Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2011, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2011, Page 8
8 | Fréttir 17. janúar 2011 Mánudagur Breskur njósnari fylgdist með aðgerðum Saving Iceland uppi á hálendi: Heillaðist af lífi aðgerðarsinna Jarðafélagið Yztafell ehf., í eigu fjár- festisins Róberts Melax sem var einn af stofnendum lyfjaverslunarinnar Lyfju og er einn stærsti hluthafi Sögu Fjárfestingarbanka, stendur illa um þessar mundir samkvæmt ársreikn- ingi félagsins fyrir árið 2009. Félagið var stofnað árið 2007 til að kaupa jörð- ina Ystafell í Þingeyjarsveit, 16 hektara jörð með íbúðarhúsi, hlöðu, fjósi og veiðiréttindum í Skjálfandafljóti. Félagið keypti jörðina á 90 milljón- ir króna árið 2007 og eru einu eignir félags í dag umrædd jörð sem er bók- færð á kaupverðinu í ársreikningi fé- lagsins fyrir árið 2009. Skuldir félags- ins, sem eru í erlendri mynt – evrum, frönkum og jenum – nema hins vegar rúmum 208 milljónum króna. Skuldir Yztafells eru því talsvert meiri en eign- ir félagsins og er eiginfjárstaðan nei- kvæð um nærri 140 milljónir króna. Ekki er að sjá að Yztafell geti átt jörð- ina áfram miðað við stöðu félagsins. Bað um afskriftir Róbert Melax hefur lítið sem ekkert verið í umræðunni eftir hrunið 2008 en hann hefur verið nokkuð umsvifa- mikill fjárfestir hér á landi síðastlið- in ár. Félög í hans eigu eiga til dæm- is ennþá meira en 11 prósenta hlut í Sögu Fjárfestingarbanka. Róbert er búsettur í Suður-Afríku um þessar mundir. DV greindi frá því í lok desember 2009 að eftir hrunið 2008 hefði Róbert boðið Kaupþingi í Lúxemborg að hann myndi greiða bankanum 20 prósent af tæplega 3,5 milljarða skuldum sínum við í bankann. Tilboð Róberts, sem var viðskiptavinur einkabankaþjón- ustu Kaupþings í Lúxemborg, kom um mánuði eftir íslenska efnahagshrunið og stóð hann frammi fyrir gríðarlegu tapi. Meirihluti eigna Róberts hafði verið settur í söluferli þegar þetta var. Forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, Magnús Guðmundsson, hafnaði hins vegar tilboði Róberts, samkvæmt frétt DV. Ef Kaupþing hefði þegið tilboð Róberts á þessum tíma hefði það þýtt að hann hefði greitt um 700 milljón- ir af tæplega 3,5 milljarða skuldum sínum við bankann. Afgangur skulda hans hefði verið afskrifaður. Róbert hafði fengið veðkall frá bankanum í október og hefur tilboð hans líkast til verið til að bregðast við því. Ósáttir Samkvæmt heimildum DV hafa átt sér stað viðræður á milli eigenda Yztafells og lánardrottna félagsins um afskrift- ir á skuldum þess. Á veðbanda yfirliti bankans kemur fram að jörðin þing- eyska sé veðsett Íslandsbanka fyrir 90 milljónir króna. Um er að ræða trygg- ingabréf frá því í lok árs 2008. Ekki er að sjá að Landsbankinn eigi veð í jörð- inni. Skuldirnar sem tengjast jörðinni virðast því vera hærri en fram kemur í ársreikningnum og vera bæði í krón- um og erlendri mynt. Heimildir DV herma að ýmsir bændur í Þingeyjarsýslu séu ósáttir við að eigendur Yztafells ehf. fái hugsan- lega að halda jörðinni þrátt fyrir skuld- irnar sem hvíla á félaginu en margir bændur víðs vegar um landið berjast í bökkum við að halda jörðum sínum eftir efnahagshrunið. n Jarðafélag Róberts Melax skuldar rúmar 200 milljónir n Skuldin tilkomin vegna jarðar í Þingeyjarsýslu n Róbert var stofnandi Lyfju og á stóran hlut í Sögu Fjárfestingarbanka n Viðræður hafa staðið um uppgjör skuldarinnar n Bændur í sveitinni ósáttir Jarðafélag Róberts er skuldum vafið „Á meðan bænd- urnir á næstu bæj- um við Ystafell standa frammi fyrir því að missa jarðir sínar bendir allt til þess að þetta fólk fái jörðina gefins. n Róbert hefur nánast ekkert verið í samfélagsumræðunni hér á landi eftir íslenska efnahagshrunið þrátt fyrir að vera nokkuð stór fjárfestir. Hann er lyfjafræðingur að mennt og var annar af stofnendum Lyfju, ásamt Inga Guðjónssyni, árið 1996. Árið 2004 seldu þeir hluti sína í Lyfju til smásölurisans Haga en lyfjakeðjan hafði sameinast Lyfjabúðunum fjórum áður. Eftir þetta var Lyfja alfarið í eigu Haga sem seldi keðjuna skömmu síðar. Róbert hefur verið nokkuð umsvifa- mikill fjárfestir síðan og átti meðal annars hlutabréf í Glitni og fjárfesting- arbankanum Saga Capital. Róbert var sömuleiðis um tíma í stjórn Sögu Capital þar sem hann átti rúmlega 10 prósenta hlut þegar mest lét. Róbert átti sömu- leiðis hlut í norska fasteignafélaginu City Center Properties sem og í ýmsum öðrum félögum víða um lönd, eins og í Svíþjóð og á Bresku Jómfrúareyjum. Hver er Róbert Melax? Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Skuldsett jörð 90 milljóna skuld hvíl- ir á jörð Róberts Melax í Þingeyjarsýslu en heildarskuldir félagsins sem á jörðina nema rúmum 200 milljónum króna. Hálf milljón ferðamanna Heildarfjöldi erlendra gesta árið 2010 var tæplega 495 þúsund árið 2010. Um er að ræða 0,2 prósenta aukningu frá 2009 en þá voru er- lendir gestir 494 þúsund talsins. Langflestir erlendra gesta, eða 93 prósent, fóru um Keflavíkurflug- völl og þrjú prósent með Norrænu um Seyðisfjörð. Afgangurinn kom um Reykjavíkur-, Akureyrar- og Eg- ilsstaðaflugvöll Þar fyrir utan eru farþegar með skemmtiferðaskipum en tæplega 74 þúsund erlendir gestir komu til landsins með skemmti- ferðaskipum árið 2010, 2 prósentum fleiri en á árinu 2009 þegar þeir voru tæplega 72 þúsund talsins. Sparkaði í lögregluþjón Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt tvítugan karlmann í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyr- ir að sparka í lögregluþjón. Atvik- ið átti sér stað á skemmtistaðnum Manhattan í apríl í fyrra. Maðurinn sparkaði í fótlegg lögregluþjóns- ins með þeim afleiðingum að hann hlaut bólgu og eymsli á hægri ökkla. Þá var hann dæmdur fyrir að hafa í lögreglubíl á leið á lögreglustöðina hótað tveimur lögreglumönnum lífláti. Maðurinn játaði sök í málinu en árið 2008 var hann dæmdur í 45 daga fangelsi. Sú refsing hafði ekki áhrif á ákvörðun refsingar í málinu sem dæmt var í á föstudag. Spánverjar kaupa Vífilfell Coca Cola á Spáni hefur fest kaup á drykkjarvöruframleiðandanum Vífilfelli af Arion banka. Kaupverðið mun ganga upp í skuldir Þorsteins M. Jónssonar, fyrrverandi eiganda fyrirtækisins. Þorsteinn, eða félög í hans eigu, skulduðu bankanum tíu milljarða króna en með sölunni á Vífilfelli teljast skuldirnar greiddar. Í fréttum Stöðvar 2 um helgina kom fram að búist væri við að starfsfólki fyrirtækisins hér á landi yrði tilkynnt formlega um eigendaskiptin í næstu viku. Arion banki yfirtók Vífilfell fyrir nokkru og síðan þá hefur verið leitað að heppilegum kaupendum. Átöpp- unarfyrirtæki Coca Cola á Spáni varð fyrir valinu og er Vífilfell því komið í hendur Spánverjanna. Bílvelta við Korputorg Bílvelta varð á Vesturlandsvegi við Korputorg í hádeginu á sunnudag. Einn var fluttur á slysadeild vegna slyssins en ekki er fengust upplýs- ingar um meiðsl hans. Töluverð hálka var á höfuð- borgarsvæðinu um helgina og er talið að bílveltuna megi rekja til hennar. Lögregla greip til þess ráðs að loka Vesturlandsvegi til suðurs meðan hún athafnaði sig á vettvangi. Mark Kennedy, sem starfaði um ára- bil sem leynilögregla fyrir breska rík- ið á meðal umhverfisverndarsinna, sagði í samtali við Daily Mail á sunnu- dag að hann hafi persónulega þekkt til fimmtán annarra leynilögreglu- manna sem störfuðu undir fölsku flaggi í hreyfingum umhverfisvernd- arsinna. Þá sagðist hann trúa því að leynilögreglumenn væru ennþá starf- andi í umhverfisverndarhreyfingum í Evrópu. Upplýsingar sem hann komst yfir í starfi sínu voru sendar beinustu leið til Tonys Blairs samkvæmt Daily Mail. Í viðtalinu lýsir hann því meðal annars hvernig hann var laminn með kylfum af fimm lögregluþjónum árið 2006, eftir að hafa reynt að vernda að- gerðarsinna sem hann starfaði með. Þá segist hann smám saman hafa fall- ið fyrir lífi aðgerðarsinnans. „Heimur leynilögregluaðgerða er grár og myrk- ur,“ sagði hann í viðtalinu og bætti við að „mjög slæmir hlutir“ ættu sér þar stað. Þá sagði Kennedy að vandi slíkra leynilegra aðgerða væri sá að þar giltu engar reglur, en eins og fram hefur komið átti hann í kynferðissambandi við konur innan samtaka sem hann var að njósna um. Hann sagðist í sam- tali við blaðið vera hræddur um líf sitt, en bæði lögreglumenn og mótmæl- endur væru á eftir honum. Þá sagðist hann hafa lokað sig af inni á heimili sínu. Kennedy, sem kallaði sig Mark Stone, kom til Íslands árið 2005 og tók þátt í aðgerðum Saving Iceland gegn Alcoa, en hreyfingin sendi frá sér yf- irlýsingu þann 13. janúar síðastliðinn vegna málsins. Þar sagði meðal ann- ars að mál hans væri skýrt dæmi um það „hversu lágt ríkisstjórnir leggjast“ til að bendla saklaust fólk við glæpi. Þá spyrja Saving Iceland-liðar einn- ig hvort íslenska lögreglan hafi fengið vitneskju um það frá bresku lögregl- unni að í Saving Iceland-búðunum væri breskur njósnari. Og ef svo sé, hvort hún hafi þá fengið aðgang að þeim upplýsingum sem hann safnaði á meðan hann starfaði sem njósnari? jonbjarki@dv.is Tveir menn Til vinstri má sjá Mark Kennedy á meðan hann kallaði sig Mark Stone og njósnaði um umhverfisverndarsinna, til hægri eins og hann er í dag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.