Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2011, Blaðsíða 4
4 | Fréttir 14. febrúar 2011 Mánudagur
Segir lögreglumenn á frívakt hafa hrint gestum Hemma og Valda:
„Við erum lögreglan“
Hópur lögreglumanna eltu einn níu-
menninganna svokölluðu inn á bar-
inn Hemma og Valda á Laugavegin-
um aðfaranótt laugardags og hrintu
honum á milli sín, að sögn sjón-
arvotts. Fjöldi gesta staðarins varð
vitni að atvikinu sem átti sér stað um
klukkan 02.30 aðfaranótt laugardags.
„Á eftir honum komu fjórir eða fimm
fullorðnir menn sem ætluðu að ráð-
ast á hann, það var alveg greinilegt,“
segir vitnið Birkir Björns Halldórs-
son í samtali við DV. Þegar hann hót-
aði því að hringja á lögregluna seg-
ir hann einn mannanna hafa svarað:
„Við erum lögreglan.“ Hann segist
persónulega hafa þekkt tvo lögreglu-
menn úr hópnum.
Heimildir DV renna stoðum undir
þá frásögn að hópur lögreglumanna á
frívakt hafi verið að verki. Tveir níu-
menninganna, þau Snorri Páll Jóns-
son og Steinunn Gunnlaugsdótt-
ir, urðu ásamt fleirum fyrir aðkasti
lögreglumannanna þetta kvöld. Þau
vildu hvorugt tjá sig um málið í sam-
tali í samtali við DV. Athygli vekur að
sama dag, eða síðastliðinn föstudag,
var mál lögreglustjórans á höfuðborg-
arsvæiðinu gegn Snorra Páli tekið
fyrir í héraðsdómi. Stefán Eiríksson,
lögreglustjóri lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu, hafði ekki heyrt um
atvikið þegar haft var samband við
hann.
„Það var mjög asnalegt að horfa
upp á þetta. Ég sá að þeir voru í víga-
hug og ég skipaði þeim að fara út,
þeir sögðu mér að þegja og voru með
einhverja stæla við mig,“ segir Birk-
ir. Hann segir mennina hafa gengið
um ógnandi og síendurtekið hafi þeir
ýtt fórnarlömbum sínum á veggi og
skápa. „Þeir lögðu aldrei beint hend-
ur á hann, þetta leit meira út eins og
svona eineltistilburðir, þeir pössuðu
sig á því að hrinda honum bara,“ seg-
ir Birkir. Hann segir dyravörð Hemma
og Valda hafa þurft að biðja um aðstoð
frá dyravörðum Ólivers til að koma of-
beldismönnunum út af staðnum. Þá
segir hann mennina ekki hafa yfirgef-
ið staðinn fyrr en hann hótaði að taka
þá upp á myndband.
Fjölþrepa
bakbrettið
• Teygir á hrygg og bakvöðvum
• Minnkar vöðvaspennu
• Linar bakverki
• Bætir líkamsstöðu
• Auðvelt í notkun
Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16
Verð: 7.950 kr.
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Fá ekki frið Tvö þeirra sem ákærð
eru fyrir árás á Alþingi lentu í aðkasti af
hálfu lögreglunnar um helgina, að sögn
sjónarvotts.
Lausir undan
ríkissaksóknara
„Það er vitanlega ekki boðlegur
málflutningur og í rauninni svívirði-
leg móðgun við heilbrigða skyn-
semi að stjórnendur og ábyrgðar-
menn í Sparisjóði Reykjavíkur og
nágrennis, SPRON, hafi selt stofn-
fjárbréf sín í sjóðnum á tilteknu
augnabliki vegna þess að þá vant-
aði fé til að byggja sumarbústað og
greiða skuldir.“
Þetta segir Vilhjálmur Bjarna-
son, dósent við Háskóla Íslands
og formaður Félags fjárfesta, sem
kærði stjórnarmenn og stjórnend-
ur SPRON fyrir ætlað brot gegn
hegningarlögum þegar þeir seldu
stofnfjárbréf sín í aðdraganda
hlutafélagavæðingar SPRON sum-
arið 2007. Kæran fór fyrst til ríkis-
lögreglustjóra örfáum dögum fyrir
bankahrunið haustið 2008. Ríkis-
lögreglustjóri ákvað 18. desember
sama ár að hefja ekki rannsókn.
