Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2011, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2011, Page 15
Neytendur | 15Mánudagur 16. maí 2011 Blóm jurtarinnar eru notuð til lækninga jafnt innvortis sem útvortis: Kynngikraftur morgunfrúarinnar Fljótlega fer fólk að hefjast handa við að skreyta garða sína með sumar­ blómum en þau eru mikil garða­ prýði. Hin vinsæla morgunfrú er þó meira en bara skraut í garðinn þar sem hún býr yfir kynngikrafti sem nýttur er á ýmsa vegu. Á nattura.is er vitnað í bókina Íslenskar lækn­ ingajurtir eftir Arnbjörgu Lindu Jó­ hannsdóttur grasalækni en þar segir svo um notkun morgunfrúar: „Morg­ unfrú er góð við bólgu og særindum í meltingarfærum, eitlum og vessa­ kerfi. Blómin eru notuð fyrir og eftir uppskurð á krabbameinsæxlum til að varna útbreiðslu krabbameins­ ins. Morgunfrú hefur mikið ver­ ið rannsökuð vegna áhrifa hennar gegn sveppasýkingu og hún er tal­ in mjög góð við þruskusveppasýk­ ingu, jafnt innvortis sem útvortis. Út­ vortis er morgunfrú notuð í skol, við særindum og bólgu í munni, hálsi og leggöngum. Smyrsl gert úr blómun­ um er gott við alls kyns exemi og út­ brotum á húð. Stílar úr blómunum eru góðir við gyllinæð og öðrum sær­ indum í endaþarmi.“ Á síðunni segir einnig að sem dæmi um notkun jurtarinnar megi nefna að náttúrulegu snyrtivörurnar frá Dr. Hauschka og Tær Icelandic innihalda meðal annars morgunfrú í hreinsikreminu Gesichtswaschc­ reme frá Dr. Hauschka og í krem­ inu  Active Firming Serum frá Tær, sem er djúpnæring fyrir andlitshúð­ ina. Morgunfrúin geti einnig fælt lýs frá tómatplöntum, sem gott er að vita fyrir þá sem rækta tómata í glugg­ anum hjá sér eða úti í gróðurskýli/­ húsi. gunnhildur@dv.is Þrífðu grillið með lauk Það eru til ýmsar leiðir til að þrífa grillið og aukahluti þess og eitt gott ráð til að hreinsa grindina án hreinsiefna er að nota lauk. Skerið laukinn í tvennt og notið þann hluta lauksins þar sem hann var skorinn til að nudda grindina. Hita þarf grillið áður en þrifin hefjast. Laukurinn þrífur auðveldlega af harða fitu og önnur óhreinindi sem festast við grindina. Þetta er náttúruleg og vistvæn leið við að þrífa grillið auk þess að vera hagkvæm. Þá er bara að vona að þér líki lyktin af lauk. Frystu glerkrukkurnar Við kaupum ýmis mat- væli í glerkrukkum sem sniðugt er að geyma og nota undir ýmsa hluti. Það getur hins vegar verið erfitt að ná úr þeim lyktinni af matvælunum sem upphaflega voru í krukkunni, svo sem síld, kavíar eða súrum gúrkum. Ráð við því er að þrífa krukkurnar vel eftir notkun. Því næst skal setja bæði krukkurnar og lokin í frysti en degi síðar eru bæði bakteríur og vonda lyktin úr sögunni. Þá eru þær tilbúnar til brúks aftur, hvort sem það er undir heimagerðu sultuna eða sem geymsla undir smáhluti. Aldur eggja mældur Það getur verið erfitt að vera viss um hvort eggin í ísskápnum séu nýkeypt eða hvort þau séu búin að vera þar lengi. Sérstaklega ef fólk tekur þau úr bakkanum og setur þau í þartil­ gerðan bakka sem fylgir ísskápnum. Á matarkarfan.is er sagt frá aðferð til að ganga úr skugga um ferskleika eggjanna. Byrja skal á því að setja hrátt egg í glas með köldu vatni. Al­ veg ný egg sökkva niður á botn og leggjast á hlið. Þegar þau eru um vikugömul rétta þau sig við. Um þriggja vikna gömul egg fljóta upp að