Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2011, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2011, Side 14
14 | Neytendur Umsjón: Gunnhildur Steinarsdóttir gunnhildur@dv.is 13. apríl 2011 Miðvikudagur Vodafone setur þak á netnotkun í farsímum erlendis: Kemur í veg fyrir himinháan reikning „Menn hafa verið að koma heim með himinháa reikninga vegna netnotk- unar í símum sínum erlendis. Þetta hefur verið heilmikið vandamál og margir lent í vandræðum vegna þessa,“ segir Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Vodafone. Fjölmörg dæmi eru um að fólk hafi farið á netið í símanum þegar það er statt erlendis án þess að vera meðvitað um hve dýrt það er. Síma- fyrirtækið hefur nú sett þak, að upp- hæð 50 evrur, á netnotkun í símum alls staðar í heiminum. Fyrirkomu- lagið er hið sama og verið hefur við lýði á EES-svæðinu frá miðju síðasta ári en þá tók gildi tilskipun Evrópu- sambandsins sem skikkar símafyr- irtæki í Evrópu til að vera með slíkt þak. „Þetta var bundið við Evrópu þar til núna um mánaðamótin en þá voru settar þessar nýju reglur hjá fyrirtækinu. Nú verður því lokað á alla okkar viðskiptavini þegar þeir ná þessu þaki. Þeir geta hins veg- ar hringt og hækkað þakið eða af- létt því alveg, ef þeir óska þess. Þá er það alfarið á þeirra eigin ábyrgð,“ segir Hrannar og bætir við að þetta sé spurning um neytendavernd en með þessu sér algjörlega búið að lág- marka þann kostnað sem fylgt getur netvafri í snjallsíma á erlendri grund. Einnig sé þetta hugsað fyrir fyrirtæk- ið því Vodafone hafi engan áhuga á því að framsenda reikninga á fólk upp á mörg hundruð þúsund. Aðspurður hvort síminn geti hlaðið niður efni án þess að eigand- inn viti af því segir hann að svo sé. Dæmi séu um að hægt sé að stilla síma þannig að þeir sæki sjálfkrafa uppfærslu á hugbúnaði eða öðru efni. Ágætis ráð sé að slökkva á öllum slíkum gagnaflutningum þegar fólk ferðast til útlanda. gunnhildur@dv.is Losnaðu við fjölpóstinn Hjá Íslandspósti má fá límmiða til að setja á póstlúgur eða -kassa og afþakka fjölpóst. Pósthúsið sem dreifir einnig slíku efni virðir þessar merkingar. Einfaldast er að fara inn á heimasíðu Íslandspósts og láta senda sér miða. Einnig er hægt að fara á afgreiðslustaði Íslandspósts og fá miða. Þá má líka skrá sig hjá Hagstofunni þannig að óheimilt sé að senda slíkan póst til viðkomandi. Fermingavertíðin er framundan og gera má ráð fyrir því að fjölpósti tengdum fermingum verði dælt inn um lúgur landsmanna á næstunni. Kvartaðu strax Fermingarveislur eru haldnar um allt land þessar vikurnar. Mikilvægt er að hafa nokkur atriði í huga hafi maður ákveðið að fá veisluþjónustu til að sjá um verkið. Á heimasíðu Neyt- endasamtakanna segir að sértu ekki ánægður með þjónustuna skulir þú kvarta strax. Vissulega geti verið óþægilegt að láta vita af óánægju sinni í sjálfri veislunni en það sé þó mikilvægt að gefa fyrirtækinu færi á að bæta fyrir það sem úrskeiðis hafi farið. Heppnist það ekki skuli kvarta skriflega strax eftir veisluna en dugi það ekki til sé hægt að leita til SAF og Neytendasamtakanna. E ld sn ey ti Verð á lítra 238,4 kr. Verð á lítra 242,3 kr. Bensín Dísilolía Verð á lítra 238,1 kr. Verð á lítra 242,1 kr. Verð á lítra 239,8 kr. Verð á lítra 242,3 kr. Verð á lítra 238,0 kr. Verð á lítra 242,0 kr. Verð á lítra 238,1 kr. Verð á lítra 242,1 kr. Verð á lítra 238,4 kr. Verð á lítra 242,3 kr. xxx xxx xxx xxx xxx xxx Frábær þjónusta n Lofið að þessu sinni fær verk- stæði Poulsen í Skeifunni. „Ég lenti í því að hliðarrúða sprakk í bíln- um mínum og leitaði til Poulsen. Ég spurði hvort þeir ættu rúðu handa mér og fékk þau svör að þeir myndu redda því. Þeir færu strax í málið og myndu klára það samdæg- urs. Auk þess myndu þeir ryksuga upp öll glerbrotin og koma viðeigandi pappírum til tryggingarfélagsins. Ég þurfti ekki að gera neitt og þetta kalla ég sko góða þjónustu,“ sagði viðskiptavinurinn ánægður. Mismunun í vínbúðum n Íbúi í miðbæ Reykjavíkur vildi fá að koma eftirfarandi athugasemd á framfæri. „Mér finnst að með því að selja ekki kaldan bjór eða léttvín í Vínbúðinni í Austurstræti sé verið að mismuna íbúum borgarinnar eftir hverfum. Af hverju mega íbúar miðbæjarins ekki kaupa sér kaldan bjór? Í þessu samhengi má einnig benda á opn- unartíma verslananna en hann er ekki sá sami alls staðar í bænum,“ skrifaði