Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2011, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2011, Blaðsíða 2
2 | Fréttir 13. apríl 2011 Miðvikudagur n Sjálfstæðismenn vilja þingrof og kosningar n Útilokað að vantrauststillaga þeirra verði samþykkt n Hluti fram- sóknarmanna vill ekki kosningar nú n Hreyfingin vill ekki ógna störfum stjórnlagaráðs, styður ekki ríkisstjórnina en vill ekki kosningar n Stjórnmálaþátttaka forsetans hefur áhrif á störf þingsins n Málsskotsrétturinn dregur úr vilja þingmanna til að styðja „óvinsælar“ ákvarðanir Takmarkaður áhugi á þingkosningum nú Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur ásamt þingflokki sínum lagt fram van- trauststillögu á ríkisstjórnina. Sjálf- stæðisflokkurinn vill knýja fram þing- rof fyrir 11. maí næstkomandi og að boðað verði til þingkosninga eftir það, eins og tillagan ber með sér. Stjórnar- liðar fagna tillögunni og er ætlunin að taka hana á dagskrá fyrir helgi. Eftir því sem næst verður komist hafði Bjarni ekkert samráð við aðra í stjórnarandstöðunni um stuðning við tillöguna og útilokað er að hún verði samþykkt á þingi að óbreyttu. Líklegt er að Bjarni hafi með van- trauststillögunni viljað skapa sér stöðu innan eigin flokks en hún hefur tvímælalaust veikst til muna eftir að andstæðingar hans innan flokksins höfðu betur í Icesave-atkvæðagreiðsl- unni um síðustu helgi. Sjálfstæðismenn brenndir Margir sjálfstæðismenn í stjórnar- andstöðu telja sig brennda af því að styðja svo stórt og umdeilt mál sem Icesave líkt og meirihluti þing- flokksins gerði við afgreiðslu máls- ins á Alþingi. Í raun og veru hafi Ólaf- ur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, komið málum svo fyrir að stuðningur stjórnarandstöðu við einstök mikil- væg mál ríkisstjórnar og þingmeiri- hluta sé engin trygging fyrir því að málið nái fram að ganga. Forsetinn geti auðveldlega synjað lögum stað- festingar jafnvel þótt þau njóti stuðn- ings mikils meirihluta þingsins líkt og reyndin var með lögin um Icesave- samninginn. Jafnvel þótt Bjarni, for- maður flokksins, hafi þótt sýna kjark og ábyrgð og tekið sér um leið stöðu gegn Davíð Oddssyni og NEI-fylk- ingunni innan flokksins, hafi stuðn- ingur hans við Icesave-samninginn bakað honum mikil vandræði innan flokksins. Lærdómur, sem þingmenn í stjórnarandstöðu draga, er því sá, að of áhættusamt sé að styðja ríkisstjórn og þingmeirihluta í mikilvægum mál- um sem lítt eru fallin til vinsælda. Engar „óvinsælar“ ákvarðanir Í öðru lagi, og þessu skylt, má ætla að kjörnir þingmenn á Alþingi hugsi sig tvisvar um áður en þeir reyna að fylgja eftir og samþykkja mál eða lög á þingi sem lítt eru fallin til vinsælda. For- seti Íslands geti ávallt skýlt sér á bak við bænaskjöl hópa sem mótmæla hvers kyns álögum og ná einhverjum lágmarksfjölda undirskrifta sem far- ið er með á Bessastaði í kastljósi fjöl- miðla. Þar með fallist þinginu hendur við að samþykkja álögur og óvinsælar neyðarráðstafanir. Því er að sjá sem málsskotsréttur forsetans geti breytt Alþingi í afgreiðslustofnun með ein- streymisloka, þar sem sjaldan verði teknar óvinsælar ákvarðanir. Forset- inn geti alltaf átt síðasta orðið og virkj- að óvinsæl mál gegn þinginu og tengt stjórnarskrárbundinn málsskotsrétt sinn við þjóðarvilja og lýðræði. Þingmaður bendir DV á