Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2011, Blaðsíða 26
26 | Fólk 17. janúar 2011 Mánudagur
Í næstu viku hefur göngu sína
á Skjá einum spurningaþáttur-
inn Ha?, sem er þó ekki spurn-
ingaþáttur í eiginlegum skiln-
ingi heldur gamanþáttur með
spurningaívafi. Jóhann G. Jó-
hannsson er umsjónarmaður
þáttarins, en Sólmundur Hólm
og Edda Björg Eyjólfsdóttir
verða liðsstjórar.
Edda segir þau Sólmund fá
til liðs við sig einn gest hvort,
alltaf nýja í hverjum þætti.
„Þetta gengur meira út á að
leika sér með spurningarnar en
að vita rétt svör, tilgangurinn er
að hafa gaman af ferðalaginu
í átt að svarinu frekar en rétta
svarinu.“
Þetta minnir óneitanlega á
þætti Stephens Fry, Quite Inter-
esting eða Q.I., sem hafa notið
ómældra vinsælda á BBC. Edda
segir að Q.I. sé einmitt fyrir-
mynd að þættinum.
„Þeir þættir eru náttúr-
lega „beyond“, en við ætlum
að reyna að ná upp svipaðri
stemningu. Það byggist auð-
vitað á gestunum sem koma
hverju sinni, en hægt er að fá
stig fyrir frumleika, það er alveg
undir Jóhanni komið hvernig
stigin verða metin. Stefán Páls-
son semur spurningarnar, en
þær geta verið af ólíkum toga,
eitthvað úr fréttum, eitthvað af
Facebook, eiginlega hvað sem
er og svo stóru spurningarn-
ar eins og af hverju himinn-
inn sé blár. Þá verða ýmsar
óvæntar uppákomur, söng-
ur og hvaðeina,“ segir Edda,
sem hefur í mörgu að snúast
því hún er að leika í Fjalla-
Eyvindi sem var frumsýndur
í Norðurpólnum síðastliðinn
laugardag.
„Ég er ótrúlega stolt af
þessari sýningu. Marta Nor-
dal leikstýrir og hugmyndin
vaknaði einmitt yfir kaffibolla
hjá henni og nú er sýningin
tilbúin. Þetta er grasrótin og
gott dæmi um hvað hægt er
að gera í leikhúsi ef viljinn og
áhuginn er fyrir hendi.“
Jóhann G. Jóhannsson, Sólmundur Hólm og Edda Björg Eyjólfsdóttir í nýjum þætti:
Ha? að fyrirmynd Stephens Fry
Svörin eru ekki
aðalatriðið Edda
Björg verður annar
liðsstjóranna í Ha? Q.I. Alan Davies liðstjóri og Stephen Fry stjórn
andi Q.I.
Ómöguleg
flugferð
Margrét Hugrún Gústafsdóttir
gerir flugferð með Iceland Express að
umræðuefni á bloggi sínu á Eyjunni
og segir farir sínar ekki sléttar. Hún
kvartar meðal annars yfir að hvers kyns
sölumennska um borð hafi haft forgang
fram yfir þarfir farþega. Þá segir Margrét
farþega hafa kvartað undan kulda en
engin teppi hafi verið laus. Þó hafi engin
teppi verið í notkun.
Margrét kvartar um þrengsli milli sæta
og að salerni hafi ekki verið yfirfarin. Þá
veitti ekki af að lappa upp á málningar-
vinnu á salernum og viðhaldi vélarinnar
hafi almennt verið ábótavant. Hún segist
hafa fengið útbrot á kinnarnar á leiðinni
heim og skrifaði það á hringsólandi
bakteríur í loftinu þar sem mikill skítur
var í sætunum og á milli þeirra. Líkt og
í sófa sem hefur ekki verið ryksugaður í
fimm ár. Svo mörg voru þau orð.
Einhleypir
skemmta sér
Síða fyrir einhleypa var stofnuð á Facebook
fyrir nokkru og nú eru meðlimir þar hátt á
fjórða þúsund. Um helgina var haldið þriðja
ballið á vegum síðunnar en þemað var bling
bling og fólk mætti með barmmerki þar sem
kom fram hvað það hafði ætlað að verða
þegar það yrði stórt. Trúlega mætti enginn
með barmmerki sem á stóð „einhleypur“,
því trúlega er fólk þarna á höttunum eftir
lífsförunaut eða í það minnsta kærasta
eða kærustu. Karma lék fyrir dansi og
hugsanlegt er að einhverjir sem mættu á
Players á laugardagskvöldið séu ekki lengur
gjaldgengir á síðunni, það er einhleypir.
Sigurjón aftekur hneykslaður að Jón verði í drottningarvið-tali með fyrirfram ákveðnar
spurningar svo hann geti svarað því
sem fólk vill heyra.
„Ertu frá þér? Það myndi aldrei
ganga hjá okkur,“ segir Sigurjón.
„Jón verður heldur ekki einn með
mér í þættinum því hugmyndin er
að fá einn gest í hvern þátt, sem Jón
mun þá spjalla við líka. Það verður
trúlega einhver þekktur," segir Sig-
urjón aðspurður, en finnst ekki frá-
leit hugmynd að velja stundum ein-
hvern ófrægan.
„Það er náttúrlega aldrei að vita
nema læðist inn skúringakona
einn góðan veðurdag, svona leyn-
igestur,“ segir Sigurjón hugsandi.
En finnst Jóni hann ekki hafa
nægilega sterka rödd í fjölmiðlum?
Tja, í gegnum tíðina höfum við
Jón auðvitað verið með okkar sér-
stöku rödd í þættinum Tvíhöfða á
ýmsum útvarpsstöðvum. Þetta er
kannski einhverskonar sjálfstætt
framhald af þeirri nálgun. En nei,
biddu fyrir þér, þetta verður ekk-
ert mjög alvarlegt. Það var reynd-
ar alltaf mikil alvara í Tvíhöfða og
menn hafa kannski ekki fattað hvað
við köfuðum djúpt. Kannski vor-
um við bara of djúp-
ir. En það er eitthvað
sem fer af stað þegar
við Jón hittumst. Það
verður til galdur sem
ekki er hægt að skil-
greina. Og nú höfum
við úr mun kræsilegri
skál að moða en þeg-
ar við vorum til dæm-
is á X-inu í gamla
daga. Fólk vildi ekk-
ert tala við stráklinga
á einhverri jaðarút-
varpsstöð. Við feng-
um bara einu sinni
viðtal við borgar-
stjóra, hringdum í
Ingbjörgu í beinni og
þurftum að villa á okk-
ur heimildir til að fá
hana í símann. Núna er
staðan auðvitað þannig
að við höfum náð hinni
fullkomnu hefnd. Annar
okkar er nefnilega orðinn
borgarstjóri,“ segir Sig-
urjón og lofar að þátturinn
verði mjög skemmtilegur. Tví-
mælalaust verður í opinni dagskrá
á Stöð 2 alla fimmtudaga, strax eftir
Ísland í dag.
n Tvíhöfði er eiginlega aftur
kominn á kreik, nú í nýjum
þætti á Stöð 2, Tvímælalaust
n Sigurjón Kjartansson stýrir
þættinum, en hans gamli sam-
starfsmaður, Jón Gnarr, verður
með honum allan þáttinn
Sigurjón Kjartansson:
Tvíhöfði breytist í
Tvímælalaust Vinirnir Jón
Gnarr borgarstjóri og Sigurjón
Kjartans eru með nýjan sjón-
varpsþátt.tvíhöfði
aftur
á kreik
„Menn hafa kannski
ekki fattað hvað
við vorum djúpir.