maðurinn. SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS LOF&LAST Símareikningur Það getur verið dýrt að fara á netið í símanum erlendis. MYND ERIK HERSMAN Góu lakkrísegg hefur vinninginn í páskaeggjasmökkun DV þetta árið en þetta er niðurstaða dómnefnd- ar sem fengin var til að skera úr um hvaða páskaegg sé það besta á mark- aðnum í ár. Dómnefndina skipuðu Lilja Katrín Gunnarsdóttir leikkona sem fer með aðalhlutverkið í þátt- unum Makalaus, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins, Úlfar Finnbjörns- son matreiðslumaður og Kristjana Guðbrandsdóttir, blaðamaður á DV. Þorbjörg Helga og Lilja Katrín höfðu dætur sínar, Ólöfu Stefaníu og Ame- líu Björk, með sem sérlega aðstoðar- menn. Átta tegundir frá þremur framleiðendum Keypt voru átta tegundir af eggjum frá þremur framleiðendum: Góu fígúru egg, Góu lakkrísegg, Nóa Sírí- us páskaegg, Nóa Síríus lakkrísegg, Nóa Síríus karamellukurlsegg, Sír- íus Konsúmegg, Freyju páskaegg og Freyju Rísegg. Hvorki voru tekin með í smökkunina egg sem seld eru í bakaríum né þau egg sem eru án mjólkur eða sykurs. Dómarar smökkuðu á hverju eggi fyrir sig án þess að vita hvaða egg var um að ræða. Skráðu þeir niður athugasemdir auk einkunnar. Ein- kunnagjöfin var frá einum upp í tíu og meðaleinkunn hvers eggs var svo fundin og stendur eggið með hæstu meðaleinkunn uppi sem sigurvegari. Í ár er það Góu lakkrísegg, eins og áður segir. Nóa Síríus lakkrísegg og Konsúmeggið frá Nóa lentu í öðru til þriðja sæti en í fjórða sæti lenti Nóa Síríus karamellueggið. Innihald eggjanna var ekki dæmt þar sem sælgætið sem þar er að finna er flest merkt framleiðanda eða vel þekkjanlegt af útliti og hefði það því getað sagt dómurum til um hvaða egg var um að ræða. Of sæt Dómarar voru sammála um að egg- in væru helst til sæt og hafði Þor- björg orð á því að hún hefði gefið þeim eggjum lága einkunn þar sem sætindum, svo sem lakkrís og kara- mellu, hafði verið bætt í súkkulaðið. „Þá er þetta bara orðið of mikið.“ Hún bætti við að henni fyndist að fólk mætti gera kröfur um egg með minni sykri. Þorbjörg og Úlfar gátu sér til um að það hefði líklega með aldur- inn að gera en eins Úlfar komst að orði þá hefur honum fundist dökkt súkkulaði æ betra eftir því sem hann eldist. Dómararnir voru þó allir á því að dökka súkkulaðieggið frá Nóa Sírí us stæðist ekki væntingar. „Það er of sætt og er ekki gott dökkt súkku- laði. Ég hélt að það væri betra af útlit- inu að dæma,“ sagði Úlfar. Kristjana og Lilja voru báðar hrifnar af eggjun- um með hrís og karamellu en voru hræddar um að geta ekki borðað heilt egg. Það væri of mikið af sykri í egginu til þess. Lilja sagði að á heild- ina litið fyndist henni súkkulaðið í eggjunum ekki nógu gott. „Maður er að gera gott við sig á páskunum og sukka svolítið og því er leiðinlegt að fá súkkulaði sem er ekki nógu gott.“ Það var sem sagt Góueggið með lakkrís sem kom best út og var það nær einróma skoðun dómara að súkkulaði og lakkrís væri himnesk blanda. Góu lakkrísegg Kristjana: „Töfrasamsetning, súkku- laði og lakkrís. Ég er hrifnust af þessu eggi. Spurning um að skella sér á það.“ Lilja Katrín: „Rosaleg saðsamt, mað- ur fær mikið fyrir peninginn. Sam- einar uppáhaldsveikleika mína – súkkulaði og lakkrís. Afbragðs súkkulaði í þessu.“ Þorbjörg Helga: „Þarf ekki mikið nammi inni í miðju, er bara eins og nammistöng.“ Úlfar: „Hellingur af lakkrís.“ Meðaleinkunn: 7,25 Nói Síríus páskaegg Kristjana: „Sætt, aðeins of sætt. Bragðið minnir nú samt óneitanlega á ofát og sykurvímu barnæskunnar.“ Lilja Katrín: Voðalega „plein“ og hefðbundið páskaegg. Engir flug- eldar en minnir mann á gömlu góðu dagana þegar ekki var hægt að velja úr milljón tegundum.“ Þorbjörg Helga: „Vantar meira súkku laðibragð; mjög mikil mjólk og sykur.“ Úlfar: „Lítið varið í það.“ Meðaleinkunn: 5,5 Freyju páskaegg Kristjana: „Mikið mjólkurbragð, lítið kakóbragð. Er þetta súkkulaði?“ Lilja Katrín: „Alls ekki hrifin af þessu. Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is n Leikkona, kokkur, borgarfulltrúi og blaðamaður völdu egg ársins í páska­ eggjasmökkun DV n Smakkaðar voru átta tegundir af eggjum n Dökka súkku­ laðið stóðst ekki væntingar dómara sem höfðu bundið miklar vonir við það Lakkríseggið frá Góu best Greindur nærri getur, reyndur veit þó betur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.