yfirborði. Innköllun á suðu- súkkulaði Sælgætisgerðin Nói Síríus hefur í samráði við matvælaeftirlit Heil­ brigðiseftirlits Reykjavíkur innkallað Síríus Konsum suðusúkkulaðidropa og Síríus Konsum suðusúkkulaðis­ pæni þar sem ofnæmis­ og óþols­ valdar voru ekki nægjanlega vel merktir á umbúðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Vörurnar fást í matvöruversl­ unum og hefur aðallega verið dreift á markað á bökunartímabilinu fyrir jól. Ekki er því að búast við að mikið magn sé á markaði þó að vörurnar fá­ ist víða. Hafist hefur verið handa við að taka þessar vörur tilbaka úr versl­ unum og dreifing hefur enn fremur verið stöðvuð uns endurmerkingu á umbúðunum er lokið. Neytendur sem eiga umræddar vörur og eru við­ kvæmir fyrir sojaafurðum eru beðnir um að farga þeim eða skila þeim til framleiðanda gegn bótum. Morgunfrú Þetta fallega sumarblóm er einnig kröftug lækningajurt. Mynd VAlborg EinArsdóttir Blettina burt! Sumarið er fram undan með sínum óteljandi grillveislum og skemmtileg­ heitum sem þeim fylgja. Fólk klæðir sig gjarnan í betri fötin og hittir vini og vandamenn í grillgarðveislum. Grill­ in eru iðulega fyllt af grillkjöti, ham­ borgurum, banönum með súkku­ laði og öðru góðgæti og þessu er svo skolað niður með svaladrykkjum. Það er þó ýmislegt sem getur hellst niður og sullast í slíkum veislum og það get­ ur verið svekkjandi að fá tómatsósu, fitu eða rauðvín, svo ekki sé talað um fuglaskít, í fína sumardressið sitt. DV hefur tekið saman nokkur ráð, sem má finna á gorenje.is, við því hvernig best er að ná grilltengdum blettum úr fötum en við skulum muna að það eru ekki einungis börnin sem missa niður á sig mat. ryð Grillmeistarinn á alltaf á hættu að fá ryð í fötin ef um eldra grill er að ræða sem er byrjað að ryðga. Ef slíkt ger­ ist skal setja flíkina í bleyti í súrmjólk (hellið 2 msk/10 ml af ediki í mjólk­ urbolla til að sýra mjólkina) eða sítr­ ónusafa og nudda með salti. Flíkina skal setja í sólarljós þar til hún er orð­ in þurr. Einnig er hægt að slá létt á blettinn með efni til að fjarlægja ryð, oxalsýru eða blöndu af sítrónusýru og af vatni. Blandan skal vera einn á móti níu. gosdrykkir Gosdrykkirnir eru alltaf vinsælir í grillveislum en ef gos fer í flíkina skal nudda með ísköldu vatni. Ef það nægir ekki er gott að gera blettinn rakan með upp­ þvottalegi og láta standa í 4–5 tíma. rauðvín Það getur verið erfitt að ná rauð­ víni úr flík en ef bletturinn er nýr skal skola hann í vatni eða hvítvíni. Eins er hægt að dýfa flíkinni í sjóðandi mjólk og sláið síðan létt á með tærum uppþvotta­ legi. Ef um þurra bletti er að ræða skal setja flíkina í frysti til að rauðvín­ ið kristallist. Einnig er hægt að setja tæran uppþvottalög á blettinn og hafa á yfir nótt. sinnep Það er engin almennileg pylsa án sinneps en við viljum helst ekki fá það í fötin okkar. Ef það gerist má þó hella tærum uppþvottalegi á blett­ inn og hafa á í 5–6 tíma. Ef það eru smá blettaleifar eftir þvott, sláðu létt á blettinn með svolitlu bensíni eða blöndu af 25% ammóníaki og vatni. Blandan skal vera hálf matskeið af ammóníaki á móti hálfum lítra af vatni. tómatsósa Tómatsósan er annar fylgifiskur pylsuáts en við tómatsósublettum skal slá létt á blettinn með tærum uppþvottalegi og láta bíða í 5–6 tíma. Annað ráð er að leggja í bleyti í nokkra