Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2011, Síða 6
6 | Fréttir 16. maí 2011 Mánudagur
Góðir skór - gott verð
Mikið úrval af nýrri vöru á alla fjölskylduna
Opið virka
daga 11-18
laugardag
11-16
Takkaskór
besta verði
ð
í bænum ?
Stærðir 31-46
kr. 5.495.-
www.xena.is
Grensásvegur 8 - Nýbýlavegur 12 - Sími 517 2040
SKÓMARKAÐUR
Fyrrverandi eigendur móðurfélags
rekstrarfélags Bang & Olufsen á Ís-
landi, Næstu aldamót ehf. sem úr-
skurðað var gjaldþrota í Héraðsdómi
Reykjavíkur í apríl, hafa stofnað ann-
að eignarhaldsfélag sem er skráð til
heimilis á sama stað og Bang & Oluf-
sen-búðin var rekin áður en hún fór
í þrot. Bang & Olufsen-búðin var um
árabil rekin í Síðumúla 21 en henni
hefur nú verið lokað vegna gjald-
þrots móðurfélagsins, líkt og DV
greindi frá síðastliðinn miðvikudag.
Nýja einkahlutafélagið heitir Al-
menna verslunarfélagið ehf. og var
stofnað í febrúar síðastliðnum, sam-
kvæmt gögnum frá Lánstrausti.
Haldinn var stjórnarfundur í félaginu
þann 23. febrúar. Tilgangur nýja
einkahlutafélagsins er sagður vera:
„Heildverslun með heimilistæki, út-
vörp, sjónvörp og tengdar vörur,“ en
þetta eru einmitt vörur sem danska
raftækjafyrirtækið hefur sérhæft sig í
að framleiða.“
Skyldmenni og stofnendur
í stjórn
Þeir sem sitja sitja í stjórn nýja félags-
ins eru meðal annars tvö af börnum
fyrrverandi eigenda Næstu aldamóta
ehf., þeirra Aðalsteins Karlssonar og
Bjarna Óskarssonar. Þriðji stjórnar-
maðurinn heitir Jón Helgi Sen Er-
lendsson en ekki er vitað hvort eða
hvernig hann tengist þeim Aðalsteini
eða Bjarna.
Þessir sömu aðilar, auk sonar Að-
alsteins, eru skráðir sem stofnendur
einkahlutafélagsins. Framkvæmda-
stjórn og prókúruumboð er í hönd-
um sonar Bjarna Óskarssonar, Sigur-
gísla Bjarnasonar.
Stofnun einkahlutafélagsins á
þessum tíma og aðkoma niðja fyrri
eigenda Bang & Olufsen að hinu
nýja einkahlutafélagi, auk heimilda
sem DV hefur, bendir til að fyrrver-
andi eigendur Næstu aldamóta ehf.
og núverandi eigendur Almenna
verslunarfélagsins ehf. ætli sér að
opna Bang & Olufsen-búðina aftur
á nýrri kennitölu í kjölfar gjaldþrots
móðurfélags verslunarinnar. Annað
sem rennir stoðum undir þetta er að
greint var frá því í Fréttablaðinu um
miðjan mars síðastliðinn að verið
væri að endurbæta húsnæðið og að
til stæði að opna Bang & Olufsen-
verslunina aftur um mánaðamót-
in mars-apríl. Það sem gerðist eftir
þetta var að móðurfélag verslunar-
innar var úrskurðað gjaldþrota.
DV hefur gert árangurslausar til-
raunir til að ná í Sigurgísla til að ræða
við hann um gjaldþrot Næstu alda-
móta og framtíð Bang & Olufsen á
Íslandi. Blaðið hefur meðal annars
skilið eftir skilaboð til Sigurgísla en
hann hefur ekki haft samband.
Umboðið fyrir Bang & Olufsen
DV spurði Óskar Tómasson, fyrr-
verandi forstjóra Bang & Olufsen-
verslunarinnar og einn af fyrrver-
andi eigendum hennar, að því í
síðustu viku hvort einhver væri með
umboð fyrir Bang & Olufsen á Ís-
landi. Ástæðan fyrir fyrirspurn DV
var sú að blaðið hafði heimildir fyr-
ir því að Aðalsteinn Karlsson væri
með umboð fyrir Bang & Olufsen á
Íslandi og gæti því opnað nýja Bang
& Olufsen-verslun á nýrri kenni-
tölu. Óskar svaraði þessari spurn-
ingu DV hins vegar neitandi: „Ein-
hver einstaklingar með umboðið?...
Eru einhver einkaumboð til í dag?“
sagði Aðalsteinn og bætti við að
slíkt væri ekki heimilt lögum sam-
kvæmt.
Bang & Olufsen-búðina virð-
ist þó eiga að opna aftur þrátt fyrir
gjaldþrotið þannig að einhver virð-
ist vera með umboðið hér á landi.
360 milljóna skuldir
Líkt og DV greindi frá í síðustu viku
voru skuldir Næstu aldamóta ehf.
komnar upp í nærri 326 milljónir
króna í árslok 2009 og var eigið fé
félagsins neikvætt um rúmlega 225
milljónir króna. Svo virðist sem
félagið hafi stofnað til meirihluta
þessara skulda árið 2007 eftir að
eignarhaldið á Bang & Olufsen-
búðinni var fært yfir í félagið Næstu
aldamót ehf. Þá var viðskiptavild
félagsins færð upp í um 250 millj-
ónir króna. Svo virðist sem Næstu
aldamót hafi fengið lán út á þessa
miklu viðskiptavild. Heimildir DV
herma að þessi lán hafi verið við
Byr en það hefur ekki fengist stað-
fest. Út frá ársreikningum Næstu
aldamóta liggur ekki fyllilega ljóst
fyrir í hvað umrædd lán sem fé-
lagið fékk voru notuð.
Stofna nýtt félag í
Skugga gjaldþrotS
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Enginn Guðmundur Miðað við hluta-
félagaskrá Almenna verslunarfélagsins er
Guðmundur Birgisson, kenndur við Núpa
í Ölfusi, ekki meðal hluthafa félagsins.
Hann átti hins vegar hlut í félaginu Næstu
aldamótum sem var úrskurðað gjaldþrota
fyrir skömmu.
n Ættingjar fyrrverandi eigenda sitja í stjórn nýja félagsins n Nærri
330 milljóna skuldir í gjaldþrota félagi sem átti Bang & Olufsen
„Heild-
versl-
un með heim-
ilistæki, útvörp,
sjónvörp og
tengdar vörur.Nýtt félag Nýtt félag hefur verið stofnað í Síðumúla 21 þar
sem Bang & Olufsen hefur verið
til húsa. Búðin hefur verið lokuð
vegna gjaldþrots móðurfélagsins
en verður opnuð aftur á næstunni
að sögn aðstandenda búðarinnar.
Útvarpsstöðin Kaninn, sem er í eigu
Einars Bárðarsonar, er á barmi gjald-
þrots eftir að Landsbankinn felldi nið-
ur yfirdrátt rekstrarfélags stöðvarinnar
ÚÍ1 ehf. Í kjölfarið hefur Einar brugðið
á það ráð að færa tæki og tól rekstrar-
félagsins yfir í annað félag sem heit-
ir Skeifan 7 eignarhald ehf. Skeifan 7
tekur við skuldbindingum ÚÍ1 gagn-
vart starfsfólki Kanans og verður starf-
semi stöðvarinnar haldið áfram með
óbreyttu sniði.
Einar segir að þetta hafi verið gert
til bjarga störfum starfsmanna Kanans
og viðhalda samkeppni. „Eina leiðin til
að bjarga störfum starfsmanna og við-
halda samkeppni á fjölmiðlamarkaði.
Óskiljanleg harka í aðgerðum bank-
ans,“ segir Einar.
Eins og heyrist á Einari er hann afar
ósáttur við það sem hann kallar hörku
Landsbankans í málinu. Forsaga máls-
ins er sú að rekstrarfélag Kanans átti í
viðskiptum við Sparisjóð Keflavíkur
en sjóðurinn var tekinn yfir af Lands-
bankanum fyrir skömmu. Við yfirtök-
una færðust viðskipti Kanans yfir til
Landsbankans. Einar segir að sam-
skipti Kanans við viðskiptabanka sinn
hafi versnað umtalsvert eftir þetta.
Hann segir að þessi samskipti hafi
endað með því að Landsbankinn felldi
niður yfirdrátt ÚÍ1 og „kæfði þannig
líflínu rekstursins fyrirvaralaust og án
þess að fyrir því væru færð gild rök.“
Einar segist ætla að leita nauða-
samninga fyrir hönd ÚÍ1. Takist það
ekki verði félagið að öllum líkindum
gefið upp til gjaldþrotaskipta.
ingi@dv.is
Landsbankinn hætti fyrirgreiðslu til Kanans:
Kaninn á barmi gjaldþrots
Nýtt rekstrarfélag
Útvarpsstöðin Kaninn, sem
er í eigu Einars Bárðarsonar,
á í rekstrarerfiðleikum. Einar
segir Landsbankann hafa
verið afar aðgangsharðan.
Snjóbræðslulögn
sprakk
Fram kom á fréttavef mbl.is á sunnu-
dagskvöld að slökkvilið hafi verið kall-
að út á skemmtistaðinn B5 í Banka-
stræti vegna vatnsleka eftir að vatnsrör
sprakk. Um 20 til 30 sentimetra vatns-
borð var í kjallara veitingastaðarins
og dældi slökkvilið vatninu út. Þrátt
fyrir mikinn vatnsflaum urðu engar
skemmdir. Í fyrstu reyndist slökkviliði
erfitt að átta sig á upptökum lekans,
samkvæmt mbl.is, en talið er líklegt að
snjóbræðslulögn hafi farið í sund-
ur með þeim afleiðingum að vatnið
flæddi inn í kjallarann.
Sigmundur
selur húsið
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, for-
maður Framsóknarflokksins, hefur
sett hús sitt við Lokastíg á sölu en það
er fasteignasalan Stakfell sem hefur
umsjón með sölunni. Húsið, sem
er í hjarta borgarinnar, er einstak-
lega notalegt einbýlishús á þremur
hæðum, samkvæmt auglýsingunni.
Þar segir einnig að það
sé nýlega endurnýjað á
smekklegan og fallegan
hátt þar sem karakt-
er hússins fái að njóta
sín. DV er ekki kunnugt
hvort formaðurinn hafi
nú þegar fundið
sér nýtt heimili
og sé fluttur úr
húsinu.
Tíundi hver heim-
sótti Hörpu
Nærri lætur að tíundi hver Ís-
lendingur hafi farið á opnun-
arhátíð Hörpu sem haldin var um
helgina. Vísir greinir frá því að um
32 þúsund manns hafi komið í
húsið á hátíðina en á meðal þeirra
eru margir af helstu fyrirmönn-
um þjóðarinnar. Þeim var boðið
til opnunarinnar á föstudaginn. Á
laugardag og sunnudag var húsið
svo opið almenningi. Tónleikar
voru haldnir um allt hús en á þá
þurfti fólk ekki að greiða aðgangs-
eyri. Þess má geta að slökkviliðs-
og sjúkraflutningamenn stóðu
vaktina við húsið alla helgina.