Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2011, Side 16
16 | Erlent 16. maí 2011 Mánudagur Erlent | 17
Strauss-Kahn er sakaður um kynferðisbrot:
Segist saklaus
Dominique Strauss-Kahn, for-
stjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, var
handtekinn í New York á laugar-
dag en hann er sakaður um tilraun
til nauðgunar og kynferðislegt of-
beldi. Strauss-Kahn var handtek-
inn um borð í flugvél Air France á
John F. Kennedy-flugvelli, en flug-
vélin var í þann mund að leggja af
stað til Parísar. Strauss-Kahn gisti
á lúxus hótelinu Sofitel, steinsnar
frá Times-torgi, í svítu sem ku kosta
3.000 dollara fyrir nóttina, eða sem
samsvarar tæplega 350 þúsund krón-
um. Laust eftir hádegi mætti 32 ára
kona í svítu Strauss-Kahn til að þrífa
hana, en konunni hafði verið sagt að
gestur svítunnar væri búinn að skrá
sig út af hótelinu. Konan sagði í yfir-
heyrslu hjá lögreglu að þegar hún
hafi verið komin inn í svefnherbergi
hafi Strauss-Kahn birst skyndilega,
nakinn, nýkominn af baðherberg-
inu. Hann mun hafa elt konuna uppi,
dregið hana aftur í svefnherbergið og
neytt hana til munnmaka. Þegar lög-
reglan mætti á staðinn var Strauss-
Kahn á bak og burt, en ljóst þótti að
hann hafði yfirgefið svítuna í miklu
flýti og skildi meðal annars farsím-
ann sinn eftir.
Strauss-Kahn fær því ekki að yfir-
gefa New York um sinn en hann
átti að hitta Angelu Merkel, kansl-
ara Þýskalands, á sunnudag til að
ræða efnahagsvandræði Grikklands.
Fjölmiðlar hafa enn ekki náð tali af
Strauss-Kahn en lögfræðingur hans,
Benjamin Brafman, sagði að hann
myndi „lýsa yfir sakleysi sínu“. Blend-
in viðbrögð hafa verið við fregnun-
um af Strauss-Kahn í Frakklandi, þar
sem margir telja að verið sé að skaða
orðspor hans og að þar séu að verki
skjólstæðingar Nicolas Sarkozy, for-
seta Frakklands. Strauss-Kahn var
talinn líklegastur til að veita Sarkozy
samkeppni í forsetakosningum sem
fara fram í Frakklandi á næsta ári.
bjorn@dv.is
Tunick vill mynda
í Dauðahafinu
Bandaríski framúrstefnulistamaður-
inn Spencer Tunick, sem er heims-
frægur fyrir hópljósmyndir sínar af
nöktu fólki, á í vandræðum með að
fjármagna næsta verkefni sitt, en hann
hyggst taka ljósmyndir af hópi fólks
fljótandi á bakinu í Dauðahafinu. Þar
með er aðeins hálf sagan sögð, því
enn er alls óvíst hvort Tunick verði yfir
höfuð leyft að taka myndirnar – þar
sem bókstafstrúarflokkur í Ísrael hef-
ur heitið því að gera allt sem í hans
valdi stendur til að koma í veg fyrir að
myndatakan verði að veruleika.
Mannslíkaminn er listform
Tunick kom fram á blaðamannafundi
í Tel Aviv á dögunum og lýsti þar yfir
furðu sinni á því að hann væri yfir höf-
uð umdeildur í Ísrael. „Málið snýst um
að kynna mannslíkamann sem list-
form en ekki sem form kláms. Ég veit
að sumir eiga erfitt með að greina þar
á milli en greinarmunurinn er þarna
engu að síður.“
Það er stjórnmálaflokkurinn Shas,
sem er skipaður bókstafstrúargyðing-
um, sem hefur lýst sig andvígan inn-
setningarverki Tunicks. Myndi það
eflaust litlu skipta ef Shas-flokkurinn
væri ekki einmitt í ríkisstjórn Ísra-
els um þessar mundir – ásamt Lik-
ud-bandalagi Benjamins Netanyahu,
forsætisráðherra Ísraels. Þingmaður
Shas-flokksins, Nissim Zeev, sagði í
viðtali við ísraelska sjónvarpsstöð að
Tunick ætti ekki að búast við því að fá
leyfi til að framkvæma myndatökuna.
„Þetta er listrænn skepnuskapur. Við
verðum að hindra þennan spellvirkja í
að framkvæma þennan hneykslanlega
verknað. Við verðum að koma í veg
fyrir að þessi verknaður eigi sér stað í
landi Ísraels – um ókomna tíð.“
Vill vekja athygli á náttúrunni
Með myndatökunni í Dauðahafinu
vill Tunick vekja athygli á ört lækkandi
yfir borði Dauðahafsins, en talið er að
yfirborðið lækki um 40–60 sentimetra
á ári. Hafið er talið mikið náttúru-
djásn, auk þess sem talið er meinhollt
að baða sig í svartri leðjunni sem fyrir-
finnst á botni vatnsins. Tunick þykir
oft pólitískur í listaverkum sínum en
hann þvertekur fyrir að þetta verk hafi
beinan pólitískan tilgang gegn Ísrael,
en þess má geta að Tunick er sjálfur
gyðingur.
