Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2011, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2011, Page 18
18 | Umræða 16. maí 2011 Mánudagur „Boltinn smellur í andlitinu á honum.“ n Guðjón Þórðarson, þjálfari BÍ/Bolungarvíkur, var ósáttur við vítaspyrnudóm sem leiddi til sigurmarks ÍR. Dæmd var hendi en Guðjón vildi meina að svo hefði ekki verið. – fotbolti.net „Ég er engin sílikon-bomba.“ n Söng- og leikkonan Þórunn Antonía Magnús- dóttir kemur afar léttklædd fram í Steindanum okkar en er stolt af því að sýna hvernig alvöru konur líta út. – DV „Ég hætti að borða brauð og viðbættan sykur.“ n Eurovision-farinn Matti Matt missti níu kíló á átján vikum. – DV „Þetta er rakin lygi og sýnir mest illkvittn- ina, öfundina og ógeðið sem menn eru að reyna að koma með.“ n Arnþrúður Karlsdóttir sagði ekkert hæft í sögum af slagsmálum Björns Vals Gíslasonar og Péturs Gunnlaugssonar á útvarpi sögu. – DV.is „Ég náði bílnúm- erinu.“ n Útvarpsmaðurinn Ómar Eyþórsson varð vitni að því þegar ökufantur keyrði utan í bíl og stakk af. Hann lét brotaþolann vita. – DV Hetjur gegn fordómum V axandi heilbrigðisvandi herj- ar á börn um þessar mund- ir. Fimmta hvert íslenskt barn við níu ára aldur er of þungt. Landspítalinn hefur opnað sérstaka deild fyrir of þung börn, vegna alvar- leika vandans. DV fjallaði um þennan vanda í síðustu viku. Rætt var við konu og ellefu ára dóttur hennar, sem glímt höfðu við matarfíkn og þær veittu öðrum innsýn í reynslu sína og lær- dóm. Viðbrögð lesenda létu ekki á sér standa. Fjölmargir lesendur létu ummæli falla við fréttina á DV.is, sem mörg hver voru góð viðbót við umfjöllunina. Hátt hlutfall þeirra nýtti hins vegar tækifæri sitt til að setja mark sitt á fréttina með því að mótmæla að nafn stúlkunnar og mynd af henni væru birt. Þeir mátu sem svo að það væri stúlkunni til hags- bóta að þagað yrði um vanda hennar, svo hún gæti forðast einelti. Viðhorf- ið var ekki bundið við lesendur. Þekkt fjölmiðlakona sagði á Facebook-síðu sinni að stúlkunni hefði verið „fórnað“, með því að sagt væri frá vanda hennar. „Hvernig á það að hjálpa stelpunni að birta mynd af henni og tala um hversu þung hún er og matarsjúk?“ spurði les- andi í ummælum við fréttina. Andstaðan meðal hópsins virtist eiga rót sína í því viðhorfi að matar- fíkn barna væri svo skammarleg að mæðgurnar ættu að þegja um hana, eða í það minnsta að hylja nafn sitt og persónueinkenni ef þær myndu tala. Auðvitað á ekki að tala opinberlega um vandamál barna án þess að þau vilji það. Í þessu tilfelli voru stúlkan og móðirin reiðubúnar til að stíga fram og ræða vandann. Stelpan hafði þegar upplýst flesta í sínu nærumhverfi um matarfíknina. Það sem gagnrýnendur mæðgnanna fóru fram á var að móð- irin hefði vit fyrir stúlkunni, og að DV kæmi líka í veg fyrir að fólk og börn töluðu opinskátt um þessa hluti, til að koma í veg fyrir að verða sér til ein- hvers konar skammar. Sambærileg umræða átti sér stað um einelti fyrr á árinu. DV ræddi við móður og son í Hveragerði, sem voru ráðþrota gagnvart einelti sem dreng- urinn varð fyrir. Hann var hættur að fara í skólann. Flestir lýstu stuðningi við strákinn og móður hans, en það viðhorf heyrðist víða að drengnum væri enginn greiði gerður með því að talað væri um vanda hans, enda gæti hann orðið fyrir enn verra einelti fyrir vikið. Að hann hefði átt að bera harm sinn í hljóði til að forðast frekari skaða. En krafan um að fólk þegi um vandann er veigamikill hluti af virkni fordóma í samfélaginu. Þetta er hluti af því að ýta fólki sem er „öðruvísi“ út á jaðarinn. Oft er það fólkið sem vill vernda aðra fyrir sjálfum