla um- fjöllun hófst svona: „Í hvert skipti sem kommúnistar á Ísland hafa framið gróf svik við þjóðina hefur það ver- ið háttur þeirra að vitna í einhverja af ástsælustu stjórnmálaleiðtogum hennar á liðnum tíma. Jafnframt hefur verið gefið í skyn, að fimmta herdeild Stalíns væri arftaki þessara þjóðar- leiðtoga og berðist ein fyrir hugsjón- um þeirra. Jón Sigurðsson forseti, Hannes Hafstein og Einar Benedikts- son skáld, hafa oftast sætt þessum ókjörum af hálfu Moskva-manna. Þegar mikið hefur þótt við liggja hafa verið birtar af þeim myndir, vitn- að í ræður og kvæði. Með þessu hafa kommúnistar talið sig getað breitt yfir svikræði sitt við land og þjóð.“ Alþýðublaðið lét ekki sitt eftir liggja. Þann 3. apríl sagði í dálknum Hannes á Horninu: „… aumara skít- menni hefur aldrei átt sæti á alþingi íslendinga en það, sem læddist inn í alþingishúsið að kvöldi óeirðadagsins, rétti kámugar þjóðsvikarahendur að styttu Jóns Sigurðssonar, sneri henni til veggjar og benti svo skósveini sin- um að taka mynd af handaverkinu.“ Dálkahöfundur taldi víst að þess yrði „… getið í sögu alþingis sem aum- asta óþverraverks, sem nokkru sinni hefur verið framið gagnvart alþingi og minningu hins ástsælasta foringja þjóðarinnar.“ Svona voru hnífilyrðin undir mið- bik liðinnar aldar. Viðlíka harka færð- ist ekki aftur í þjóðmálaumræðuna og þegar Icesave-deilan og aðkoma AGS komst í hámæli eftir hrun. Þá endur- tók NATO-umræðan sig nokkurn veg- inn eins og rætt verður í bókinni. Umræða | 19Mánudagur 17. janúar 2011 Á sex kaffivélar 1 Lögreglustjórinn bauð Hallgrími upp á bjór Stefán Eiríksson bauð Hallgrími öl þegar þeir hittust í Hrísey. 2 „Gat ekki setið atvinnulaus heima“ Hilda Jana Gísladóttir fékk styrk til að halda áfram dagskrárgerð eftir uppsögn hjá RÚV. 3 Ungfrú Ameríka hjólaði í Wiki- leaks Teresa Scanlan gagnrýndi forsvarsmenn Wikileaks fyrir leka á gögnum. 4 Stefán Einar segir ásakanir storm í vatnsglasi Gagnrýndur fyrir að nota aðstöðu í Hallgrímskirkju til að vinna gegn stjórn VR. 5 Í lífshættu eftir líkamsárás Ráðist var á karlmann og honum veittir alvarlegir áverkar 6 Brjótum upp tilbreytingarleysið! Mynd Henrýs Þórs Baldurssonar af Ólafi Þór Haukssyni og Sigurjóni Þ. Árnasyni. 7 Meðlimur Black Eyed Peas nán-ast blindur Söngvarinn apl.de.ap úr hljómsveitinni Black Eyed Peas er með sjaldgæfan erfðasjúkdóm. Marteinn Steinar Þórsson leikstjóri frumsýndi kvikmynd sína Rokland á föstudagin. Kvikmyndin er fyrsta mynd Marteins í fullri lengd, en hann ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur með myndinni. Hún er byggð á samnefndri vinsælli skáldsögu Hallgríms Helgasonar sem kom út árið 2005. Hver er maðurinn? „Ég er kvikmyndagerðarmaður og Íslandsvinur.“ Hvað heldur þér gangandi? „Trúin á hið góða í lífinu.“ Hvað borðar þú í morgunmat? „Hafragraut, þar sem blandað er trölla- höfrum og venjulegum höfrum. Svo set ég hunang og ristuð graskersfræ, möndlur og stappaðan banana. Það er rosalegt.“ Hvernig kaffi drekkurðu? „Ég á sex mismunandi kaffivélar. Það er allt frá espresso yfir í bara svona iðnaðarkaffi. Uppáhaldskaffið er nú samt bara tvöfaldur latte með feitri kúamjólk.“ Áttu þér uppáhaldskaffihús? „Það er náttúrulega heima hjá mér, en mér finnst Kaffismiðjan andskoti góð.“ Ertu spenntur fyrir HM í handbolta? „Já, ég er svolítið spenntur fyrir því. Ég vona bara að strákarnir standi sig vel. Þetta er eina íþróttin sem við getum eitthvað í, alla vega hópíþróttin.“ Hvar heldurðu að strákarnir lendi? „Ég bara vona að þeir verði í topp sex.“ Hver er uppáhaldsbíómyndin þín? „Ég á ekki uppáhaldsbíómynd. Ég get ekki gert upp á milli margra mynda. Ef þú hefðir spurt mig þegar ég var sextán, væri það Indiana Jones: Raiders of the Lost Ark. Það er voða lítið í dag.“ Er draumurinn að vera kvikmynda- gerðarmaður? „Það er bara draumur sem varð að veruleika.“ „Nei, ég fylgist ekkert með handboltanum.“ Snæbjörn Brynjarsson 26 ára, listamaður „Sverre Jakobsson.“ Ragnheiður Bjarnason 24 ára, listamaður „Já, Aron Pálmars.“ Guðmundur Emil Jóhannsson 12 ára, nemi „Já, þeir eru þrír, Alexander Petersson, Aron Pálmars og Guðjón Valur.“ Sigríður Elísdóttir 63 ára, heimavinnandi „Nei, ég fylgist voða lítið með þessu.“ Sif Þorsteinsdóttir 26 ára, í fæðingarorlofi Mest lesið á dv.is Maður dagsins Áttu þér einhvern uppáhaldsleikmann í íslenska handboltalandsliðinu? Annir hjá sérstökum Annríki hefur verið í höfuðstöðvum sérstaks saksóknara síðustu daga en þar hafa farið fram yfirheyrslur yfir fólki sem starfaði fyrir Landsbankann fyrir hrun. Hér má sjá Sigríði Friðjónsdóttur, saksóknara Alþingis, yfirgefa skrifstofurnar í vetrarhúminu. Mynd: SIGTRYGGUR ARI Myndin Trylltur landráðalýður Dómstóll götunnar „Svona voru hnífilyrðin undir miðbik liðinnar aldar. Kjallari Dr. Eiríkur Bergmann

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.