Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2011, Síða 20
20 | Fókus 14. febrúar 2011 Mánudagur
F-F-Frábær!
The King’s Speech byggir á raunveru-
legum atburðum og segir frá Georg
sjötta (Colin Firth) og baráttu hans
við talgalla sinn með hjálp talkennara
(Geoffrey Rush) þegar hann verður
óvænt konungur Bretlands.
Colin Firth er frábær í hlutverki
óvænta krúnuerfingjans Georgs sjötta,
eða Bertie eins og hann var kallaður.
Samleikur hans og Geoffrey Rush er
yndislegur á að horfa og sönn sagan
um tvo menn úr tveimur gjörólíkum
stéttum samfélagsins sem ná saman
og verða bestu vinir sogar áhorfand-
ann til sín. Maður gleymir sér í innri
átökum þeirra og getur ekki annað en
fundið til með Bertie sem allt sitt líf
hafði þurft að sætta sig við stríðni og
gríðarlega pressu.
Myndatakan er gullfalleg og ýtir
undir persónusköpun Firths, sem þarf
að tjá innri ólgu manns sem ekki getur
tjáð sig eins og hann helst hefði viljað.
Myndin gefur áhorfandanum
sömuleiðis fróðlega innsýn inn í líf
bresku konungsfjölskyldunnar og
innsýn í Bretland í heild þegar alls-
herjarstríð í Evrópu er yfirvofandi.
The King‘s Speech er alveg yndis-
leg kvikmynd. Hún er laus við alla til-
gerð, myndatakan er gullfalleg, hand-
ritið virkar vel samansett og leikurinn
er umfram allt frábær. Það er ekki
skrýtið að The King’s Speech hafi hlot-
ið 12 tilnefningar til óskarsverðlauna.
Mikilvægt að nýjar kynslóðir fái að kynnast lögum Bergþóru:
Minningu skálds haldið á lofti
Á þriðjudagskvöld verða haldnir minning-
artónleikar um söngvaskáldið Bergþóru
Árnadóttur. Þar verða mörg af þekktari
lögum hennar flutt í fyrsta sinn í kórút-
setningu og koma þrír kórar við sögu, en
stjórnandi þeirra er Guðlaugur Viktors-
son. Um er ræða hinn landsþekkta Lög-
reglukór Reykjavíkur, Kór Menntaskólans
í Reykjavík og Vox Populi. Einnig kem-
ur söngvarinn Jónas Sigurðsson fram
með Lögreglukórnum. Undirleik annast
Gunnar Gunnarsson á píanó, Vilhjálm-
ur Guðjónsson á gítar, Tómas R. Einars-
son á kontrabassa og Hjörleifur Valsson á
fiðlu. Þau Aðalheiður Þorsteinsdóttir, Bára
Grímsdóttir, Skarphéðinn Hjartarson og
Tryggvi M. Baldvinsson hafa útsett söng-
lög Bergþóru fyrir karlakór og blandaða
kóra. Kynnir á tónleikunum verður Aðal-
steinn Ásberg Sigurðsson sem segir í við-
tali við DV að aðstandendur hlakki sjálfa
mikið til að heyra útkomuna.
„Það er minningarsjóður sem var
stofnaður í hennar minningu, tónleikarnir
eru árviss atburður. Þetta er gert til þess að
halda minningu hennar á lofti sem vísna-
skáldi. Við fengum þá hugmynd að út-
setja lög hennar fyrir karlakór og bland-
aðan kór. Þetta eru allt lög sem hún samdi
við ljóð þjóðþekktra skálda, til að mynda:
Verkamaður, Lífsbókin og Frá liðnu vori.