sér, sem veldur mestum skaða. Í gegnum tíðina hefur það gerst að slík viðhorf hreinlega búa til vandamál. Ekki eru margir áratugir síðan „vanda- mál“ samkynhneigðra átti að vera fal- ið fyrir augum annarra, meðal annars þeim sjálfum til verndar. Vandamálið reyndist hins vegar ekki vera neitt ann- að en duldir og opinberir fordómar fólks. Samkynhneigðar hetjur, eins og Hörður Torfason og margir fleiri, náðu að uppræta viðhorfið – ekki með þögninni, heldur með því að stíga fram og tala – ekki undir nafnleynd. Það eru hræðileg skilaboð frá full- orðnu fólki til barna, sem eru lögð í einelti, að þau eigi að þagna, svo þau verði ekki lögð í meira einelti. Við eig- um þvert á móti að styðja börn til að tjá sig um það sem þeim liggur á hjarta og þau vandamál sem hrjá þau, frekar en að senda þeim þau skilaboð að eðli- legast sé að þau þegi og leyni vanda- málum sínum. Þeir sem verða fyrir for- dómum og einelti þurfa rödd, en ekki þögn. Mæðgurnar sem deildu reynslu sinni af matarfíkn með öðrum eru umfram allt brautryðjendur og hetjur. Skömmin er öll hjá fólki sem vill að þær hverfi inn í skel sína. Leiðari Ertu sáttur við úrslit Eurovision? „Nei, mér finnst þetta frekar leiðinlegt lag, en það er ekkert við því að gera,“ segir Eurovision-sér- fræðingurinn Dr. Gunni um Running Scared, sigurlagið í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, sem var framlag Aserbaídsjan. Spurningin Bókstaflega Jón Trausti Reynisson ritstjóri skrifar.„Þeir sem verða fyrir fordómum og einelti þurfa rödd, en ekki þögn. Samlyndir sakamenn n Ein af fréttamyndum ársins náðist við opnun Hörpunnar um helgina. Myndin sýnir tvo af umdeildari mönnum landsins, Björgólf Guð- mundsson og Árna Johnsen, ásamt eiginkonum sínum. Báðum var þeim boðið á opnun hússins. Árni og Björgólfur hafa báðir hlotið fangelsisdóma fyrir hvítflibbag- læpi. Báðir eiga það sömuleiðis sam- eiginlegt að hafa snúið aftur og gegnt mikilvægum og áberandi störfum í þjóðlífinu eftir að hafa hlotið þessa fangelsisdóma. Björgólfur hlaut upp- reisn æru hjá Fjármálaeftirlitinu árið 2002 þegar stofnunin kvittaði upp á hæfi hans til að eiga Landsbankann og Árni Johnsen hlaut uppreisn æru hjá flokksbróður sínum Birni Bjarnasyni, og öðrum handhöfum forsetavalds árið 2006, sem gerði honum kleift að setjast aftur á Alþingi. Báðar þessar endur- komur hafa þótt mjög umdeildar, og þá sérstaklega syndaafskrift Björg- ólfs í ljósi þess hvernig hann fór með Landsbankann á nokkrum árum. Myndin sagði því meira en mörg orð um íslenskt samfélag. Þaninn Kristján n Kristján Jóhannsson óperusöngvari var einn þeirra listamanna sem steig á svið við opnun Hörpu á föstudaginn. Söngvarinn hefur afar kraftmikla rödd líkt og allir vita sem hafa heyrt hann syngja. Þessi kraftur Kristjáns var mjög augljós í Hörpunni á föstudaginn þegar þjóðsöngur Ís- lands, Ó Guð vors lands, var sunginn í fjöldasöng. Rödd Kristjáns skar sig þá svo mjög úr fjöldasöngnum að engu líkara var en tenórinn kraftmikli væri að reyna að syngja einsöng. Segja má að helstu kostir, en jafnframt helstu gallar, Kristjáns hafi því komið fram í fjöldasöngnum. Einn helsti kostur Kristjáns sem söngvara er vissulega mikill kraftur en einn helsti ókostur hans er jafnframt að krafturinn getur stundum borið hann ofurliði þannig að hann ofþenur sig. Okurharpan n Mikill gestagangur var í Hörpu um helgina. Þá var opið hús í tónlistarhús- inu glæsilega. Almenningur lét þetta tækifæri til að skoða Hörpuna ekki fram hjá sér fara og þurftu einhverjir gestir frá að hverfa á laugardaginn vegna mannmergðar. Gestir Hörpu fjölmenntu einnig á kaffihúsið í bygg- ingunni, sem