tíma í blöndu þar sem helmingur er vatn og helm­ ingur glýserín. Sé bletturinn enn greinanlegur eftir þvott, sláðu þá létt á með bensíni eða blöndu af 25% ammóníaki og vatni. Blandan skal vera hálf matskeið af ammón­ íaki á móti hálfum lítra af vatni. Ávaxtasafi Slíkur safi getur gefið mikinn lit sem er erfitt að ná úr fötum. Þá er best að skola blettinn strax með eins heitu vatni og efnið þolir. Fari bletturinn ekki alveg, sláið á með tærum uppþvottalegi eða leggið í bleyti í heita mjólk. Ef þörf kref­ ur, nuddið blettinn með fljótandi glýseríni og látið það vera á í 10 tíma eða gerið hann rakan með út­ þynntri edikssýru eða vetnisperox­ íði. Fita Auðvelt er að fá yfir sig fitu við grill­ mennskuna en flestir fitublettir fara úr við venjulegan þvott. Til þess að vera alveg viss um að bletturinn hverfi getur þú slegið létt á blettinn með tærum uppþvottalegi og geymt í plastpoka í nokkra tíma. brunablettir Eldur er nauðsynlegur hluti grills­ ins en sjóða skal brenndan fatnað við lágan hita með 1 bolla af sápu og hálfum lítra af mjólk. Þú getur líka slegið létt á blettinn með hvítu ediki. Ef flíkin er úr bómull, ull eða silki skal slá létt á blettinn með vetnisperoxíði. Þessi aðferð vinnur þó aðeins á lítið sviðnum blettum. bjór Ekki þarf að hafa áhyggjur ef bjórinn sullast niður á fínu fötin því bjór fer úr við venjuleg­ an þvott. b ananar Eftirlætis grilleft­ irréttur margra er grillaðir ban­ anar með súkku­ laði. Ef banan­ inn klessist í föt skal skola blettinn strax með eins heitu vatni og efnið þolir. Fari blett­ urinn ekki alveg, sláið á með tær­ um uppþvottalegi eða leggið í bleyti í heita mjólk. Ef þörf krefur, nuddið blettinn með fljótandi glýseríni og látið það vera á í 10 tíma eða gerið hann rakan með útþynntri edikssýru eða vetnisperoxíði. Fuglaskítur Það er alltaf hætta á að fá einn slík­ an yfir sig þegar setið er úti í garði í blíðviðri. Best er að bíða þar til blett­ urinn er þurr. Burstið eða skafið úr eins mikið og hægt er og skrúbbið svo með blöndu úr 2 matskeiðum af hvítu ediki og tveimur desilítrum af vatni. Fari bletturinn ekki skal gera hann rakan með tærum uppþvotta­ legi og láta vera í plastpoka í 4–6 tíma. n Það eru ekki bara börnin sem sulla niður á sig n Við fullorðna fólkið eigum það til líka n Flíkurnar okkar geta fengið á sig hinar ýmsu slettur n stundum þarf frum- leikinn að fá að njóta sín n bensín, oxalsýra og fljótandi glýserín geta gert gagn Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is grill fullt af mat Fita, sósur, rauðvín og ryð geta farið illa með fötin okkar. Mynd Kristinn MAgnússon „Það getur verið svekkjandi að fá tómatsósu, fitu eða rauðvín, svo ekki sé talað um fuglaskít, í fína sumardressið sitt. svona þværðu íþróttaföt Mismunandi föt getur þurft að þvo með ólíkum hætti. Margir halda að íþróttaföt þurfi að þvo á háum hita til að losna við svitann, því sviti lyktar jú. Það er hins vegar hinn mesti mis­ skilningur því fötin eru í raun ekki óhrein heldur aðeins svitaþrungin og þurfa ekki þvott við 60 gráður. Það er nóg að velja lægri hita jafnvel hitastig sem hentar viðkvæmum fatnaði. Með þessu haldast fötin lengur sem ný og þú ferð betur með umhverfið. Þessar upplýsingar auk annarra þvottaleið­ beininga má finna á gorenje.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.