Kæran var þá send til ríkissaksókn-
ara sem lagði fyrir ríkislögreglu-
stjóra að taka málið til rannsóknar.
Rannsókn á sparisjóðum
fram undan
Í nýliðnum mánuði ákvað Val-
týr Sigurðsson ríkissaksóknari að
ekkert yrði frekar aðhafst í málinu
enda ekkert komið fram sem sýndi
fram á refsiverða háttsemi hinna
kærðu. Þau voru Hildur Petersen,
Gunnar Þór Gíslason, Jóhann Ás-
geir Baldursson, Erlendur Hjalta-
son, Ari Bergmann Einarsson og
Guðmundur Hauksson, þáverandi
sparisjóðsstjóri. Þeim var gefið að
sök að hafa brotið gegn 248. grein
hegningarlaga. Þar er talið refsi-
vert komi maður öðrum manni til
að hafast eitthvað að, láta eitthvað
ógert með því á ólögmætan hátt að
vekja, styrkja eða hagnýta sér ranga
eða óljósa hugmynd hans um ein-
hver atvik og hafa þannig fé af hon-
um eða öðrum.
„Hér eru engin önnur úrræði
þegar bæði embætti ríkislögreglu-
stjóra og ríkissaksóknara hafa kom-
ist að niðurstöðu. En málefni spari-
sjóðanna bíður nú rannsóknar
sérstakrar nefndar,“ segir Vilhjálm-
ur og vísar þar til samþykktar Al-
þingis um að hefja rannsókn á falli
sparisjóðanna. Málefni þeirra,
einkum Sparisjóðsins í Keflavík,
hafa verið til umfjöllunar að und-
anförnu og vekur athæfi stjórnenda
grunsemdir um misferli og mark-
aðsmisnotkun.
Gríðarleg hækkun
á skömmum tíma
Sumarið 2007 hafði stjórn SPRON
undir höndum mat Capacent á verð-
mæti sparisjóðsins og stofnfjárbréf-
anna, en honum var breytt í hluta-
félag á þeim tíma og hófust viðskipti
með hlutabréf í SPRON þá um haust-
ið. Ítrekað hafði verið leitað eftir
því að mat Capacent yrði birt. Í júlí
2007 hafði verðmæti stofnfjárbréf-
anna hækkað um að minnsta kosti
þriðjung og á stofnfjármarkaði í ág-
úst sama ár hafði verðmæti SPRON
hækkað úr 60 milljörðum samkvæmt
mati Capacent í 103 milljarða króna.
Í kærunni kom fram að Vilhjálmi
og öðrum kærendum hefði verið
kunnugt um að einstaklingar hefðu
verið hvattir til að fjárfesta í stofn-
fjárbréfum á þessum tíma og starfs-
menn SPRON hefðu tekið þátt í því.
Á sama tíma seldu að minnsta kosti
þrír stjórnendur stofnfjárbréfin sín í
sparisjóðnum. Þegar viðskipti með
hlutabréfin hófust 23. október 2007
reyndist verðið mun lægra en loka-
gengi stofnfjárbréfanna hafði verið.
Vissu stjórnendur meira en aðrir
stofnfjáreigendur?
Kærendur töldu að Hildur, Gunnar
Þór og Jóhann Ásgeir hefðu búið yfir
innherjaupplýsingum um að hið háa
gengi myndi aldrei nást þegar bréf-
in færu á markað. „Þannig hafi þeir
(eigendur stofnfjárbréfanna) notað
sér innherjaupplýsingar til að hagn-
ast og jafnframt leynt því að þeir
væru að selja. Þeir hafi þannig blekkt
stofnfjáreigendur með refsiverðum
hætti.“ Sem stjórnarmenn voru Er-
lendur, Ari og Guðmundur taldir
sekir um hlutdeild í brotinu.