ber hið skemmtilega nafn Munnharpan. Kaffihúsið ætti hins vegar frekar að heita Okurharpan þar sem það er nánast fáránlega dýrt. Munnharpan rukkar gesti Hörpu um 700 krónur fyrir rúnnstykki með skinku og osti og 400 til 500 krónur fyrir vont kaffi sem einfaldast væri að lýsa sem bensínstöðvaglundri. Ýmsir gestir Hörpunnar voru ósáttir við þetta fráleita verðlag en samkvæmt því mætti ætla að nota eigi Munnhörpuna til að niðurgreiða byggingarkostnað tónlistarhússins. Sandkorn tRyGGVAGötu 11, 101 REykjAVÍk Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir Ritstjórar: jón trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir traustason, rt@dv.is Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is Ritstjórnarfulltrúi: jóhann Hauksson, johann@dv.is Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is Umsjón innblaðs: Ásgeir jónsson, asgeir@dv.is DV á netinu: dv.is Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010, Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050. Smáauglýsingar: 512 7004. Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. j ón Bjarnason sker sig úr í röðum sjávarútvegsráðherra. Í mörg ár er hann sá fyrsti sem lítur emb- ættið öðrum augum en að ganga einvörðungu erinda hagsmunaaðila. Jón nýtur enda trausts eigin ríkis- stjórnar, þings sem og lunga þjóð- arinnar. Hagsmunasamtök útgerð- arinnar hafa siglt á ítökum sínum í flokkum, fjölmiðlum og mentastofn- unum og málsvarar kvótakerfisins byggt vörn sína á takmarkaðri auð- lind, hagræðingu og illri afkomu greinarinnar í árdaga. Þessi rök hitta þá sjálfa nú fyrir. Knýjandi þörf er á uppstokkun fiskveiðistjórnunar og sömuleiðis að endurtaka ekki þau mistök sem gerð voru með gjafakvót- anum. Útvegurinn fékk á sínum tíma for- gang á veiðirétti enda ljóst að flot- inn var of stór. Hagræðingin: Færri útgerðir og stærri, hinir sem hætta, borgaðir út. Þetta leiddi til stigvax- andi verðmætaaukningar á veiðirétti sem endaði í hagfæðilegu svartholi. Í þessu kristallast nú vandi útgerðar- innar: Sjávaútvegsfyrirtæki og bankar eru samrassa þurs og getur hvorugt án hins verið. Skuldir útvegsins eru 500 millj- arðar. En það er ekki vegna lítillar arðsemi fiskveiðanna sjálfra. Grein- in hefur sprungið út í aukinni eftir- spurn eftir fiski, hækkun fiskverðs og gengi krónunnar bætir enn í. Vand- inn er ekki gjaldþrot sjávarútvegsins sjálfs heldur gríðarlegt útstreymi pen- inga þaðan í annað. Og þennan pakka vilja hagsmunasmtök útgerðarinnar ekki borga heldur eftirláta þjóðinni. Óbreytt kvótakerfi viðheldur samspili banka og útgerða og mjólkurkýrin al- menningur. Í þessari blekkingu taka stjórnmálaflokkar þátt, fjölmiðlar og háskólasamfélagið. Staðan er svona: Hvað varðar fiskveiðistjórn notuðu markaðslög- málin ekki tækifæri sitt heldur mis- notuðu. Einokun veiðiréttarins og útstreymi arðs sýnir sig nú í afskrift- um skulda, úreltum fiskiskipum, byggðaröskun og láglaunavæðingu. Ein versta birtingarmynd ofan- nefndrar misnotkunar er þó veð- kröfur í erlendum bönkum. Þær eru sönnun hugarfars sem hugsunar- laust hættir rétti komandi kynslóða. Kerfisbreyting liggur því í loftinu, það er krafa bæði þings og þjóðar. Og nú er nýtt kvótafumvarp á leiðinni. Þar eru boðaðar tíma- mótabreytingar, flestar löngu tíma- bærar. Mótstaða hagsmunaaðila er í samræmi við fyrri útspil og leggi út- vegsmenn flotanum verður svo að vera. Fiskinum er sama og þjóðinni er sama. Eða eins og Jesús sagði: „Komi þeir sem koma vilja, veri þeir sem vera vilja og fari hinir með friði.“ Sjávarútvegsráðherra í ölduróti Kjallari Lýður Árnason

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.