Við hlökkum eiginlega svolítið til heyra
þetta. Það skiptir talsvert miklu máli að
halda minningu hennar á lofti. Nýjar kyn-
slóðir þurfa að komast í kynni við lög Berg-
þóru og þessir tónleikar okkar hafa einmitt
skilað okkur þeim árangri. Þess er kannski
skemmst að minnast að lagið Frá liðnu
vori kom út á plötu trúbadorsins Svavars
Knúts sem var sérstaklega ánægjulegt.“
Bergþóra samdi gjarna lög við ljóð
þekktra skálda, en einnig tónlist við eigin
texta. Á ferli sínum sendi hún frá sér all-
margar hljómplötur og hélt fjölda tón-
leika hérlendis og í Skandinavíu. Þetta eru
fjórðu minningartónleikarnir sem haldnir
eru.
kristjana@dv.is
Uppsetning
Þorleifs
besta sýningin
Uppsetning Þorleifs Arnar Arnarssonar
á Pétri Gaut við leikhúsið í Luzern í Sviss
hefur verið valin sýning ársins í hinum
þýskumælandi heimi af virtu leikhússíðunni
nachtkritik.de. Á bak við síðuna standa um
50 þýskumælandi gagnrýnendur. Að valinu
stóð þessi hópur auk áhorfenda. Í rökstuðn-
ingi sínum sagði dómnefndin meðal annars:
„Thorleifur Arnarsson og dramatúrginum
Ulf Frötzschner hafa í áhrifamikilli leikgerð
komið hinum ógnarstóra heimi Ibsens fyrir
innan draumaheims Pétur Gauts sjálfs.
Heimur verksins er lifandi og sterk leikmynd
Vytautas Narbutas gerir það að verkum að
þar geta margir heimar mæst.“
Leika Silunga-
kvintett
Schuberts
Kammersveit Reykjavíkur leikur
Silungakvintett Franz Schubert og tvö
verk spænska tónskáldsins Joaquíns
Turina á tónleikum á þriðjudag. Gestur
Kammersveitarinnar á tónleikunum verður
spænski píanóleikarinn Alfredo Oyaguez en
með honum leika Una Sveinbjarnardóttir
og Pálína Arnardóttir á fiðlu, Þórunn Ósk
Marinósdóttir á víólu, Sigurgeir Agnarsson
á selló og Richard Korn á kontrabassa.
Tónleikarnir fara fram á Kjarvalsstöðum
klukkan 20.00.
Menningar-
málþing
Menningarhúsið Hof á Akureyri og Tón-
listarskólinn á Akureyri efna til málþings
um framtíðarstefnu menningarmála á
Norðurlandi næstkomandi föstudag.
Yfirskrift málþingsins er „Menning í dag,
menning á morgun?“ Að erindinu loknu
fara fram pallborðsumræður. Þar taka
þátt Gunnar Gíslason, fræðslustjóri
á Akureyri, Halla Björk Reynisdóttir,
formaður stjórnar Akureyrarstofu,
Karítas Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri
menningarmála hjá mennta- og
menningarmálaráðuneytinu,
Pétur Halldórsson, dr. Margrét Sigrún
Sigurðardóttir og dr. Bjarki Valtýsson.
Sama dag verður sýning tileinkuð
Sigfúsi Halldórssyni opnuð á göngum
Tónlistarskólans en sýningin kemur frá
Tónlistarsafninu í Kópavogi.
Frumkvöðull vísnatónlistar Bergþóra Árnadóttir (1948–2007) var
einn af frumkvöðlum vísnatónlistar á Íslandi og lengi vel atkvæðamesta
konan í hópi söngvaskálda.
Á Papúa Nýju-Gíneu eru víst nokkrir rosalegustu neðanjarð-arhellar jarðar. Hér erum við
stödd við op eins stærsta, ókannaða,
flóknasta og hættulegasta hellis heims
og metnaður könnunarmannanna er
mikill. Við fylgjumst með teymi kafara
og rannsóknarmanna sem eru að skrá
leiðir hellisins og jafnframt reyna þeir
að finna mögulega leið hans út í sjó.
Leiðangurinn samanstendur af fjár-
mögnunaraðila og fjörkálfi, Carl (Ioan
Gruffudd), Victoriu, kærustu hans
(Alice Parkinson), Frank (Richard
Ruxburgh), ljónhörðum reynslubolta
sem kallar alls ekkert ömmu sína, syni
hans, Josh, (Rhys Wakefield), sem er
einn sá færasti í hellaköfun mestan-
part fyrir þrýsting frá föður sínum. Þar
að auki eru nokkrir til viðbótar sem
eru kjörfórnarlömb ef einhver þarf að
deyja.