að lausn- in gæti falist í því að þingmeirihlutinn gerði einhvers konar skoðanakönnun meðal kjósenda áður en óvinsæl mál eru afgreidd sem lög frá þingi. Með þeim hætti yrði reynt að fækka þeim átyllum sem forsetinn fengi til að beita málsskotsréttinum. Yrði þetta raunin væri um nýmæli að ræða í störfum þingsins; þingmenn létu ekki lengur stjórnast af sannfæringu sinni í anda laga heldur af niðurstöðum skoðanakannana. Þetta hefur stund- um verið kallað Galluplýðræði. Vð þetta bætist að í raun ber ríkis- stjórnin ábyrgð á stjórnarathöfnum því forsetinn er ábyrgðarlaus sam- kvæmt ákvæðum stjórnarskrár. „For- seti lýðveldisins er ábyrgðarlaus á stjórnarathöfnum. Svo er og um þá, er störfum hans gegna,“ segir í elleftu grein stjórnarskrárinnar. Í þeirri þrett- ándu segir jafnframt að forsetinn láti ráðherra framkvæma vald sitt. Lítil hætta fyrir ríkisstjórnina En hvað um þingmeirihlutann og rík- isstjórnina? Þingmenn Hreyfingarinnar hafa lýst því óbeint að þeir muni verja ríkis- stjórnina falli enda vilji þeir ekki þing- kosningar fyrr en niðurstaða stjórn- lagaráðs liggi fyrir. Í raun er pólitískt líf Hreyfingarinnar að nokkru leyti undir því komið að ekki verð boðað til kosninga nú; óvíst er hvort flokkurinn kæmi manni á þing þegar litið er til kannana á fylgi flokkanna. Ekki þarf að efast um meirihluta- stuðning á Alþingi við að fylgja eftir aðildarumsókn að ESB til enda. Í ESB- málinu nýtur ríkisstjórnin stuðnings 4 til 6 þingmanna úr stjórnarandstöð- unni og gæti stjórnarmeirihlutinn því hæglega komist af með 28 atkvæði stjórnarliða í því máli. Þessi stuðning- ur er mikilvægur og virðist geta enst þar til samningur liggur fyrir og málið verður lagt í dóm þjóðarinnar. Búast má við að fyrir endann sjái í ESB-mál- inu á miðju næsta ári. Vandinn í VG Upp er komin staða sem er býsna snú- in fyrir órólegu deildina svonefndu innan Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Jafnvel þótt 3 til 4 þing- menn yfirgæfu VG til viðbótar Atla Gíslasyni og Lilju Mósesdóttur virð- ist það ekki ógna stöðu ríkisstjórn- arinnar. Sú ráðstöfun þingflokksins að hafa þingflokksformennskuna af Guðfríði Lilju Grétarsdóttur varð til- efni til nokkurra ýfinga og tóku meðal annars Ásmundur Einar Daðason og Ögmundur Jónasson málstað henn- ar opinberlega. Leitt hefur verið í ljós að kjósa átti um stöðu þingflokksfor- manns VG á aðalfundi þingflokksins síðastliðið haust. Það var ekki gert að beiðni Guðfríðar Lilju en þess í stað kosið á fyrsta þingflokksfundi eftir að hún kom úr fæðingarorlofi um síð- ustu helgi. Samkvæmt heimildum DV leggur Samfylkingin afar hart að forystu VG að afgreiða fyrir þinglok í vor frum- varp sem felur í sér frekari fækkun ráðuneyta og stofnun atvinnuvegar- áðuneytis úr þremur öðrum ráðu- neytum. Það merkir nánar tiltekið að Samfylkingin vilji Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra, sem fyrst út úr ríkisstjórninni. Telja samfylkingarmenn að nú sé lag að stjaka Jóni út enda sé hann óþæg- ur ljár í þúfu. Brotthvarf hans mundi ekki skaða ríkisstjórnina, jafnvel þótt hann yfirgæfi þingflokk VG ásamt Ás- mundi Einari. Það er hins vegar ekki auðvelt fyrir Steingrím J. Sigfússon, formann VG, og stuðningsmenn hans að ganga svo hart fram. Þrátt fyrir að nú geti verið lag að „hreinsa til“ og stilla órólegu deildinni