Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2011, Síða 29
Fólk | 29Miðvikudagur 13. apríl 2011
Endurnærir og hreinsar ristilinn
allir dásama OXYTARM
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
30+
Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is
OXYTARM
Sól og
heilsa ehf
=
Losnið við hættulega
kviðfitu og komið maganum
í lag með því að nota náttúrulyfin
Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur
days
detox
M ín stærstu mistök voru að ánetjast kókaíni,“ segir leikarinn Dennis Quaid um sína mestu
eftirsjá í lífinu í viðtali við News-
week. Quaid segist hafa ánetjast
fíkniefninu þegar hann hætti í skóla
og kom til Los Angeles árið 1974. „Í
byrjun var þetta mjög afslappað og
fólk fékk sér í öllum partíum. Kókaín
var meira að segja tekið með í fjár-
hagsáætlanir kvikmynda og ekki
haft mikið fyrir því að fela það. Í stað
þess að fá sér kokteil fékk fólk sér
línu. Þetta þótti svo sjálfsagt og það
var svo lúmskt hvernig þetta læddist
aftan að öllum.“
Quaid segist ekki hafa ráðið vel
við frægðina í fyrstu og að neysla
hans hafi versnað og versnað. „Líf
mitt var að hrynja í sundur og ég
vissi það. Ég óskaði þess bara að
enginn annar tæki eftir því.“ Þegar
komið var fram á síðari hluta níunda
áratugarins var Quaid illa haldinn.
„Ég var í rusli. Ég svaf klukkutíma
á sólarhring. Ég var með orð á mér
fyrir að vera harðjaxl sem ég hélt að
væri gott en í raun var ég bara með
hausinn uppi í rassgatinu á mér.
Þegar ég vaknaði fékk ég mér línu og
sór svo að gera það aldrei aftur.“
Á endanum fór Quaid í með-
ferð og eyddi stórum hluta tíunda
áratugarins í að jafna sig og vinna í
sjálfum sér. „Það tímabil gerði mig
að manni. Ég veit ekki hvort ég væri
ennþá að leika ef ég hefði ekki geng-
ið í gegnum það.“
Sér meSt eftir
kókaíninu
Dennis Quaid „Mín
stærstu mistök voru að
ánetjast kókaíni.“
Dennis Quaid segir eiturlyf hafa verið part af fjárhagsáætlun kvikmynda:
Jennifer Aniston opnaði sig í nýlegu viðtali við breska tímaritið Red um allt frá vinum sínum til þeirra sem hún vill vera í sambandi með. Við-talið var hluti af kynningarherferð leikkonunnar
vegna nýs ilmvatns sem hún hefur sent frá sér en hún
ræddi engu að síður um hversu erfitt það væri að fara á
stefnumót í Hollywood. „Maður verður að reyna að gera
þetta venjulegt! Annars myndi maður deyja,“ segir hún en
upplýsir að hún sé ekki mikið fyrir stefnumót. „Ég borða
kannski með vini mínum og um leið eru allir farnir að gera
að því skóna að þetta sé nýi maðurinn minn. Fjölmiðla-
fulltrúinn hringir stanslaust til að spyrja
hvort og þá með hverjum maður var að
borða,“ segir stjarnan.
Jennifer gantaðist einnig með þrýsting-
inn sem hún er undir hvað varðar barn-
eignir en blaðamaðurinn sem tók viðtalið
stakk þá upp á því að hún hlypist á brott
með eina manninum sem væri undir sömu
pressu og hún um að vera í föstu sambandi
og eignast börn, George Clooney. Aniston
og Clooney hafa þekkst um langt skeið en
hann er einn af betri vinum fyrrverandi
eiginmanns hennar, Brads Pitt. „Það myndi
klárlega þagga niður í öllum! Ég gæti hringt
í George og sagt: „Ástin, stingum bara af,
giftum okkur og eignumst börn…“ Ég ætti
að bjóða George í mat þar sem við getum
planað þetta… Ha? Eða kannski ekki,“ sagði
Aniston.
Aniston og Clooney
saman?
Jennifer Aniston opnar sig:
Næsti maður Aniston? „Ég ætti
að bjóða George í mat þar sem við
getum planað þetta…“ sagði Aniston
um Clooney. MyND ReuteRs
Mikil pressa Jennifer Aniston
segir mikinn þrýsting á sér um að
vera í sambandi og að eignast börn.
MyND ReuteRs
O
furskvísan Kim Kardashian
segist eiga erfitt með að
finna jafnvægið á milli æf-
inga og mataræðis. Því meira
sem hún æfir því svengri verður hún
og borðar þar af leiðandi meira. „Af
hverju er það þannig að því meira
sem ég æfi því svengri verð ég?“
skrifaði fyrirsætan á Twitter-síðu
sína.
Kim dvelur þessa dagana í
New York þar sem hún tekur
upp nýjustu raunveruleika-
þáttaröð sína ásamt systur
sinni Kourtney. Þáttaröðin
heitir Kourtney and Kim Take
New York og er sú þriðja sem
Kim og fjölskylda standa að.
alltaf
svöng
Kim Kardashian leitar að jafnvægi:
Kim Kardashian Hugsar
mikið um línurnar. MyND ReuteRs
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur