Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2011, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2011, Síða 12
12 | Fréttir 16. maí 2011 Mánudagur Ríkharð Ríkharðsson, leiðtogi mót- orhjólasamtakanna Black Pistons, er annar mannanna sem hand- teknir voru í aðgerð sérsveitar ríkislögreglustjóra í síðustu viku. Hann ásamt öðrum manni, Davíð Frey Rúnarssyni, er grunaður um frelsissviptingu og líkamsárás gegn manni sem einnig tengist mótor- hjólaklúbbnum. Fimmtán tíma barsmíðar Fórnarlambinu var haldið föngnu í um 15 tíma en á þeim tíma þurfti það að þola ítrekaðar barsmíðar. Maðurinn var með áverka víða um líkamann en hann var meðal ann- ars nefbrotinn. Hann komst und- an þegar Ríkharð og Davíð fluttu hann á milli staða í bíl en lögregl- una grunar að árásirnar hafi átt sér stað á fleiri en einum stað. Samkvæmt heimildum DV á málið rætur sínar að rekja til fíkni- efnaskuldar sem maðurinn, sem varð fyrir árásinni, stofnaði til við menn sem tengjast öðrum undir- heimasamtökum. Þetta hefur ekki fengist staðfest hjá lögreglunni sem hefur þó staðfest að mennirnir tengist allir þrír Black Pistons. „Þetta er bræðralag“ Í samtali við DV 11. mars síðastlið- inn lýsti Ríkharð Black Pistons sem bræðralagi. „Í stuttu máli eru þetta bara góðir vinir, þetta er bræðra- lag sem passar upp á félaga sína og fjölskyldur þeirra,“ sagði Rík- harð um klúbbinn. DV birti þann 8. mars brot úr skýrslu lögregl- unnar þar sem kom fram að lög- reglan óttaðist mjög átök á milli ís- lenskra undirheimahópa, en Black Pistons-samtökin voru þar sérstak- lega nefnd. Black Pistons eru stuðnings- samtök alþjóðlegu mótorhjóla- samtakanna Outlaws og er Rík- harð sjálfur opinber stuðningsaðili Outlaws. Hann stofnaði Black Pistons-samtökin hér á landi í sam- vinnu við frænda sinn Jón Trausta Lúthersson, sem var leiðtogi Fáfnis áður en sá klúbbur gekk til liðs við Hells Angels. Fjölgað hefur hratt í samtökum Ríkharðs en mótor- hjólaklúbburinn Berserkir gengu til liðs við þau fyrir stuttu. Tæplega 20 manns eru meðlimir í samtök- unum, að mati lögreglu. Sat 85 daga í gæsluvarðhaldi Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Rík- harð kemst í kast við lögin. Hann var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að kveikja í húsi við Kleppsveg, í fé- lagi við annan mann, þar sem þriðji maðurinn var staddur innandyra. Ríkharð hefur einnig sagt að hann sé reiðubúinn að grípa til ofbeldis verði hann eða Black Pistons fyrir árásum. Áður en dómur féll hafði Ríkharð set- ið í 85 daga gæsluvarðhaldi. Í dómnum kemur fram að Rík- harð og félagi hans hafi verið undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Félag- arnir notuðu bensín úr garðsláttuvél sem var við húsið sem eldsneyti til að kveikja í hurð hússins. Ríkharð neit- aði sök en sannað þótti að hann hefði átt þátt í íkveikjunni. „ Í stuttu máli eru þetta bara góðir vinir, þetta er bræðralag sem passar upp á félaga sína og fjölskyldur þeirra. Leiðtogi BLack Pistons í gæsLu- varðhaLdi n Ríkharð Júlíus Ríkharðsson leiðtogi Black Pistons er í gæsluvarðhaldi vegna líkamsárásar n Maðurinn sem varð fyrir árásinni var sviptur frelsi í um 15 tíma n Vísir að átökum sem lögreglan hefur óttast um nokkurt skeið Leiðtogi Black Pistons Allir mennirnir sem aðild eiga að málinu tengjast Black Pistons. Ríkharð er annar mannanna sem grunaðir eru um árásina en hann er leiðtogi Black Pistons. Sigurður Stefánsson í Aratúni: Hlaut 45 daga dóm Atvinnubílstjórinn Sigurður Stefáns- son var, ásamt syni sínum Stefáni Ágústi Sigurðssyni, dæmdur fyrir líkamsárás í Héraðsdómi Reykja- ness síðastliðinn þriðjudag. Hann var dæmdur í 45 daga fangelsi en sleppur við vistina haldi hann skil- orð næstu tvö árin. Stefán var dæmdur í 30 daga fangelsi skilorðsbundið. Af fram- burði vitna þótti sannað að Sigurður hefði skallað starfsmann Fjarðarkaupa, Karl Márus Jónasson, í andlitið og í framhaldinu ráðist á annan mann sem varð vitni að atburðinum, slegið hann í hnakkann og hent honum í jörðina, fyrir utan Fjarðarkaup árið 2009. Þá þótti sannað að sonur hans hefði tekið Karl og snúið hann niður í jörðina. Í vitnisburði starfsmanns Fjarðarkaupa kom fram að hann hefði ætlað að stöðva eiginkonu Sig- urðar þegar hún var á leið út úr búð- inni þar sem hann hefði séð hana stinga geisladiskum í veski sitt. Sig- urður hefði svo skallað hann þegar hann reyndi að ná tali af konunni. Vitni að atburðinum reyndi að koma starfsmanninum til hjálpar. Í dóm- skjölum segir að í framhaldinu hafi Sigurður ráðist á vitnið, rifið í hár þess, slegið það í hnakkann og hent í jörðina, með þeim afleiðingum að vitnið fékk kúlu á hnakkann. Ingvar lagði einnig fram kæru á hendur feðgunum vegna líkamsárásar á bif- reiðastæðinu fyrir framan Fjarðar- kaup. Frásögn feðganna af árásinni var hins vegar allt önnur en vitna. DV hefur áður fjallað um feðgana og fjölskylduna í Aratúni í Garðabæ en frægt varð þegar fyrrverandi ná- grannar þeirra, Brynja Arnardóttir Scheving og Karl Jóhann Guðsteins- son, sökuðu meðlimi fjölskyldunnar um meint ofbeldi og áreiti í fyrra- sumar. Báðir aðilar kærðu líkams- meiðingar og hótanir en ríkissak- sóknari hefur látið málið niður falla. Brynja og fjölskylda flúðu að eig- in sögn húsið sitt í Aratúni í kjölfar málsins og leigja þau það ennþá út. Þau íhuga nú í samráði við lögfræð- ing að höfða einkamál. jonbjarki@dv.is Fjarðarkaup Ríkharð um starfsemi Black Pistons: „Stoppa níðingsskap“ Ríkharð Ríkharðsson, foringi Black Pistons, sagði í samtali við DV, aðspurður um tilurð klúbbsins, að hann væri alls ekki stofnaður til höfuðs Hells Ang- els. „Við Jón Trausti [Lúthersson, innsk. blm.] erum bestu vinir og frændur. Þetta er bara eitthvað sem við erum að gera saman. Hitt [Hells Angels, innsk. blm.] var ekki heillandi fyrir mig að vera í – því þar gengur fjölskyldan ekki fyrir,“ segir hann. Spurður um starfsemi Black Pistons sagði hann meðlimi samtakanna hjálpa hver öðrum. „Ef einhver okkar lendir í vandræðum; fjárhagslega eða hvað sem er, þá erum við til staðar fyrir hann.“ Aðspurður hvort ástæðan fyrir því að hann leiti í svona félagsskap sé að hann sé flæktur í eitthvað misjafnt sagði hann það ekki vera. „Ég veit ekki hvernig ég á að orða þetta en ef eitthvað kemur upp á, þá erum við tilbúnir,“ sagði hann. Ríkharð sagði ennfremur að meðlimir samtakanna einblíndu ekkert á ofbeldi en þeir væru „tilbúnir“ til að beita því: „Við bara stöndum saman, sama hvað það er.“ Hann tók sérstaklega fram að alls ekki væri ástæða til að líta MC Black Pistons hornauga. „Mikið af því sem kemur inn á borð til okkar er eitthvað sem lögreglan hefur vísað frá eða treystir sér ekki í; níðingsskapur sem þarf að stoppa og svoleiðis – fólk leitar til okkar,“ sagði Ríkharð en á honum mátti skilja að meðlimir Black Pistons ynnu í vissum skilningi góðverk. Í gæsluvarðhaldi Ríkharð og Davíð hafa báðir verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna málsins. Stefan Örn er Svíi Margir Íslendingar ráku upp stór augu þegar þeir sáu að einn af höf- undum sigurlags Eurovison heitir Stefan Örn. Af nafninu mátti ætla að um Íslending væri að ræða. Það voru ekki einungis Íslendingar sem héldu að lagahöfundurinn væri íslensk- ur. Liðsmaður Buffsins, Stefán Örn Gunnlaugsson, sem DV hefur fengið ábendingar um að sé höfundur lags- ins, greindi frá því á Facebook-síðu sinni að hann hefði verið beðinn um að semja lag fyrir Armeníu þar sem einn erlendra Facebook-vina hans héldi að hann væri umræddur laga- höfundur. Hið rétt er að Stefan Örn er sænskur. Skoða stöðuna Brynja og Karl íhuga að höfða einkamál.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.