Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2011, Page 32
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80
MÁNUDAGUR
OG ÞRIÐJUDAGUR
17.–18. JANÚAR 2011
7. TBL. 101. ÁRG. LEIÐB. VERÐ 395 KR.
Betra seint
en aldrei!
Beggi og Pacas eru löngu trúlofaðir:
Síðbúnar hamingjuóskir
Logi á leið
undir hnífinn
n Byrjun íslenska handboltalands-
liðsins á HM í Svíþjóð lofar góðu.
Eflaust sakna einhverjir hins litríka
Loga Geirssonar sem þarf að sætta
sig við að vera heima vegna axlar-
meiðsla. Á sama tíma og félagar
hans etja kappi við sterkustu hand-
boltaþjóðir heims er Logi sjálfur á
leið undir hnífinn í dag, mánudag.
Logi segir frá því á heimasíðu sinni
að hann hafi loksins sætt sig við að
hann þurfi á aðgerð að halda. Hann
er búinn að reyna nudd, endurhæf-
ingu, styrktaræfingar, nálastungur
og sterasprautur en ekkert virkar.
Örnólfur Valdimarsson landslið-
slæknir mun fram-
kvæma aðgerð-
ina en meiðslin
eru búin að
plaga Loga í tvö
ár. Logi segist
bjartsýnn og lofar
rosalegu „come-
backi“ nái
hann að
jafna
sig af
meiðsl-
unum.
Svekktur
veðurfræðingur
n „Ég varð nú hálfklumsa við þessa
frammistöðu,“ segir veðurfræð-
ingurinn Einar Sveinbjörnsson um
frammistöðu keppenda í Útsvari á
föstudagskvöld. Þar áttust við lið
Hafnarfjarðar og Norðurþings. Í
flokkaspurningum var flokkur sem
bar yfirskriftina spámenn. Áttu
keppendur að geta til um veður-
fræðinga Sjónvarpsins. Fyrst birt-
ist Kristín Hermannsdóttir, þá Einar
Magnús Einarsson og að síðustu
Hálfdán Ágústsson. Skemmst er frá
því að segja að keppendur voru
úti á þekju og gátu ekki nefnt rétt
nöfn. Segir Einar á bloggsíðu sinni
að ástæðan fyrir þessu kunni að
vera sú að þau þrjú
haldi sjálfum sér til
hlés og verði fyrir
vikið ekki nöfn á
skjánum, heldur
meira einhvers
konar veðurand-
lit. „Sjálfum finnst
mér þau gera
þetta vel,“
áréttar hann
að lokum.
„Þetta er eitthvað sem gerðist fyr-
ir fjórum árum en þú veist hvernig
þetta Facebook er. Mér fannst þetta
bara fyndið,“ segir Guðbergur Garð-
arsson, eða Beggi eins og hann er
oft kallaður. Fyrir helgi birtist til-
kynning á Facebook-síðu hans og
unnusta hans, Pacasar, þess efnis að
þeir væru búnir að trúlofa sig. Vinir
þeirra á Facebook, sem eru tæplega
fimm þúsund, voru fljótir að bregð-
ast við og óskuðu fjölmargir þessum
bráðskemmtilegu herramönnum
til hamingju. Sannleikurinn er hins
vegar sá að Pacas var að uppfæra ör-
yggisstillingar á sameiginlegri Face-
book-síðu þeirra, þar á meðal upp-
lýsingar um með hverjum þeir væru
í sambandi.
„Það eru allir búnir að vera senda
okkur hamingjuóskir. Meira að
segja börnin mín spyrja hvort þau
hafi verið að missa af einhverju,“
segir Beggi og bætir við að honum
hafi fundist þetta hálffyndið. „Þeg-
ar ég opnaði Facebook hjá mér vissi
ég ekki hvaðan á mig stóð veðr-
ið. Allir að óska mér til hamingju
með trúlofunina. En það var ekkert
þannig í gangi.“
Beggi segir að hann eigi eftir að
uppfæra Facebook-vef sinn og út-
skýra þetta. „Ég vil alltaf koma til
dyranna eins og ég er klæddur. Ég
á eftir að skrifa eitthvað inn á Face-
book til að útskýra þetta.“
Þó að fjögur ár séu liðin frá því
að þeir Beggi og Pacas trúlofuðu sig
eru þeir ekkert að flýta sér að ganga
í það heilaga. „Ég veit ekki hvenær
það verður. Væntanlega bara þegar
guð lofar en við erum ekkert búnir
að ákveða það. Við ætlum bara að
einbeita okkur að kærleikanum og
gleðinni.“
Beggi og Pacas slógu sem kunn-
ugt er í gegn í sjónvarpsþáttunum
Hæðinni árið 2008. Þeir félagar urðu
sigurvegarar þáttarins með glæsi-
brag. Að undanförnu hafa þeir verið
í eigin rekstri og kenna fólki að elda
indverskan mat. „Það er það sem
við erum að gera þessa dagana. Við
brosum bara framan í fólk og erum
glaðir.“
einar@dv.is
Kærleikur Beggi og Pacas trúlofuðu sig fyrir
fjórum árum en vegna misskilnings héldu einhverjir
að þeir væru nýbúnir að því. MYND HEIÐA HELGADÓTTIR
FÍFA (Húsgagnahöllinni) – Sími 552 2522 – www.fifa.isOpið: Mán. - Fös: 10-18 Lau.: 10-17 - Sun.: 13-17
Allt fyrir börnin
30% AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM FATNAÐI
ÚTSALAN ER HAFIN
Veðrið í dag kl. 15... ...og næstu daga
5-8
-6/-9
5-8
-5/-7
3-5
-7/-9
8-10
-1/-3
5-8
-12/-14
3-5
-7/-9
5-8
-2/-5
5-8
-2/-4
12-15
1/-1
3-5
0/-2
12-15
2/0
5-8
-3/-5
3-5
-1/-3
13-15
0/-2
-1/-2
-6/-8
-2/-5
-9/-16
10/7
4/1
3/0
21/19
15/13
-1/-2
-6/-8
-2/-5
-9/-16
10/7
4/1
-3/-5
21/19
16/10
9/1
-4/-9
-4/-7
-5/-7
6/-3
-1/-6
-3/-5
20/17
14/11
-2/-6
2/1
5/2
-2/-6
10/6
7/5
3/0
21/10
15/11
Þri Mið Fim Fös
vindur í m/s
hiti á bilinu
Stykkishólmur
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
Þri Mið Fim Fös
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
Höfn
Reykjavík Egilsstaðir
Ísafjörður Vestmannaeyjar
Patreksfjörður Kirkjubæjarkl.