upp við vegg þarf VG einnig á því að halda að sýna í verki að innan vébanda flokksins sé rúm fyrir mis- munandi skoðanir. Framsókn bíður átekta Svo er að sjá sem ríkisstjórnin sæki einnig ákveðinn styrk til þingflokks Framsóknarflokksins að því marki sem hann er andvígur þingkosning- um nú. Siv Friðleifsdóttir hefur opinber- lega lýst andstöðu við að efna til þing- kosninga. Kosningar séu ekki það sem þjóðin þurfi á að halda nú enda hafi verið kosið til þings á tveggja ára fresti undanfarin ár. Hún vill fremur að Framsóknarflokkurinn bjóði ríkis- stjórninni stuðning að fullnægðum skilyrðum. Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og ritari hans, kveðst sammála Siv um að þjóð- in þurfi síst af öllu meiri pólitískan óstöðugleika. „Ef við förum beint í kosningar nú, sem er vitanlega lýð- ræðislega leiðin frá óstöðugleikan- um, þá stöðvast allt. Við vitum að þegar efnt er til kosningabaráttu er lögð áhersla á allt annað en að taka erfiðar ákvarðanir. Ég ætla að Siv sé meðal annars að vísa til þessa vanda. Formaður Framsóknarflokksins hef- ur lagt áherslu á þjóðstjórn, að all- ir stjórnmálaflokkar taki höndum saman og vinni sig út úr vandanum. Ef það er ekkert sem hugnast öðrum flokkum þá tel ég tvímælalaust að við eigum að skoða stjórnarþátttöku. Við erum í stjórnmálum til þess að hafa Meirihluti þingsins vill helst ekki þingkosningar nú og vísast er að sú afstaða komi fram þegar greidd verða atkvæði um vantrauststillögu sjálfstæðismanna. Ólíklegt er að þing- menn VG utan þingflokks styðji tillöguna. Miðað við gefnar forsendur gæti tillagan um vantraust fallið með liðlega 30 atkvæðum gegn 16 til 20 og hjásetu 8 til 12 þingmanna. Flokkur Þingstyrkur Styrkur á þingi til að verjast vantrausti Samfylkingin 20 þingmenn 20 þingmenn VG 15 þingmenn 11 þingmenn* (4 hjáseta) Sjálfstæðisflokkur 16 þingmenn -16 Framsóknarflokkurinn 9 þingmenn -5 ** (4 hjáseta) Hreyfingin 3 0 (hjáseta) *Tveir þingmenn VG hafa sagt sig úr þingflokknum. Talan 11 gerir ráð fyrir að 2 þingmenn til viðbótar yfirgefi þingflokkinn. Það jafngildir hins vegar ekki því að 4 VG-þingmenn utan þingflokksins greiði tillögu um van- traust á ríkisstjórnina atkvæði. Ýmsir hagsmunir geta ráðið því að þingmenn vilji ekki efna til þingkosninga en þær yrðu óumflýjanlegar ef ríkisstjórnin getur ekki varist vantrausti. Nefna má að margir núverandi þingmenn eiga á hættu að falla brott af þingi verði efnt til kosninga. **Fáeinir þingmenn Framsóknarflokksins eru ekki frábitnir stjórnarþátttöku að fullnægðum skilyrðum flokksins um breytta stefnuyfirlýsingu nýrrar samsteypustjórnar. Hluti þingflokksins er augljóslega andvígur þingkosningum um þessar mundir og gæti setið hjá. möguleg staða á alþingi Jóhann Hauksson blaðamaður skrifar johannh@dv.is Studdi Icesave og hlaut bágt fyrir Bjarni Benediktsson hefur beðið hnekki innanflokks vegna stuðnings við samninga- leiðina. Staða hans kann þó að vera betri en sýnist í fljótu bragði. Blendin afstaða Framsóknar Eygló Harðardóttir og fleiri þingmenn Fram- sóknarflokksins útiloka ekki stjórnarsam- starf enda sé illt að efna til kosninga nú. En flokkurinn setur skilyrði. „Því er að sjá sem málsskotsréttur forsetans geti breytt Alþingi í afgreiðslustofnun með einstreymisloka.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.