Þetta er eldfim blanda sem get-
ur sprungið í tætlur við ákveðnar að-
stæður eins og til dæmis ef árleg flóð
fyrr en vanalega, á meðan leiðang-
urinn er neðanjarðar. Í jafnþrúgandi
aðstæðum og neðanjarðarhellarn-
ir bjóða upp á reynir á persónuleika,
ákveðni, samvinnu, ögun, þor og
stefnufestu sem þarf að endast leng-
ur en ljós og súrefniskútar. Myndin er
kynnt sem James Cameron-ræma og í
Bandaríkjunum heitir hún einfaldlega
„James Cameron´s Sanctum“. Hann
er engu að síður bara framleiðandinn
og leikstjórann þekkja fáir. Það sama
gildir um allflesta leikarana sem eru
ekki upp á marga fjörfiska. Myndin
hefst á stuttri runu af yfirborðskennd-
um útskýringasamræðum sem þjóna
þeim tilgangi að setja menn snögglega
inn í allar aðstæður.
Hasaratriðin eru dæmigerð-
ar „Hollywood Studios-senur“ og
strengjasveitarundirspil toppar svo
froðuna. Fyrirsjáanlegar senur fylgja
svo, siglínur slitna, allir deyja næst-
um og svo framvegis. Lítið spennandi,
á köflum er maður næstum farinn að
óska þess að það detti inn einhverjar
ófreskjur, ein og ein morðloðna eða
geimmargfætla hefði kannski bjargað
einhverju. Hellafagmaðurinn Frank
er sterkasti karakterinn hér en að
sama skapi er sonur hans Josh hræði-
lega illa leikinn. Tengsl feðganna eru
eins og rauður þráður og eiga alveg
nokkur augnablik. En að öðru leyti er
þetta mikið til froðukennd köfunar-
yfirkeyrsla sem væri best geymd á Dis-
covery. Myndin ætti örugglega ein-
hverja hápunkta á sérsýningu fyrir
skátahreyfinguna. Og þrátt fyrir rosa-
lega flottar köfunarsenur hér kemst
þessi ræma ekki í nágrenni við alvöru
myndir af þeim toga eins og myndir
á borð við Big Blue eftir Luc Besson.
Þessi mynd er nefnilega að reyna að
vera epísk stórmynd og er ekki að
takast það. Þegar myndir eru kynnt-
ar í sömu setningu og nöfn á þekkt-
um leikstjórum/leikurum skiptir það
samt ennþá mestu hver er leikstjór-
inn. Þótt vissulega sé frábært að sjá
svona tilkomumiklar köfunarsenur í
þrívídd þá verður myndin í rauninni
ekkert betri mynd fyrir vikið. Ef þú
gerir lélega mynd og hún er í þrívídd
þá er hún áfram ekkert annað en léleg
mynd í þrívídd. Leiðindi í þrívídd eru
ennþá leiðindi.
LEIÐINDI Í ÞRÍVÍDD
Sanctum
IMDb 5,6 RottenTomatoes 30% Metacritic 42
Aðalhlutverk: Richard Roxburgh, Ioan
Gruffudd, Rhys Wakefield, Alice Parkinson,
Dan Wyllie
Leikstjórn: Alister Grierson
Handrit: John Garvin, Andrew Wight.
103 mínútur
Bíómynd
Erpur
Eyvindarson
The King‘s Speech Helena Bonham Carter, Colin Firth og Geoffrey Rush í hlutverkum
sínum.
The King’s Speech
Leikstjóri: Tom Hooper.
Handrit: David Seidler.
Leikarar: Colin Firth, Geoffrey Rush, Helena
Bonham Carter, Derek Jacobi, Michael
Gambon, Guy Pearce, Timothy Spall.
111 mínútur
Bíómynd
Jón Ingi
Stefánsson