Vinsæll ljósmyndari
Þrátt fyrir óvinsældir Tunicks innan
Shas-flokksins, virðist hann vera í vin-
sælli kantinum annars staðar. Í öllu
falli þarf hann aldrei að hafa áhyggjur
af því að fólk hafi ekki áhuga á því að
fækka fötum fyrir framan myndavél-
arnar en nú þegar hafa 700 ísraelskir
háskólanemar skráð sig til að taka þátt
í verkefninu. Fyrir utan háskólanem-
ana hafa 2.000 einstaklingar af báðum
kynjum, á öllum aldri, einnig lýst yfir
áhuga sínum á þátttöku í verkefninu
en með myndum sínum vill Tunick
oftar en ekki benda á fjölbreytileika
mannkyns og leggur því áherslu á að
mynda fólk af öllum stærðum og gerð-
um – ekki aðeins sýningarstúlkur eða
nærfatamódel.
Nú hefur Tunick þrjár vikur til að
safna því fé sem til þarf til að gera lista-
verkið í Dauðahafinu að veruleika,
verði yfirhöfuð af því. Hann vantar um
60 þúsund dollara, eða sem samsvarar
um 7 milljónum íslenskra króna. Vilji
fólk styrkja verkefnið er hægt að fara á
vefsíðuna kickstarter.com og leggja fé
af hendi.
n Spencer Tunick ætlar sér að taka hópnektarmynd af fólki í Dauðahafinu
n Bókstafstrúarmenn ætla að gera hvað sem er til að hindra myndatökuna
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
„Þetta er listrænn
skepnuskapur.
Aldrei vandi að fá þátttakendur
Þessi mynd er frá myndatöku Tunicks fyrir
framan óperuhúsið í Sydney. Þar tóku þátt
5.200 manns, færri komust að en vildu.
Eftir óvæntan sigur Aserbaídsjan í
Söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva á laugardagskvöld, bend-
ir allt til þess að keppnin muni fara
fram í Bakú, höfuðborg Asera, að ári
liðnu. Aserbaídsjan er ekki áberandi
í fréttum en landið hlaut sjálfstæði
árið 1991, eftir að hafa verið hluti
af Sovétríkjunum bróðurpartinn af
20. öldinni. Það er stærsta landið á
Kákasussvæðinu og jafnframt það
fjölmennasta en þar er íbúatalan lið-
lega níu milljónir.
Aserbaídsjan er líka land mikilla
andstæðna. Þar hefur verið mikill
uppgangur undanfarin ár, þar sem
hagvöxtur hefur verið um 15 prósent
á ári. Mannréttindasamtök hafa þó
miklar áhyggjur af stöðu mála þar á
bæ og þar er einnig talin ríkja mikil
spilling á æðstu stöðum.
Verða í sviðsljósinu
Það voru þau Eldar Gasimov og Nig-
ar Jamal, eða Ell og Nikki, sem sungu
sig í hjörtu Evrópu með laginu Runn-
ing Scared. Í Söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva hefur mynd-
ast hefð fyrir því að landið sem fer
með sigur af hólmi taki að sér gest-
gjafahlutverkið árið eftir, þó það sé
ekki skylda. Fari svo að Aserar haldi
keppnina er ljóst að sviðsljósið mun
færast til Bakú, en Eurovision er
stærsti tónlistarviðburður í heimi
þar sem talið er að milli 150 til 190
milljónir manna sitji límdar við sjón-
varpsskjáinn þegar keppnin fer fram.
Miklar andstæður
Bakú hefur gjörbreyst á síðustu árum
eftir uppsveiflu í efnahag landsins.
Aserar eru auðugir af náttúruauð-
lindum en helstu útflutningsvörur
þeirra eru olía og gas. En þrátt fyrir
að Aserar hafi auðgast hratt þá rík-
ir þar mikil misskipting. Yfir 40 pró-
n Aserbaídsjan verður í sviðsljósinu í Evrópu á næsta ári n Mikil
uppsveifla hefur verið í efnahagslífinu síðustu ár n Afturhalds-
semi í stjórnmálum þar sem gagnrýni er barin á bak aftur
Sviðsljósið
verður á Bakú
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
Fögnuður Aserar
flykktust út á götur
til að fagna sigr-
inum í Eurovision á
laugardagskvöld.
Dominique Strauss-Kahn Hann var einnig sakaður um kynferðislegt áreiti árið 2008 en
málið var þaggað niður.