Við rannsókn og skýrslutöku bar
Hildur að hún hefði selt hluta bréfa
sinna til að fjárfesta í Auði Capi-
tal sem hennið hafði boðist. Jóhann
Ásgeir kvaðst hafa selt um þriðjung
bréfa sinna þar eð hann vantaði fé
til framkvæmda við sumarhús sitt.
Gunnar Þór kvaðst hafa selt til að
dreifa áhættu en hann átti einnig í
Sundagörðum sem einnig átti hluti í
SPRON. Andvirðið hefði verið notað
í fjárfestingar og til greiðslu skulda.
„Rannsókn málsins hefur ekki
leitt í ljóst að kærðu hafi á ólögmæt-
an hát leynt upplýsingum sem áhrif
gætu hafa haft á verðmæti bréfanna,“
segir í niðurstöðu Valtýs Sigurðsson-
ar ríkissaksóknara sem dagsett er í
síðasta mánuði. Jafnframt segir að
ekki verði séð að frekari rannsókn
málsins yrði til þess að breyta sönn-
unarstöðu þess.
n Stjórnendur SPRON seldu stofnfjárbréf á háu verði n Voru kærðir fyrir að leyna upplýs-
ingum um raunverulegt markaðsverð þeirra n Ríkislögreglustjóri og ríkissaksóknari hafa
fellt niður mál gegn þeim og hætt rannsókn n Rannsókn á málefnum sparisjóða á döfinni„ Jóhann Ásgeir
kvaðst hafa selt
um þriðjung bréfa sinna
þar eð hann vantaði fé til
framkvæmda við sumar-
hús sitt.
Jóhann Hauksson
blaðamaður skrifar johann@dv.is
Refsivert brot ekki sannað Ekki
boðlegt og móðgandi að stjórnendur selji
stofnfjárbréf til framkvæmda við sumarhús,
segir Vilhjálmur Bjarnason.
Sparisjóðsstjórinn Guðmundur
Hauksson, þáverandi forstjóri SPRON, var
meðal þeirra sem kærðir voru.
SPRON Verðmæti SPRON fór á undraskömmum tíma úr 60 milljörðum króna í 103
milljarða. Margir fóru flatt á kaupum.
Matthías enn týndur:
„Eins og jörðin
hafi gleypt hann“
Engar nýjar vísbendingar hafa bor-
ist til lögreglunnar í sambandi við
hvarf Matthíasar Þórarinssonar sem
ekkert hefur spurst til síðan í byrjun
desember í fyrra.
Samkvæmt Ágústi Svanssyni, að-
alvarðstjóra hjá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu, er engin skipulögð
leit í gangi hjá björgunarsveitum, en
lögreglan er enn að svipast um eftir
honum. „Þetta er allt opið og auðvit-
að heldur maður í vonina,“ segir Ág-
úst aðspurður hvort Matthías sé enn
talinn vera á lífi. „Við erum búnir að
vera að skoða svona smávísbending-
ar og fara yfir allt aftur til að athuga
hvort eitthvað hafi misfarist en það
er ekki. Það er eins og jörðin hafi
gleypt hann.“
Ágúst segir útilokað að hann hafi
farið með flugi eða löglegum skips-
ferðum.
Lögreglan hvetur almenning
til að hafa samband ef hann hefur
einhverjar upplýsingar um hvarf
Matthíasar.
hanna@dv.is
Mikill olíuleki
við Örfirisey
Svartolía lak í Reykjavíkurhöfn
við Örfirisey um miðjan dag í gær,
sunnudag. Talið er að allt að þrjú
þúsund lítrar af olíu hafi lekið í sjó-
inn, en ekki er vitað um nákvæmt
magn. Olían lak ofan í sjóinn þegar
verið var að dæla henni um borð
í Eldborg RE. Fréttamenn fengu
ekki að fara inn á svæðið til þess að
mynda aðstæður. Slökkviliðið setti
upp flotgirðingar til þess að hefta út-
breiðslu olíunnar, en óljóst er hversu
miklum skaða lekinn olli.