Akureyri Selfoss
Sauðárkrókur Þingvellir
Húsavík Keflavík
3-5
0/-1
3-5
-4/-8
5-8
-1/-3
8-10
-2/-3
8-10
1/-1
0-3
-2/-4
8-10
-3/-5
3-5
-7/-9
5-8
-1/-3
5-8
0/-1
10-12
4/2
3-5
0/-2
8-10
-2/-4
5-8
1/-1
5-8
-6/-9
3-5
-6/-8
3-5
-4/-6
0-3
-6/-7
5-8
-8/-11
3-5
-9/-12
5-8
-6/-10
10-12
-8/-11
8-10
-8/-9
8-10
-9/-11
8-10
-9/-11
5-8
-9/-12
3-5
-13/-15
5-8
-8/-11
5-8
-9/-12
15-18
-7/-9
3-5
-10/-12
12-15
-5/-7
5-8
-11/-13
3-5
-8/-10
10-12
-5/-7
12-15
-2/-5
8-10
-2/-6
8-10
-4/-6
8-10
-5/-8
5-8
-3/-4
3-5
-6/-10
5-8
-2/-5
Mán Þri Mið Fim
hiti á bilinu
Kaupmannahöfn
hiti á bilinu
Osló
hiti á bilinu
Stokkhólmur
hiti á bilinu
Helsinki
hiti á bilinu
London
hiti á bilinu
París
hiti á bilinu
Berlín
hiti á bilinu
Tenerife
hiti á bilinu
Alicante
VEÐRIÐ ÚTI Í HEIMI Í DAG OG NÆSTU DAGA
-4
-2
-4
-3
-5
-4
-8
0
23
1
0 6
3
8
8
5 3
6
6
6
5
8
3
Hitakort Litirnir
í kortinu tákna
hitafarið á landinu
(sjá kvarða)
Hvessir og hlýnar annað kvöld
Höfuðborgarsvæðið Hæg suðvestlæg átt í fyrstu og hætt
við dálítilli snjómuggu með morgninum. Hlýnar þegar líður á daginn
með slydduéljum eða skúrum. Heldur vaxandi vindur undir kvöld.
Landsveðurspá fyrir daginn Víðast sunnan eða suð-
vestan 5–10 m/s en norðaustan 5–13 m/s á Vestfjörðum, hvassast
nyrst. Bætir heldur í vind með sunnan- og vestanverðu landinu
undir kvöld. Snjókoma eða él sunnan, vestan og norðvestan til en
þó slydda við ströndina suðvestan til einkum þegar líður á daginn.
Bjart veður lengst af suðaustanlands. Frost um mest allt land en
frostlaust við sjávarsíðuna sunnan- og suðvestan til.
Á morgun Hæg suðaustlæg átt í fyrstu. Vaxandi suðaustan
átt síðdegis og undir kvöld, fyrst suðvestan- og vestanlands,
10–18 m/s. Úrkomulaust lengst af en fer að rigna með suður-
og vesturströndinni um kvöldið og snjókoma og slydda inn til
landsins. Hiti við frostmark, en hiti 2–6 stig sunnan og vestan til
um kvöldið annars frost. Hlýnandi veður um allt land aðfaranótt
miðvikudagsins.
Helstu tíðindin eru hlýindi sem komin verða inn á
landið á miðvikudag. Fram að því ríkir svipað veður.
<5 Mjög hægur vindur 5-10 Fremur hægur vindur. 10-20 Talsverður vindur 20-30 Mjög hvasst,
fólk þarf að gá að sér. >30 Stórviðri, fólk ætti ekki að vera á ferli að nauðsynjalausu.Veðrið með Sigga stormi siggistormur@dv.is