Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2011, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2011, Qupperneq 16
16 | Erlent 14. febrúar 2011 Mánudagur Gífurleg fagnaðarlæti brutust út á föstudag í Egyptalandi þegar fréttir bárust af afsögn forsetans, Hosni Mu- baraks. Egyptar flykktust út á götur þar sem var sungið og dansað fram á rauða nótt. Mubarak afsalaði sér völdum á föstudag og halda nú hernaðaryfir- völd um stjórnartaumana. Ríkisstjórn Mubaraks hafði lofað frjálsum kosn- ingum í september og er enn vonast til að þær kosningar fari fram. Ljóst er að mótmælin sem hófust 25. janúar hafa borið árangur, en helsta krafa mót- mælenda var ávallt að Mubarak hyrfi frá völdum, en hann hafði verið forseti síðan árið 1981. Óljóst framhald Þrátt fyrir að Mubarak sé nú horfinn á braut er alls óljóst hvernig framhaldið verður í Egyptalandi. Herforingjar, sem nú fara með öll völd, hafa lofað því að herinn leggi sitt af mörkum til að und- irbúa jarðveginn fyrir lýðræðisskipu- lag. Enginn tímarammi hefur verið kynntur í þeim málum og gæti því her- inn í raun haldið völdum svo lengi sem honum sýnist. Kröfur almennings í Eg- yptalandi hljóða meðal annars upp á að pólitískum föngum verði sleppt og að neyðarlög verði afnumin. Neyðarlög hafa verið við lýði í Egyptalandi síðan árið 1981 þegar Anwar Sadat, þá forseti landsins, var myrtur. Neyðarlögin hafa tryggt Mubarak mikil völd, meðal ann- ars til að handtaka pólitíska andstæð- inga og halda uppi strangri ritskoðun og skoðanakúgun. Mótmælendur lamdir á sunnudag Þótt Mubarak væri horfinn söfnuð- ust Egyptar samt sem áður saman á Tahrir-torgi í miðborg Kaíró á sunnu- dag. Þeir mættu hins vegar hörðu, þar sem öryggislögreglumenn og hermenn gerðu sitt til að tvístra hópnum með því að lumbra á mótmælendum. Um 2.000 mótmælendur héldu enn til á torginu og kyrjuðu orðin „á torginu, á torginu, við krefjumst okkar réttinda á torginu.“ Breska blaðið Daily Telegraph tók viðtal við Jihad Laban, endurskoðanda sem hefur tekið þátt í mótmælunum. „Markmiðið var ekki einungis að losna við Mubarak. Allt kerfið er gjörspillt og við mótmælendur förum ekki fet fyrr en við sjáum alvöru umbætur. Ég ætla að láta grafa mig á Tahrir-torgi. Þessi bylting er of mikilvæg til að hægt sé að ganga burt frá henni núna.“ Hvað með Mubarak? En hvað verður um Hosni Mubarak, nú þegar hann er horfinn frá völdum? Margir Egyptar eru á því að nauðsyn- legt sé að sækja Mubarak til saka, öðru- vísi sé ekki hægt að gera upp fortíðina. Aðrir eru einfaldlega himinlifandi að Mubarak sé loksins farinn frá völdum. Gífurleg auðæfi Mubaraks kom- ust í fréttirnar í síðustu viku, þó alls sé óvíst hvort hann komi til með að geta notið góðs af þeim. Bankareikningar hans í Sviss hafa verið frystir, rétt eins og reikningar Zine El Abidine Ben Ali, fyrrverandi forseta Túnis sem er nú í útlegð í Sádí-Arabíu. Komist Mubar- ak hins vegar í auðæfi sín þarf hinn 82 ára gamli fyrrverandi forseti litlu að kvíða, en talið er að Mubarak gæti jafnvel verið auðugasti maður í heimi. Hefur hann sankað að sér opinberu fé í áratugi en tölur um auðæfi hans sem kynntar hafa verið til sögunnar hafa verið á bilinu 40 til 70 milljarðar doll- ara. Til samanburðar þá er auðugasti maður í heimi samkvæmt bandaríska tímaritinu Forbes metinn á 53 millj- arða dollara, en það er Mexíkóinn Carl- os Slim. n Hosni Mubarak sagði af sér sem forseti Egyptalands n Herinn tekinn við stjórninni n Fagnaðarlæti fram á rauða nótt n Ofbeldi af hálfu hermanna á sunnudag„Allt kerfið er gjör- spillt og við mót- mælendur förum ekki fet fyrr en við sjáum al- vöru umbætur. Björn Teitsson blaðamaður skrifar bjorn@dv.is FAGNAÐ Í EGYPTALANDI Fagnað fram á rauða nótt Flugeldum var skotið á loft og dansað var fram á rauða nótt. Í öruggum höndum Hermaður með barn í fanginu. Gaman á skriðdreka Þessi börn brosa og skemmta sér þar sem þau sitja ofan á skriðdreka á Tahrir-torgi. Endalokin Þessi maður er ánægður með málalok.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.